Trú og fjölmiðlar

fastur í tækninni?Ég verð með fræðslu í Íslensku Krists kirkjunni klukkan 11:00 á sunnudaginn kemur. Og verður umfjöllunarefnið trú og fjölmiðlar. Endilega mætið ef þið getið.

 

 

Smella hér fyrir nánari upplýsingar.  

P.s. ég er ekki hættur í bloggfríi, ég varð bara að henda inn þessari auglýsingu. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Elsku besti Guðsteinn minn, hættu þessu rugli um bloggfrí og bloggaðu þegar þér dettur í hug.

Gunnar Helgi Eysteinsson, 1.5.2008 kl. 13:18

2 Smámynd: Jóhann Helgason

Guðsteinn minn gaman að sjá þig aftur koma út úr  bloggfríinu  stutt og lag gott .'Eg  varð stríða þér soltið . þú ert ómissandi hér ""Þú veist það vel  .  

Jóhann Helgason, 1.5.2008 kl. 15:05

3 Smámynd: Jóhann Helgason

'Eg mæti  það er á hreinu spennandi að þú sért með fræðslu í Íslensku Krists kirkjunni klukkan 11:00 á sunnudaginn kemur. Og verður umfjöllunarefnið trú og fjölmiðlar.

Æðislegt """"""""""""""

Jóhann Helgason, 1.5.2008 kl. 15:08

4 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir


Christian Glitter by www.christianglitter.com

Sæll minn kæri.

Flott og nú æfist þú í ræðumennsku og svo stofnum við Kristinn stjórnmálaflokk og mölum þetta lið sem nú er við stjórnvölinn.

Vildi  minna þig á að Adda bloggvinkona okkar er 30 ára í dag.

Gunnar á nú brandarann hér á blogginu í dag. Bloggfríð stóð yfir, aðeins í fáeina daga.  Þú er magnaður.

Kær kveðja af hjara veraldar þar sem snjórinn hylur jörðina nú á þessu dásamlega sumri.

Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 1.5.2008 kl. 15:47

5 Smámynd: Úlfar Þór Birgisson Aspar

Ég vissi það Guðsteinn að ég ætti ekkert að setja inn athugasemd við bloggfrísfærsluna,því það tæki sig ekki að kommenta neitt á það hjá þér minn kæri vin  .

Verst að missa af þér þarna hjá Krists Kirkju,ég hef reyndar aldrei komið þangað og þarna væri kjörið færi á að mæta(en þetta er mín helgi með englum mínum börnunum).

Ég þykist samt vita að þú munt standa þig vel það er alveg ljóst.

Úlfar Þór Birgisson Aspar, 1.5.2008 kl. 17:20

6 identicon

Alltaf að ljúga til um bloggfrí.... muna boðorðin mar ;)

Gangi þér vel í þessu sýsli þínu

DoctorE (IP-tala skráð) 1.5.2008 kl. 17:51

7 Smámynd: Matthías Ásgeirsson

Guðsteinn Haukur Barkarson mun kenna þann 4. um kristna trú og fjölmiðla, en hann er einn af vinsælustu bloggurum landsins.

Matthías Ásgeirsson, 1.5.2008 kl. 17:56

8 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Veit Matti, en þetta voru ekki mín orð.

Guðsteinn Haukur Barkarson, 1.5.2008 kl. 18:08

9 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Úlli - það hefði verið fínt að sjá þig.

Dokksi - já ég veit .... sekur! 

Guðsteinn Haukur Barkarson, 1.5.2008 kl. 18:11

10 identicon

Var að vinna í minni kirkju í allan dag en gaman hefði verið að hlusta á þig

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 1.5.2008 kl. 20:55

11 Smámynd: Bryndís Böðvarsdóttir

Úlfar, það er reyndar barnagæsla í Kristskirkjunni, ef börnin skyldu vilja koma með. Dóttir mín hefur farið þangað og skemmti sér konunglega.

Rósa. Ég vil helst ekki að maðurinn minn fari í pólitík og alls ekki í einhvern kristinn stjórnmálaflokk. Sé ekki grundvöllinn fyrir því. Hver mundi telja slíka pólitík hlutlausa? Mundi einhver vilja kjósa stjórnmálaflokk út frá trúnni sem þeir aðhyllast, nema kannski þeir sem eru heitir fyrir sömu trú?

Ég segi bara eins og Lúther að ríki og kirkja eiga ekki að vera með puttana í hvers annars málum.

Ekkert sem bannar samt trúuðum að fylgja sannfæringu sinni og fara í pólitík, en ekki í nafni trúarinnar sérstaklega. Pólitíkin á ekki aðallega að þjóna hagsmunum trúar og öfugt. Ekki það að ég telji að maðurinn minn færi út í ofstæki og ofurhlutdrægni í sinni dómgreind.

Hinsvegar er það síðan bara af persónulegum  ástæðum sem ég vil ekki að Haukur fari í pólitík. Ég tími bara ekki að sjá af honum. Maður óttast líka þetta: eitt fyrir alla, allir fyrir einn. Ef einhver einn í flokknum gerir eitthvað af sér, verða hinir alltaf að verja hann og stundum þykir manni það ganga þvert á heilindi þeirra sjálfra, þ.e.a.s. flokksfélaganna... Sé bara spillingu í hverju horni. Pólitík er sá vettvangur sem vísastur er til að spilla fólki.

Ég treysti auðvitað manninum mínum, en hann væri einmitt týpan sem stæði upp og andmælti óréttlæti flokksfélaga og yrði þar með til að valda óvinsældum og sundrung innan eigin flokks. Hann yrði alltaf fyrst og fremst trúr sjálfum sér og Guði og mundi ekki sleikja upp annað fólk til að halda því góðu. Hann á því ekkert heima í pólitík. Er einfaldlega of heiðarlegur.

Bryndís Böðvarsdóttir, 1.5.2008 kl. 21:50

12 Smámynd: Bryndís Böðvarsdóttir

Ég sé að Andrés er á sömu skoðun og ég.

Bryndís Böðvarsdóttir, 1.5.2008 kl. 22:33

13 Smámynd: Kristinn Ásgrímsson

Kæmi ef ég mögulega gæti, en Guð blessi þig kæri vinur.

Kristinn Ásgrímsson, 1.5.2008 kl. 23:53

14 Smámynd: Ruth

Frábært

Ruth, 2.5.2008 kl. 00:19

15 Smámynd: Bryndís Böðvarsdóttir

Æ nú hljóma ég fordómafull í garð allra sem eru í pólitík. Nú er ég að muna eftir andlitum sem eru í pólitík og eru ekki búin að spillast og munu vonandi aldrei gera það. Biðst því forláts.

Bryndís Böðvarsdóttir, 2.5.2008 kl. 01:06

16 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Flowers - Myspace Glitters
Hot Myspace Glitters - Dezrum.com

Hæ og hó. Hér er dúndrandi fjör og þá auðvita má ég til að vera með en ekki hvað? Við Guðsteinn Haukur vorum búin að að ræða um að hann yrði alþingismaður og það leist honum ekkert á og gaf mér skýringar hvers vegna hann gat alls ekki hugsað sér það embætti. Þess vegna var ég að grínast með þetta núna þar sem hann ætlar  að vera með erindi sem kannski endar með dúndrandi ræðu í Kristskirkju.  Ég er búin að heyra auglýsingu á Lindinni frá Kristskirkju. Mjög virðulegt.

Guðsteinn Haukur, ég óska þér velfarnaðar og ég veit að þú verður til sóma.

Guð blessi ykkur.

Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 2.5.2008 kl. 14:16

17 Smámynd: Linda

Sammála Bryndísi og Andrési - ég vil ekki sjá kristilegan stjórnmála fólk, það er í raun gagnstætt kristnum gyldum að mínu mati, "Gefið Sesar sem er Sesars og Guði sem er Guðs" pjúra aðskilnaður.  En vissulega hafði Kristnir menn vilja til að stunda pólitík þá mega þeir það fyrir mér og ég vona að þeir geri það og skammist sín ekkert fyrir að trúa á Guð.

knús

Linda, 2.5.2008 kl. 18:27

18 Smámynd: Linda

PS Haukur ætla að reyna að mæta.

Linda, 2.5.2008 kl. 18:27

19 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Með tilvitnun í fyrirsögnina, þá finnst mér þetta skelfileg blanda.  Það setti í mig hroll að heyra Baldur Frey á Omega, fullyrða að hann gæti læknað hvaða sjúkdóm sem væri.

Annars varðandi videóið um örkina hans nóa, hér neðar, þá fullyrðir þú að þetta eigi ekkert skylt við Ron Wyatt. Hvaðan kemur þér sú viska og hvaða Ron er það, sem ítrekað er minnst á í videóinu?

Með videóinu á Youtube er eftirfarandi skýring:

The remains of Sodom and Gomorrah, situated beside the Dead Sea, can be easily visited today. These sites were first identified by Ron Wyatt in the late 1980s. As this video shows, Lab tests help confirm that these locations are indeed the remains of the ancient cities, destroyed by the fire and brimstone as described in Genesis 19. These cities are a testimony to the validity of God's Word, and a reminder that God is both a God of justice as well as mercy.
Þessi youtubesíða er að mestu helguð þessum manni, ef þú hefðir nennt að grunda málið.
Ég vona að þú verðir vissari á þinni sök í framtíðinni, þegar þú fullyrðir um hlutina. Það er leitt að sjá annars ágætan dreng eins og þig, gera sig að kjána.

Jón Steinar Ragnarsson, 3.5.2008 kl. 00:22

20 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Leiðrétting: Ég átti að sjálfsögðu við videóið um fund sódómu og gómorru. Wyatt taldi sig líka hafa fundið örkina.  Annars hefðir þú gaman að kíkja á jarðfræði miðjarðarhafsins, þar sem eitt fyrirbrigði gæti stutt hamfararirnar í egyptalandi á tímum herleiðingarinnar og jafnvel flóð, sem talað er um í bókinni og í ritum súmera. Ekki ólíklegt að slíkt hafi hent, svo ég sýni þér nú fulla sanngirni. Lestu t.d. um eyjuna Santorini hér: Margir hafa leitt líkum að því að sprenging í henni, sem mun hafa verið talsvert mörgum sinnum stærri en Krakatá t.d. geti verið grunnur að sögnum um eldsúlur, eld af himnum blóðrauð fljót og gríðalegar flóðbylgjur.

Jón Steinar Ragnarsson, 3.5.2008 kl. 00:31

21 Smámynd: Úlfar Þór Birgisson Aspar

Jón það er naumast að þú hefur tíma fyrir rannsóknavinnu í þvaðri og blaðri um ekki neitt.Samt þú ert vænasti drengur ef ég man rétt.

Úlfar Þór Birgisson Aspar, 3.5.2008 kl. 17:02

22 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Ef ég hefði nú meiri þolinmæði en þetta Jón Steinar. Ef þú værir læs myndi eyða orðum í þig .. en far vel.

Guðsteinn Haukur Barkarson, 3.5.2008 kl. 20:11

23 Smámynd: Ingvar Valgeirsson

Bloggfrí, já... ég held ég hafi vakað lengri tíma en sum bloggfríin þín standa!

Ingvar Valgeirsson, 3.5.2008 kl. 23:36

24 identicon

Sæll Guðsteinn minn.

Og ég mætti, ásamt mörgum öðrum.

 Þetta var gott framtak hjá þér og efnið passlega yfirgripsmikið.þarna er komin umræða á  stað sem vert er að fylgja eftir. Fyrirspurnirnar og upplýsingarnar voru fínar.

Takk fyrir boðið,og það var gaman að sjá ykkur hjónin "Live".

Góður Guð blessi þig og þína fjölskyldu.

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 4.5.2008 kl. 14:45

25 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Ég mætti á fyrirlesturinn hans Guðsteins og ég varð sannarlega ekki fyrir vonbrigðum. Sjálfur fyrirlesturinn var áhugaverður, stemningin var jákvæð og formið frjálslegt, þannig að fólk kom með innlegg og fyrirspurnir ef þeim bauð svo. Þess utan hitti ég nokkra góða kunningja, sem ég hafði ekki séð lengi. Þessi ágæti sunnudagsmorgni endaði svo með góðra vina fundum yfir rjúkandi kaffi og góður brauði með úrvals áleggi. Þetta er hlýleg kirkja sem þessi litli söfnuður hefur byggt upp af alúð og þar ríkir góður andi. Ég óska Friðriki Schram og öllum vinum mínum í Kristkirkjunni alls góðs.

Sigurður Þórðarson, 5.5.2008 kl. 23:54

26 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Þórarinn - það var virkilega gaman að hitta þig loksins og verst hvað ég gat talað lítið við þig.

Drési mágur - jamms, en ég er með eintak af fyrirlestrinum. 

Siggi - það var virkilega skemmtilegur póll að hafa ásatrúarmann þarna, takk fyrir að mæta! 

Guðsteinn Haukur Barkarson, 6.5.2008 kl. 10:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Guðsteinn Haukur

Guðsteinn Haukur Barkarson
Guðsteinn Haukur Barkarson

"Our life is a gift from God,
what we do with that life,
is our gift to God"

Höf. óþekktur

Sjá höfundasíðu fyrir ákveðna skilmála og upplýsingar um bloggarann 

Önnur snilld...

Hvaða þjóðir heimsækja þetta blogg?

free counters

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 12
  • Sl. sólarhring: 13
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 587857

Annað

  • Innlit í dag: 12
  • Innlit sl. viku: 37
  • Gestir í dag: 12
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Skoðanna könnun

Á að aðskilja ríki og kirkju?

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband