Hvað segir Biblían um hagfræði á þessum mögru árum?

Sagt hefur verið að Salómon konungur hafi verið ríkasti maður fornaldar og sá vitrasti (fyrsta konungabók 4:31). Þess vegna er ekki vitlaust að sjá hvað hann segir um hagfræði og þætti tengda því, sérstaklega á þessum erfiðu krepputímum sem Ísland og heimurinn er að ganga í gegnum.

Ritað er:

Orðskviðirnir 5:9
Sá sem elskar peninga seðst aldrei af peningum og sá sem elskar auðinn hefur ekki gagn af honum.

Er þetta sem bíður okkar? NEI !!!
Að eltast endalaust við peninga getur verið varasamt, sumir eyða ævinni í að eignast meira og meira og halda það allan tímann að það veiti þeim ánægju, en svo þegar öllu er á botninn hvolft þá er sú ánægja innantóm og skammvinn.

Sönn ánægja kemur að mínu mati frá Guði og kærleika hans. Það er alltaf hægt að fylla í fjársjóðskistur, því matarlyst þeirra er mikil og óseðjandi, en þegar Guð fyllir hjarta þitt, þá er það til frambúðar, nema þú veljir sjálf/ur að hysja honum út.

Sönn ánægja kemur ekki frá því að eignast flottasta húsið eða flottasta bílinn, heldur er fjölskyldan og vinir sem er sannur fjársjóður, sá allra mesti er reyndar persónulegt samband Guð og felst mesti gróðinn í því, en þú færð aldrei að kynnast því ef þú reynir það aldrei.

Orðskviðirnir 11:2
Skiptu hlutanum sundur meðal sjö eða jafnvel átta því að þú veist ekki hvaða ógæfa bíður landsins.

Dreifðu eignum þínum í marga hluta, og ekki fjárfesta öllu þínu í eina eign og treysta henni einni. Því þar liggur áhættan og ef einn hlutur bregst, þá standa hinir kannski betur að vígi og þú tapar ekki öllu.

Orðskviðirnir 11:4
Sá sem sífellt gáir að vindinum sáir ekki og sá sem sífellt horfir á skýin uppsker ekki.

Mannfólk er alltaf að bíða eftir rétta augnablikinu, og oft er það svo að sá sem bíður of lengi glatar tækifærum. Það er í eðli okkar sem menn að vilja útiloka alla áhættuþætti, en málið er að sama hvað við reynum getum við aldrei útilokað alla áhættu, en það er ógerlegt. Þannig grípum gæsina þegar hún gefst, en alltaf að vel ígrunduðu máli og ekki í fljótfærni, biðin má nefnilega ekki vera of löng.

Orðskviðirnir 10:10
Sé öxin orðin sljó og eggin ekki brýnd, þá verður maðurinn að neyta því meiri orku. Það er ávinningur að undirbúa allt með hagsýni.

Í okkar samfélagi þarf að brýna hugann svo hann geti tekið skynsamlegar ákvarðanir byggð á hagsýni fremur en fljótfærni. Í því felst hvíld! Ofþreyta er orðinn erkióvinur nútímamannsins og sinnum við ekki þessum mikilvæga þætti nógu vel. Þetta segir soldið sjálft að við verðum að sinna okkur sjálfum stundum og reyna eftir fremsta megni að ná góðri hvíld. Vinnum því að meiri ráðdeild fremur en útkeyra okkur sjálf.

Höldum einnig ró okkar á þessum erfiðu tímum, og reynum að vinna okkur út úr þessari kreppu með jákvæðu hugarfari, þannig næst árangur og góð uppskera.

Guð blessi ykkur öll og þakka ég lesturinn. 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæll litli bróðir.

Var að leita af orði sem var í Orðskv. Leitaði og leitaði í Biblíunni á netinu en fann ekki. Ýmislegt annað fann ég og setti inn en svo loksins þegar ég fór svo að leita í Orðalyklinum fann ég orðið og er það neðst. Vona að þessi orð nýtist þér og þeim sem skoða síðuna þína. Shalom/Rósa

"Betri er lítil eign réttláts manns en auðlegð margra illgjarnra"Sálm. 37: 16.

"Tigna Drottin með eigum þínum og með frumgróða allrar uppskeru þinnar, þá munu hlöður þínar verða nægtafullar og vínberjalögurinn flóa út af vínlagarþróm þínum." Orðskv. 3:9.-10.

"Safnið yður heldur fjársjóðum á himni, þar sem hvorki eyðir mölur né ryð og þjófar brjótast ekki inn og stela. Því hvar sem fjársjóður þinn er, þar mun og hjarta þitt vera." Matt. 6: 20.-21.

"sá er eigi lánar fé sitt með okri og eigi þiggur mútur gegn saklausum - sá er þetta gjörir, mun eigi haggast um aldur." Sálm. 15:5.

"Guðlaus maður tekur lán og borgar eigi, en hinn réttláti er mildur og örlátur." Sálm. 37: 21.

"Ríkur maður drottnar yfir fátækum, og lánþeginn verður þræll lánsalans." Orðskv. 22: 7.

"Ver þú ekki meðal þeirra, er ganga til handsala, meðal þeirra, er ganga í ábyrgð fyrir skuldum, því þegar þú ekkert hefir að borga með, viltu þá láta taka sængina undan þér?" Orðskv. 22: 26.-27.

Rósa Aðalsteinsdóttir, 12.10.2008 kl. 03:20

2 identicon

Þetta er bara nokkuð athyglisverð ráðgjöf ! Vonandi verða þessi ráð höfð í fyrirrúmi í nýrri og betri stjórnartíð landsins ?

conwoy (IP-tala skráð) 12.10.2008 kl. 09:17

3 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Rósa - vel mælt, og er afar góð viðbót við grein mína.

Conwoy - já, við biðjum fyrir því!

Guðsteinn Haukur Barkarson, 12.10.2008 kl. 13:54

4 Smámynd: Ingvar Valgeirsson

Ekki dugði nú til að dreifa auðnum hjá öllum - t.d. þeim sem fjárfestu í öllum bönkunum og settu svo restina í Exista. :)

Ég sé það hinsvegar núna að það hefði verið skárra á sínum tíma að kaupa það sem mig langaði í frekar en að kaupa bankabréf - Fender Stratocaster fer víst aldrei úr tísku.

Orðskviðirnir 10:10 er eitt af mínum uppáhaldsversum í gervallri Biblíunni. Þetta er bara eitthvað svo akkúrat kórrétt á allan hátt, hvort sem menn eru trúaðir eður ei.

Ingvar Valgeirsson, 12.10.2008 kl. 19:11

5 Smámynd: halkatla

Ég linka á þetta

halkatla, 12.10.2008 kl. 20:27

6 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Ingvar - já, en einhversstaðar gerðu þeir heiftarleg mistök.

Anna - hvar munt þú linka? Þ.e.a.s. inná hvaða síðu?

Guðsteinn Haukur Barkarson, 12.10.2008 kl. 20:37

7 identicon

Sæll Guðsteinn minn.

Ég vil þakka þér þetta innlegg til almennings, og ég þakka lika vibótina frá Rósu eins og hennar er von og vísa!

Góður Guð geymi ykkur bæði tvö og að sjálfsögðu ALLA hina!

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 12.10.2008 kl. 21:05

8 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Ekkert mál Þórarinn

Guðsteinn Haukur Barkarson, 12.10.2008 kl. 21:26

9 Smámynd: halkatla

bara í nýjustu færslunni minni

halkatla, 12.10.2008 kl. 22:38

10 identicon

Sæll Haukur!

Rakst á síðunna þína og þessi færsla er þarft innlegg í þjóðfelagsumræðuna. Má ég link inn á þessa færslu á bloggið mitt?

Svo verðum verðum við að fara hittast fljótlega.

Kveðja

Björn Ingi

Björn Ingi (IP-tala skráð) 12.10.2008 kl. 23:10

11 identicon

Afsakaðu fljótfærnis innsláttinn.

Tvö atriði sem má lagfæra ,,setja link" og svo skrifaði ég verðum tvisvar.

kv.

Björn Ingi

Björn Ingi (IP-tala skráð) 12.10.2008 kl. 23:30

12 Smámynd: Linda

Knús vinur, frábær færsla, er búin að setja inn mína íhugun um þetta mál.  Samkoma var frábær og þín var saknað.

Ég bið að Guð blessi þig og varðveiti.

Linda, 13.10.2008 kl. 00:25

13 identicon

Bestu kveðjur til þín og þinna Haukur minn

Bubbi J. (IP-tala skráð) 13.10.2008 kl. 08:00

14 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Anna Karen - ok ...  Það er flott.

Björni Ingi/Bjössi -  þér er velkomið að linka, og jú við verðum að fara hittast fljótlega.

Linda - ég var að læra með dóttur minni undir próf, og komst því ekki. En ég vona og veit að samkoman hafi verið góð.

Bubbi - sömuleiðis.  :)

Guðsteinn Haukur Barkarson, 13.10.2008 kl. 09:30

15 Smámynd: Theódór Norðkvist

Sæll Haukur og þakka þér góða færslu. Besta hagfræðin er í Biblíunni, en alveg ljóst að auðmennirnir og stjórnarherrarnir hafa virt hana að vettugi.

Þetta orð held ég mikið upp á í Orðskviðunum 28:8:

8Sá sem eykur auð sinn með fjárleigu og okri, safnar honum handa þeim, sem líknsamur er við fátæka.

Okkur vantar síðan mann eins og Nehemía. Þvílíkur karakter hefur hann verið, eins og sjá má í 5. kafla Nehemíabókar (þetta er langur kafli, en ég hvet fólk til að lesa hann til að sjá muninn á Nehemía og ráðamönnum okkar, himinn og haf þar á milli:)

 1En það varð mikið kvein meðal lýðsins og meðal kvenna þeirra yfir bræðrum þeirra, Gyðingunum.
    2Sumir sögðu: "Sonu vora og dætur verðum vér að veðsetja. Vér verðum að fá korn, svo að vér megum eta og lífi halda."

3Og aðrir sögðu: "Akra vora, víngarða og hús verðum vér að veðsetja. Vér verðum að fá korn í hallærinu!"    4Og enn aðrir sögðu: "Vér höfum tekið fé að láni upp á akra vora og víngarða í konungsskattinn.

5Og þótt hold vort sé eins og hold bræðra vorra, börn vor eins og börn þeirra, þá verðum vér nú að gjöra sonu vora og dætur að ánauðugum þrælum, og sumar af dætrum vorum eru þegar orðnar ánauðugar, og vér getum ekkert við því gjört, þar eð akrar vorir og víngarðar eru á annarra valdi."

6Þá varð ég mjög reiður, er ég heyrði kvein þeirra og þessi ummæli. 7Og ég hugleiddi þetta með sjálfum mér og taldi á tignarmennina og yfirmennina og sagði við þá: "Þér beitið okri hver við annan!" Og ég stefndi mikið þing í móti þeim 8og sagði við þá: "Vér höfum keypt lausa bræður vora, Gyðingana, sem seldir voru heiðingjunum, svo oft sem oss var unnt, en þér ætlið jafnvel að selja bræður yðar, svo að þeir verði seldir oss." Þá þögðu þeir og gátu engu svarað.

9Og ég sagði: "Það er ekki fallegt, sem þér eruð að gjöra. Ættuð þér ekki heldur að ganga í ótta Guðs vors vegna smánaryrða heiðingjanna, óvina vorra?

10Bæði ég og bræður mínir og sveinar mínir höfum líka lánað þeim silfur og korn. Vér skulum því láta þessa skuldakröfu niður falla.  11Gjörið það fyrir mig að skila þeim aftur þegar í dag ökrum þeirra og víngörðum þeirra og olífugörðum þeirra og húsum þeirra, og látið niður falla skuldakröfuna um silfrið og kornið, um vínberjalöginn og olíuna, er þér hafið lánað þeim."

12Þá sögðu þeir: "Vér viljum skila því aftur og einskis krefjast af þeim. Vér viljum gjöra sem þú segir." Þá kallaði ég á prestana og lét þá vinna eið að því, að þeir skyldu fara eftir þessu.13Ég hristi og skikkjubarm minn og sagði: "Þannig hristi Guð sérhvern þann, er eigi heldur þetta loforð, burt úr húsi hans og frá eign hans, og þannig verði hann gjörhristur og tæmdur." Og allur þingheimur sagði: "Svo skal vera!" Og þeir vegsömuðu Drottin. Og lýðurinn breytti samkvæmt þessu.

14Frá þeim degi, er hann setti mig til að vera landstjóri þeirra, í Júda _ frá tuttugasta ríkisári Artahsasta konungs til þrítugasta og annars ríkisárs hans, tólf ár _ naut ég heldur ekki, né bræður mínir, landstjóra-borðeyrisins. 15En hinir fyrri landstjórar, þeir er á undan mér voru, höfðu kúgað lýðinn og tekið af þeim fjörutíu sikla silfurs á dag fyrir brauði og víni. Auk þess höfðu sveinar þeirra drottnað yfir lýðnum. En ekki breytti ég þannig, því að ég óttaðist Guð.

16Ég vann og að byggingu þessa múrs, og höfðum vér þó ekki keypt neinn akur, og allir sveinar mínir voru þar saman safnaðir að byggingunni. 17En Gyðingar og yfirmennirnir, hundrað og fimmtíu að tölu, svo og þeir er komu til mín frá þjóðunum, er bjuggu umhverfis oss, átu við mitt borð.

18Og það sem matreitt var á hverjum degi _ eitt naut, sex úrvals-kindur og fuglar _, það var matreitt á minn kostnað, og tíunda hvern dag nægtir af alls konar víni. En þrátt fyrir þetta krafðist ég ekki landstjóra-borðeyris, því að lýður þessi var í mikilli ánauð.

19Virstu, Guð minn, að muna mér til góðs allt það, sem ég hefi gjört fyrir þennan lýð.

Theódór Norðkvist, 13.10.2008 kl. 10:54

16 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Frábært Teddi ! Takk innilega fyrir þetta innlegg. 

Guðsteinn Haukur Barkarson, 13.10.2008 kl. 11:14

17 identicon

Uhh biblían segir lika að menn eigi að forðast peninga og eignir.. að það sé númer eitt að losa sig við allar eigur og peninga.
Og svo náttlega segir biblían að menn eigi ekkert að spá í lífi sínu og eða plana það.... Guddi mun fæða okkur  eins og fuglana sem plana ekkert en fá þó samt að éta.

DoctorE (IP-tala skráð) 13.10.2008 kl. 11:43

18 Smámynd: Mofi

Brilliant grein Haukur!       

Mjög skemmtileg ábending frá Theódóri.  Við skulum muna að ráðgjöf Guðs er ávalt góð og menn ættu að taka henni alvarlega jafnvel þegar menn skilja hana ekki eins og í okkar umræðu um mataræði hérna um daginn

Það er ekki merkilegt að fara eftir góðum ráðum þegar maður sér að þau eru góð en töluvert erfiðara að fara eftir ráðum sem maður skilur ekki og segir miklu meira um hollustu við Guð þegar maður gerir það.

DoctorE
Og svo náttlega segir biblían að menn eigi ekkert að spá í lífi sínu og eða plana það.... Guddi mun fæða okkur  eins og fuglana sem plana ekkert en fá þó samt að éta.

Þú þarft endilega að lesa Biblíuna betur, gætir byrjað t.d. að lesa tilvitnanirnar sem Haukur kom hérna með!

Þú ert annars líklegast að vísa í þessi orð Krists:

25Því segi ég yður: Verið ekki áhyggjufull um líf yðar, hvað þér eigið að eta eða drekka né heldur um líkama yðar, hverju þér eigið að klæðast. Er lífið ekki meira en fæðan og líkaminn meira en klæðin? 26Lítið til fugla himinsins. Hvorki sá þeir né uppskera né safna í hlöður og faðir yðar himneskur fæðir þá. Eruð þér ekki miklu fremri þeim? 27Og hver yðar getur með áhyggjum aukið einni spönn við aldur sinn?[4]

Eða: við hæð sína.
 
28Og hví eruð þér áhyggjufull um klæðnað? Hyggið að liljum vallarins, hversu þær vaxa. Hvorki vinna þær né spinna. 29En ég segi yður: Jafnvel Salómon í allri sinni dýrð var ekki svo búinn sem ein þeirra. 30Fyrst Guð skrýðir svo gras vallarins sem í dag stendur en á morgun verður í ofn kastað, skyldi hann þá ekki miklu fremur klæða yður, þér trúlítil!
31 Segið því ekki áhyggjufull: Hvað eigum vér að eta? Hvað eigum vér að drekka? Hverju eigum vér að klæðast?
32 Allt þetta stunda heiðingjarnir og yðar himneski faðir veit að þér þarfnist alls þessa. 33En leitið fyrst ríkis hans og réttlætis, þá mun allt þetta veitast yður að auki.
34
Hafið því ekki áhyggjur af morgundeginum. Morgundagurinn mun hafa sínar áhyggjur. Hverjum degi nægir sín þjáning. 

Mér finnst þessi orð hreint út sagt yndisleg!  Ég les úr þeim að við eigum ekki að hafa áhyggjur en það er ekki hið sama og að hugsa ekki um framtíðina og skipuleggja sig ekki heldur að hafa ekki áhyggjur. Að það sem skiptir máli fyrst og fremst er að hafa réttlæti Guðs sem bjargar manni frá dómnum og veit manni aðgang að eilífu lífi. 

Mofi, 13.10.2008 kl. 12:55

19 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Takk Dóri/Mofi - þú svaraðir Dokksa eins og ég hefði gert það. Ég ætla samt að borða mitt svínakjöt áfram, sama hvað þú segir.

Guðsteinn Haukur Barkarson, 13.10.2008 kl. 14:27

20 Smámynd: Mofi

Það er lítils virði að fylgja ráðum sem þú ert þegar sammála, annað að fylgja ráðum Guðs þegar maður er ekki sammála. Þú endilega hugsar út í hvaða afsökun þú vilt segja við Guð þegar að því kemur.  Afhverju þú tókst ekki mark á Honum í þessu atriði.

Mofi, 13.10.2008 kl. 14:34

21 Smámynd: Theódór Norðkvist

Sælir ágætu vinir. Það sem er athyglivert við söguna af Nehemía er að íslenska þjóðin er í sömu fjötrum og Gyðingar á þessum tíma. Skuldafjötrum, með hús sín og akra (akrar samsvara atvinnufyrirtækjum) veðsett upp í rjáfur.

Aðferð Nehemía var að taka á innri spillingu þjóðarinnar: Okri hinna betur settu gagnvart hinum verr settu. Þegar það var búið var fyrst hægt að taka á óvinunum.

Það sem gerðist var í rauninni þjóðarvakning. Afturhvarf til iðrunar og lögmáls Drottins. Afleiðingin var að þjóðin styrktist, byggði upp musteri sitt og vann sigur á óvinum sínum.

Við þurfum að biðja fyrir því að það sama gerist hér á landi.

Theódór Norðkvist, 13.10.2008 kl. 14:38

22 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Teddi - sammála hverju orði!

Mofi -  Það sem þið aðventistar feilið á eru mannaverk og mannasetningar. Sumt var sett þarna fyrir góða ástæðu þess tíma sem það var skrifað, aðalástæðan var skortur á hreinlæti. En af hverju viltu kalla yfir okkur gyðingalög Mofi? Jesús var búinn að lýsa alla fæðu hreina, og er því ásökun þín að ég fari ekki eftir einhverju alröng.

Guðsteinn Haukur Barkarson, 13.10.2008 kl. 14:49

23 Smámynd: Mofi

Theódór,  sammála og sérstaklega athyglisvert fordæmið sem við sjáum þarna. Að þeir sem voru yfirmenn tóku á sig skort til að hjálpa öðrum.

Haukur, þessi ráðgjöf sem þú vitnar í eru alveg eins. Jesú lýsti ekki alla fæðu hreina, það hefði verið hræðilegt af Honum að gera það því að svínakjöt var á þeim tíma hættulegt.  Hans lærisveinar síðan skyldu Jesú ekki þannig eins og við sjáum í Postulasögunni. Ég sé því miður bara löngun í eitthvað og ekki skilja afhverju Guð kemur með þessa ráðgjöf og velja að hlíða aðeins því sem þér finnst þegar skynsamlegt en ekki því sem þér finnst ekki skynsamlegt. Það er í rauninni bara eins og að hlíða sjálfum sér en ekki Guði.

Mofi, 13.10.2008 kl. 14:54

24 identicon

Rite eins og það sé lausn að leita að himnaríki og súpergaur...
Kennið manni að biðja og hann drepst úr hungri við að bíða eftir að guddi skaffi honum pizzur...
Kennið manni að baka pizzur og hann heldur pizzapartý þann daginn

DoctorE (IP-tala skráð) 13.10.2008 kl. 16:03

25 identicon

Fréttinn átti að koma óvart ;) og það tókst :)

Kveðja

Björn Ingi

Björn Ingi (IP-tala skráð) 13.10.2008 kl. 22:48

26 Smámynd: Mama G

Strákar, haldiði í alvöru að pizza með skink, pepp og svepp meiki það eða breiki hvort maður komist til himna!?

Nei, ég segi fyrir mitt leyti að það verður löööngu búið að afskrifa mig úr himnaríki áður en það verður farið að tíunda það hvað ég borðaði í minni hunds- og kattartíð ... eða kannski  frekar.

Mama G, 14.10.2008 kl. 15:24

27 Smámynd: Mofi

Mama G
Strákar, haldiði í alvöru að pizza með skink, pepp og svepp meiki það eða breiki hvort maður komist til himna!?

Nei, alls ekki :)    En spurningin er afhverju einhver myndi hunsa og hlægja að ráðgjöf Guðs.  Ég er engan veginn á því að himnaríki er matur og drykkur eins og Jesú sjálfur segir en ef Jesú ráðleggur manni eitthvað þá ætti maður að taka þeirri ráðgjöf fegins hendi því maður trúir að þau ráð eru gefin í kærleika, manni sjálfum til blessunar.

Mama G
Nei, ég segi fyrir mitt leyti að það verður löööngu búið að afskrifa mig úr himnaríki áður en það verður farið að tíunda það hvað ég borðaði í minni hunds- og kattartíð ... eða kannski  frekar.

Sem betur fer virkar þetta ekki þannig því að ég er líka sekur um marga beikon borgara og pepperóní pizzur... :)

Mofi, 14.10.2008 kl. 15:54

28 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Mofi  þú sakar mig um að fara ekki eftir ritningunni þegar þú sjálfur sekur um slíkt, ritað er:

Markúsarguðspjall 7:18-19

18 Og hann segir við þá: "Eruð þér einnig svo skilningslausir? Skiljið þér eigi, að ekkert, sem fer inn í manninn utan frá, getur saurgað hann?

19 Því að ekki fer það inn í hjarta hans, heldur maga og út síðan í safnþróna." Þannig lýsti hann alla fæðu hreina.

Hvað er svona erfitt að skilja við þetta?? Og einnig að skilja hvað er mannasetning og hvað ekki? Þið aukið á byrðar manna með þessum mannasetningum ykkar, og er enginn grundvöllur fyrir slíku þar sem um lögmál gyðinga er að ræða.

Guðsteinn Haukur Barkarson, 14.10.2008 kl. 21:05

29 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Mama G - flott athugasemd!

Bjössi - já þetta kom sannarlega skemmtilega á óvart!!

Guðsteinn Haukur Barkarson, 14.10.2008 kl. 21:06

30 Smámynd: Mofi

Haukur
Hvað er svona erfitt að skilja við þetta?? Og einnig að skilja hvað er mannasetning og hvað ekki? Þið aukið á byrðar manna með þessum mannasetningum ykkar, og er enginn grundvöllur fyrir slíku þar sem um lögmál gyðinga er að ræða.

Þetta þýðir eftirfarandi:

  1. Jesú sagði fólki að borða mat sem var hættulegur heilsu þess því að svínakjöt á þessum tíma var hættulegt.
  2. Þú segir að ráðgjöf Guðs í Gamla Testamentinu voru byrgðar á fólk.
  3. Þú segir að það sem er í Gamla Testamentinu varðandi ráðgjöf á matarræði eru mannasetningar.

Mofi, 15.10.2008 kl. 11:04

31 Smámynd: Mofi

Haukur
Hvað er svona erfitt að skilja við þetta??

Það er mjög auðvelt að misskilja þetta ef vilji er fyrir hendi. Taktu eftir því að umræðan fjallar um handaþvott en ekki óhreina fæðu og mundu líka að gyðingar töluðu ekki um kjöt sem var bannað sem fæðu. Taktu sérstaklega eftir því að lærisveinn Jesú Pétur skildi orð Jesú ekki að það mætti borða allt:

Postulasagan 10
9Daginn eftir, er þeir voru á leiðinni og nálguðust bæinn, gekk Pétur upp á húsþakið um hádegi til að biðjast fyrir. 10Kenndi hann þá hungurs og vildi matast. En meðan verið var að matreiða fékk hann vitrun. 11Hann sá himininn opinn og hlut nokkurn koma niður, líkan stórum dúki. Var hann látinn síga til jarðar á fjórum skautum. 12Þar voru á alls kyns ferfætt dýr, skriðdýr jarðar, svo og fuglar himins. 13Og honum barst rödd: „Slátra nú, Pétur, og et!“
14Pétur sagði: „Nei, Drottinn, engan veginn, aldrei hef ég etið neitt vanheilagt né óhreint.“

Þarna neitar Pétur Guði að hlíða því að borða það sem er vanheilagt svo hann hafði ekki skilið Jesú þannig að nú mætti maður borða það sem manni dettur í hug sama hvort það er óhollt eða ekki.  Endilega ekki koma með að þessi sýn styðji að öll fæða er núna í lagi til átu, ég trúi ekki að þú myndir einu sinni reyna að rangtúlka Biblíuna þannig.

Mofi, 15.10.2008 kl. 11:16

32 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Mofi - þetta er ekki flókið, þótt að undanfarinn fjalli um handþvott, þá eru orð Jesú skýr og hættu að gera lítið úr því:

Markúsarguðspjall 7:18-19

18 Og hann segir við þá: "Eruð þér einnig svo skilningslausir? Skiljið þér eigi, að ekkert, sem fer inn í manninn utan frá, getur saurgað hann?

19 Því að ekki fer það inn í hjarta hans, heldur maga og út síðan í safnþróna." Þannig lýsti hann alla fæðu hreina.

Var hann þá að ljúga?

Guðsteinn Haukur Barkarson, 15.10.2008 kl. 11:20

33 Smámynd: Mofi

Haukur
Var hann þá að ljúga?

Þú ert ekki að taka tillit til þeirra punkta sem ég kom með.  Í fyrsta lagi þá er setningin "þannig lýsti hann alla fæðu hreina" ekki setning frá Jesú heldur athugasemd frá Markúsi á það sem Jesú sagði. Í öðru lagi þá greinilega skyldu lærisveinarnir orð Jesú ekki á þann hátt að núna mættu þeir borða svínakjöt eins og dæmið frá Postulasögunni sannar. 

Samhengið sem við sjáum þessa setningu fjallar um hvað saurgar fólk og Jesú segir að illar hugsanir saurga en ekki það sem þú lætur ofan í þig. Hvergi í allri þessari umræðu kemur neinn inn á óhreint kjöt eða svínakjöt svo mjög undarlegt að grípa það á lofti. Þegar þú ert með heilt samfélag þar sem þetta var gífurlega stór þáttur, heldur þú að það væri afgreitt svona án þess einu sinni að nefna óhreina fæðu eða svínakjöt?

Þegar maður les þessa ráðgjöf í Gamla Testamentinu þá er hún við hliðina á öðrum reglum sem við vitum að eru okkur til verndar frá sjúkdómum. Ef Jesú hefði verið að afnema þessa heilsuráðgjöf þá hefði Hann verið að senda fólk í opin dauðan því að svínakjöt á þessum tíma gat verið bannvæn fæða. Hljómar ekki mjög rökrétt eða kærleiksríkt í mínum huga.

Hérna sé ég þig velja ráð úr Biblíunni sem þér líkar og vilt fylgja þeim en síðan eru önnur ráð á sama stað en af því að þér líkar þau ekki þá viltu ekki hlíða þeim.  Er það einhver hlýðni að hlíða því sem þú fyrirfram vilt gera?  Er það ekki alvöru hlýðni að gera það sem maður skilur ekki og er ósammála en gerir það samt af því að maður vill hlíða?

Mofi, 15.10.2008 kl. 12:51

34 Smámynd: Mofi

Ég vil nú taka fram að þar sem þú ert að færa rök fyrir þinni afstöðu út frá Biblíunni og út frá orðum þess sem er æðsta vald Biblíunnar þá er þín afstaða alls ekki eins slæm og ég kannski læt í veðri vaka :)

Kannski er áhugaverð spurning hérna, ef Biblían segði þetta skýrt að þínu mati; telur þú að þú myndir hlíða þrátt fyrir að þykja beikon gott ( eitthvað sem ég skil allt of vel )?

Mofi, 15.10.2008 kl. 13:11

35 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Mofi - eitt sem virðist flækjast á milli okkar og veldur misskilningi.

Ég álít svo eins og svo margir aðrir trúaðir að Jesús er túlkunarlykinn sem við notum. Hvað á ég við með því, hans orð og lög uppfylla lög GT, og þegar hann segir að "öll fæða sé hrein", þá tek ég þau orð gild. Margt er gott í gamla testamenntinu, en mikið af því er stór lagabálkur saminn af höndum mennskra manna. Það er einmitt það sem Jesús gagnrýni faríseanna og lærðumennina fyrir, að fylgja mennskum lagadálki útí bókstafinn. 

Þess vegna vega orð Jesú meira en nokkuð annað, og eru orð hans sem ég tek mest mark á!

Erum við að skilja hvorn annan Mofi?

Guðsteinn Haukur Barkarson, 15.10.2008 kl. 15:46

36 Smámynd: Mofi

Haukur
Ég álít svo eins og svo margir aðrir trúaðir að Jesús er túlkunarlykinn sem við notum.

Við erum þá báðir sammála að orð Krists eru efst þegar kemur að skilja Biblíuna, gott að hafa það á hreinu.

Haukur
Hvað á ég við með því, hans orð og lög uppfylla lög GT, og þegar hann segir að "öll fæða sé hrein", þá tek ég þau orð gild.

Ég var búinn að benda á að Hann segir ekki "öll fæða sér hrein", það er athugasemd sem er gerð.  Öll rökin sem ég hef komið með hérna snúast um að það er ekki hægt að skilja þessi orð Krists þannig að það er í lagi að borða hvað sem maður vill.  Ástæðurnar eru eftirfarandi:

  • Ef Jesú meinti þetta þá var Hann að gera mjög grimma ráðgjöf og senda fólk út í opin dauðan því að þessi fæða var hættuleg lífi fólks.
  • Umræðan þarna fjallar um handaþvott og Jesú segir aðeins að það eru vondar hugsanir sem saurga sálina en ekki það sem fer ofan í magann.  Hann er ekki að fjalla um heilsuráðgjöf og hvað er hollt og hvað er óhollt.
  • Lærisveinar Jesú skildu orð Hans ekki svona og sagan í Postulasögunni sannar það.
  • Þegar þú skoðar gyðinga í dag þá sérðu hvað þessar reglur skipta þá miklu máli. Það er engan veginn hægt að segja að Jesú hafi afnumið þessar reglur án þess einu sinni að minnast á óhreint kjöt eða svínakjöt; það er bara að brengla orð Hans að gera það.

Haukur
Margt er gott í gamla testamenntinu, en mikið af því er stór lagabálkur saminn af höndum mennskra manna.

Öll Biblían er samin af höndum mennskra manna. Hvaða hlutar Gamla Testamentisins eru þá mannasetningar og hvaða Biblíuvers hefur þú til að styðja það eða er það þannig að það sem þér líkar illa við eru mannasetningar og það sem þér líkar vel við er frá Guði?  Ef svo er þá er frekar málið að þú ert í sæti Guðs í þessum málum.

Haukur
Það er einmitt það sem Jesús gagnrýni faríseanna og lærðumennina fyrir, að fylgja mennskum lagadálki útí bókstafinn.

Alls ekki. Jesú gagnrýndi þá fyrir að búa til sín eigin lög í staðinn fyrir að fylgja lögunum sem þeir fengu frá Móse.  Andi lögmálsins getur síðan aldrei farið á móti bókstafi lögmálsins.

Mofi, 15.10.2008 kl. 16:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Guðsteinn Haukur

Guðsteinn Haukur Barkarson
Guðsteinn Haukur Barkarson

"Our life is a gift from God,
what we do with that life,
is our gift to God"

Höf. óþekktur

Sjá höfundasíðu fyrir ákveðna skilmála og upplýsingar um bloggarann 

Önnur snilld...

Hvaða þjóðir heimsækja þetta blogg?

free counters

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (1.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 38
  • Frá upphafi: 587867

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 38
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Skoðanna könnun

Á að aðskilja ríki og kirkju?

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband