Bloggfærslur mánaðarins, september 2008

Taedium apices bloggus ...

broken-glasses1.jpgAfskapleg bloggþreyta hefur hrjáð mig undanfarið, og svo reyndar líka hreint tímaleysi að sinna þessum ágæta miðli.

En ég fer reyndar núna næst komandi fimmtudag í laseraðgerð á augum mínum. Og verð þar með sambandslaus í nokkra daga, því ég á eftir að fikra mig um með hvítan staf og verð fyrir vikið ólæs á tölvu í smá tíma. Cool

En mikið verð ég nú feginn að losna við gleraugun fyrir fullt og allt! Smile

Er ekki annars ritað:

Matt 15:13
"Ef blindur leiðir blindan, falla báðir í gryfju" Tounge

Ég hef ekkert vitrænt fram að bera eins og er, en er að undirbúa nokkrar greinar sem eiga eftir að vekja áhuga marga. Sé ykkur betur eftir nokkra daga!

 

P.s. fyrisögnin þýðir: "ég nenni ekki að blogga", en latínan er svo ryðguð hjá mér að það má endilega leiðrétta þetta ef vitlaust er.  :)


Enn og aftur hækkun!

pumping-gas.jpgÉg vona bara að smærri olíufélögin sjái sóma sinn að hækka ekki sín verð.

 

 

 

 

 

 

Vona ég að minnsta kosti! 


mbl.is Eldsneyti hækkar um 3-6 krónur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af hverju er árið 1844 svona mikilvægt?

Undan farið hefur mikið farið um Baháíistann Svan Gísla og aðventistann Mofi.

Ég rak mig á svolítið undarlegt þegar ég fór að kynna mér söfnuði þeirra félaga. Shocking

Bahá'í trúin:

Heimildir teknar héðan

Þar stendur:

"Fyrir þá sem eru af kristnum uppruna, uppfyllir Bahá'u'lláh hin mótsagnakenndu fyrirheit um endurkomu Krists „í dýrð föðurins“ og sem „þjófur á nóttu“. Upphaf trúarinnar 1844 tengist fjölmörgum kristnum spádómum. Þar má t.d. benda á að á árunum upp úr 1840 var Mið-Afríka loks opnuð fyrir kristni og var sá atburður mjög víða túlkaður sem uppfylling á fyrirheitinu um að Kristur myndi snúa aftur, eftir að „Guðspjallið hefði verið prédikað öllum þjóðum“. Í kenningum Bahá'u'lláh sjá átrúendurnir uppfyllingu loforðs Krists um að sameina allar þjóðir svo að „það skuli verða ein hjörð og einn hirðir.“"

Og um gyðinga segja þeir á sömu síðu:

"Bahá'íar, sem áður voru gyðingar, líta á Bahá'u'lláh sem birtingu hins fyrirheitna „Drottins herskaranna“ sem kemur niður „með þúsundum dýrlinga“, sem afkomanda Abrahams og „græðling af rót ættartrés Jesse“, föður Davíðs og að Bahá'u'lláh hafi komið til að greiða veg þjóðanna til „að smíða plógjárn úr sverðum sínum“. Margir þættir í nauðungarútlegð Bahá'u'lláh til Ísrael, ásamt öðrum sögulegum atburðum í lífi Bahá'u'lláh, eru taldir uppfylla fjölda spádóma í ritum gyðinga."


kabúmm !!!!Hver er þá niðurstaðan? Eftir samtöl við fólk sem aðhyllist Bahá'í trúnni, þá segja þeir að það hafi orðið "andlegur heimsendir" árið 1844 og er það tengt við opinberunnar Bábbans á "fangaðarerindi" sínu.

Sem þýðir (út frá Kristnu sjónarhorni séð) að sá heimsendir sem boðaður er í biblíunni var lygi og rangur. Hvað varð þá um að himinn og jörð myndu farast? Að tunglið myndi verða blóðrautt og stjörnur himins mynda hrapa og að mannsonurinn myndi birtast í allri sinni dýrð og hvert mannsbarn myndi sjá hann!

Allt þetta hefur þá verið uppspuni samkvæmt Baháum, og kalla þeir það "mótsagnakennt". FootinMouth

Persónulega ætla ég að bíða þolinmóður eftir dóm Drottins og sleppa því að tengja hann við eitthvað sérstakt ár, allt mun koma í ljós og mun það gerast á þeim degi sem Guð hefur ætlað, hvenær sem það er.

Bíðum bara róleg og verum viðbúin endurkomu hans, sleppum öllum útreikningum og fullyrðingum um hvenær þetta verður.

Tölur eru teknar of alvarlega af sumum söfnuðum sem dæmi má nefna í þjóðsöng okkar: "Fyrir þér er einn dagur sem þúsund ár, og þúsund ár dagur ei meir." Sumir taka þessari samlíkingu fullalvarlega eins og t.d. góður vinur minn hann Mofi, sem heldur því fast fram að jörðin sé sex þúsund ára gömul og fer eftir þessu útí ystu æsar. Sem ég er ósammála.

Guð skapaði vissulega mannkynið og alla jörðina, en það tók lengra en sex þúsund ár, það er alveg á hreinu! Skoðum þá aðeins Aðventista út frá árinu 1844

Aðventistar:

Heimildir teknar héðan

four_horsemen_apocalypse.jpgFyrir 1844 boðuðu aðventistar heimsendi sem átti að verða 1844. En augljóslega aldrei varð. Þeir fóru mikinn um að Kristnir ættu koma "út úr Babýlon" fyrir þetta skelfilega ár, og áttu þeir við alla Kristna söfnuði sem voru fastar í Babýlon samkvæmt þeim. Eftir að enginn heimsendir kom 1844 sögðu forsvarsmenn Aðventu kirkjunnar að 1844 hefði fremur verið það ár sem Jesús gekk inní: "hið allra helgasta á himnum", sem er líking við "hið allra helgasta" í musteri gyðinga þar sem sáttmálsörkin var geymd á sínum tíma, og aðeins æðsti presturinn átti aðgang að. Þetta var staðfest einhverjum árum seinna af Ellen G. White sem studdi þessa kenningu.

Þetta var þá greinilega merkilegt ár 1844 og er margt skrítið í kýrhausnum, en ég ætla persónulega að halda mig við að heimsendir sé óráðinn og alfarið höndum Guðs. Eða réttara sagt, hann kemur þegar hann kemur og vil ég sjálfur vera tilbúinn þegar sá dagur kemur, en þú?


Við karlarnir erum þá Narcissus-istar...

narcissus.jpgÞað er nefnilega það, við karlarnir erum þá bara allir ríghaldnir ranghugmyndum um okkur sjálfa. Þrátt fyrir þá einföldu staðreynd að það þurfti nú ekki neina rannsókn til þess að komast að þessari einföldu niðurstöðu.

Flestir karlmenn eru þá kannski með Narcissus einkennið. Narcissus var rómverskur guð sem dýrkaði sjálfan sig svo mikið að hann varð alveg harmi sleginn eftir að hafa séð spegilmynd sína á stöðuvatni, þegar hann reyndi að kyssa spegilmyndina hvarf hún, og varð Narcissus fyrir fyrir svo mikilli höfnun og um leið áfalli að hann framdi sjálfsmorð. 
(Myndin er af honum hér til hægri)

Ég er ekki að segja að karlmenn séu eins slæmir og Narcissus, langt í frá, en við berum samt allir vott af hans sjálfsdýrkun oft á tíðum. Er það ekki strákar? Allir karlmenn ættu að skilja hvað ég á við .. svona ef þeir eru heiðarlegir. Whistling

Niðurstaðan er sem sé sú að sumir karlar (og reyndar konur líka) sumir hverjir ofmeta jú bæði fegurð sína sem og persónutöfra rétt eins og Narcissus gerði. Svona hefur þetta nú verið frá upphafi alda og ætti ekki að koma nokkrum manni á óvart, því ég er sjálfur í þessum hópi, og ofmet sjálfan mig stundum stórlega, enda ekkert augnayndi og eigi maður fullkominn.

En það er svo margt sem bæði kynin ofmeta að þar er varla hægt að telja það upp og tel ég svona rannsóknir aðeins endurtaka það sem allir vita hvort eð er.


mbl.is Karlar ofmeta persónutöfra sína
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óréttlæti

Á sama tíma og þau gleðitíðindi berast að ljósmæður hafi samið við ríkið kemur þessi sorgarfrétt. Þarna finnst mér, að forráðamenn þessarar þjóðar ættu að sýna fordæmi og neita taka við svona hækkun. Allt samfélagið er á heljarþröm og kreppan alsráðandi.

Aðgerðarleysi og gunguháttur núverandi ráðamanna er eitthvað sem ég er ekki til í að styrkja, þeir virðast vera áskrifandi af launum sínum því til engra aðgerða er gripið til þess að sporna við þenslunni. Kæruleysisleg svör þeirra þegar þeir lýsa yfir: "engra aðgerða er þörf" þegar þörfin er hvað mest er til háborinnar skammar.

Sumir kunna að telja að þeir eigi fullan rétt á þessu, gott og vel, hafið þá skoðun en eigi get ég tekið undir slík rök sökum úræðaleysis þeirra.

Góður bloggvinur Þórarinn Þ. Gíslason gerir einmitt stórgóð skil á þessu hróplega óréttlæti sem stjórnvöld gert að staðreynd í okkar samfélagi. Ég mæli eindregið með að lesið þann pistil!


mbl.is Laun æðstu embættismanna hækkuð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bæn mín er hjá ljósmæðrum

Ég vona að bið fyrir því að þessari deilu ljúki sem fyrst og allir aðilar gangi sáttir frá borði. Sjálfur varð ég yfir mig hneykslaður þegar fjármálaráðherra hæstvirtur ætlar að stefna ljósmæðrum og þvinga þeim sem sögðu upp til vinnu aftur. Það er algjör skömm af fjármálaráðherra að mínu mati!

Í fáum tungumálum, nema íslensku er að finna jafn fagurt orð yfir þessa starfsstétt. Orðið ljósmóðir finnst mér afar fagurt sem lýsir þeirra göfuga starfi afspyrnu vel.  Ef við berum þetta t.d. saman við ensku útgáfuna þá er að finna orðið "midwife" sem er ekki eins fagurt og íslenska útgáfan.

En ég lýsi yfir fullum stuðningi við ljósmæður, og hef þær konur sem eru óléttar núna í bænum mínum og bið þess að allt fari vel þrátt fyrir ljósmóðurskortinn.


mbl.is Fundur að hefjast með ljósmæðrum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gott hjá henni!

Hér er smá myndbrot með henni:

 

Ég minni fólk á:

  1. Hún á rétt á því að gera það sem hún vill sjálf,
    hennar líkami, hennar val.
  2. Ef þetta er hennar afstaða þá ber að virða hana,
    ekki blammera eins og Svanur læknir gerir um leið og hann lemur hausnum á sér í vegginn.

Það er ekkert leyndarmál að Kristnir boða skírlífi fyrir hjónaband, og hefur það verið þannig síðast liðinn tvö þúsund ár eða svo. Söngkonan og sigurvegari Ameríska Idol keppninnar 2007, Jordin Sparks er kristinnar trúar og hefur tekið sína ákvörðun, sem felur í sér fórn að hennar hálfu og virði ég það við hana, því þetta gerir hún Guði til dýrðar.

Þetta er ekkert nýtt undir sólinni að svona gerist, og skulu menn anda með nefinu áður en þeir boða endurkomu skírlífsbeltanna, sem er bara kjánalegt! Ég var gagnrýndur hér um daginn fyrir að hneykslast á skurðgoði, en fyrr má nú vera hvað svona kemur alltaf jafn mikið á óvart.

Hún á völina sjálf, hverju hún trúir og hvað hún gerir, ekki við. Virðum það.


mbl.is Ekkert kynlíf fyrir hjónaband
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Líst vel á Sigurjón!

Sigurjón ÞórðarsonMér líst vel á að Sigurjón bjóði sig fram til formanns.

Kraftur hans og metnaður á eftir að rífa flokkinn upp úr lægð sem hefur gengið í gegnum undanfarið. Ég styð Sigurjón Þórðarson fyllilega til þess að leiða þennan góða flokk

Sjá nánar:

www.xfakureyri.blog.is

Jens Guð og Halla Rut hafa einnig lýst yfir stuðningi við hann, og er ég þeim sammála.  Cool


mbl.is Vilja að Sigurjón gefi kost á sér sem formaður Frjálslynda flokksins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vinsælasti kristni bloggarinn 2008 er ...

hm3... Halldór Magnússon/Mofi! Annað árið í röð. Þessi gallharði aðventisti hafði betur enn einu sinni og óska ég honum til hamingju með .. ömm ... titilinn ... Cool 

Svona féllu atkvæðin:

Rósa Aðalsteinsdóttir - 13% (5 atkvæði) 3. sæti
Theodór Norðkvist - 8% (3 atkvæði)
Bryndís Böðvarsdóttir - 8% (3 atkvæði)
Andrés Böðvarsson - 5% (2 atkvæði)
Ingvar Valgeirsson - 2% (1 atkvæði)
Jón Valur Jensson - 16% (6 atkvæði) 2. sæti
Haraldur Davíðsson - 5% (2 atkvæði)
Tryggvi Hjaltason - 0% (0 atkvæði)
Mofi / Halldór Magnússon - 36% (13 atkvæði) 1. sæti
Svavar Alfreð Jónsson - 2% (1 atkvæði)

Ég vildi bara að það hefði verið betri þátttaka ... Pouty


Ósmekklegt með meiru!

Er ég öfgamaður að finnast þetta rangt? Í þessu sérstaka tilfelli finnst mér það ekki. Á undanförnum áratugum hefur Kristur verið vanvirtur á ýmsa vegu, og ekki hafa Kristnir hótað stríði né hryðjuverkum vegna svona mála. Þetta er alls ekki nýtt af nálinni og má nefna Piss Christ (búinn til árið 1989) eftir Andres Serrano sem vakti álíka viðbrögð á sínum tíma alveg eins og þessi stytta sem fréttin er um.

En lítum aðeins á þetta, og horfum á þá vanvirðingu sem Kristi er sýndur með þessari svokölluðu "list". Sú fína lína sem listamenn hafa til þess að vekja viðbrögð er stundum auðvelt að fara yfir. Og verða þeir að gæta þess, sem og ávalt að hafa í huga að særa sem fæsta með verkum sínum.

Því tilfelli eins og þetta skilar nákvæmlega engu til manns nema viðbjóði og reiði, að minnsta kosti í mínu tilfelli. Ef einhver annar tilgangur væri á bak við þetta þá myndi málið kannski horfa öðruvísi við, en svo er ekki, þetta er skítkast og ekkert annað.

Ég sagt með fullri reisn að mér ofbauð þetta og vona að svona"listamenn" hugsi sinn gang áður en þeir gera svona, því ef þetta væri Múhameð, væri sennilega brostinn út styrjöld eða eitthvað annað eins. Eins og t.d. þessi frétt sannar vegna dönsku skopteikninganna sem himinn og haf skilja á milli hvað siðferði listamanna varðar:

mbl.is Hóta hryðjuverkum í Danmörku

Kallið mig öfgamann ef þið viljið, en svei hvað mér þykir þetta ósmekklegt! Sick En hvað veit ég, ég er bara listamaður ....   Whistling


mbl.is Málsókn út af dónalegum Kristi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Guðsteinn Haukur

Guðsteinn Haukur Barkarson
Guðsteinn Haukur Barkarson

"Our life is a gift from God,
what we do with that life,
is our gift to God"

Höf. óþekktur

Sjá höfundasíðu fyrir ákveðna skilmála og upplýsingar um bloggarann 

Önnur snilld...

Hvaða þjóðir heimsækja þetta blogg?

free counters

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Skoðanna könnun

Á að aðskilja ríki og kirkju?

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband