Bloggfærslur mánaðarins, maí 2007

Rotið réttarkerfi !

Afhverju fær maðurinn bara tveggja og hálfsárs dóm? Mér finnst að ætti að bæta tveimur núllum fyrir aftan þessa tölu svo að réttlætinu sé fullnægt. Það heldur ekkert minnst á neinar úrbætur fyrir manninn, afhverju er hann ekki sendur í einhverja sálfræðimeðferð til þess að vinna bug á þessu vandamáli?

Nei, hann bara dæmdur, punktur og basta. Það er ekki sama hvert málið er, suma á barasta að loka inni, en aðra er hægt að hjálpa. Það versta í þessu að það var ekki skipt um Dómsmálaráðherra í nýafstöðnum kosningum, Sjallarnir virtu röddu kjósenda sinna að vettugi og gera sér ekki grein fyrir að það þarf mann eða konu sem þorir að taka ákvarðanir í þessu embætti!

Eins og staðan er núna er væskill sem líður vel með sinn ráðherradóm og gerir ekkert til betrumbæta umhverfi sitt !!


mbl.is Í 2½ árs fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn barni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gott framtak þetta !

Ég sem reykingamaður styð þetta framtak þrátt fyrir fíkn mína. En ég er að reyna að hætta, sem gengur hægt en gengur þó. En nú veðrur hægt að fara inná skemmtistaði án þess að þurfa að brenna fötin sín eftir heim er komið. Ég reyndar viðurkenni það ég hef ekki farið inná skemmtistað í meira en áratug, þannig þetta skiptir mig svo sem engu máli.

mbl.is Reykingabann á skemmtistöðum gæti skilið milli feigs og ófeigs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Margur er knár, þótt hann sé smár

Rod gamli Stewart sannar þetta orðtak. Þessi gamli playboy sannar líka að það sé ekki útlitið sem skiptir máli heldur $$$.

mbl.is Rod Stewart kemur upp um eigin smæð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

En við höfum Steingrím !

Auðvitað eiga foreldrar að vera meðvitaðir um netnotkun barna sinna. Það eru til góð tól til þess að hindra þeim aðgang að ákveðnum síðum. Það er tildæmis hægt að stilla flestar vírusvarnir á hámarks security og önnur tól eins og

mbl.is Netið er eins og stórborg án lögreglu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hann iðraðist þó !

Ekki veit ég afhverju þessu maður kaus að sýna karlmennsku sína á þennan hátt, enda finnst mér þetta bara skoplegt. En það er þó bót í máli að hann iðraðist gjörða sinna !

mbl.is Pissaði á lögreglubíl
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heilagir Kárahnjúkar ...

Þessi endalausu álver er hér með orðinn heillög. Enginn rannsakar þær sakir sem bornar eru Impregilo, menn sitja með hendur í skauti og gera ekkert til þess að bera af sér þessar sakir. Hvernig væri að sýna t.d. myndir af aðstöðu þessara starfsmanna? Hvernig væri að taka viðtöl við þá sem hafa unnið þetta?

Nei. Ekki hægt. Álver eru heilög mjólkurkú sem má ekki gagnrýna.


mbl.is Segir Portúgala hafa sætt slæmri meðferð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stutt í þetta á Íslandi !

Miðað við þær árásir sem gamalmenni verða fyrir núna undanfarið, þá er stutt í þetta hjá okkur. Eins og ég segi, það vantar algjörlega allan Guðsótta í heiminn í dag, og held ég að það myndi breyta miklu. 
mbl.is Morð í Danmörku vekur óhug
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er komið sumar !! :)

Í öllum þessum slæma fréttum sem hafa verið í dag, loksins kom ljós í myrkrinu. Við fáum hitatölur á annan tuginn !!  Wizard
mbl.is Hlýindi teygja sig til Íslands - sumarið líklega í meðallagi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyrirbænarefni - að hætta að reykja ...

smokingÉg vil biðja alla sem lesa þetta að hugsa vel til mín og jafnvel biðja fyrir því að hætta reykja. Ég hef reykt nánast samfleygt frá 14 ára áldri. Frown

Ég er kominn á lyf sem heitir Nicostopp sem gerir fráhvarfið bærilegra, því það er það sem hefur alltaf stöðvað mig. Ég er ekki vanur að biðja um hjálp og talinn frekar þrjóskur með það að gera, en ég veit og treysti að bænir annara geta unnið sigur! Mig virkilega langar að losna undan þessari ógeðslegu fíkn og í auðmýkt bið ég ykkur um hjálp ! Crying


Íslendingar mega skammast sín!

Jæja, nú kemur þessi sendiherra og sér hvernig við búum að fólki. Fólkinu er holað niður eins og skepnur og enginn gerir neitt í neinu nema segja kannski rasista brandara við þessa útlendu verkamenn. Við höfum sáð ríflega í þetta verkefni og erum nú að uppskera eigin græðgi. Það var löngu vitað áður en þessi Portúgali hóf upp raust sína, um hvernig aðstaðan er í þessari virkjun. En eins og venjulega þá er þessu frestað til seinustu stundar að lagfæra þetta. Ekki veit ég hver ber ábyrgðina fyrir þessu, en mér finnst að Framsóknarflokkurinn eigi aðalábyrgðina á þessu og vil koma þökkum til þeirra fyrir slíkt þrekvirki sem þeir hafa gefið okkur ásamt Sjálfstæðismönnum.

mbl.is Portúgalski sendiherrann boðar komu sína hingað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Guðsteinn Haukur

Guðsteinn Haukur Barkarson
Guðsteinn Haukur Barkarson

"Our life is a gift from God,
what we do with that life,
is our gift to God"

Höf. óþekktur

Sjá höfundasíðu fyrir ákveðna skilmála og upplýsingar um bloggarann 

Önnur snilld...

Hvaða þjóðir heimsækja þetta blogg?

free counters

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 31
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 27
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Skoðanna könnun

Á að aðskilja ríki og kirkju?

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband