Harmleikur

Eina sem ég get sagt er að allir bænir mínar eru hjá aðstandendum þessarar fjölskyldu. Ósköp er sorglegt að lesa svona fréttir, ég fékk í magann þegar ég ímyndaði mér að þarna væri dóttir mín á ferðinni, og get sennilega aldrei sett mig í þau spor sem þessi fjölskylda er í.
mbl.is Drukknaði í heitum sjónum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Já en til hvers Vantrú !

Ég veit ekki alveg hvað þeir eru að hugsa með þessu gríni sínu, en kannski eru þeir allir gengnir í þennan söfnuð, eða "The Church of the Jedi"!  Tounge Nei ég veit ekki, en skondið var þetta, og verst var að sjá ekki Svarthöfða spila Bingó! Joyful

En svona leit þessi furðulegi gjörningur út:

darthVader

Ég veit að þetta var í gríni gert ... en afhverju? Hvað græða þeir á svona uppákomum? Woundering

 Vantrú: May the force be with you! hehehe ...


mbl.is Svarthöfði á vegum félagsmanna í Vantrú
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hmmm ... stenst þetta?

Í alvöru stelpur? Stenst þessi rannsókn? Ég er ekki viss um að kona mín sé sammála þessu, við erum alltaf svefnþurfi og samt ákaflega hamingjusöm ....  ??? Hvað finnst þér Bryndís? InLove
mbl.is Nærir svefninn hamingjuna?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er svínakjötsát synd?

Samkvæmt góðvini mínum Mofi þá er það bannað. En ég er ekki alveg sammála því. Skoðum þetta aðeins, því ritað er og segir Jesús sjálfur:

Markúsarguðspjall 7:14-23
14 Aftur kallaði hann til sín mannfjöldann og sagði: ,,Heyrið mig allir, og skiljið.
15 Ekkert er það utan mannsins, er saurgi hann, þótt inn í hann fari. Hitt saurgar manninn, sem út frá honum fer.``

16 Ef einhver hefur eyru að heyra, hann heyri! 17 Þegar hann var kominn inn frá fólkinu, spurðu lærisveinar hans hann um líkinguna.
18 Og hann segir við þá: ,,Eruð þér einnig svo skilningslausir? Skiljið þér eigi, að ekkert, sem fer inn í manninn utan frá, getur saurgað hann? 19 Því að ekki fer það inn í hjarta hans, heldur maga og út síðan í safnþróna.`` Þannig lýsti hann alla fæðu hreina.

20
Og hann sagði: ,,Það sem fer út frá manninum, það saurgar manninn.
21 Því að innan frá, úr hjarta mannsins, koma hinar illu hugsanir, saurlifnaður, þjófnaður, manndráp, 22 hórdómur, ágirnd, illmennska, sviksemi, taumleysi, öfund, lastmælgi, hroki, heimska. 23 Allt þetta illa kemur innan að og saurgar manninn.`` 

Einmitt, sem er eðlileg hringrás og er þetta afar skýrt! Jesús lýsir alla fæðu hreina og það saurugt sem frá okkar innra manni kemur, eða orðin og verkin. 

Postulasagan 10:11-15

11 sá himininn opinn og hlut nokkurn koma niður, líkan stórum dúki. Var hann látinn síga til jarðar á fjórum skautum. 12 Þar voru á alls kyns ferfætt dýr, skriðdýr jarðar, svo og fuglar himins. 13 Og honum barst rödd: ,,Slátra nú, Pétur, og et!``
14 Pétur sagði: ,,Nei, Drottinn, engan veginn, aldrei hef ég etið neitt vanheilagt né óhreint.`` 15 Aftur barst honum rödd: ,,Eigi skalt þú kalla það vanheilagt, sem Guð hefur lýst hreint!``

Synd eða syndsamlega gott?

Auðvitað brást Pétur svona við í fyrstu, hann var gyðingur og fylgdi auðvitað þeim reglum sem þeim var sett. Þannig að viðbrögð hans koma ekkert sérstaklega á óvart. Það sem kemur á óvart, og þó sérstaklega fyrir Pétur og gyðinga, var það sem kom á eftir. 

Það sem aðventistar virðast misskilja við þetta er að Jesús afnam enginn lögmál frá Guði. Við sem teljumst Kristinn förum eftir orðum Jesú og er hann eini túlkunarlykillinn að ritningunni. Eigum við þá að hvetja til meiri byrði, ég held ekki!

Við erum og verðum aldrei gyðingar, mér finnst ekkert að því gyðingar fylgi svona reglum sökum trúar sinnar, en við sem erum talin "gentiles" samkvæmt ritningunni eða heiðingjar, þá eiga vissar reglur ekki við um okkur og erum við því ekki háð þeim.

Vissulega var svínakjöt hættulegt á tímum Gamla Testamentisins vegna skorts á hreinlætis, sérstaklega við slátrun og annað slíkt. Þetta hið fínasta kjöt til átu í nútíma samfélagi!  Wink Að minnsta kosti þar sem hreinlætið er í lagi.

Því ritað er:

Bréf Páls til Rómverja 14:17-22

17 Því að ekki er Guðs ríki matur og drykkur, heldur réttlæti, friður og fögnuður í heilögum anda. 18 Hver sem þjónar Kristi á þann hátt, hann er Guði velþóknanlegur og vel metinn manna á meðal. 19 Keppum þess vegna eftir því, sem til friðarins heyrir og til hinnar sameiginlegu uppbyggingar. 20 Brjóttu ekki niður verk Guðs vegna matar! Allt er að sönnu hreint, en það er þó illt þeim manni, sem etur öðrum til ásteytingar.
21 Það er rétt að eta hvorki kjöt né drekka vín né gjöra neitt, sem bróðir þinn steytir sig á. 22 Halt þú þeirri trú, sem þú hefur með sjálfum þér fyrir Guði. Sæll er sá, sem þarf ekki að áfella sig fyrir það, sem hann velur.

Þarna stendur það skírum stöfum: "Brjóttu ekki niður verk Guðs vegna matar"20 og ennþá frekar: Halt þú þeirri trú, sem þú hefur með sjálfum þér fyrir Guði 22  Ekki er þetta flókið ... er það? FootinMouth

Persónulega, þó að svínakjöt sé í engu uppáhaldi hjá mér, en ég borða það samt, þá tel ég sjálfur það ekki vera "synd" að borða það. Þú fyrirgefur Halldór/Mofi minn, en ég get ekki sæst á þessi rök þín og skil ég ekki af hverju þú hengir þig á svona Gamla testamentiskenningar endalaust. Wink Ég hef reynt að ræða þetta við þig, en ég upplifði mig eins og ég væri að kasta perlum fyrir svín! tíhí! Halo

P.s. ég er ekki ráðast að neinum nema gömlum kenningum, Mofi/Dóri vissi af þessu áður en ég setti þetta í loftið, og allt er þetta gert í samráði við hann, enda erum við Mofi góðir vinir og er þetta ekki meint sem árás á hann á neinn hátt.  :) En ég áskil mér þann rétt að vera ósammála honum ...    ;-) 


Geir og Solla höfðu þá rétt fyrir sér!

Ja hérna! Ég fæ greinilega loks skilið af hverju Geir og Solla leigðu sér einkaþotu ... það er greinilega ódýrara en nokkuð annað! Gasp En hvað gerir svo þessa ágæta ríkisstjórn? Nákvæmlega ekki neitt! Þau þurfa þess ekki vegna innleiðingu á einkaþotu notkunar. GetLost

Lengi lifi reiðhjólin ....  !!! 


mbl.is Eldsneyti hækkar um 6-7 krónur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lélegt svar!

Þetta svar hæstvirts sjávarútvegsráðherra er svona svo innihaldsrýrt að það er ekki fyndið. Hann segir:

[]... að efnt verði til allsherjarskoðunar á fiskveiðistjórnunarkerfinu í náinni framtíð með breytingar í huga þannig að komið verði til móts við kröfur nefndarinnar eftir því sem unnt er.  []

Í fyrsta lagi hafa engar slíkar hugmyndir komið fram frá honum né ræddar við nokkurn mann. Enginn lausn er í sjónmáli sem sé. Í öðru lagi þarf "umbyltingu í einum vettvangi" ef á laga þetta óréttlæt sem kvótaekrfið er.

Hvert er maðurinn að fara með þessu? Ég vona að mannréttindanefnd sameinuðu þjóðanna sendi Einari K. svarbréf ásamt skömmum um innihaldsleysi!


mbl.is Svar sent til mannréttindanefndar SÞ
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svör við spurningarleik

Ég fann þennan skemmtilega spurningaleik hjá frábærum bloggvini Gunnari Svíafara, og átti ofurbloggarinn Jóna upphaflega hugmyndina af þessu. Ég mátti til að svara þessu og birta.

1.ERTU SKÍRÐ/UR Í HÖFUÐIÐ Á EINHVERJUM ? 
Föður afi minn hét Haukur og móður afi minn hét Guðsteinn, ég held ég sé málamiðlun!  Whistling

2. HVENÆR FÓRSTU SÍÐAST AÐ GRÁTA ?
Vá ... ég bara man það ekki, en það er mjög langt síðan!

3. FINNST ÞÉR ÞÚ SKRIFA VEL ?
Já ...  Blush

5. ÁTTU BÖRN ? EF JÁ HVE MÖRG ?
Einn fósturson og eina dótttur.

6. EF ÞÚ VÆRIR EINHVER ANNAR EN ÞÚ ERT,VÆRIRÐU VINUR ÞINN ? 
Já!

7. NOTARÐU KALDHÆÐNI MIKIÐ ? 
Afskaplega mikið, en fáir hafa húmor fyrir því vegna trúar minnar. GetLost *andvarp*

8. FÆRIRÐU Í TEYGJUSTÖKK ? 
Ekki að ræða það.

9. HVAÐA MORGUNMATUR ER Í UPPÁHALDI HJÁ ÞÉR ?
Vatn.

10. REIMARÐU FRÁ ÞEGAR ÞÚ FERÐ ÚR SKÓNUM ?
Neibb.

11. TELURÐU ÞIG ANDLEGA STERKAN ?
Nei.


12. HVERNIG ÍS ER Í UPPÁHALDI HJÁ ÞÉR ? 
Bláberja ís.

13. HVAÐ ER ÞAÐ FYRSTA SEM ÞÚ TEKUR EFTIR Í FARI FÓLKS ?
Augnaráðið.

14. RAUÐUR EÐA BLEIKUR VARALITUR ?
hehehe... svara ekki svona spurningum! Úfff ...  Errm

15. HVAÐ MISLÍKAR ÞÉR MEST VIÐ SJÁLFAN ÞIG ? 
Fljótfærnin.

16. HVAÐA MANNESKJU SAKNAR ÞÚ MEST ? 
Ömmu minnar sem lést ekki alls fyrir löngu.
 
17. VILTU AÐ ALLIR SEM LESA ÞETTA SVARI ÞESSUM LISTA ?
Það væri cúl.

18. HVAÐA LIT AF BUXUM OG SKÓM ERTU Í NÚNA ?
Svörtum jakkafatabuxum og svörtum skóm.

19. HVAÐ VAR ÞAÐ SÍÐASTA SEM ÞÚ BORÐAÐIR ?
Epli.

20. Á HVAÐ ERTU AÐ HLUSTA NÚNA ?
"The Trail" eftir Pink Floyd.

21. EF ÞÚ VÆRIR LITUR, HVAÐA LITUR VÆRIR ÞÚ ?
Rúst-rauður

22. HVAÐA LYKT FINNST ÞÉR BEST ? 
Skógarlykt.

23. VIÐ HVERN TALAÐIRÐU SÍÐAST Í SÍMA ? 
Bryndísi mína.

24. LÍKAR ÞÉR VEL VIÐ ÞÁ MANNESKJU SEM SENDI ÞÉR ÞESSAR SPURNINGAR? 
Gunnar Svíafari sendi mér ekki þessar spurningar, en ég ber mikla virðingu fyrir honum og kann vel við hann að öllu leyti.

25. UPPÁHALDSÍÞRÓTT SEM ÞÚ HORFIR Á ? 
Ömmm ... úfff .... ég bara horfi ekki á þær! Punktur.

26. ÞINN HÁRALITUR ? 
Dökkhærður.

27. AUGNLITUR ÞINN ?
Brúnn.

28. NOTARÐU LINSUR ? 
Nei, er með ofnæmi fyrir þeim.

29. UPPÁHALDSMATUR ?
Vá, enn það mun samt vera góð nautalund.

30. HRYLLINGSMYND EÐA GÓÐUR ENDIR?
Góður endir.

31. SÍÐASTA BÍÓMYND SEM ÞÚ SÁST Í BÍÓ ? 
hehehe ... Transformers.

32. KNÚS OG KOSSAR EÐA LENGRA Á FYRSTA DEITI ? 
Það fer eftir deitinu.

33. UPPÁHALDS EFTIRRÉTTUR ?
Créme Brúlé.

34. HVER ER LÍKLEGASTUR TIL AÐ SVARA ÞESSU OG BIRTA ?
Ekki hugmynd!

35. HVER ER ÓLÍKLEGASTUR ? 
Mjög margir!

36. HVAÐA BÓK ERTU AÐ LESA ? 
hehehe ... ég á seríuna af 'Transformers' sem ég er að lesa.

37. HVAÐA MYND ER Á MÚSAMOTTUNNI ÞINNI ? 
Engin mynd.

38. Á HVAÐ HORFÐIRÐU Í SJÓNVARPINU Í GÆR ?
Horfði ekkert á sjónvarp í gær.

39. ROLLING STONES EÐA BÍTLARNIR ?
Bítlarnir.
 
40. HVAÐ ER ÞAÐ LENGSTA SEM ÞÚ HEFUR FARIÐ FRÁ ÍSLANDI ?
Mexico.

41. HVERJIR ERU ÞÍNIR HELSTU EIGINLEIKAR ?
Hrokinn ef ég á að svara þessu, þetta er greinilega mont færsla og veit ég ekkert hverjir mínir helstu eiginleikar eru. Shocking

42. HVAR FÆDDISTU ?
Í Reykjavík.

43. SVÖR FRÁ HVERJUM ERTU SPENNTUST/SPENNTASTUR AÐ FÁ SJÁ ?
Jóni Val Jenssyni.  Wink

Nóg komið af þessu!

Endilega Jón Gnarr, skiptum nú um gír og höfum annað þema, þetta trúarþema þitt er orðið vel þreytt.

Annars fannst mér þú koma með gullna setningu í þessu viðtali:

„Ég held að kaþólskir leikmenn viti ekkert hvað trúaðir geri. Maður er kominn á vafasama braut þegar maður segir hvað trúaðir gera og hugsa,“

LÆRUM af þessum orðum Jóns, því ófáir eru fyrirfram búnir að dæma trúaða með alls kyns skoðanir sem eiga stundum ekki við stoðir að styðjast!

Eina sem ég undra mig á eru þessi hörðu viðbrögð Kaþólikka fyrir gagnrýni, persónulega finnst mér þau allt of hörð við umrædda auglýsingu. Það er frekar að svara gagnrýninni eins og Kaþólikkinn Magnús Ingi hefur gert og ræða málin, ekki fara bara í fýlu. Þetta er bara grín auglýsing, ekki uppreisn!

En jæja ég vona að þessu máli fari að ljúka! 


mbl.is Lengi tekist á við húmorsleysi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vissi þetta!

Svona mál vekja undantekningarlaust heimsathygli, og er mannorð Íslendinga ekki nógu slæmt fyrir?

Menn verða að læra að hugsa fyrst um afleiðingar gjörða sinna áður en þeir taka í gikkinn! Angry


mbl.is Hvítabjarnarmál vekur athygli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Guðlast?

... ööö .... nei.

Hins vegar er þetta trúarlega þema hans Jóns Gnarrs alveg orðið ágætt, þetta var broslegt í fyrstu umferð, en nú er komið nóg. Nú tala ég ekki af trúarlegum ástæðum heldur aðeins smekk, góð vísa getur stundum verið of oft kveðinn. 

Kristni er ekki yfir gagnrýni hafin, en grínið er það. En það er bara ég.


mbl.is Segja upp viðskiptum við Símann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Loksins búið!

Til hamingju Obama, veldu nú Clinton sem varaforseta.

Hvert er heimurinn að fara?

Nú er mér öllum lokið, samkvæmt þessari frétt frá BBC þá er maður einn stöðvaður fyrir það eitt að vera "Transformers" stuttermabol! Hættan sem stafaði af þessum einstakling var að Transformerinn var með byssu í hendinni og var það talið ógn af...

Grimmilegt!

Mikið ósköp er ég sammála þessum Agli, auðvitað átti að reyna önnur ráð. Þeir hefðu átt að rýma þetta svæði og einangra björnin frá mannsjöldanum! Eða jafnvel skotið í hann með deyfilyfi í stað þess að fórna lífi þess. Þetta hefði auðvitað kostað að...

Hvað kom fyrir heimsóknarteljarann?

Minn sýnir 2 heimsóknir í dag, en þessi tala var MUN hærri núna í morgun ... ? og ekki bara það, heldur er "Frá upphafi" greinilega verið núllstillt líka! Og ekki líst mér það! Ég er búinn að blogga hérna í meira en ár, og væri mjög sárt að tapa þessum...

Rabbabaraís

Bryndís kona mín bakaði snilldar eplapæ um helgina, sem hún segir frá bloggi sínu . Ég tók mig til og gerði soldið sérkennilegan ís með herlegheitunum. Eins furðulega og það hljómar þá gerði ég rabbabaraís, og birti ég þessa uppskrift til þess að...

Þú uppskerð það sem þú sáir ...

... og sá sem sáir ríflega mun og ríflega uppskera. Ég vona að hinir fjölmörgu kjósendur þessa spillta afls fari loks að átta sig!

Kærleiksmaðurinn Hjalti Rúnar

Ég er alveg upp með mér, hin hjartgóði og fyrirmynd kærleikans sem og meðlimur Vantrúar , Hjalti Rúnar Ómarsson , hefur enn og aftur skrifað grein um mig. Það mun vera sú fjórða í röðinni. Síðan ég byrjaði að blogga hér á blog.is þá hef ég greinilega...

Hreint kraftaverk að ekki fór verr

Miðað við styrk þessa sjálfta mega Íslendingar vera stolltir yfir góðri húsasmíði sinni. Brotinn glös og annað innbú er hægt að endurnýja. En enginn slasaðist alvarlega og enginn dó, það er fyrir mestu, og er afar þakklátur fyrir þessa frábæru...

Mótmælum mannréttindabrotum stjórnvalda á Sjómannadaginn!

Nú vaknar Grindvíkingurinn í mér, ég tók þetta af xf.is og má til með að vekja athygli á þessu! Landssamband kvenna í Frjálslynda flokknum boðar til mótmæla á sjómannadaginn Landsamband kvenna í Frjálslynda flokknum boðar til mótmæla á sjómannadaginn...

Heimsendir í nánd?

... hehehe ... ég bara varð! (Svona miðað við hver ég er) tíhí .. Þetta eru bara venjulegar jarðhræringar, en óvenju stór var þessi! Nú segir útvarpið að það komi fleiri ... við sjáum til. Allir stilla á rás 2, þar eru sérfræðingar að ræða...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Guðsteinn Haukur

Guðsteinn Haukur Barkarson
Guðsteinn Haukur Barkarson

"Our life is a gift from God,
what we do with that life,
is our gift to God"

Höf. óþekktur

Sjá höfundasíðu fyrir ákveðna skilmála og upplýsingar um bloggarann 

Önnur snilld...

Hvaða þjóðir heimsækja þetta blogg?

free counters

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.1.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 26
  • Frá upphafi: 588462

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Skoðanna könnun

Á að aðskilja ríki og kirkju?

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband