Hættulegt - en fyrir hvern?

Ég hef leiðrétt þessa frétt vegna þess að ég hafði ekki fengið réttar upplýsingar um stöðu mála, hér er það sem RAUNVERULEGA fór fram:

 


Hver dæmi fyrir sig! 

mbl.is Bílstjórar „taka hvíldartíma"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég verð á útvarpi sögu í fyrramálið!

malfrelsi

Ég fer í viðtal í þáttinn "rödd alþýðunnar" á útvarpi sögu. Ég ásamt Skúla Skúlasyni sitjum fyrir svörum hjá Markúsi Þ. Þórhallssyni. Þetta byrjar klukkan sjö í fyrramálið og hvet ég alla til þess að hlusta á þáttinn!

Þátturinn verður held ég endurfluttur eftir hádegi og þurfa ekki allir að vera morgunhanar! Cool

Hægt er að hlusta á beina útsendingu hérna. 


Hræsnarar!

Ekki fylgja þeir sínum eigin reglum þótt kvartað sé undan öðrum bloggurum og nafnlausum ofstækismönnum. Það er bara til eitt orð yfir það: HRÆSNI!



mbl.is Óánægja með lokun umdeilds bloggs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nafnleysingjar bloggsins ... eru þeir huglausir?

Í ljósi þess að DoctorE var hafður að umtalsefni í Íslandi í dag nú undir kvöld, vildi ég velta eftirfarandi spurningum upp.

  1. Er allt í lagi að menn komi fram undir nafnleynd, og í skjóli þess ausa hvaða svívirðingum sem er yfir allt og alla?
  2. Myndu þessir sömu menn vera jafn hugrakir undir eigin nafni og jafnvel með mynd?

Ég get þó borið virðingu fyrir þeim sem eru mér og öðrum ósammála að sýna það hugreki að koma fram undir nafni. Ég tek fram að ekki allir nafnleysingjar eru svona og eru margir þeirra hreint frábærir, þess vegna leyfi ég athugasemdir frá þeim, og verður ekki breyting á því í bráð. En þetta eru bara vangaveltur þar sem Dokksi leyfir sér að segja í umræddri færslu sinni:

Svavar hlýtur að teljast einn lélegasti prestur íslandssögunnar, það er hreint viðbjóðslegt að lesa helgislepjuna hjá honum sem hann er að baxla við að setja í einhverja heimspekilega mynd en mistekst hrapalega, það er ekki vottur af heimspeki í neinu sem hann skrifar, þetta er allt eitthvað torfkofakrot með helgislepju ívafi, hann fær borgað fyrir að ljúga í mig og þig.
Ég ætla samt að þakka honum því allur hans málflutningur er ekkert nema nagli í kistu þjóðkirkju og lygasögunnar miklu

Það  er reyndar rétt hjá honum að bænin er örvænting, hún er uppgjöf, hún er fáfræði, hún er samnefnari fyrir allt það slæma sem til er... hún er lygi en hann selur þér hana samt
Bara hann einn er lýsandi yfir þá hættu sem skapast ef hans líkar fá aðgang að börnum í grunnskólum... þá hörmung er ekki hægt að hugsa til enda
Væmnin í honum ef þið viljið ÆLA.

Sér virkilega enginn hræsnina í þessu? Þarna nafngreinir hann einstakling og bókstaflega blammerar hann! Blogginu hans Skúla var lokað (sem hafði þó dug og þor að koma undir eigin nafni), en svona gaurar fá að vera óáreittir sem gera oft margar færslur á dag að kalla trúarbrögð og þeim sem þeim tengjast heimsk, þar á meðal menn eins og mig.

Eru menn þá virkilega stoltir af svona orðum bak við nafnleyndina? Og myndu þeir láta svona útúr sér undir eigin nafni ... eða hvað? Myndum vera betur sett ef nafnleysi væri bannað? Nei ég bara veit það ekki ... hvað finnst ykkur? Woundering


Bendið mér á hvað er svona slæmt við að vera kristinn!

krossKallaÉg spyr eins og auli:
  1. Hvað er svona rangt að boða að elska náunga þinn eins sjálfa/nn þig?
  2. Hvað er að því að eiga trúa á ósýnilegan Guð?
  3. Hvað er að því að vilja veitum öðrum þá gleði sem við höfum upplifað sjálf í hjarta okkar?
  4. Af hverju höfum við ekki rétt á okkar skoðun lengur?
  5. Af hverju má gagnrýna einn en hin yfir öðrum er haldið hlífiskildi?


Ef einhver getur svarað öllum þessum spurningum og sannfært mig um villu mína þá hætti ég að tjá mig um trúmál.

Myndin fenginn að láni og með góðfúslegu leyfi frá snilldar áhuga ljósmyndaranum Karli J. Thorarensen 


Góðir áhuga ljósmyndarar ...

Eftir að hafa valdið þvílíkum usla seinustu daga þá ákvað ég að benda á nokkra góða íslenska ljósmyndara. Ég er sjálfur annálaður slæmur ljósmyndari, þótt listamaður sé. Mér tekst aldrei að taka góða mynd og dáist að öðrum sem tekst þetta.

Pétur Einarsson er ógeðslega góður ljósmyndari, og hefur tekið frábærar myndir bæði frá Danmörk og Suður-Ameríku. Smella hér fyrir myndavefinn hans.

Hér er sýnishorn frá Pétri:

 

petur

 

Karl Jónas Thorarensen er einnig alveg frábær, hann virðist hafa þetta auga sem mig skortir. Smella hér fyrir myndirnar hans.

Hér er sýnishorn frá Kalla:

 

kalli

 


Til fyrirmyndar! Lærum af norðmönnum!

Sodom_and_GomorrahGott hjá nossörunum! Svona á að koma í veg fyrir misnotkun, ofbeldi og framsal á konum! En auðvitað eru íslendingar samþykkir svona löguðu, í þessu innilega pólitískt rétta samfélagi sem er hér á fróni vilja allir hugsa um sjálfskapað "frelsi" í svona málum.

Ég get ekki betur séð en þetta frelsi felist einungis í greddu einstaka karlmanna, það versta er hvað þessir einstöku karlmenn eru skelfilega háværir!

Líkami kvenna er að mínu mati meistarastykki drottins, slíka fegurð á ekki að fela og er ég ekki að mæla með slíku, en þegar þetta snýst aðeins um losta og greddu, þá set ég stólinn fyrir dyrnar.

Þessi nýja vændislöggjöf finnst mér jafn heimskuleg og það að kalla: "stripp" nafninu "listdans" ... fyrr má nú vera háfleygu orðin sem notað er um hreina greddu! Sheeeeesh ... köllum þetta bara réttum nöfnum!

Ef við höldum ekki vörð um frelsið, hvar endum við þá? Viljum við virkilega vera kölluð "Sódóma" og "Gómerra" norðursins eins margir gera í útlöndum? Er það mannorðið sem íslendingar vilja eignast? Verði ykkur að góðu þið sem styðjið þessa arfaheimsku vændislöggjöf!


mbl.is Kaup á kynlífsþjónustu gerð refsiverð í Noregi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ritskoðun moggabloggsins

Í landi skoðana frelsis og endalausrar umbyrðarlyndis er valinn leið sem ég tel vera vítaverða árás á skoðana frelsi og tjáningu. Menn setja upp reglur, boð og bönn, af hverju er þá ekki farið eftir þeim?

Í skilmálum moggabloggsins stendur:

Notandi samþykkir að miðla ekki ólöglegu efni, áreiti, hótunum, særandi skrifum eða nokkru öðru sem getur valdið skaða. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að grípa inn í, bregðist notandi ekki við óskum eða tilmælum um leiðréttingar/lagfæringar á skrifum sem teljast meiðandi eða brjóta gegn skilmálum þessum. Jafnframt áskilur Morgunblaðið sér rétt til að loka síðu notanda, að hluta til eða í heild, án þess að notandi eða þriðji aðili öðlist skaðabótarétt.


Gott og vel, ég get vel tekið undir þessa skilmála og verið 100% sammála þeim. En eiga þessir skilmálar bara við um ákveðnar skoðanir? Af hverju er það þá þannig að bara vissir aðilar mega gera kannski 15 færslur á dag og tala niður til trú annarra? Það er greinilega ekki sama hvað viðfangsefnið er og hver það er sem skrifar.

Bloggsíðu Skúla Skúlasonar var lokað í gær, hann var afar umdeildur vegna þessara þýðinga sinna á greinum sem hann vísaði til. (P.s. ég geri mér sjálfur fulla grein fyrir Íslamistum (Öfgahópnum) og venjulegum hófsömum múslimum og eru þeir ekki undir sama hatt. Bara svo það sé á hreinu.)

En þessi málflutningur minn snýst ekki um Íslam, heldur duttlungasemi moggamanna. 

Á Íslandi á að vera svokallað "Málfrelsi", en er það fótum troðið þegar menn með ákveðnar skoðanir eru þaggaðar niður, og eru einhliða þaggaðir niður því eigi má gagnrýna ákveðnar stefnur sem hafa greinilega meira friðhelgi en aðrar. Á meðan er öðrum leyft að komast upp með hvað sem er.

Öll höfum við rétt á okkar skoðun þótt hún virðist vitlaus fyrir öðrum, kúgun og hótannir eru ekki rétta leiðin að mínu mati.

Þetta heitir einu orði HRÆSNI ! 

Ég horfi uppá menn á hverjum einasta degi tala gegn kristni og öðrum trúarbrögðum en Íslam. Ekki er hróflað við því fólki þótt kvartað sé. Enn og aftur HRÆSNI!

Ritað er:

Markúsarguðspjall 3:24-25

24 Verði ríki sjálfu sér sundurþykkt, fær það ríki eigi staðist,
25 og verði heimili sjálfu sér sundurþykkt, fær það heimili eigi staðist. 

Ofangreint vers finnst mér sannarlega eiga við ritstjórn mbl bloggsins. 

Eitt á að ganga yfir alla, og skil ég ekki afhverju moggamenn fara ekki eftir sínum eigin skilmálum. Og snýst um að virða lýðræðislegar skoðannir annara, sem enginn þarf að vera sammála en rétturinn er þó ætíð til staðar. Þetta hefur verið virt að vettugi. Angry

Reynum að virða rétt annarra til þess að tjá sig, og ræða hlutina án þess að beita kúgun og þagnarrefsingum. 

P.s. ef þessi síða er lokuð á morgun, vitið þið hvað hefur gerst. Wink

Góðar stundir. 

 


Hef aldrei séð annað eins! Og bið þess bænar að hann læknist!

Ég bið þess bænar að Guð lækni þennan vesalings mann af þessum skelfilega sjúkdómi! En ég hef aldrei nokkurn tíma augum litið jafn reyfarakenndan sjúkdóm eins og hann er með. Því hann fékk viðurnefnið "trjámaðurinn" með rentu.
mbl.is „Trjámaðurinn" á batavegi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

KEÐJUstund ....

Linda skoraði á að seinasta grein mín hér yrði að einskonar "keðjubloggi".

Hver hefur hugrekki til þess að verða við því? Wink Og snýst þetta jú allt saman um bensínverð! Cool


mbl.is „Kyrrðarstund" við Alþingi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mótmælum (en á annan máta en að lama samfélagið) !!!

Vörubílstjórar eiga allan minn stuðning, og styð ég þeirra barrátta heilshugar. En til eru aðrar leiðir en lama samfélagið á þann sem sem þeir gerðu um daginn. Sú aðgerð heitir "boycott" uppá enskuna og langar mig að bera upp eftirfarandi hugmynd upp...

Sorglegt ...

En svona er þessi mikli menningarmismunur, það stendur jú í fréttinni: Í Jemen er enginn löglegur lágmarksaldur fyrir hjónaband, og sagði lögfræðingur stúlkunnar að hennar mál væri ekki einsdæmi. Þetta segir talsvert um þann mikla múr sem er á milli...

Þarf Guð hjálp til að heyra bænir?

Halda þessir menn að Guð þurfi þeirra hjálp til að heyra bænir? Virðist vera lítill guð sem þeir eru þarna að þjónusta þar sem hann þarf þeirra hjálp. Nei, Guð almáttugur þarf ekki hjálp þessara manna því Hann veit allt sem hægt er að vita um okkur;...

Þetta verður að leysa!

Áður en það kostar mannslíf! En kemur samt ekki á óvart miðað við núverandi ástand hjá stjónvöldum, öllu er lofað en EKKERT er gert. Af hverju kjósa 40 og eitthvað prósent þjóðarinnar alltaf sömu vitleysinganna? Ég bara skil það ekki! Skilur enginn hvað...

Minnir á: The Crying Game

Þessi vesalings maður lendir í atviki sem minnir óneitanlega á myndina The Crying Game , og sýnir þetta og sannar að betra er að vera heiðarleg/ur sama hvað eða hver á í hlut.

Hver er þessi Guð og er hann dæmandi?

Margir efasemdarmenn halda því fram að Guð sé refsandi "súperkarl" uppí himni sem getur ekki beðið eftir að hegna þér og dæma til vítisvistar. Þessi fullyrðing er alfarið röng og vil ég aðeins útskýra afhverju. Tökum smá dæmisögu: "Til voru tveir vinir...

Sniðgöngum Ólympíuleikanna!

Laumast var með eldinn hingað til lands, fréttamenn voru bannaðir og íslendingar vissu varla um þetta atvik. Ég vona að ráðamenn þessarar þjóðar sjái sér fært að koma auga á það mikla ranglæti sem kínversk stjórnvöld beita Tíbet búum og skora ég á þá að...

Afhverju eru þá flestir karlmenn blankir þá?

Ef þessi heimska rannsókn reynist rétt. Auk þess er hún niðurlægjandi fyrir konur rannsóknin sem slík! Ég gef frat í svona vísindi og finnst svona rannsóknir barnalegar og greinilega gerðar af einhverjum körlum sem eru með ofvirkt...

Lifi byltingin!

Ég reyndar verð að viðurkenna að ég rétt slapp við þetta .... En hef samt lent í miklum töfum vegna svona undanfarna daga. Þeir hafa náð að kríja útúr bensínstöðvunum lækkun í einn sólarhring. En svo hækkaði verðið aftur í dag og hvað gera bændur nú?...

Kóngur í ríki sínu ...

E itt sinn var konungur einn sem Geir hét, og var hann kallaður Geir hin Harði. Áður fyrr vann hann fyrir sér sem gjaldkeri konungs, en vegna ættar sinnar og blóðs tók hann við konungs embættinu seinna. Hann tók við góðu og ríku búi af forvera sínum,...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Guðsteinn Haukur

Guðsteinn Haukur Barkarson
Guðsteinn Haukur Barkarson

"Our life is a gift from God,
what we do with that life,
is our gift to God"

Höf. óþekktur

Sjá höfundasíðu fyrir ákveðna skilmála og upplýsingar um bloggarann 

Önnur snilld...

Hvaða þjóðir heimsækja þetta blogg?

free counters

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.1.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 26
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Skoðanna könnun

Á að aðskilja ríki og kirkju?

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband