Takk fyrir mig !

Ég hef ákveðið að hætta að blogga. Ég veit að ég hef sagt þetta áður, en eftir þetta bloggfrí mitt, þá hef ég talið þetta fyrir bestu. Þetta er orðið fíkn sem aðrir hlutir gjalda fyrir, þess vegna verð ég að hætta þessu. En ég mun samt halda áfram að tjá mig á öðrum vettvangi þar sem samfélagið er minna og ekki eins krefjandi.

Ég vil þakka öllum mínum bloggvinum og þeim sem hafa lagt leið sína um síðuna mína. Það er aldrei að vita nema ég endurvekji hana í framtíðinni, hver veit - en eins og staðan er núna er ég hættur.

Guð blessi ykkur öll og ég þakka lesturinn!


Guðsteinn Haukur Barkarson Hansen

Vegna valdamikla skipanna frá æðri stöðum, dreg ég þessa yfirlýsingu tilbaka. Í framtíðinni mun ég einbeita mér að góðum greinum og ekki 2 setninga færzlur um fréttir dagsins.  


Frí

Ég er farinn í bloggfrí ... Cja L8tr !  Wink

Vesalings ítölsku konurnar

Ef þetta er raunin með ítalskar mæður, þá eiga þær alla mína samúð. Fyrr má nú vera ofdekrun og ósjálfstæða þessa karla, að hanga inná hótel mömmu til fertugs! Úfff ... móðir mín væri búinn að henda mér út öfugum !

mbl.is Mömmustrákur á sjötugsaldri komst í klandur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nektardans bannaður á Goldfinger

Ég sá þessa frétt á vísi.is og fagna henni mjög.

Nektardansstaðurinn Goldfinger hefur misst leyfi til nektarsýninga. Ný lög um veitingastaði og skemmtanahald tóku gildi 1. júlí síðastliðinn. Samkvæmt þeim þurfa veitingastaðir aðeins eitt rekstrarleyfi, í stað veitinga, skemmti- og vínveitingaleyfis. Lögin kveða á um bann við nektarsýningum, nema að fengnum jákvæðum umsögnum frá sex aðilum. Einn þessara umsagnaraðila er lögreglustjóri, en hann leggst gegn því að Goldfinger fái slíkt leyfi...

Einnig segir:

Þorleifur Pálsson, sýslumaður í Kópavogi, sér um að afgreiða umsóknir um rekstrarleyfi fyrir Goldfinger. Þorleifur sagði í samtali við Vísi, að ekki hefðu borist umsagnir frá öllum sex aðilum fyrir lok júlí. Því hafi verið ákveðið að veita staðnum rekstrarleyfi til bráðabirgða í tvo mánuði.


Leyfið þeirra sem sé rann út um mánaðarmótin ! Og mega þeir afgreiða vín en ekki berar konur á meðan! Guði sé lof fyrir það! Wizard


Yndislegt framtak

Sumir munu segja að þetta sé of seint, en ég skil hana vel, ekki væri ég til í að fara í gröfina þess vitandi að ég afrekaði aldrei neitt á einhvern hátt. Fyrir henni var það menntun og fyrir annan er það eitthvað annað. En ég tek ofan fyrir henni, því hún gerði þetta fyrir sig sjálfa og engan annan.

Mér finnst þessi gamla kona líka bara sæt og krúttuleg! Cool


mbl.is 94 ára amma útskrifast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvar er "Myanmar"

Það  hét eitt sinn "Búrma", en breyttist  í  Myanmar árið 1989 þegar herstjórn Saw Maung  breytti því herrríki. Than Swe tók svo við af honum og ríkir þar enn.

Ég sé það að ég þarf að fytjast til danmerkur og gerast listamaður þar, þeir virðast gera mestann usla, sérstaklega stórhættulegu dönsku skopteiknararnir ! Tounge


mbl.is Dönsk auglýsing veldur uppnámi í Myanmar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Snilld !! Áfram Hillary !

Það er ekki bara að loksins komist kona til valda í BNA heldur, finnst mér bera höfuð yfir herðar yfir öðrum keppinautum um þetta mikilvæga embætti. Ég vona að Hillary vinni þetta!

mbl.is Hillary Clinton tekur forustu hjá demókrötum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það eru blæðingar við upptyppinga, og mikill skjálfti fylgdi í kjölfarið

Undanfarnar vikur er mikið búið að tala um svokallaðar "blæðingar" á vegum landsins. Þess vegna fannst mér þetta tilvalinn frétt til þess að gera grín af ! W00t
mbl.is 2.300 skjálftar við Upptyppinga frá febrúar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Villandi fyrirsögn!

Ég sem var svo ánægður þegar ég sá þessa fyrirsögn, en svo kom í ljós að þetta er í bandaríkjunum! úfff... þetta hefði betur mátt gerast á Íslandi !
mbl.is Mesta lækkun vísitölu fasteignaverðs í Bandaríkjunum í 16 ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hugleiðing um syndina og lögmálið

KrossHvað er synd?

Það skiptir engu máli fyrir Guði hver syndin er. Synd er synd fyrir Guði. Hvergi í allri biblíunni er talað um stóra synd eða litla synd. Slíkt mat er mannaverk, en ekki Guðs.

Hjá Guði er náð að finna fyrir blóð Jesú Krists, bæði fyrir mig og þig. Allir, sem eru í Kristi, skírðir og frelsaðir eiga aðgang að náð Guðs. Bænin stígur upp til Guðs, en náðin stígur niður frá Guði.

Þegar þú hefur gefist Jesú, mátt þú taka þessa kveðju til þín biðja um náðina og friðinn og taka við náðinni og friðnum, sem gjöf frá Guði fyrir Jesú Krist og friðþæginarverk hans fyrir þig, persónulega. Þá átt þú líka fyrirgefningu allra þinna synda.

Fyrra Tímóteusarbréfið vers 8-11

Vér vitum að lögmálið er gott, noti maðurinn það réttilega
og viti, að það er ekki ætlað réttlátum, heldur lögleysingjum og þverbrotnum, óguðlegum og syndurun, vanheilögum og óhreinum föðurmorðingjum, manndrápurum,
frillulífsmönnum, mannhórfum, mannaþjófum, lygurun, meinsærismönnum og hvað það er nú annað, sem gagnstætt er hinni heilnæmu kenningu.
Þetta er samkvæmt fagnaðarerindinu um dýrð hins blessaða Guðs, sem mér var trúað fyrir.
(V.8-11.)

mosesÍ þessum versum dregur Páll fram í grófum dráttum hverjum lögmálið var og er ætlað, en tekur um leið fram að lögmálið sé gott, noti menn það réttilega. Þannig á hinn kristni maður að nota lögmálið - nota það til áminningar og leiðbeiningar um hvað er rétt og rangt og hvað er synd gegn Guði.

Allt sem brýtur gegn boðorðunum er synd. Það þarf kristinn maður að vita. En hann þarf líka að vita, að frelsun hans er ekki fólgin í því að fullnægja kröfum lögmálsins og boðorðanna, heldur í einlægri trú á frelsarann Jesú Krist. Samfélagið við hann veldur því, að hinn kristni, trúaði maður keppir í einlægni eftir því að breyta ekki í neinu gegn boðorðunum tíu.

Boðorðin eru mönnunum gefin fyrst og fremst til þess að syndarinn sjái og viðurkenni brot sín gegn heilögum Guði og snúi sér svo til Jesú Krists, sem dó fyrir syndir hans, játi syndir sínar fyrir honum og treysti á náð hans og fyrirgefningu. Svo einfalt er það. Halo

Guð blessi ykkur öll og ég þakka lesturinn.

Ég elska þetta land

Þetta kemur svo sem engum íslending á óvart, að það skuli snjóa um hásumar og það þessum hita. En vá stundum er íslenskt veðurfar bara frábært !

Stórmerkilegur kristinn bloggari

Hann Jóhann Helgason er með þeim merkustu kristnu bloggurum sem ég hef séð í langan tíma. Hjá honum eru að finna greinar um kristni sem fáir hafa þorað að tjá sig um. 

Grafarvogs "flassarinn"!

Ég bý í grafarvogi, og á dóttur! Þess vegna hræðir þessi frétt mig , gott væri ef birt væri mynd af þessum ólukkmanni innan grafarvogs þannig að börnin geti varað sig á honum! Þ.e.a.s. ef þeir ná í "spottann" á honum!

Mín dýpsta samúð

Ég veit ekki hvað hefur gengið á þarna, hvað fær fólk til þess að beita skotvopnum á náunga sinn og svipta hann lífi ?? Ég votta aðstandendum þessa manns mína dýpstu samúð í þessum mikla missi.

Gott hjá þeim Páfagarði !

Þeir eiga hrós skilið fyrir þetta framtak hjá Páfagarði, þeir eru hættir að hugsa um hina vondu illu Ferrari bíla og farnir hugsa eins og menn. Íslamsríki hafa ætíð lokað á önnur trúarbrögð í sínum löndum, þeir leyfa hvorki trúboð né neinar byggingar á...

Svona gerist með hlýnun jarðar!

Í fréttinni stendur að þessi maður hafi verið afar duglegur:  Þegar lögregla gerði húsleit á heimili hans fundust yfir fimm hundruð kvenmanns nærföt. Eins og sést á þessari mynd þá hefði honum aldrei tekist að fela 500 stk. heima hjá sér á 18....

Free Willy !

Þetta hefur verið sjón að sjá!

Takk björgunarmenn!

Þessi maður sem lenti í þessu er frændi minn, og erum við þremenningar. Ég bið þess bænar að slysið hafi ekki alvarlegar afleiðingar í för með sér.

Who cares?

Leyfum þessum vesalings manni að hvíla í friði, og ekki velta okkur uppúr tilgangslausum smáatriðum.

Þvílíkt hrossatað

Ég tek lítið mark á þessari könnun, það segir mér enginn að þetta sé smitandi frekar en að vera með skalla! Það eru til margir aðrir þættir sem geta vel verið ættgengir, og ef um hjón er að ræða, þá fylgja þau lífsmynstri hvers annars - ef annað er til...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Guðsteinn Haukur

Guðsteinn Haukur Barkarson
Guðsteinn Haukur Barkarson

"Our life is a gift from God,
what we do with that life,
is our gift to God"

Höf. óþekktur

Sjá höfundasíðu fyrir ákveðna skilmála og upplýsingar um bloggarann 

Önnur snilld...

Hvaða þjóðir heimsækja þetta blogg?

free counters

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.9.): 3
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 588966

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Skoðanna könnun

Á að aðskilja ríki og kirkju?

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband