Á að aðskilja ríki og kirkju?

Getið þið sagt mér góða ástæðu fyrir aðskilnaði eða að halda óbreyttu fyrirkomulagi?

Guðni Karl Harðarson er með sams konar grein, en ég ákvað að athuga hvort ég fengi öðruvísi eða samskonar viðbrögð og hann, ég vona að þið fyrirgefið mér hugmyndaleysið en ég hef ekki verið duglegasti bloggarinn undanfarna mánuði.

Ég hef alltaf verið frekar hlynntur aðskilnaði, en undanfarið hef ég verið með bakþanka, og hef doldið endurskoðað afstöðu mína. Það sem ég er að leitast eftir með þessu eru rökin með og á móti.

Hver er ykkar skoðun?

P.s. ég er búinn að setja inn skoðanakönnun neðst, lengst til vinstri á síðuna um þetta mál. Endilega takið þátt.


Hvernig varð þá fyrsta atómið til?

Í fréttinni stendur:

Hawking segir að upphaf heimsins við Stórahvell hafi aðeins verið afleiðingar þyngdarlögmálsins. „Vegna þess að þyngdarlögmálið er til staðar þá gat og mun heimurinn skapa sjálfan sig úr engu. Sjálfsprottin sköpun er ástæða þess að það er eitthvað fremur en ekkert, ástæða þess að heimurinn er til, að við erum til," segir Hawking í bókinni „The Grand Deisgn" sem birtist sem framhaldssaga í The Times. 

Það segir sig sjálft að til þess þyngdarlögmálið virki þá þarf massa, og til þess að mynda massa þá þarf atóm sem setja hann saman. En spurning mín til manna sem aðhyllast þessa kenningu, hvernig varð þá fyrsta atómið til sem orsakaði miklahvell?

Ég tek fram að ég trúi að miklihvellur hefi einmitt átt sér stað, en með hönnuð á bak við það. Ég get ekki trúað að "heimurinn skapi sjálfan sig úr engu" eins og herra Hawkins, ég bara get það ekki. Hver er ykkar skoðun?


mbl.is Ljóst að Guð skapaði ekki heiminn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vel gert!

Ég var alveg búinn að missa alla trú á þjóðkirkjunni. En eins og viðtengd frétt sannar þá er greinilega vilji hjá kirkjunarmönnum að bæta ráð sitt, sem ég persónulega fagna og líst vel á að það komi óháðir aðilar til þess að kryfja þau mál sem Ólafur Skúlason fyrrverandi biskup skildi eftir sig.

Þarna kemur berlega í ljós sá kraftur sem fjölmiðlar og almenningur býr yfir, og verður þá ríkiskirkjan að vinna í því að endurvinna það traust sem glatast hefur á undanförnum dögum.

Megi Guð blessa allt þjóðkirkjufólk og alla starfsmenn hennar.


mbl.is Boða rannsóknarnefnd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enginn er yfir landslög hafinn

Sama hversu heilagur þú ert! Meira að segja Jesús var prófaður af samtímamönnum sínum, og athugað hvort hann færi ekki alveg örugglega eftir landslögum:

„Þeir koma og segja við hann .. Leyfist að gjalda keisaranum skatt eða ekki? Eigum við að gjalda eða ekki gjalda? .. Þeir fengu honum pening. Hann spyr: Hvers mynd og nafn er á peningnum? Þeir svöruðu: Keisarans. En Jesús sagði við þá: Gjaldið keisaranum það sem keisarans er og Guði það sem Guðs er.“ Mark. 12:13-17. 

ist2_4364427-dove-symbol-of-peace-on-earth.jpgMálið er einfalt, eins og ofangreint dæmi sýnir, enginn getur sett sig ofar en þau lög þess lands sem hann/hún býr í, því annars eru lögin gagnslaus. Skoðun Geirs finnst mér vera keimlík Kaþólskra presta, þar sem þeir sjá um að hlusta á "skriftir" sóknarbarna sinna. En málið er, að við erum ekki kaþólikkar, og er staðan ALLT öðruvísi hjá okkur vegna þess.

Prestar eiga vissulega vera sálusorgarar, og eigum við að geta þeim treyst jafnvel fyrir lífi okkar. En við eigum einnig að geta treyst því að þeir fari með alvarleg kynferðisbrotamál á hendur ungra barna til viðeigandi yfirvalda. Ég sé ekki að það sé brotinn einhver "heilagur trúnaður" ef prestur lætur yfirvöld vita, heldur er hann að sinna sínu starfi sem prestur og er að hjálpa þeim sem er í vanda staddur til þess að koma afbrotamönnum á bak við lás og slá. Öryggi sóknarbarna á ávallt að ganga fyrir, og því hlutverki sinnir þú ekki með því að þegja!

Ég vona bara að Geir Waage endurskoði afstöðu sína, og Guð blessi prestastétt Íslands.


mbl.is „Nú þarf Geir Waage að hætta“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hver er Íslenska Kristskirkjan?

Best er að byrja á sér sjálfum, þ.e.a.s. sinni eigin kirkju í þessari umfjöllun minni sem ég ætla að gera að hálfgerði seríu.

En hver er Íslenska Kristkirkjan? Og hvað stendur hún fyrir? Þessi orð af heimasíðunni okkar segir allt sem segja þarf:

Íslenska Kristskirkjan er lúterskur fríkirkjusöfnuður, viðurkennt skráð trúfélag og veitir meðlimum sínum alla almenna kirkjulega þjónustu svo sem skírn, fermingu, hjónavígslur og útfarir. Söfnuðurinn á bakgrunn sinn í samtökunum Ungt fólk með hlutverk, sem störfuðu í 21 ár sem leikmannahreyfing innan þjóðkirkjunnar. Íslenska Kristskirkjan var stofnuð haustið 1997.

Kenningargrundvöllur kirkjunnar er hinn sami og annarra lúterskra safnaða.

Það er ekki mikill munur á okkur og þjóðkirkjunni, við erum bara meira lifandi en þjóðkirkjan. Cool Friðrik Schram veitir söfnuðinum forstöðu og er hann með þeim yndislegustu mönnum sem ég hef kynnst um daganna. Hann ásamt eiginkonu sinni (Vilborg Schram) reka Íslensku Kristkirkjuna af mikilli alúð og dugnaði. Kirkjan er staðsett í Fossaleyni 14 í Grafarvogi (rétt hjá Egilshöllinni).

Friðrik hefur verið afskaplega duglegur að búa til sína eigin sjónvarpsþætti (Sem bera nafnið "Um trúnna og tilveruna")sem sjónvarpsstöðin Omega góðfúslega birtir. Þættirnir eru framleiddir og teknir upp alfarið í okkar eigin kirkju og af okkar fólki sem við sjálf berum fulla ábyrgð á.

Sjálfur hef ég nokkrum sinnum komið fram í þeim þáttum, og meira að var ég með matreiðsluþátt, að ég held hinn fyrsta kristilega matreiðsluþátt á Íslandi. Cool

Niðurstaða:
Þar sem kenningarmunurinn á okkar kirkju og þjóðkirkjunnar er fremur lítill, þá ætla ég ekki að halda neitt erindi um það. Frekar megið koma með spurningar í athugasemdarkerfinu sem ég reyni þá að svara og ber þá undir Friðrik eftir því sem þarf og við á. Endilega verið dugleg að spyrja!

Þennan tékklista kem ég til með nota hér og fyrir alla aðra söfnuði (með fyrirvara um breytingar):

Á hvað trúir söfnuðurinn?
Jesúm Krist.

Trúir hann (söfnuðurinn) þá á þrenninguna?
Já.

Hvernig er skírninni háttað? Barnaskírn eða niðurdýfingarskírn?
Barnaskírn.


Um afstöðu mína ... og margt fleira

Ég hef verið latur að blogga undanfarið, og eru góðar og gildar ástæður fyrir því. Ég hafði enga löngun til þess lengur. En það er eins spurning sem ég hef stundum verið spurður að sem mig langar að svara til þess að taka af allan vafa yfir þeim ástæðum sem ég hef mig í frammi að tjá mig yfirhöfuð, þó sérstaklegatheist_1001010.jpga um trúmál.


Ég var alinn upp af yndislegum foreldrum, sem kenndu mér gildi lífsins og siðferði. Eitt af því mikilvægasta sem ég lærði af þeim er að falla aldrei í öfgar. Þess vegna er ég að þessu, þess vegna tjái ég mig um trú annarra og gagnrýni þau.  Sumir kalla það hræsni að ég sé alltaf að setja útá skoðanir annarra, sér í lagi þar sem ég er ekki hlutlaus sjálfur. En ég gæti ekki verið meira ósammála því, hverjum þykir sinn fugl fallegastur og er því enginn maður hlutlaus.


Ég mun áfram gagnrýna alla þá öfga sem ég verð var við, og mun ekki taka neinum silkihönskum á því. Ég vona bara að ég valdi engum vonbrigðum og eru allir velkomnir að tjá sig eins og venjulega.

Á næstunni ætla ég að reyna að gera úttekt á nokkrum söfnuðum sem finnast á Íslandi, og á ég ekki bara við kristna söfnuði heldur önnur trúarbrögð líka. Ég lofa að vera engan veginn hlutlaus vegna þess að ég vil ekki ljúga að fólki. Ég ætla að segja mína hlið á málinu og hananú!

Nú verður tekinn upp þráðurinn að nýju, og óska ég eftir ykkar tillögum um hvaða söfnuð/trúfélag/samtök ég á að taka fyrir.


Opið bréf til Jóns Gnarrs og besta flokksins til varnar náttúrugalleríinu á Laugarnesi

Þessi mynd sýnir þá eyðileggingu sem hefur átt sér staðÉg vil byrja á því að óska ykkur í Besta Flokknum innilega til hamingju með sögulegan sigur. Þótt ég hafi ekki kosið ykkur vil ég bera fram eina spurningu til ykkar sem myndi gera borgina „skemmtilegri“ eins og þið hafið lofað borgarbúum.

Það er varðandi Hrafnshreiðrið, eða réttara sagt náttúrugalleríið á Laugarnesi. Hver er afstaða ykkar til þess máls? Ætlið þið að beita jafn miklu offorsi og fráfarandi borgarstjórn? Eða ætlið þið að standa við orð ykkar og gera Reykjavík skemmtilegri?

Heimili Hrafns er hrein upplifun að heimsækja, og er hann sjálfur mjög opinn fyrir því að leyfa ferðafólki að skoða staðinn ef vilji ykkar er fyrir hendi. Ég bendi á að það er ódýrara að nýta heimili Hrafns til þess að auka tekjur Reykjavíkur og gera hana að aðlaðandi en með ísbirni. Hrafn hefur nefnilega margt fram að færa, til að mynda leikmunina sem hann hefur notað í myndum sínum í gegnum árin, eins er húsið sjálft með sína sögu, og hefur gjörbreytt ásýnd þess síðan það var bara kofi. Meira má fræðast um það hér.

Miklir fordómar hafa fylgt Hrafni í gegnum árin en votta ég það, sem persónulegur og góður vinur hans að þeir fordómar eru ekki rökum reistir. Um er að ræða algert ljúfmenni sem vill engum illt, og er hann traustur og góður vinur sem hefur reynst mér afar vel í gegnum árin. Hann er jú einstakur á sinn hátt, og sérvitringur mikill. Hvað með það að hann sé vinur Davíðs, það gerir hann ekki ábyrgan fyrir hruninu.

En við megum ekki vera hrædd við hluti eða menn sem eru öðruvísi, því eins og vinskapur okkar Hrafns sannar, þá tekur hann mér eins og ég er, þrátt fyrir trúarafstöðu mína og er hann ekki haldinn neinum fordómum gagnvart afstöðu minni sem margir á Íslandi mættu taka til fyrirmyndar, og hef ég sjálfur lært heilmikið af honum í þeim efnum.

Tvísmelltu á allar myndirnar til þess sjá verk fráfarandi 
borgarstjórnarLátum ekki kerfiskarla og embættismenn eyðileggja þessa náttúruperlu sem Laugarnesið er, og kalla ég eftir viðbrögðum ykkar, því það eru ekki embættismennirnir sem fylgja reglum eftir bókstafnum sem stjórna borginni. Það eruð þið kjörnir fulltrúar okkar sem farið með það vald. En nú er spurningin hvernig þið nýtið það vald? Og kalla ég eftir viðbrögðum einhverra réttkjörinna fulltrúa Bestaflokksins í þessu máli sem hefur kjark og þor að taka afstöðu til listarinnar sem á sér stað hjá leikstjóranum Hrafni Gunnlaugssyni.

Stofnaður hefur verið stuðningshópur til varnarnáttúrugallerísins á Laugarnesi á snjáldurskinnu, eða 'Facebook', og hvet ég alla þá sem hafa kjark til þess að standa með listinni að gerast stuðningsfólk.

Eins hef ég sett inn viðtal sem Kolbrún Bergþórsdóttir tók við Hrafn 23. maí síðast liðinn sem .pdf skjal við þessa færslu, og geta menn lesið sig til um hver hans upplifun og afstaða er í þessu máli og gert það upp við sig sjálft hver afstaða hvers og eins er.

Góðar stundir og þakka ég lesturinn. Lengi lifi listinn og frelsið fyrir listamenn og konur að tjá sig!


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Hvað með öskuböð?

Undanfarið hef ég verið að fylgjast með Mike Rowe í þáttarröðinni „Dirty jobs“ á Discovery sjónvarpsstöðinni. Þar kom fram eins og neðangreint myndband sýnir dálítil athyglisverð atvinnugrein, og þá er ég að tala um þá sem bjóða uppá öskuböð.

Nú hef ég ekki þekkingu á þeim steinefnum sem askan inniheldur, og hvort hún sé yfirhöfuð til einshvers brúks fyrir okkur mannfólkið. En er ekki þess virði að láta kanna þetta? Við eigum fallegasta og hreinasta land í heimi, og getum við ekki nýtt þessa ösku bæði í steinsteypu og heilsulindir?

 

 

Er þetta svo slæm hugmynd?  Shocking Svona í krepputíð?


mbl.is Aska úr Eyjafjallajökli sem bindiefni?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skrítinn kenning hjá henni

Í fyrsta lagi, þá hef ég aldrei séð í málflutningi Votta Jehóva, þessa furðulegu kenningu hennar.

Í fréttinni stendur:

Þá á hún að hafa lýst því yfir að samkvæmt Biblíunni væri fólki ekki ætlað að fæðast með sjúkdóma.

Sú á eftir að vera tekinn fyrir af öldungum Votta Jehóva, því creeds-jw-watchtower.gifþetta er ekki bara kjaftæðiskenning, þá er hún engan veginn í takti við boðskap kirkju hennar.

Ég hef lúmskan grun að hún hafi misskilið eitthvað í kenningum Vottanna, þeir lofa nefnilega algerri líkamlegri fullkomnun í komandi þúsundáraríki, undir stjórn höfuðengilsins Mikaels (Jesús) og 144.000 manna hópsins. (Sem er að mínu mati algert þvaður)

Vottarnir hafa alltaf verið með skrítnar kenningar, en ekki svona skrítnar eins og þessi kona er með!

Af öfgunum skulum vér þekkja þá.


mbl.is Sagði Guð refsa veikum börnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íslenskir stjórnmálamenn athugið!

corruption1-2.jpgTakið þennan Ítalska ráðherra til fyrirmyndar!! Í engu öðru þróuðu ríki nema Íslandi myndi það líðast að styrkjakóngar og drottningar séu ennþá við völd eða í embætti!

Sú siðbót og hið nýja Ísland átti að byggja á er ný félagsleg vitund, og átti að úthýsa þeim boðskap einstaklingshyggjunnar sem var búinn að sannfæra okkur um að við værum ekki félagsverur og áttum bara að hugsa um eigið skinn. Nei, siðbótin felst í því að viðurkenna að þau mistök sem gerð haf verið í gegnum árin verður að taka ábyrgð á. 

Þess vegna tek ég ofan fyrir þessum Ítalska ráðherra sem segir af sér fyrir ekki minni sakir. 

Kæru stjórnmálamenn, miðaldir eru liðnar, það er 2010 núna. Þeir taki það til sín sem eiga það skilið.


mbl.is Ítalskur ráðherra segir af sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góðar fréttir ... en samt ... ??

Ég verð að setja spurningarmerki við þetta, og sem betur fer er svikahrappurinn Ron Wyatt sem taldi sig vera nútíma Indiana Jones ekki tengdur þessu. Það bendir reyndar allt til þess að um örkina hans Nóa sé að ræða, því maður spyr sig, er það tilviljun...

Gleðilegt sumar!

Þessi frétt er þó fagnaðarefni á þessum síðasta degi vetrar! Gleðilegt sumar allir!

Ömurlegt en satt ...

Ofangreint skrifaði ég með músinni minni og er þetta mín eigin rithönd. Ég vildi aðeins leggja áherslu á hvað tæknin er orðinn breytt í dag. En jæja ... þetta er sjálfsagt framtíðin.

Þriggja ára afmælisblogg

Það var 16. mars 2007 sem ég birti mína fyrstu grein hér blog.is , og á ég því þriggja ára bloggafmæli í dag. Þess vegna eftir þetta tímabil ætla ég að gera smá úttekt á þeim mismunandi tegundum bloggarra á ferð minni um bloggheima s.l. þrjú ár. Ég hef...

Glæsilegt framtak karlmenn! Höldum okkur á mottunni!

Það hefur stundum verið skondið að fylgjast með misjöfnum skeggvexti annarra karlmanna. Því misjöfn er rótin og misjafn er vöxturinn. Ég skráði mig í þessa keppni þann 5. mars s.l. og er árangurinn þessi (mynd sem ég tók með vefmyndavél áðan): Ég...

Er búið að selja moggabloggið? Opið bréf ritstjóra blog.is

Hvað er annars í gangi? Í fyrsta lagi er búið að fjarlægja linkinn sem áður var á forsíðu mbl.is . (Ég bætti inn með rauðu hvar tengillinn var.) Eina sem situr eftir á mbl.is er kassinn sem birtir blogggreinar! Sama má segja um forsíðu blog.is sem hefur...

Listamannalaun og ... fábjánar?

Ég verð aðeins að leggja nokkur orð í belg í umræðuna um listamannalaun. Sér í lagi eftir að þingmaðurinn Þráin Bertelsson framdi pólitískt harakíri þegar hann kallar um 5% þjóðarinnar fábjána , sem er auðvitað alveg einstaklega hrokafullt af hálfu...

Has the international media been informed that we are not voting for anything that has not already been rejected?

Otherwise they would have stayed home. Nothing decisive will happen, when the Icelandic public decides too support their presidents renouncement of the approved bill by Iceland's parliament, Althingi. The former agreement was unfair, having the...

Mottukeppnin mikla - karlar og krabbamein

Eftir margar áskoranir og þrætur um hvað ég er herfilega ljótur með skegg, ég tala nú ekki um mottu, þá hef ég samt ákveðið að leggja góðu málefni lið. Hér er prófillinn minn á karlarogkrabbamein.is . Hér eru leiðbeiningar um hvernig að þessu er staðið....

Minnumst þess hvað FLokkurinn gerði fyrir okkur ...

Myndir segja stundum meira en þúsund orð. Sú fyrsta er úr kosningunum fyrir hrun: Þessi "trausta efnahagsstjórn" hefur skilað okkur hverju? Hér er svo lógóið sem ég hannaði rétt fyrir kosningar, eftir að hafa heyrt Guðlaug Þór afsaka sig. Ég minni á að...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Guðsteinn Haukur

Guðsteinn Haukur Barkarson
Guðsteinn Haukur Barkarson

"Our life is a gift from God,
what we do with that life,
is our gift to God"

Höf. óþekktur

Sjá höfundasíðu fyrir ákveðna skilmála og upplýsingar um bloggarann 

Önnur snilld...

Hvaða þjóðir heimsækja þetta blogg?

free counters

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Skoðanna könnun

Á að aðskilja ríki og kirkju?

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband