Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Undirskriftarlisti til stuðnings bættum kjörum öryrkja og aldraðra! Skrifum undir! :)

Ég vil auglýsa undirskriftarlista til stuðnings bættum kjörum öryrkja.

Smellið hér fyrir listann

Ekki veitir af stuðningnum og hvet ég alla til þess að og skrifa undir! Smile


Vasaljósið hennar Yoko og plúralisminn

Það er ekki ofsögum sagt að þessi friðarsúla hennar Jóku Ó-nó (eins og vinkona mín benti mér á) sé friðarspillir. Hún vekur upp lægstu hvatir manna og upp kemur "cutthroat" pólitík sem Ísland hefur sjaldan séð. Lennon heitin og Jóka voru helstu talsmenn plúralista vorra tíma. Þeirra hugmyndir um Guð fálust í því að öll trúarbrögð væru með sama Guðinn, sem ég mun aldrei nokkurntíma samþykkja.

En nú hefur Lennon sjálfur vitjað sonar síns, þ.e.a.s. Julians Lennons. Woundering
Samkvæmt þessari frétt frá vísi:

Julian, sem vinnur nú að kvikmynd í Ástralíu, ákvað að taka þátt í trúarathöfn með frumbyggjum þar í landi þegar höfðingi frumbyggjanna rétti honum hvíta fjöður sem gerði hinn 44 ára Julian gjörsamlega orðlausan.

Samkvæmt heimildum Daily Express á Lennon að hafa sagt við son sinn að ef eitthvað kæmi fyrir hann ætti hann að leita að hvítri fjöður því hún væri merki um að hann liti eftir honum.


Anna Karen
vinkona, hefur ítrekað bent á skaðsemi þessarar ljósastiku með góðum og fræðilegum greinum sínum, án þess að ég lagði saman 2 og 2. Það er eitthvað langur í mér fattarinn þessa daganna, að sjá ekki hvað hún var að benda réttilega á. Eins og ofangreind frétt frá vísi sýnir og sannar, þá er ekki alveg í lagi hjá þessu fólki. Er ekki nóg að fólk trúir því ennþá að Elvis sé á lífi?? Þarf að bæta Lennon í safnið?? Var ekki sagt að Lennon hafi verið "meðal þeirra" þegar kveikt var á fryggðarsúlunni?

Jókó Ónó (ónei) er ekki lengur plúralisti, hún er orðinn spíritisti og það verra hún er búinn að blanda þessu í einn stórann óskiljanlegan graut!

Hugmyndin er stolinn/lánuð - að minnsta kosti ekki ný!

440wde_TwinTowerLightSem listamanni finnst mér eitt ófyrirgefanlegt (en það er bara ég), það er að stela hugmyndum. Hver man ekki eftir að svona ljós voru tendruð í minningu þeirra sem létust 9/11. Þá voru tvö ljós tendruð á þeim stöðum sem tvíburaturnarnir stóðu áður. Það er auðséð hvaðan hugmyndafræðin er kominn og var þetta ENGAN veginn hugmyndin hennar Jóku. Bara svo það sé á hreinu.

Það fyrsta sem ég lærði í myndlistarskóla var þessi meginregla:

Þú skalt aldrei kópera það sem þú ætlar að skapa. 

Það er sköpunin sem gerir þig að listamanni, því hvaða auli sem er getur kóperað.  

Og er ég þar af leiðandi ekkert sérstaklega hrifinn fyrir mína parta. Auk þess lítur þetta fyrirbæri út eins og geimveruárás.  Whistling

Guð blessi Yoko Ónei og hennar fjölskyldu og megi ást Guðs geyma hana.

Guð blessi ykkur og þakka ég lesturinn.


Miðju Bingi sprengir samstarfið - og alvöru vinstrimenn taka við ! :)

Ég var ekkert smá ánægður að sjá þetta! Loksins hefur vilji fólksins náð sínu fram í kosningum sem skiluðu veikri minnahlutastjórn! Til hamingju allir vinstrimenn og konur, borgin er unnin!  Grin W00t Wizard
mbl.is Nýr meirihluti myndaður í borgarstjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ósmekklegasta sem ég hef augum litið

Steik??  :-SÞetta er það ógeðslegasta, viðurstyggilegasta og óhuggulegasta frétt sem ég lengi séð! Sick Ég átti ketti í 16 ár og þess vegna læt ég svona! Linda var reyndar búinn að fjalla um þessa grimmd, en ég gat ekki haldið aftur af mér, 'góð vísa er aldrei of oft kveðinn' eins og sagt er.

Enn sláanlegur munnur finnst mér samt á fréttamennskunni á mbl og vísi. Greinin sem hin yndislega Linda Heart vísar í er tilgreint að umræddur bæklingur fáist í Bónus verzlunum. En ekki er minnst á slíkt hjá moggamönnum, ég verð að segja að það er vandaðri málflutningur af hálfu Moggans í þessu tilfelli. Afhverju á Bónus að gjalda fyrir svona verk, nema jú þeir gáfu leyfi fyrir þessum ritum í verslunum sínum. En það á ekki að hengja bakara fyrir smið, eins og múgæsingsmennirnir hjá vísi vilja meina!

Ég veit ekki hvað gengur að þessum mönnum, ef þetta á að vera grín þá finnst mér það afar ósmekklegt. Og ef einhver segir við mig: "er einhver munur á þessu og öðru kjöti, eins og hrossakjöti o.s.f.v." Þá segi ég að það ER STÓR munur!!! Angry

Í fyrsta lagi hefur það aldrei tíðkast að borða ketti á Íslandi, í öðru lagi er það gegn okkar siðferðisvitund sem er kannski allt önnur en hjá þeim þjóðum sem borða svona lagað.

Þess vegna segi ég þvert NEI!! Auk þess gef ég skít í þá sem vísa í einhver lög sem ekkert segja, þetta er vibbi og ekkert annað!


mbl.is Hvernig matreiðir þú kött?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lifandi vatn

Jæja gott fólk, ég vil endilega minna ykkur öll á samfélagið okkar Lifandi Vatn, n.k. laugardag kl. 14-17 að Holtavegi. 

Við köllum þetta stundum bloggkirkjuna vegna þess að hún varð til þegar að nokkrir bloggarar á mbl ákváðu að hittast í kristilegum kærleika. En þetta er öllum opið og gengur útá létta kaffihúsastemmingu.

Þar mun ég kenna að teikna Manga, sem er það nýjasta í teiknimyndasögum og mjög vinsælt hjá krökkum og unglingum. Elínóra kennir þeim sem vilja línudans og kona mín ( Bryndís/bænamærin) stefnir að fjölbreyttu handavinnuhorni svo um er að gera að mæta með eitthvað á prjónunum.

Svo erum við með bænahring og auðvitað kaffi og kökur, og heilmikið spjall  félagskapurinn okkar kallast Lifandi vatn og öll þáttaka er ókeypis.

Ritað er:

Jóhannesarguðspjall 7:38
Sá sem trúir á mig, frá hjarta hans munu renna lækir lifandi vatns, eins og ritningin segir.``


Eilíf barrátta um athygli kvenþjóðarinnar ...

 Ég fékk þetta myndband sent frá vinnufélaga í dag, krakkinn er strax kominn með "macho" og berst í vöggunni eins og berserkur fyrir athygli móður sinnar. Ég og aðrir karlmenn eiga ekki erfitt að setja sig í þessar kringumstæður og skilja þetta vel !  hehehe .... Tounge

 

 
Sennilega er ég svona einfaldur, en ég ætla að kaupa rakvélar frá þessu fyrirtæki bara fyrir þetta listræna framtak !! Cool



Nýr rauður dagur

Ég ætla ekki að mæta í rauðum bol, heldur peysu. Það er allt of kalt til að vera bara í bol, við erum á Íslandi fyrr má nú vera! Wink En ég vil sýna þeim í Búrma stuðning, þótt ég sjái ekki alveg hvers vegna að ég gangi í rauðu hafi einhver áhrif. En ef það hjálpar þá geri ég það samt.

Ég vil samt benda á þá kaldhæðni sem er bak við þessa sorgarfrétt, ef við breytum henni aðeins og heimfærum munkanna uppá íslendinga og það trúaða íslendinga, þá myndi vera annað hljóð í skrokknum. Ég held að flestum væru nákvæmlega sama ef einhverjir kristnir féllu í slíkum mótmælum.

Ekki erum við krúttulegir saklausir munkar! Nei, við erum öll 'fordómafullir mannhatarar' samkvæmt flestum, þeir taki það til sín sem eiga það skilið, enda dæmir fólk sig sjálft sem lætur slíka heimsku útúr sér, enda sýnist mér þetta fólk ekkert sérstaklega vel lesið eða vel gefið. Ég get nefnt nokkur nöfn hér á moggablogginu, en þið vitið hvað þið heitið og eigið skömm fyrir.


mbl.is Fólk hvatt til að mæta í rauðum bolum á morgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hverjar eru skýringarnar fyrir þessu svikna loforði?

Sigurjón Þórðar á allan minn stuðning í þessu, skil ég hreint ekki viðbrögð flokksins við þessu öllu. Afhverju ekki standa við það sem lofað var og fá þennan öðling í þetta starf, ég bendi á að mér fannst hann hálfpartinn 'fórna sér' þegar Kristinn H. Gunnarsson hröklaðist frá Framsókn, og eru þetta þakkirnar?

Jæja, þetta er bara mín skoðun þar sem Sigurjón Þórðarson og Jón Magnússon eru með mínum uppáhalds hægri sinnuðu stjórnmála mönnum. Guð blessi þá báða í sínum störfum.

mbl.is „Ekki niðurstaða að mínu skapi" segir Sigurjón Þórðarson
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alvarlegt, en annað skiptir meira máli

Í veikindum mínum undanfarið hef ég horft mikið á sjónvarp, það hefur ekki farið fram hjá neinum að það eru sýnd tónlistarmyndbönd á Skjá Einum að degi til. Ég er nú ekki sá sem bendir á allt og kalla það klám, ég er frekar talinn frjálslyndur í mínum skoðunum til nektar og því Guðs skapaða dýrðarverki, þ.e.a.s. mannslíkamann.

En þessi myndbönd gengu alveg fram af mér, ég gerði mér engan veginn grein fyrir hversu alvarlegt þetta er orðið. Svona ófögnuður er sýndur á frá dagskrálokum á Skjá einum og þar til dagskrá hefst. Ég átti ekki til orð yfir þeim konum sem voru klæddar í tannþráð einum fata, og voru þær flestar að nudda sér upp við karlkynið og stundum kvenkynið líka. Það datt af mér andlitið nokkrum sinnum yfir þvó orðbragði, myndum og boðskap sem þarna var um að ræða.

Ég er ekki að mæla með ritskoðun  né neinu slíku, en við höfum aðgang að stöðvum eins MTV, VH1 og fleiri sem senda svona út, yfirleitt þarf að kaupa áskrift af þeim og finnst mér það sama eigi við um þetta sem og PoppTV, sem er reyndar hægt að setja lás á.

Slæmt finnst mér að McDonalds sé að heilaþvo börnin okkar rétt fyrir barnaefni, en hafið þið kynnt ykkur það sem er áður en barnaefnið hefst??

Íslendingar þurfa að læra að forgangsraða.


mbl.is Auglýsa skyndibita á undan barnatíma RÚV
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Guðsteinn Haukur

Guðsteinn Haukur Barkarson
Guðsteinn Haukur Barkarson

"Our life is a gift from God,
what we do with that life,
is our gift to God"

Höf. óþekktur

Sjá höfundasíðu fyrir ákveðna skilmála og upplýsingar um bloggarann 

Önnur snilld...

Hvaða þjóðir heimsækja þetta blogg?

free counters

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (11.1.): 2
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 588421

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Skoðanna könnun

Á að aðskilja ríki og kirkju?

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband