Bloggfærslur mánaðarins, maí 2007

Ekki lengur ró og friður ...

Þarna er ekki ró og friður,
og ekkert gott að setjast niður
maður hugsar ekki sínu þungu þanka
og vonandi fer einhver að banka,
þá er venja og siður
og slökkva eldinn
og hlaupa niður !! 

W00t

Ef ég fer einhverntíma til Japans mun ég nota gamaldags útikamar !! 


mbl.is Vara við eldhættu í salernisskálum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er ekki amalegt!

Frábær árangur hjá þessum listamönnum sem fá að taka þátt í þeim virtustu listasýningum heims. Í Carnegie snýst allt um snobb og að vera flottur, oft og mörgum sinnum hef ég gagnrýnt þessa sýningu vegna listaskorts, ekki nema þú teljir þotuliðið vera listaverk sem slík.

En ég man ekki eftir að íslendingum hafi tekist að gera innrás í hjarta hvítflibbanna í listaheiminum! Gott hjá þeim, ég óska þeim alls hið besta og vona að þeim vegni vel í þessu ! Cool


mbl.is Tveir Íslendingar með á Carnegie-sýningu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gangi þér vel Eiríkur !

EikiRaudiEiríkur Hauksson* er kominn í víking. Ég verð á skeljunum í kvöld og bið fyrir velgengni hans fyrir hönd Íslendinga ! Ég hvet alla til þess að gera slíkt hið sama !Wink

 

*(Að vera Hauksson gæti ekki verið betra, þetta er með fallegri nöfnum í íslenskri tungu) 


mbl.is Íslenski Eurovision-hópurinn tilbúinn í slaginn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frá grárri forneskju !

Krumpudýrið Sir Cliff Richards er e-ð svekktur útí íslendinga þessa daganna. Ég skil það svo sem ósköð vel, meira að ódönnuð fréttakona kastljós kallaði Cliffa elliært gamalmenni fyrir framan alþjóð! GetLost

hehehehe ... hvers á hann að gjalda eiginlega? Hann kemur pottþétt ekki aftur til Íslands! W00t



mbl.is Cliff hefur skemmt í fjórar aldir!
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Konan mín er kominn aftur á kreik

Prófin eru loks á enda og yndisleg eiginkona mín er farinn að blogga á ný! Smile

Endilega skoðið bloggið hennar, hún er guðfræðinemi og hefur margt til málanna að leggja.

Þessi auglýsing var skyrkt af eiginmanni hennar sem leggur til allan kostnað við gerð hennar.  :-D


Það vantar Framsókn á þennan lista

Þetta er afar gott framtak, verst er að þetta er í Leifssöð og ég þarf að kaupa mér miða til útlanda ef ég ætla að sjá e-ð af henni.

En ég skora á Jónínu að bæta Framsókn við í listann í "dýr í útrýmngarhættu"!


mbl.is Dýr og plöntur í útrýmingarhættu sýnd í Leifsstöð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Önnur kosningarbrella Framsóknar!

Kvöldið eftir að hart var deilt á Framsókn og sjallanna fyrir einmitt þetta að friðlýsa ekki mörg landssvæði, þá kemur þetta daginn eftir. Þökk sé frambjóðanda Íslandshreyfingarinnar sem vakti athygli á þessu. Þetta var á rúv í gærkvöldi. Umhvefisráðherra er framsóknarkona, Jónína Bjartmarz að nafni og lætur hún loksins til sín taka 3 dögum fyrir kosningar. *andvarp*

Örfáum dögum áður gerir Siv Friðleifs slíkt hið sama, hún kemur á ókeypis tannlækna skoðun fyrir börn, 5 dögum fyrir kosningar. Sér enginn mynstrið í þessu annar en ég? Eigum við að láta múta okkur með örfáum brauðmolum rétt fyrir kosningar?!?

Nei, og aftur NEI! Þeir haf 12 ár til þess að hafa árhrif, það bara gengur ekki að þegar 3 dagar eru til kosninga þá reyna þau að bæta úr örfáum misgjörðum. Þetta er eins og að rétta hungruðu barni eina kleinu !!! Angry


mbl.is Jörðin Hraun í Öxnadal friðlýst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Uppskeran er mikil !

Matteusarguðspjall 9:37-38
37 Þá sagði hann við lærisveina sína: ,,Uppskeran er mikil, en verkamenn fáir.
38  Biðjið því herra uppskerunnar að senda verkamenn til uppskeru sinnar."

jesus_crossUppskeran er mikil því Jésús vill eiga alla. Hann kom til að verða frelsari allra og hann dó fyrir alla. Þegar hann sendi lærisveina sína útí heiminn fékk hann þeim það hlutverk að gera allar þjóðir að lærsveinum hans.

Mjög fer fjarri því að þessu verki sé lokið. Við erum allt of fáliðuð miðað við hið háleita takmark.

Þannig er nú málum háttað. Hið mikla verkefni vex okkur í augum. Stundum verðum við döpur þegar við hugsum um eigin getu og hæfileika.

En hvað máttu lærisveinarnir halda þegar Jésús fól þeim hlutverkið? Varla hefur það verið auðveldara þá en núna!

“Biðjið því herra uppskerunnar” sagði Jésús. Þar er leiðin sem hann bendir á, leið bænarinnar. Hann sem almáttugur Guð á himnum hefur viljað stjórna heiminum þannig að hann tekur bænir trúaðra manna til greina, þær eru liður í stjórn hans.

Bænin hefur opnað margar dyr. Biðjum þess að svo verði enn.

“Biðjið því herra uppskerunnar að senda verkamenn til uppskeru sinnar” sagði Jésús.

Já, um það eigum við að biðja. Við þurfum fólk sem vill leggja allt í sölurnar og fara þangað sem Guð sendir það. Við þörfnumst trúaðra karla og kvenna sem rífa ekki seglin þótt móti blási – vegna þess að þau hafa fengið skipun frá almáttugum Guði.

Jesus_wsVið þörfnumst slíks fólks. Og tökum vel eftir: Við þurfum fólk sem Guð hefur sent, konur og karla sem hafa lært að þekkja Jésú í trúnni og lifa með honum í bæn og í trú.

Þú sem trúir á Jésú skalt fá að vera í hópi þeirra!!

Af náð hans og miskunn ég útvalinn er,
nú er ég hans frelsaða barn.
Hann sleppir mér ekki, hann áfram mig ber
Um eyðimörk lífsins og hjarn.
(Nils Frykman – Sigurbjörn Sveinsson)
 

Ég studdist við: Daglegt Brauð - eftir Carl Fr. Wislöff við þessa grein.


Spiderman 3 - ****1/2 stjarna! :)

spiderman_rooftopÉg hafði mig loksins í það að sjá Spiderman 3 í gærkvöldi. Ég var afar ánægður að sýningu lokinni, eina sem er myndinni virkilega til vamsa er ameríska væmnin ... úfff ... alveg fer það í mínar fínustu þegar hasarmyndir verða skyndilega að vælu myndum.

En kaninn er með lögmál um að allir bílar þeirra springa og einhver verður að væla í hverri mynd. Þetta er hið brenglaða lögmál Hollwood. GetLost

En Spiderman 3 kom skemmtilega á óvart fyrir forfallinn teiknimyndaaðdáanda eins og mig. Þeir héldu sig við upprunalegu Marvel sögurnar og skiluðu fínum hasar á tjaldið! Fær því 4 og hálfa stjörn með -1/2 fyrir væmnina. Tounge


Bann við kannanir !

Mér finnst að ætti að banna kannanir svona rétt fyrir kosningar, því að þær eru allt of skoðannamyndandi. Þeir sem nenna ekki að kynna sér málin fylgja yfirleitt þeim sem eru vinsælastir, sem er sjálfstæðisflokkurinn, ég held að þorri atkvæða þeirra sé einmitt vegna áhugaleysis á pólitík. Fólk kýs íhaldið af gömlum vana eða afþví pabbi, mamma, afi eða amma gerðu það. Pinch

Kynnið ykkur málin og látið hjartað ráða þegar kemur að kjörborðinu! Ekki láta endalausar kannanir hafa áhrif á skoðannir ykkar!

Hverja vilt þú styðja á kjördag?

xdxfxixs

xv


mbl.is Ríkisstjórnin fallin samkvæmt nýrri skoðanakönnun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Guðsteinn Haukur

Guðsteinn Haukur Barkarson
Guðsteinn Haukur Barkarson

"Our life is a gift from God,
what we do with that life,
is our gift to God"

Höf. óþekktur

Sjá höfundasíðu fyrir ákveðna skilmála og upplýsingar um bloggarann 

Önnur snilld...

Hvaða þjóðir heimsækja þetta blogg?

free counters

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.10.): 0
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 27
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 27
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Skoðanna könnun

Á að aðskilja ríki og kirkju?

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband