Færsluflokkur: Viðskipti og fjármál

Glæsilegt!

Sama er mér þótt ég lendi í töfum vegna svona aðgerða, ég styð þetta heilshugar og finnst þetta vera hreint frábært framtak!

Það var kominn tími á að íslendingar stóðu upp og mótmæltu! Sérstaklega vegna þessarar soglegu fréttar:

Mótmælum svona kjaftæði! 


mbl.is Áframhaldandi „umferðarskærur"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aðgerðir strax!

Í útvarpinu í morgun var hvatt til þess að kaupa og kaupa áður en verðhækkanir ALLRA verslanna gengu í garð. Eftir svakalegt fall gjaldmiðils okkar þá verða allar innfluttar vörur dýrari. Nú er um að gera að halda að sér höndum og kaupa helst bara íslenskt, sleppa öllum munaðarvörum og sýna skynsemi í innkaupum.

En bensínverð er annar kapítuli, þar geta stjórnvöld komið til móts við okkur í formi skattabreytinga á bensíni. En auðvitað er slíkt fast í einhverri nefnd sem aldrei skilar af sér.

Það stendur í fréttinni:

„Fjármálaráðherra er með nefnd til að yfirfara gjaldtöku á eldsneyti og samræma hana milli einstakra eldsneytistegunda. Vonandi kemur niðurstaða út úr því áður en langt um líður.“

*Andvarp* ... þetta kallast á mannamáli: eilíft tal og engar aðgerðir! Sem reyndar einkennir besservesíranna hjá Sjálfsæðisflokknum. GetLost
mbl.is Hagnast um 2,7 milljarða króna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jafnaðarstefnuflokkurinn sem brást gildum sínum

 

GHogISG

 

Afhverju þarf alltaf svona lagað til þess að stjórnvöld vakni, hvað marga dóma þarf til þess að þessir háu herrar sjái það sem að er? Þeir hunsa mannréttindabrotum og núna OECD sennilega líka. Almenningur hefur sofnað á verðinum, og hleypt sömu mönnum inn, aftur og aftur, þeirra sem eiga mestra hagsmuna að gæta! og á ég þá við Sjálfsæðismenn í því tilelli!

Hvar er svo ....  jafnaðarstefnan? Eða er Samkurlið loks orðið það sem varað var við, raunverulegt Samkurl með flokknum sem hann vinnur með? Ég vona að þessir "jafnaðarmenn" vakni af værum draumi og fara að standa undir nafni!


Til að byrja með mætti lækka skattleysismörkin eins og Guðjón Arnar hefur margsinnis bent á! Svona til að koma til móts við fátæka fólkið til tilbreytingar!!

(Í ganni teiknaði ég mynd af Geira Harða og Ingu Sollu ... ég teiknaði þau ofan á mynd með brennandi húsi ... fannst það viðeigandi Wink)


mbl.is Áfellisdómur yfir skattastefnu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Við erum ekki á vonarvöl!

Loksins kom jákvæð frétt úr heimi fjármálanna. Því eftir að Seðlabanki Íslands er búinn að klúðra okkar fjármálalífi svo um munar, þá koma sem betur fer aðrir bankar útí heimi með skynsamlegar mótaðgerðir gegn kreppunni sem vofir yfir. Ekki hafa þeir gefist upp og gera virkilega eitthvað í málunum og naga ekki bara blýanta!

Þetta sýnir og sannar að það er til vonarglæta í öllu þessu og vona ég að Davíð Oddsson læri af þessum sambankastjórum sínum. Hann er ekki vinsæll eins og er og bendi ég á ágæta grein góðvinar míns Sigurðs Þórðarsonar hefur tekið á því máli og gert því góð skil.


mbl.is Markaðir hækka vegna aðgerða bandaríska seðlabankans
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nei takk.

Í fyrsta lagi vantar sárlega stuðningsfólk Frjálslyndaflokksins í þessa könnun, og gefur því ekki nægilega góða heildarmynd.

En ég segi fyrir mig að ég er alfarið á móti slíkri aðild, við fórnum of miklu og eigum of mikilli hagsmuna að gæta til þess að þetta borgi sig. En það er bara mín skoðun.
mbl.is 54% vilja aðildarviðræður við ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enn og aftur dæma danir okkur ... á endanum rætist það

Ekki skil ég hvaða dómsdagsandi yfir dönum þessa daganna, núna í seinustu viku var annar dani sem spáði öllum bönkum Íslands gjaldþroti. Núna er bara varað við okkur eins og við séum þegar gjaldþrota! Og svo nýlega var "Ekstra bladid" var nýlega dæmt til þess greiða íslenskum banka  himinn háar bætur vegna svona ummæla! Ótrúlegt alveg!

Hvað er málið með Dani?  Eru þeir svona fúlir að við keyptum "Magasin" ??

Ekki veit ég hvað þetta getur verið, en svona yfirlýsingar gera ekkert nema skaða og mér finnst Danir vera óréttlátir í þessum dómsdagsdómi! 


mbl.is Nordea: Varað við Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gerbreyttar aðstæður? Og hvað svo?

cod_fishLoðnan er hér með farinn. Þorskurinn má varla snerta. Útgerðir ýmist sameinast, fara á hausinn eða segja upp starfsfólki. Hvað er þá eftir? Ekkert.

Ég kalla hér með eftir þessum 'mótvægisaðgerðum' svo kölluðu frá höndum ríkisstjórnarinnar. Eina sem heyrst hefur frá þeim er að byggja nokkra vegi og bæta samgöngur. Og vilja þeir meina að það sé mótvægisaðgerð. Ég spyr: Gefur slíkt af sér í ríkissjóð og elfar okkur tekna á einhvern hátt? Nei.

Hversu oft þarf að sanna að þetta blessaða kvótakerfi er handónýtt og þarf verulega að endurskoða? Hversu marga mannréttindadóma þarf ríkisstjórnin til þess að hún átti sig? Nei ég bara spyr.

Sönn 'mótvægisaðgerð' væri að finna aðrar tekjulindir til útflutnings og sölu. En hvað gera þeir? Þeir byggja vegi og telja sig afsakaða og fría allra ábyrgðar.

Mótvægisaðgerð væri t.d. það að selja þá þekkingu sem við höfum, eins og t.d. uppbyggingu orkuvera sem nýta jarðvarma og eru umhverfisvæn. Eða jafnvel að styrkja hugbúnaðargeirann og selja þekkingu þaðan. Svo er líka til orka sem má selja og allar hugmyndir um að íslendingar hýsi stór tölvu/netver er alveg afbragð. Eins er ferðamannaiðnaðurinn vanræktur, hann mætti byggja upp líka. En þetta eru bara mínar eigin tillögur.

Úr nógu er að taka ef menn hafa fyrir því að horfa aðeins í kringum sig, en ritað er um þetta fólk:

Matteusarguðspjall 15:14
Þeir eru blindir, leiðtogar blindra. Ef blindur leiðir blindan, falla báðir í gryfju.``

Og sannast þessi orð í samstarfi Samfylkingarinnar og Sjálfstæðisflokksins. Wink

Mínar bænir eru hjá ríkisstjórninni og megi góður Guð leiða þá á rétta vegu.
mbl.is Gerbreyttar aðstæður víða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spilaborg auðvaldsins hrynur ... loksins!

Loksins hefur fengist staðfest að kvótavinakerfi íslendinga er rangt og óréttlátt frá upphafi til enda. Þessi áfellisdómur SÞ er bara fyrsta skrefið í átt að nýjum tíma. Við þessi tíðindi er von mín sú að landsmenn vakni af löngum svefni sem stjórnvöld hafa séð til þess að við sofum.

Það er kominn tími á breytingar og að gefa mönnum tækifæri til þess að sanna sig, það eru til margar betri lausnir en þær sem réttir bókstaflega allan auð beint í hendur útvalda aðila og sérréttindahópa.

Björg Thorarensen, prófessor við lagadeild Háskóla Íslands, var spurð hvaða áhrif það geti haft ef Ísland virðir álit nefndarinnar að vettugi segir Björg (tekið úr þessari frétt):

,,Það hefur engar lagalegar afleiðingar í för með sér. Það eru engin úrræði hjá Sameinuðu þjóðunum til þess að fylgja niður stöðum Mannréttindanefndarinnar eftir eins og um dóm frá t.d. Alþjóðadómstólnum væri að ræða.
Hins vegar er fullkomlega eðlilegt að líta svo á að það þurfi að skoða þessa niðurstöðu mjög alvarlega og reyna eins og unnt er að fylgja henni. Vandinn við niðurstöðuna er hins vegar sá að hún er afskaplega óskýr og rökstuðningurinn er mjög knappur," segir hún.

Titillinn á þessari frétt er: "Breytir engu hér á landi", þessu er ég ekki sammála. Þetta er bara upphafið af endinum, og kominn tími til!

Það er til hreyfing sem hefur barist gegn þessu bákni frá upphafi, það er til hreyfing sem hefur haldið því fram árum saman að þessu kerfi eigi að henda. Það er til ein hreyfing sem virkilega berst fyrir óréttlæti og yfirgangi, það er Frjálslyndiflokkurinn.

Hugsum okkar gang og sjáum réttlætið í gjörðum og orðum manna.

Kjósum X-F!


mbl.is Breytir engu hér á landi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Varist eftirlíkingar

edalvorur_ginsengÉg er farinn að taka inn eitthvað sem ég hef ekki gert áður sem heitir: "Rautt eðal ginseng". Og um leið og ég byrja þá byrja óprúttnir náungar að selja svikavöru. Ég get vottað um það að ginseng virkar, og virkar það vel! Því vil ég vara við svikahröppum eins og kemur berlega fram á síðu neytindasamtakanna!

Ég birti hér mynd af hinu rétta ginsengi, og mæli ekki með ginsenglíki sem menn eru að selja í mjög svipuðum umbúðum! Angry

Ég er ekki vanur að mæla með svona löguðu, eða tala um vörur per se. En þessi virkar, og er algjör snilld að mínu mati! Cool

P.s. ég er ekki á prósentum, mér finnst þetta bara góð vara ! W00t


« Fyrri síða

Guðsteinn Haukur

Guðsteinn Haukur Barkarson
Guðsteinn Haukur Barkarson

"Our life is a gift from God,
what we do with that life,
is our gift to God"

Höf. óþekktur

Sjá höfundasíðu fyrir ákveðna skilmála og upplýsingar um bloggarann 

Önnur snilld...

Hvaða þjóðir heimsækja þetta blogg?

free counters

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.8.): 10
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 588891

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Skoðanna könnun

Á að aðskilja ríki og kirkju?

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband