Lifi byltingin!

Ég reyndar verð að viðurkenna að ég rétt slapp við þetta .... Blush En hef samt lent í miklum töfum vegna svona undanfarna daga. Þeir hafa náð að kríja útúr bensínstöðvunum lækkun í einn sólarhring. En svo hækkaði verðið aftur í dag og hvað gera bændur nú?

Lifi byltingin, lifi hugsjónin, lifi frelsið!

Ég vona bara að enginn skaddist vegna þessa ... þá á ég við sjúkraflutningsbíla og annað sem þurfa jú að komast sína leið! 


mbl.is Kringlumýrarbraut opnuð á ný
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Aida.

Biðjum fyrir sjúkrabílum og vörubílstjórum en einnig alla sem taka þátt í þessari baráttu fyrir réttlætinu.

Aida., 3.4.2008 kl. 08:38

2 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Amen Arabína! Tek heilshugar undir þín orð!

Guðsteinn Haukur Barkarson, 3.4.2008 kl. 08:40

3 Smámynd: Svala Erlendsdóttir

Eg var einmitt í 45 mín. á leið í vinnu í gær, miðvikudag, sem ég er annars í mesta lagi 20 mín. að keyra. Var á nippinu að verða bensínlaus í miðri ösinni.

En ég styð þessi mótmæli algjörlega 

Svala Erlendsdóttir, 3.4.2008 kl. 08:40

4 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Já, Svala - ég lenti svipuðu í gærmorgun .. nema hvað ég var með fullan tank. En öll verðum við að færa fórnir stundum. 

Guðsteinn Haukur Barkarson, 3.4.2008 kl. 08:51

5 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Ég styð þessi mótmæli 100%

Gunnar Helgi Eysteinsson, 3.4.2008 kl. 09:38

6 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Rock on Gunnar!

Guðsteinn Haukur Barkarson, 3.4.2008 kl. 09:41

7 Smámynd: Bumba

Halló halló, og góðan daginn. Styð þessi mótmæli áfram og einnig þær stéttir sem munu fara að byrja að mótmæla innan skamms. Það er ekki hægt að pína þjóðina svona endalaust. Sit gjarnan í ösinni tímunum saman til að styðja þetta. Þó er ég ekkert sérstaklega hrifinn af þessum þungavörulandflutningum á landsvísu, mér finnst á stundum að strandflutnigar ættu að hefjast upp á nýtt. Nóg um hvort ég sé á móti þessum flutningum eður ei, stuðning minn skulu þessir bílstjórar fá. Og hana nú.

Skrýtið, hef ekki heyrt Borgarnesflagðið ýja einu orði að þessum mótmælum. Bara ánægð að vera kominn í kjötkatlana til þess að eyða og spenda upp á nýtt eins og þegar hún var í borginni. Yrði ekki hissa þó hún yfirgæfi Samfylkinguna og færi í Sjálfræðisflokkinn. Efast þó um að hún fengi inngöngu.

Bumba, 3.4.2008 kl. 09:54

8 Smámynd: Kjartan Guðmundur Júlíusson.

Hef verið að hugsa dálítið.Hvað myndi gerast ef allir bílstjórar á hvernig farartæki sem er stórt eða smátt. Einka eða atvinnu myndu taka sig allir saman og versla olíu eða bensín alltaf hjá sama fyrirtækinu. láta hin félögin finna fyrir því. Ég veit að margir eða mörg fyrirtæki eru með kort hjá hinu og þessu olíufélaginu. En hvað með það ?.Margt smátt gerir eitt stórt ekki satt.

Amen

Zeriaph please pray for me to.

Kjartan Guðmundur Júlíusson., 3.4.2008 kl. 09:59

9 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

hehehe ... nákvæmlega Bumba, takk fyrir þitt stórgóða innlegg!

Guðsteinn Haukur Barkarson, 3.4.2008 kl. 10:00

10 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Kjartan - það mun ég gjöra og er ekkert sjálfsagðara. En veltir upp hugmynd sem ég er ekki alveg sammála. Ég myndi frekar vilja refsa þeim með því að sleppa því að kaupa nokkuð annað en olíu eða bensín. Því ekki getum við án eldsneytis verið. Hvernig hljómar það?

Guðsteinn Haukur Barkarson, 3.4.2008 kl. 10:02

11 Smámynd: Bumba

Guðsteinn minn, hann er ennþá í lífshættu drengurinn, Björgvin, en er haldið sofandi. Það er búið að loka brjóstholinu og virðist sem blæðiningin hafi minnkað til muna, en síðast þegar ég heyrði þá vætlaði alltaf eitthvað blóð úr ósæðinni. En það er kraftaverk útaf fyrir sig að hann er ennþá á lífi. Keep up the good work, og höldum áfram að biðja honum bata. Með beztu kveðju.

Bumba, 3.4.2008 kl. 10:06

12 Smámynd: Kjartan Guðmundur Júlíusson.

Það hljómar mjög vel. 

Kjartan Guðmundur Júlíusson., 3.4.2008 kl. 10:42

13 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Bumba - sko, ég hef notað öll þau "sambönd" sem ég hef. Og hefst nú upptalningin: Kristilega útvarpsstöðin Lindin er kominn í málið og er bænarefnið lesið upp þar. Ég hef sent þetta sem bænarefni til Hvítasunnukirkjunnar, Íslensku krists Kirkjunnar og svo höfum við hjónin beðið fyrir þessu og vona ég svo sannarlega að náð Guðs verði yfir þessum dreng svo að hann haldi lífi. Og mun ég ekki gefast upp að biðja fyrir honum, hvorki ég né kona mín.

Kjartan - frábært !  

Guðsteinn Haukur Barkarson, 3.4.2008 kl. 10:51

14 identicon

Hefur einhver pælt í því hversu stuttan (eða langan) tíma það tæki að setja olíufélögin á hausinn? T.d. ef allir landsmenn tækju sig nú til og þrjóskuðust við að nota einfaldlega bílana ekki neitt. Allir með strætó, á hjóli eða tveimur jafnfljótum. Auðvituð myndu örfáir VIP-ar á glæsikerrum ekki taka þátt, enda þurfa þeir að vera snöggir á mikilvæga fundi, eins og ISG og GHH þurftu að vera snögg á NATO fund.

En hversu mikið myndi félögunum blæða ef einhver stór prósenta af landsmönnum myndi hætta að kaupa bensín í eina viku? 

bjkemur (IP-tala skráð) 3.4.2008 kl. 14:13

15 Smámynd: Bumba

Hjartans þakkir Guðsteinn minn, aftur og aftur hjartans þakkir.  Ég læt aðstandendur vita. Með beztu kveðju.

Bumba, 3.4.2008 kl. 16:51

16 Smámynd: Birna M

ég styð aðgerðirnar hundraðprósent, því þrátt fyrir að Nojarinn þurfi að borga meira fær hann helmingi fleiri lítra á tímakaupið en Íslendingurinn og það eru ekki vörubílstjórar eða aðgerðir sem skapa hættuna heldur illa hannað  og illa hirt gatnakerfi. Ég bið líka fyrir þessu öllu.

Birna M, 4.4.2008 kl. 10:38

17 Smámynd: Halla Rut

Þeir eru flottir en veit ekki hvort þetta skili miklu.

Halla Rut , 4.4.2008 kl. 21:19

18 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Hér er stuð!

Sigurður Þórðarson, 5.4.2008 kl. 01:14

19 Smámynd: Jens Guð

  Hér er greinilega fjörið.  En gleymum því ekki að fyrrum olíuforinginn,  Kristinn Björnsson sem fór fyrir verðsamráði,  og kona hans sem lét hanna undir sig gullklósett,  hafa tapað yfir 400 milljónum í röngum fjárfestingum. 

Jens Guð, 5.4.2008 kl. 01:29

20 identicon

Ég styð allt það sem minnir stjórnarmenn á að fleiri en þeir lifa í þessu landi.Þeir fánefnilega flest allt frítt.Nenni ekki að kryfja það en get það.

Bless í bili,Guðsteinn minn,þú ert ötull.

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 5.4.2008 kl. 05:09

21 identicon

Bestu helgarkveðjur héðan.

Lengi lifi byltingin og.....

Petur Einarsson (IP-tala skráð) 5.4.2008 kl. 10:24

22 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæll Guðsteinn minn. Sá nýja mynd af þér sem er dökk og ég skoðaði nánar myndina. Er lögreglana að taka þig fyrir óspektir eða hvað? Sé keðjur á myndinni. Hvað er eiginlega í gangi?

Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 5.4.2008 kl. 14:45

23 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

HAhahahaha ... nei Rósa mín, svo gott er það ekki. Þetta er tekið þar sem ég sit á hengibrúnni í Kjarniskógi á Akureyri.

Pétur - já, byltingin lengi lifi!

Þórarinn - sammála. 

Jens - góður punktur og gleymum því ekki. 

Siggi -

Halla Rut - það kemur ljós. 

Birna M - veitir ekki af fyrirbæn. 

Bumba - ekkert mál. 

Bjkemur - slíkt gengur ekki upp, þú veist vel að íslendingar missa lappirnar þegar bílprófið er tekið. 

Guðsteinn Haukur Barkarson, 5.4.2008 kl. 14:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Guðsteinn Haukur

Guðsteinn Haukur Barkarson
Guðsteinn Haukur Barkarson

"Our life is a gift from God,
what we do with that life,
is our gift to God"

Höf. óþekktur

Sjá höfundasíðu fyrir ákveðna skilmála og upplýsingar um bloggarann 

Önnur snilld...

Hvaða þjóðir heimsækja þetta blogg?

free counters

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 587882

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Skoðanna könnun

Á að aðskilja ríki og kirkju?

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband