Heimsendir í nánd?

... hehehe ... ég bara varð! W00t (Svona miðað við hver ég er) tíhí ..

Þetta eru bara venjulegar jarðhræringar, en óvenju stór var þessi! Nú segir útvarpið að það komi fleiri ... við sjáum til. Smile Allir stilla á rás 2, þar eru sérfræðingar að ræða þetta.


mbl.is Afar öflugur jarðskjálfti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Jú það er guddi alveg brjálaður vegna mín :)

DoctorE (IP-tala skráð) 29.5.2008 kl. 16:23

2 Smámynd: corvus corax

Ég hélt að þetta væri Gunna feita á efri hæðinni að detta niður stigann!

corvus corax, 29.5.2008 kl. 16:27

3 Smámynd: Flower

Að láta alþingi blaðra þegar suðurlandsskjálfti hefur riðið yfir er fáránlegt, þó að þeir uppfæri nú fréttir.

Flower, 29.5.2008 kl. 16:31

4 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Jón Grétar - Ég tek heilshugar undir orð þín! hehehe ...

Corvus - jamms..  

Flower - návæmlega! 

Guðsteinn Haukur Barkarson, 29.5.2008 kl. 17:25

5 Smámynd: Flower

Ætlaði að hringja í þig Haukur en ætli ég bíði ekki með það úr því að svona stendur á.

Flower, 29.5.2008 kl. 17:44

6 Smámynd: Bryndís Böðvarsdóttir

Ég var að umpotta jarðarberjaplöntum úti á svölum þegar svalirnar tóku að hristast. Ég hélt að einhver væri að hrista svalirnar og var ekki par hrifin.... Fattaði ekki fyrr en eftirá að þetta var jarðskjálfti.

Nú er sagt að gæludýr eigi að haga sér órólega á undan skjálfta. Að það geti jafnvel gagnast manni sem einskonar viðvörun. Gáraparið okkar var hinsvegar afar rólegt og friðsælt að sjá. Gat ekki lesið neina slíka viðvörun af þeim. Karlinn sýndi reyndar merki þess að hann vildi koma út (sem er ekki óvanalegt). Hann kallaði einu sinni til mín: ,,komdu" sem er heldur ekki óvenjulegt (ekki eins og hann sé eitthvað vitiborinn og viti hvað hann er að segja, þó hann bulli stundum einstök orð).

Ætli þetta eigi ekki við um öll dýr?

Bryndís Böðvarsdóttir, 29.5.2008 kl. 20:55

7 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæl og blessuð.

Við getum verið þakklát Guði að enginn er alvarlega slasaður eftir þennan mikla skjálfta. Eruð þið næst á höfuðborgarsvæðinu? Skjálftarnir færast vestur segja fagmenn.

Megi Guð almáttugur forða höfuðborgarsvæðinu frá stórum skjálfta eins og þessum sem varð í dag.

Sendi hlýjar kveðjur til allra þeirra sem voru á hamfarasvæðinu í dag. Margir hafa eflaust orðið hræddir og margir hafa orðið fyrir miklu tjóni.

Ég vona að þessari hrinur fari að ljúka en við vitum að þetta svæði er stórhættulegt, akkurat á sprungusvæði þar sem Evrópski flekinn og Ameríski flekinn mætast og nuddast saman.

Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 29.5.2008 kl. 21:02

8 Smámynd: Birna M

Ég þurfti að brenna austur í dag í nauðsynlegum erindagerðum og leið hálf undarlega að vera á leiðinni þangað með allan fréttaflutningin, maður hefði getað haldið að jörð gengi í bylgjum og hólar og hæðir væru komnar í veginn, mér var sagt að fara varlega verið gæti að vegurinn væri soldið bugðóttur. En svo virtist allt með kyrrum kjörum, þannig. Sjálf fann ég ekkert því svo vildi til að ég var að keyra á meðan allt hristist. Guði sé lof að þetta varð ekki verra þó nógu slæmt væri það samt.

Birna M, 29.5.2008 kl. 21:54

9 identicon

Rósa þú meinar að guð gerði jarðskjálftann?
Þá þarft þú ekki að þakka honum fyrir að enginn slasaðist alvarlega

DoctorE (IP-tala skráð) 29.5.2008 kl. 23:46

10 Smámynd: Hjalti Rúnar Ómarsson

Guðsteinn: "Heimsendir í nánd?"

Hérna er þýðing handa þeim sem tala ekki guðsteinísku, hann er í raun og veru að spyrja: "Verður heimsendir hvenær sem er, í náinni framtíð eða jafnvel fjarlægri?"

Hjalti Rúnar Ómarsson, 29.5.2008 kl. 23:48

11 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Birna - takk fyrir þessa sögu. 

Guðrún - velkominn í hópinn.  

Hér er svo lausleg þýðing fyrir þann sem tekur ÖLLU alvarlega og gerilssneyddur öllum húmor. Þetta var grín Hjalti! Eru allir vatrúarmenn svona gerilssneyddir húmor eins og þú? Þú tekur sjálfan þig svo hátíðlega að það er ekki fyndið.

Guðsteinn Haukur Barkarson, 30.5.2008 kl. 00:05

12 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Öllum öðrum þakka ég innlitið.

Guðsteinn Haukur Barkarson, 30.5.2008 kl. 00:06

13 identicon

"Eru allir vatrúarmenn svona gerilssneyddir húmor eins og þú? Þú tekur sjálfan þig svo hátíðlega að það er ekki fyndið."

Zing!

Jakob (IP-tala skráð) 30.5.2008 kl. 00:20

14 Smámynd: Hjalti Rúnar Ómarsson

Guðsteinn, ég veit vel að þér var ekki alvara, það er bara fyndið að sjá að þú virðist átta þig á því að "í nánd" þýðir "innan skamms, bráðum", nema þegar þú ert að ræða um misheppnaða spádóma biblíunnar. Áhugavert.

Hjalti Rúnar Ómarsson, 30.5.2008 kl. 02:11

15 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Það var allavega flott að það fór ekki ver.

Gunnar Helgi Eysteinsson, 30.5.2008 kl. 06:04

16 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Pax - geri ég það? Mér finnst Hjalti dæma sig sjálfur.

Hjalti - af hverju tyggur þú alltaf á sömu tuggunni? Ég er alveg hættur að skilja þig.

Gunnar - já, ég held að það hafi ekki farið verr vegna hve íslensk hús eru vel byggð. 

Guðsteinn Haukur Barkarson, 30.5.2008 kl. 08:24

17 Smámynd: Theódór Norðkvist

Sælt veri fólkið. Ég var með Flugbjörgunarsv. Hellu á vaktinni á Selfossi í gær. Þurftum að bera einn 84 ára gamlan mann á börum og fara með hann á heilsugæslustöðina.

Hann var ómeiddur, aðeins heilsulaus, máttfarinn og gat ekki setið eða staðið. Þar sem fólki var ráðlagt að vera ekki í húsunum urðum við að flytja hann þangað sem hann gat lagst.

Biðjum fyrir íbúum Suðurlands sem urðu fyrir eignatjóni, starfsfólki björgunarsveita, heilsugæslustöðva, lögreglu og slökkviliðs. Mikið álag hefur verið á þessu fólki.

Theódór Norðkvist, 30.5.2008 kl. 11:14

18 identicon

Ég segi bara eins og hún vinkona mín Sharon Stone,

"ÞETTA VAR BAD KARMA!!! Okkur Íslendingum er að hefnast fyrir lélega EFNAHAGSSTJÓRN!!

Djók!!

Ragnheiður Arna Magnúsdóttir (IP-tala skráð) 30.5.2008 kl. 11:32

19 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Hérrétt Teddi - þetta er bænarefni og takk fyri9r athugasemdina.

Ragnheiður - Bara ekkert fjarri lagi hjá þér! hehehe...

Guðsteinn Haukur Barkarson, 30.5.2008 kl. 12:44

20 Smámynd: Haraldur Davíðsson

jahérna, þú mátt greinilega ekki grínast, Guðsteinn.

Annars er ég sammála þér, þetta eru bara smá hóstaköst hjá móður Náttúru, hún gæti nú alveg tekið upp á því að sýna okkur hvað hún GÆTI gert...ef hún vildi, sbr Kötlugos eða umbrot í Bláfjöllum.

Heimsendir er víðtækt hugtak, kannski var þetta heimsendir fyrir nokkrar kindur og fugl eða tvo, svo að það er ekki sama HVERN þú spyrð........frekar en venjulega.

Haraldur Davíðsson, 30.5.2008 kl. 14:40

21 identicon

En það er sannað að bænir gera ekkert krakkar mínir, þannig að þið gætuð allt eins sagt "Ok gerum ekkert"

Sorry ég bara varð, þið lögðuð þetta svo vel upp :)

DoctorE (IP-tala skráð) 30.5.2008 kl. 16:50

22 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir


Christian Glitter by www.christianglitter.com

Sæll Guðsteinn.

Guð gefi þér og fjölskyldunni góða helgi og bjarta framtíð. Sendi öllum sem eru hér að kvitta einnig góðar óskir.

Guð veri með ykkur öllum.

Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 30.5.2008 kl. 20:15

23 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Halli "Bowie" ekki satt? Nei, ekki má ég grínast neitt! Sveiattann!

Dokksi - prófa áður en þú dæmir.  ;) 

Rósa - Guð blessi þig kæra systir í Kristi. 

Guðsteinn Haukur Barkarson, 30.5.2008 kl. 20:51

24 Smámynd: Bryndís Böðvarsdóttir

En finnst engum stórkostlegt hve menn sluppu almennt við alvarleg meiðsl og engin dauðsföll urðu? Án efa er það mikið að þakka vel byggðum húsum, en þegar maður les hinar fjölmörgu frásagnir fólks frá aðal umbrotasvæðunum, þá eru svo margir sem segjast hafa rétt sloppið. Voru nýbúnir að færa sig frá hættulegum stað t.d. Það virkar á mig eins og vernd Guðs í verki og raunveruleg englavernd yfir fólki.  Annars yrði ég að trúa á ótrúlega röð tilviljana.

Teddi þú ert traustur maður á réttum stað þarna. Gangi ykkur vel og Guðs blessun í öllu þessu.

Bryndís Böðvarsdóttir, 30.5.2008 kl. 21:55

25 Smámynd: Auðun Gíslason

Er einmitt búinn ap bíða eftir svona kenningasmíð um skjáltann í gær.  Snorri segir nefnilega, að tíðar náttúruhamfarir undanfarin ár í heiminum séu ótvíræð merki um að heimsendir sé í nánd!  Verst að það er ekki nema 40% af meintum júðum í heiminum flutt til Ísraels.  En Snorri hefur eflaust rétt fyrir sér, einsog áður!

Auðun Gíslason, 30.5.2008 kl. 23:59

26 Smámynd: Haraldur Davíðsson

Hef ekki viljað segja neitt, en jú. Sælir og bið að heilsa Gústa.

Við höfum tekist á, áður.

Haraldur Davíðsson, 31.5.2008 kl. 05:08

27 Smámynd: Kristján Eldjárn Þorgeirsson

Sæll Haukur!

Það var svakalegt að upplifa þennan jarðskjálfta sl. fimmtudag og allt öðruvísi upplifun en það var árið 2000, kanski er það að maður er eldri núna og þroskaðri heldur en maður var fyrir 8 árum síðan, ég veit ekki.  En það er mest um vert að það sluppu allir heilir á sál og líkama í minni fjölskyldu hér fyrir austan fjall og afi gamli í Skógsnesi sagðist varla hafa fundið fyrir þessum skjálfa, allavega ekki jafn harkalega og við hér á Selfossi.

Kærar kveðjur! Bið að heilsa þér og þínu fólki

Kristján Eldjárn Þorgeirsson, 1.6.2008 kl. 13:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Guðsteinn Haukur

Guðsteinn Haukur Barkarson
Guðsteinn Haukur Barkarson

"Our life is a gift from God,
what we do with that life,
is our gift to God"

Höf. óþekktur

Sjá höfundasíðu fyrir ákveðna skilmála og upplýsingar um bloggarann 

Önnur snilld...

Hvaða þjóðir heimsækja þetta blogg?

free counters

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 587745

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 18
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Skoðanna könnun

Á að aðskilja ríki og kirkju?

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband