Slæmir mannasiðir Íslendinga

peach-rose-macro-dsc01212_high.jpgÉg er alinn upp í öðru landi að hluta til, nánar tiltekið í Kanada. Þar vandist maður ákveðnar kurteiss venjur sem eru sumar hverjar óþekktar fyrir augum íslendinga, en ég ætla að lista nokkrar hér upp og vonandi tekur fólk þetta sér þetta til fyrirmyndar. Því mesta menningarsjokkið eftir að við fluttum heim eftir margra ára dvöl, var innilegur dónaskapur íslendinga, og hvað börnin voru óheft og leyft að gera og segja hvað sem er.

Tökum aðeins á venjulegri almennri kurteisi sem og tillitsemi:

  • Það er venja að þakka fyrir sig, þá meina ég á báðum tungumálum. Frasar eins og "you're welcome" og "have a nice day" eru ekki notaðir að ástæðulausu!
  • Karlmenn settust aldrei niður fyrr en þeir voru vissir um að kona þeirra væri búinn að koma sér vel fyrir, þeir halda oftast nær opna fyrir þær bílhurðina og styðja við stól þeirra er þær setjast á mannamótum.
  • Það þykir algjör svívirða að horfa fyrir neðan höku þegar talað er við konu, og mega konur gefa karlinum kinnhest ef þeir eru uppvísir um að horfa aðeins á það sem þeim þykir mest spennandi. Þú ert úthrópaður perri ef þú gjörir slíkt, konum á sýna virðingu sem persónur ekki sem einhverja sýningargripi!
  • Ef einhver er í vandræðum þá bjóða menn fram aðstoð sína, ekki bara ganga framhjá og telja þetta vera vandamál viðkomandi. Sama gildir í umferðinni. Íslendingar eru voðalegir með þetta.
  • Talandi um umferðina þá er mjög dónalegt og gerist varla nema í einstökum tilfellum að fólk sé ekki gefið tækifæri í umferðinni, að svína fyrir einhvern er óþekkt fyrirbrigði og tillit til náungans er mun meira ríkjandi. Þarna eru íslendingar afar aftarlega á merinni varðandi svo sjálfsagða hluti.
  • Eins stoppa íslendingar ca. 2 cm fyrir aftan mann á rauðu ljósi, meira að segja í brekkum! Slíkt er kallað "tailgating" og er afar óvinsælt að menn gjöri í flestum öðrum löndum, auk þess er svona lagað slysahætta.
Hvað getum við svo lært af ofanverðu? Ég tek fram að ég er ekki að rakka niður íslendinga, heldur er ég að áminna samlanda mína fyrir að vera illa uppaldir í heimi kurteisinnar. Margt má betur fara og fullyrði ég, ef samfélag okkar tæki uppá að taka upp jafnvel eina af ofangreindu, þá yrði mun þægilegra að búa í þessu yndislega landi sem heitir Ísland.

 

Guð blessi ykkur öll!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Takk fyrir þetta, virkilega þörf grein en ég á Rússneska vinkonu sem er mjög iðin við að benda mér á þetta. Hið versta þykir henni rop og viðrekstur íslendinga á almannafæri.  Viðrekstur þykir hneisa slík í hennar landi að hún skynjar það eins og við myndum skynja þann sem gerði stykkin sín á gólfið.

Þótt við séum flott þjóð þá eru við ódönnuð...

Gylfi Gylfason (IP-tala skráð) 5.8.2008 kl. 13:28

2 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Andrés - okkur ber að vega og meta hvort tvö og þrjú séu viðeigandi hverju sinni, því ekki er það alltaf svo.

Sáli - gaman að þessu með aftansöngin! En eins og þú segir: "Þótt við séum flott þjóð þá eru við ódönnuð..." því er ég algjörlega sammála.

Guðsteinn Haukur Barkarson, 5.8.2008 kl. 13:48

3 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Valgeir - það gleður mig að heyra það, og Guð blessi þig!

Andrés -

Guðsteinn Haukur Barkarson, 5.8.2008 kl. 13:57

4 Smámynd: Haraldur Davíðsson

Íslendingar eru ekki ókurteisir " by choice ", heldur erum við svolítið hrjúf miðað við suma aðra. Tillitsleysi og skeytingarleysi um náungann eru sterkari einkenni okkar.

Vinur minn frá Englandi var hér í heimsókn um árið, og við fórum á krá til að fá okkur kollu og hann vildi kaupa fyrsta umgang. Hann fór á barinn, ég settist og beið. Eftir smástund kemur hann með ölið og er heldur kindarlegur, ég spyr hvað sé að og hann segir mér vandræðalega að hann haldi að það séu allir að reyna að fá hann í slagsmál, allir að rekast á hann, setja öxlina í hann og enginn biðst afsökunar. Það tók mig smástund að útskýra fyrir honum að svona erum við bara og enginn sé að reyna að slást við hann. Honum fannst við kjánaleg.

Síðar bjó ég á Englandi og kynntist þar aðeins öðruvísis framkomu, þarlendir eru ákaflega kurteisir og auðveldir í framkomu, það virkaði vel á mig........en þegar ég kynntist þeim betur komst ég að því að þetta er allt í nösunum á þeim og enginn meinar neitt með þessu öllusaman,öllum er nákvæmlega sama hvernig þú hefur það þótt þeir spyrji " how are you " eða " how´s it going " þetta eru bara verkfæri til að koma í veg fyrir árekstra.

Kurteisi er annað mál og á að sýna virðingu og umhyggju fyrir náunganum, skoðunum hans og stöðu..........

.....en best er að fólk sé það sem það sýnist vera jafnvel þegar það er hrjúft eða hrátt.......það er þó ekta.

Haraldur Davíðsson, 5.8.2008 kl. 14:31

5 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Halli - þótt að það sé "ekta" þá er það samt dónaskapur. Og erum við mjög aftarlega í almennum kurteisis reglum. En takk fyrir skemmtilega athugasemd.

Guðsteinn Haukur Barkarson, 5.8.2008 kl. 15:48

6 Smámynd: Mofi

Ég held að ég sé sammála öllum hérna og aðalega greininni.  Ég veit ekki hve mikið af þessu ég hefði séð ef mér hefði ekki verið bent á það. Maður elst upp í dónaskapnum og hegðar sér eins og allir í kringum mann og sér ekkert að því. En síðan kemur einhver utan að komandi og upplifir íslendinga sem örgustu dóna.

Þegar þetta var útskýrt fyrir mér af einum utan að komandi aðila þá sá ég þetta... tók að vísu smá tíma að sannfæra mig um að ég og öll mín þjóð væru svona miklir dónar :)

Mofi, 5.8.2008 kl. 15:53

7 Smámynd: J. Einar Valur Bjarnason Maack

Mér finnst gaman að vera dóni!

J. Einar Valur Bjarnason Maack , 5.8.2008 kl. 16:03

8 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Mofi - einmitt!

J. Einar - það finnst mér afar sorglegt fyrir þína hönd.

Guðsteinn Haukur Barkarson, 5.8.2008 kl. 16:19

9 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæll kæri Guðsteinn.

Ég tók eftir hvað fólk var kurteist í umferðinni í Bandaríkjunum og Kanada. Það var alveg sjálfsagt að gefa fólki séns að komast út á akbraut eða skipta um akbraut. Fólk vissi alveg að það munaði engu. Það kæmist á leiðarenda á svipuðum tíma hvort eð er. En hér eru allir á tauginni og nota bílflautuna dálítið oft.

Fólk stoppar bílana alltof nærri næsta bíl fyrir framan, keyrir inná gangbraut og stoppar þar og bíða eftir grænu ljósi sem tefur gangandi vegfaranda.  Þegar við erum út á þjóðvegum og nóg pláss, þá er bíllinn fyrir aftan stundum alveg ofaní  bílnum fyrir framan. Það má ekkert bera út af.

Guð blessi þig og hressi.

Baráttukveðjur/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 5.8.2008 kl. 17:43

10 identicon

Góðan dag Guðsteinn og fleiri.

syngja íslendingar aftansögn á almannafæri, og ropa líka???  Ekki hef ég orðið var við það....  en hinsvegar þekki ég vel tillitsleysið í umferðinni....   og þar eru ekki bara ungir ökumenn tillitslausir.

En hér er smá tilvitnun úr námsbókinni  Íslands- og mannkynssaga 2.  bls. 10

"Um miðja 19. öld töldu margir útlendingar að á Íslandi byggi óspillt og saklaus þjóð. Árið 1845 kom hingað austurrísk kona, Ida Pfeiffer að nafni. Hér ætlaði hún að komast í tæri við frumstæða og  óspillta lífshætti enda taldi hún að á Íslandi væri Paradís að finna. Væntingar ferðakonunnar brugðust þó flestar. Lítið fór fyrir veraldlegri paradís, hér voru eingöngu latir, drykkfelldir og ókurteisir íslendingar." 

Hilmar Gunnars (IP-tala skráð) 5.8.2008 kl. 17:45

11 identicon

Ég þakka fyrir mig .. ef ég tel það viðeigandi

Ég sest alveg niður þó kerlingin sé það ekki, ég geng ekki um opnandi hurðir bara sí svona.. en oftar en ekki samt... sé enga spes ástæðu að hlaupa og opna bílhurðir fyrir dömum... nema kannski mömmu gömlu og sjúklingum

Mér finnst allt í lagi að horfa kurteisilega á konur.. og margar hafa gaman að því.. comon þetta er ekki Amish, það er ekki þar með sagt að ég sé eins og perri með hor og slef... það eru til góðir perrar líka.. bæði konur og karlar: Its NATURAL

Það kemur fyrir að ég bíð aðstoð mína... ef ég tel kringumstæður vera þannig

Umferðin finnst mér hafa batnað.. ég fæ oftast sénsa.. og ég gef líka sénsa

Ég hef passlegt bil.. tailgaiting er frekar að keyra fyrir aftan bíl með engu bili.. þannig að þú færð ekki tækifæri á að stoppa..

Tata

DoctorE (IP-tala skráð) 5.8.2008 kl. 18:08

12 Smámynd: Flower

Það var mjög ánægjuleg og ný reynsla þegar laglegur útlendingur opnaði einu sinni hurð í sjoppu fyrir mig Stundum mætti vera meiri kurteisi, en á hinn bóginn er kannski erfitt að fara að taka upp nýja siði og það myndi líklegast taka tvær kynslóðir að verða fullnuma í þeim.

Flower, 5.8.2008 kl. 20:33

13 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Ég þakka öllum frábærar athugasemdir! 

Guðsteinn Haukur Barkarson, 5.8.2008 kl. 22:09

14 Smámynd: Rebekka

Gott að við getum stundum verið sammála um eitthvað.

Síðastliðið ár hef ég búið í Sviss og ég tók strax eftir miklum mun hvað varðar kurteisi og framkomu, sérstaklega milli ókunnugs fólks sem og þjónustulund í verslunum og veitingastöðum.

Reyndar bý ég bara í litlum bæ, en hér heilsast fólk úti á götu, manni er alltaf boðið góðan dag og þakkað fyrir viðskiptin í verslunum og allir kallaðir monsieur/madame (eftir kyni viðkomandi auðvitað).  Vinir og vandamenn heilsast með 3 kossum á kinnarnar, bæði þegar þeir hittast og kveðjast aftur.  Þetta á jafnvel líka við um unglingana og þykir jafn eðlilegt og handaband.

Umferðin gengur oftast eins og smurð, gefnir sénsar o.s.frv.  Það sem ég tók strax eftir var að maður þurfti ekki að leggja sig í lífshættu við að fara yfir gangbrautir, heldur stoppa bílarnir um leið og þeir sjá mann gera sig líklegan til að fara yfir.  Annað en maður þekkir á Íslandi þar sem flestir stíga heldur á bensíngjöfina...

Lifi kurteisin!

Rebekka, 6.8.2008 kl. 05:58

15 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Rósa - nákvæmlega!

Hilmar - flott tilvitnun, takk fyrir það.

Dokksi - jæja þú ert þá ekki alslæmur!

Flower -  sammála.

Svo er alltaf gott þegar rödd skynseminnar er sammála manni! Og takk fyrir góða dæmi frá Sviss, gaman að heyra það. Og segi ég eins og þú "lifi kurteisin" !

Guðsteinn Haukur Barkarson, 6.8.2008 kl. 08:09

16 Smámynd: halkatla

Frábær pistill og mjög góðar ábendingar. Kanadabúar eru greinilega siðfágaðir! Ég stunda sko rannsóknir á kurteisisvenjum ólíkra menningarheima í mínum frístundum, og þessi atriði sem þú telur upp hjálpa mér mjög mikið. En þetta hefði ég viljað vita fyrr:

Það þykir algjör svívirða að horfa fyrir neðan höku þegar talað er við konu, og mega konur gefa karlinum kinnhest ef þeir eru uppvísir um að horfa aðeins á það sem þeim þykir mest spennandi. Þú ert úthrópaður perri ef þú gjörir slíkt, konum á sýna virðingu sem persónur ekki sem einhverja sýningargripi!

ég hefði getað lamið nokkra íslendinga hér í den  og það eru alltaf þeir sömu, skiptir engu hvað maður er að segja gáfulega hluti!

í minni upplifun þá eru bretar mestu herramennirnir, það er eitthvað við þá, kurteisin kemur svo náttúrulega og allt er til fyrirmyndar (eða var það amk fyrir 10 árum) 

halkatla, 6.8.2008 kl. 11:05

17 identicon

Þörf ábending þessi pistill þinn. Vissulega erum við ódönnuð og ókurteis að mörgu leit þó svo að við gerum okkur ekki alltaf grein fyrir því.

Ég t.a.m. hóf nýlega sambúð með Austurrískri konu og hún hefur bent mér á ýmislegt sem að mætti betur fara hvað mínar umgengnisvenjur varðar. Þó svo án þess að vera með eitthvað nöldur og nag Þá væri ég nú búinn að forða mér ehe:)

En það eitt að tala meðan maður er að borða þykir henni ekki góðir borðsiðir. Satt best að segja er ég henni hjartanlega sammála og er að taka mig á í þeim efnum. Mér sjálfum hefur ekki þótt neitt tiltakanlega falleg sjón að horfa uppí ginið á fólki sem er að matast en blaðrar útí eitt.

Svo veit ég ekki hvort ég eigi að upplýsa það en geri nú eftir sem áður. Ég pissa sitjandi til þess að sýna henni þá tillitsemi að setan sé nú ávalt hrein og þrifaleg og hlandtaumarnir ekki útum allt.

Hmmm er það of langt gengið hjá mér?

Eggert Vébjörnsson (IP-tala skráð) 6.8.2008 kl. 11:38

18 Smámynd: J. Einar Valur Bjarnason Maack

Til að mynda er ég, dóninn, algjörlega ósammála þessu hérna sem Eggert er að segja...

...ég áttaði mig þó á því, að það væri frekar dónalegt að koma með alltof langt svar á þínu bloggsvæði Guðsteinn, þannig að ég setti inn svarið sem færslu hérna 

Góðar stundir.

Kv.

JEVBM. 

J. Einar Valur Bjarnason Maack , 6.8.2008 kl. 12:39

19 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Anna Karen - jú, það væri búið að berja margan íslenskankarlmanninn fyrir einmitt þetta! úfff ....

Eggert - þetta er þrælskemmtileg saga sem þú kemur með! Takk fyrir það! Og tek ég ofan fyrir þessa mikla tilliti þínu til konu þinnar.

J. Einar - takk fyrir það! Þessi grein mín hefur greinilega haft tilætluð áhrif!

Guðsteinn Haukur Barkarson, 6.8.2008 kl. 13:36

20 identicon

Eggert, mér hefur nú alltaf fundist það nokkuð eðlilegur hlutur að lyfta klósettsetunni áður en ég byrja að svetta úr skinnsokknum!

Gulli (IP-tala skráð) 6.8.2008 kl. 14:43

21 Smámynd: J. Einar Valur Bjarnason Maack

Já. Það má segja það.  Hehehe.

J. Einar Valur Bjarnason Maack , 6.8.2008 kl. 14:48

22 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Guðsteinn Haukur Barkarson, 6.8.2008 kl. 14:58

23 Smámynd: Ingvar Valgeirsson

Mér finnst svolítið skrýtið þetta með "tillitssemi" til handa konum - sumar verða t.d. fúlar ef maður opnar fyrir þeim dyrnar, hvort heldur sem er á húsi eða vélknúnu ökutæki. Sumar verða hreint fjúríus ef deitið vill borga allan reikninginn á veitingahúsi. Eins eru sumar ekki hressar með að steggurinn dragi fram stólinn og bjóði þeim sæti.

Eins er stór munur á að blaðra út í eitt við matarborðið, sýnandi sessunautum sýnum upp í opið ginið á sér, og að halda uppi siðsamlegum samræðum yfir matnum. Ég er hræddur um að þrúgandi þögn í matarboði hljóti að vera hræðileg.

Varðandi að horfa á mest spennandi partinn af konu meðan maður talar við hana, þá er það nú samt stundum þannig að annað er varla hægt. En ef kona er í ofurflegnum bol og aðskornum er hún búin að missa réttinn til að kvarta yfir því að einhver stari á bobbana.

Svo held ég að við Íslendingar séum ekki verri en aðrir í umferðinni. Ef einhver t.d. festir sig í snjó eða drullu kemur alltaf einhver og hjálpar. Það þykir t.d. stórfrétt ef einhver slasar sig eða ekur útaf og fær ekki aðstoð fljótlega.

Ingvar Valgeirsson, 6.8.2008 kl. 15:26

24 identicon

Þetta þykir mér skondið. Kallandi heila þjóð ókurteisa vegna þess að hennar siðir samræmast ekki þeim, er sá þjóðina úthrópar, ólst upp við.

Ég tók eftir því á mínum ferðum vestur um haf hversu ægilega kurteisir kanar áttu til með að virðast. Tildæmis þá þótti það til siðs að spyrja hvernig fólk hefði það, þegar menn hittust. Nema þá er spurningunni "how are you doing?" þröngvað út úr sér "howryoudoin", og aldrei búist við svari.

Þessi falska kurteisi er einskis verð. Mætti ég frekar biðja um íslenskan ruddaskap með innskotum af heiðarleika, frá þeim er raunverulega óska manns góðum degi.

Þótt ég sé ekki aðdáandi þess að aka með stuðarann í skottinu á næsta bíl, þá eru íslendingar ekkert sérstaklega ókurteisir í umferð. Skreppið til stórborga evrópu, og þar munuð þið sjá fólk keyra í rassgatinu á næsta manni, með aðra lúkuna á flautunni og fingur út um gluggan. 

Sjálfur gef ég enga sénsa í umferðini. Ég hef reynt það, oftast nær með þeim afleiðingum að fólk kann ekkert að bregðast við og veldur næstum slysi. Þó tek ég fram að ég legg mig ekki fram um að vera öðrum til trafala.

Að við skyldum sætta okkur við það að láta aðra kalla okkur dóna, væri sambærilegt að við sökuðum kana um bruðl. Fyrir það eitt að svíða ekki kindahausa og naga svo af þeim allt góðgætið.

Jóhannes H. Proppé (IP-tala skráð) 8.8.2008 kl. 00:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Guðsteinn Haukur

Guðsteinn Haukur Barkarson
Guðsteinn Haukur Barkarson

"Our life is a gift from God,
what we do with that life,
is our gift to God"

Höf. óþekktur

Sjá höfundasíðu fyrir ákveðna skilmála og upplýsingar um bloggarann 

Önnur snilld...

Hvaða þjóðir heimsækja þetta blogg?

free counters

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (1.5.): 4
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 40
  • Frá upphafi: 587869

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 40
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Skoðanna könnun

Á að aðskilja ríki og kirkju?

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband