Bloggfærslur mánaðarins, maí 2007

Dauðakippir Framsóknar

Guðjón Ólafur ber enginn rök fyrir máli sínu, hann öskrar bara og vælir um dylgjur. Ég fagna þessu útspili hans og vona að fólk átti sig á því verklagi sem þetta fólk beitir. En dauða kippir framsóknar eru áberandi, eins og í tilfelli suðurkjördæmis þar sem Siv er dottinn út af þingi.
mbl.is Guðjón Ólafur: „Umfjöllun má ekki einkennast af dylgjum"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frábært !

Það var mál til komið að misþyrming á dýrum í tilraunastofum vísindamanna linni. Sem dýravinur fagna ég þessu og vona að fleiri noti þessa aðferð frekar en blessuð dýrin !  W00t
mbl.is Gervihúð í stað tilrauna á dýrum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

1000 heimsóknir bara í dag !!

Ég fer bara hjá mér, það er nóg með að ég er kominn með slíkan fjölda á einum degi, heldur er ég að nálgast 10 þús. gestinn líka !!

Ég þakka ykkur af mikilli auðmýkt að nenna að skoða röflið hjá mér.

Guð blessi ykkur öll !!  Smile


Fyrirbænarefni

praying-handsEr einhver hissa á það sé svo lítið traust borið til trúfélaga? Miðað við að við höfum verið gerð að óvinum í flestum málum undanfarið! Þar má nefna: Breiðavíkurmálið, Mál Sr. Auðar Eir, Má vígslu Biskups í Skálholti, Byrgismálið, málefni samkynhneigðra og svona mætti lengi telja.

Fjölmiðlar hafa verið á nornaveiðum á hendur trúfélaga í nokkurn tíma, má nefna þar Kompás þáttinn víðfræga þar sem Biskup var gerður að óvini nr. 1 í samfélaginu.

Við höfum átt undir högg að sækja undanfarið og hvet ég trúað fólk að leggjast á eitt og biðja fyrir þessu ástandi. Það stendur hvergi að það sé auðvelt að vera kristinn, en ofsóknir á hendur kristinna undanfarið hafa einkennst af nornaveiðum og að persónugera okkur sem einhvern fordómafullan óþjóðalýð.

Ég bið þess bænar að þessum ofsóknum linni og við getum lifað í sátt og samlyndi við hvort annað.


mbl.is Treysta ríkisstjórninni betur en viðskiptalífinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"This has been Guiding Light" ...

Klárið málið !!!The neverending story continues! Pinch

Ég veit að landanum hlakkar virkilega til að heyra um baugsmálið í öllum fjölmiðlum !  Sick

*andvarp*

Farið nú að klára þessa þvælu strákar !!! Angry


mbl.is Jón Ásgeir og Tryggvi sætta sig ekki við sakfellingu að neinu leyti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Snilldar hugmynd ... held ég ...

helguvikEkki skil ég hvernig þeir ætla að breyta veðurfarinu, en þetta á fólk á gott hrós skilið fyrir bjartsýni og frumlegheit. Cool

Ég óska þeim alls hins besta í þessari barráttu og vona að þessi hreyfing vekji athygli á hlýnun jarðar og losun gróðurhúsarlofttegundar.

Guð blessi þetta góða fólk !


mbl.is Baráttuhópur stofnaður um bætt veðurfar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þeir standa með sínum

Auðvitað kemur svona yfirlýsing frá Birni Bjarna. Það er jú Sjálfgræðismaður tengdur þessu. Mér finnst þetta einungis yfirlýsing sem sannar sekt þeirra en betur. Auðvitað fór þetta "rétta leið" og allt það, en það er enginn að draga það í efa. Það er hvernig forgangsröðinni var breytt sem er gagnrýnivert. Afhverju er svona erfitt að viðurkenna mistök, ég bara spyr?

En hver dæmi fyrir sig!


mbl.is Ráðuneytið segir ekkert athugavert við afgreiðslu umsóknar um ríkisfang
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alvöru fréttamennska!

Þórhallur í kastjósinu svarar Jónínu Bjartmarz á virkilega faglegann og góðann hátt í viðtengdri frétt. Hann gerir sér grein fyrir alvöru fréttamennsku, hlutverk fréttamanns er meðal annars til þess að fletta ofan af spillingu, hver getur álásað honum fyrir það, þótt það séu að koma kosningar.

Lygi er lygi, spilling er spilling, svo einfalt er það. Bjarni Ben og Jónína Bjartmarz hafa sannað að þau misnotuðu vald sitt til þess að þjóna eigin duttlungum.

Gott hjá þér Þórhallur! Þetta kalla ég alvöru fréttamennsku !!


mbl.is Kastljós svarar Jónínu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skrípaleikurinn loksins búinn!

Ég eins og aðrir landsmenn er búinn að fá uppí kok á baugsmálinu endalausa. Bæn mín er sú að þessum ófögnuði sé endanlega lokið og landsmenn fái hvíld frá þessu lengsta og dýrasta dómsmáli íslandssögunnar.

En að þeir skuli hafa verið sakfelldir fyrir einhverja kreditkortafærslu, minnir mig óneitanlega á að Al Capone heitinn var tekinn fyrir skattsvik. Ég er ekki einn af þeim sem ber kala til Jóns Ágeirs eins og margir íhaldsmenn og tek Al Capone sem dæmi og bendi á um leið hversu halllærislegt þetta er.

Það versta í þessu er hve mikið skattgreiðendur þurfa að borga vegna dóms á kreditkort, hann er ca. 54.3 milljónir sem reiknast úr vasa skattgreiðenda. Dýr var þessi skrípaleikur.

En dýrð sé Guði að þessu sé lokið, nú getur Davíð Oddsson fagnað að "götustrákurinn" hafi fengið sinn dóm, það var nú einu sinni hann sem byrjaði þetta drama hér fyrir nokkrum árum. Að lokum vil ég vil þakka Davíð og íhaldinu fyrir reikninginn sem ég þarf að borga !!  Angry


mbl.is Jón Ásgeir og Tryggvi sakfelldir vegna kreditreiknings frá Nordica
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gjaldið keisaranum það sem keisarans er ...

pope-palpatineMér finnst Benedikt XVI páfi svo líkur Palpatine keisara í Star Wars, að ég gat ekki haldið aftur af mér með þessa frétt. Það er auðséð að páfagarður er stiginn aftur til miðalda með mannasetningar og jarðarfarar reglur. Woundering

Smellið á myndina til þess að sjá svipinn með þeim félögum. Grin


« Fyrri síða | Næsta síða »

Guðsteinn Haukur

Guðsteinn Haukur Barkarson
Guðsteinn Haukur Barkarson

"Our life is a gift from God,
what we do with that life,
is our gift to God"

Höf. óþekktur

Sjá höfundasíðu fyrir ákveðna skilmála og upplýsingar um bloggarann 

Önnur snilld...

Hvaða þjóðir heimsækja þetta blogg?

free counters

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.10.): 11
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 38
  • Frá upphafi: 589049

Annað

  • Innlit í dag: 11
  • Innlit sl. viku: 38
  • Gestir í dag: 11
  • IP-tölur í dag: 11

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Skoðanna könnun

Á að aðskilja ríki og kirkju?

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband