Takk atvinnubílstjórar!!

Þrátt fyrir óþægindi undanfarna daga þá er ég afar þakklátur þeim atvinnubílstjórum sem mótmæltu þessu svívirðulega bensín verði. Svona á að gera þetta þótt vissulega megi deila endalaust um aðferðirnar.

En tilganginum er náð og hefur rödd fólksins talað og um leið sýnt það raunverulega vald sem það hefur gegn óréttlæti. Við eigum ekki endalaust að láta vaða yfir okkur á skítugum skónum, og ber að mótmæla óréttlæti - ekki bara nöldra í sínu horni eins og íslendingar eru margfrægir fyrir.


mbl.is Fleiri lækka eldsneytisverð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Apríl-gabb Vantrúar

Vantrú er með aprílgabb á síðu sinni þess efnis að þeir hafi klofnað. Þetta var afar vel undirbúið og trúlegt hjá þeim. Nánar um þetta hér.

Ég og Linda settum inn nokkrar athugasemdir þar sem við lýstum efa okkar um sannleiksgildi fréttar þeirra. Því var öllu eytt umsvifalaust út!

Ég ritaði t.d. á síðu þeirra:

"Þetta er nú bara ágætlega undirbúið hjá ykkur, en ég  held að þið séuð að fylgja formerkjum hins alþjóðlega trúleysisdags sem er í dag, þ.e.a.s. fyrsti apríl. Ef þið eyðið þessari athugasemd út þá staðfestir það grun minn og mun ég auglýsa gabb ykkar eins og ég get.    "

 Og við það stend ég! W00t En það sem ég hafði nú mest gaman af var að vera svona ritskoðaður! Þeir ættu að líta sér nær þegar þeir gagnrýna kristna fyrir ritskoðun! HAHAHAHA! Gaman að þessu!

Þetta er hefnd trúarnöttarans!   


Kannski verður það Al Gore fyrir rest

Ég hef heyrt því fleygt í bandarískum fjölmiðlum, ef sátt næst ekki um þessa tvo frambjóðendur þá ákveði flokkurinn annan frambjóðanda. Þegar er svona mjótt á munum getur vel farið svo að allt annar maður verði fyrir valinu, og hafa háttsettir demókratar nefnt Al Gore í því tilfelli.

Það er meira að segja vilji innan demókrataflokksins að hann bjóði sig fram. Smella hér. 

Þetta vald hefur flokkurinn og er skráð í lög þess að megi beita í svona tilfellum, en aldrei hefur þurft ástæða að grípa inní fyrr en nú. En við sjáum til hvað setur í í þessu.

Að gefnu tilefni! Þetta er ekki aprílgabb! 


mbl.is Pelosi vill skjóta sátt um frambjóðanda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mogginn bara í stuði ...

Enn eitt gabbið! Bílstjórar hefðu minnst á þetta ef þetta stæði til. Ég er nokkuð viss um að þeir vinni ekki bókstafleg spjöll á austurvelli með svona löguðu ... eða hvað?  Shocking
mbl.is Sturta möl fyrir framan Alþingi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góð og slæm apríl göbb ...

Sum hver apríl göbbin er góð önnur ekki. Sérlega áberandi var Apríl gabb vísis sem sagði að Al Gore myndi gista í snekkju Saddams Husseins ... FootinMouth ... ég held að vísismenn haldi að við séum öll fæðingarhálfvitar! Pinch

Fréttablaðið auglýsti bensín lítrann á 103 kr. á einhverri bensínstöð, sem var aðeins trúanlegra og hefðu sennilega einhverjir hlaupið apríl við það.

Moggin er svo með frétt um að hægt sé að horfa á kvikmyndir á mbl.is .... það sem kemur upp það er að það er ekki hægt að blogga við fréttina og efast ég stórlega um þessa frétt. 

En vinninginn á öfgafemínistinn Sóley Tómasdóttir þar sem hún hvetur kynsystur sínar að bæta berar að ofan í sund kl. 17:00 í dag. hehehe ... ég held að það verði einungis karlmenn í sundi í dag vegna þessarar auglýsingar hennar! Tounge

Ég tek og fer úr að ofan fyrir þér Sóley, og ætla að stofna "Free Willy" samtökin sem mótvægi við þessu! Hvað segið þið strákar? Eruð þið til í það?? W00t Ég meina, ef þær mæta berar að ofan, þá mætum við bara berir að neðan! Við megum ekki leyfa þessum femínistum að komast upp með þetta einar, er það strákar?  Wink Sýnum þeim stuðning og frelsum spottanna okkar! þá verður þetta ekki eins neyðarlegt fyrir þær!  Grin (Nú verð ég drepinn af einhverjum konum ... biðjið fyrir mér)


Mannréttindi ofar skemmtunar!

Ég vona bara að sem flestar þjóðir ákveði að taka ekki þátt í þessum leikum, þar á meðal Ísland. Allavegna ekki fyrr en að mannréttindabrot kínversku ráðamanna hætta í garð Tíbetbúa. Trúbróðir minn og vinur Jón Valur Jensson hefur verið ötull talsmaður fyrir frelsi í Tíbet og bendir hann í þessari grein að:

í komandi fundahöldum framan við sendiráðið, því að þeim fundum er fjarri því lokið. Næsti fundur verður þar á morgun, mánudag 31. marz, kl. fimm síðdegis.

Og hvet ég allt velhugsandi fólk til þess að mæta og mótmæla óréttlætinu! Ég ætla að reyna hvað ég get að komast sjálfur, en fer það algjörlega eftir vinnu hvort það rætist eða ekki. 

viva-le-programming-revolution
(Myndin fannst mér bara viðeigandi)Cool

  

Lengi lifi frjáls Tíbet! 


mbl.is Ólympíueldurinn afhentur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gamall og grár

Fyrir þremur áratugum og tveim einingum fæddist ég þann 29 mars ... ég er sem sé orðinn elliært gamalmenni sem enginn vill sjá lengur ... ég sé sjálfan mig fyrir sér einhvernvegin svona:

 

Ég í framtíðinni ....   :S
 
Biðjið fyrir mér ... mér hrörnar með árunum! Shocking

 


Glæsilegt!

Sama er mér þótt ég lendi í töfum vegna svona aðgerða, ég styð þetta heilshugar og finnst þetta vera hreint frábært framtak!

Það var kominn tími á að íslendingar stóðu upp og mótmæltu! Sérstaklega vegna þessarar soglegu fréttar:

Mótmælum svona kjaftæði! 


mbl.is Áframhaldandi „umferðarskærur"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þeir ættu frekar að koma með afsökunarbeiðni!

Þeir eiga enga sök á þessu ... neeeiiii ... bara eftir meira en áratug í ríkisstjórn. Auðvitað standa núverandi stjórnvöld sig illa, ég tek fyllilega undir það sjónarmið. En mér finnst að Framsóknarmenn ættu fremur að sýna ábyrgð og sóma sinn að biðja íslendinga afsökunar á þessu öllu, því þeir eru samsekir ásamt Sjálfsæðisflokknum, sem og núverandi stjórnvöldum. Pinch
mbl.is Framsóknarmenn hafa áhyggjur af stöðu íslenskra heimila
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Afhverju er erfitt að boða Kristna trú?

Þ ví Kristin trú segir ekki að þú sért fullkominn, heldur segir hún að þú meingallaður/gölluð og skortir á allt til þess að komast til himnaríkis. Ólíkt öðrum trúarbrögðum þá er venjulega frímiði og þarf einungis að treysta á eigið ágæti. Ólíkt öðrum...

Yndislegt starf, hjá frábæru fólki!

Þetta starf hjá fjölskylduhjálpinni er hreint og beint frábært. Ekki var vanþörf á þessu, svona rétt fyrir páska. Mikið var gefið til marga í neyð, ég var afar stoltur að fá að geta tekið beinan þátt í þessu, ásamt höfðingjanum Sigurði Þórðarsyni, sem...

Gleðilega páska!

Nú þegar helgasta hátíð kristinna manna gengur í garð langar mig aðeins að staldra við og íhuga afhverju við höldum uppá þessa hátíð. Það er vegna þess að við minnumst óeigingjörnustu fórn sem er vitað um, Jesús gaf líf sitt í sölurnar til þess að frelsa...

Aðgerðir strax!

Í útvarpinu í morgun var hvatt til þess að kaupa og kaupa áður en verðhækkanir ALLRA verslanna gengu í garð. Eftir svakalegt fall gjaldmiðils okkar þá verða allar innfluttar vörur dýrari. Nú er um að gera að halda að sér höndum og kaupa helst bara...

Hin Ótrúlegi Hulk - vonandi betri endurkoma!

Fyrir forfallinn teiknimyndaáhugamann eins og mig, mátti ég til. "The Hulk" kom fyrst fram á sjónarsviðið í sögunni "The Incredible Hulk #1" (Maí 1962), eftir höfundin: Stan Lee, meðhöfundur var: Jack Kirby sem og teiknaði hann fyrstur, og um skyggingu...

Gott hjá ráðherra!

Ekki er ég hrifinn af enn einu umhverfisslysinu í Helguvík, ég tala nú ekki um að ég er Grindjáni og þykir vænt um mín suðurnes! Þessi ráðagjörð Árna Vigfússonar finnst mér illa unnin og hefur hann varla haft neitt samband nokkurn nema hagsmunaaðila...

Árni Johnsen skorar Bubba á hólm! :D

Samkvæmt þessari frétt af vísi.is ætlar talsmaður fanga á Alþingi að skora á Bubba Mortens á hólm. Burt með Idol og að slíka raunveruleika þætti! Látum bara þessa kalla rífast og gera upp sín mál í karlmannlegum einvígjum! EN ... ekkert varð úr áskorun...

Jafnaðarstefnuflokkurinn sem brást gildum sínum

Afhverju þarf alltaf svona lagað til þess að stjórnvöld vakni, hvað marga dóma þarf til þess að þessir háu herrar sjái það sem að er? Þeir hunsa mannréttindabrotum og núna OECD sennilega líka. Almenningur hefur sofnað á verðinum, og hleypt sömu mönnum...

Við erum ekki á vonarvöl!

Loksins kom jákvæð frétt úr heimi fjármálanna. Því eftir að Seðlabanki Íslands er búinn að klúðra okkar fjármálalífi svo um munar, þá koma sem betur fer aðrir bankar útí heimi með skynsamlegar mótaðgerðir gegn kreppunni sem vofir yfir. Ekki hafa þeir...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Guðsteinn Haukur

Guðsteinn Haukur Barkarson
Guðsteinn Haukur Barkarson

"Our life is a gift from God,
what we do with that life,
is our gift to God"

Höf. óþekktur

Sjá höfundasíðu fyrir ákveðna skilmála og upplýsingar um bloggarann 

Önnur snilld...

Hvaða þjóðir heimsækja þetta blogg?

free counters

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.1.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 26
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Skoðanna könnun

Á að aðskilja ríki og kirkju?

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband