Bloggfærslur mánaðarins, maí 2007

Semjið næst við Samfylkinguna !

Guði sé lof að það er kominn bið í málið. Þá er eina ráðið að semja næst við Sollu! Það yrði fyrirmyndarstjórn að mínu mati. Ef það tekst ekki þá má reyna Vinstri-Græna.
mbl.is Biðstaða í viðræðum stjórnarflokkanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Réttur dómur !

Sem fyrrverandi sjómaður geri ég mér fulla grien fyrir þeim hættum sem kunna að leynast þar. Þess vegna lýsi ég yfir fullum stuðningi yfir þessum dómi, það voru ófár konurnar sem þurftu/kusu ekki að vinna vegna góðra tekna eiginmanna þeirra. Þess vegna er ég feginn að sjá þennan dóm konunni í vil. Eina sem er að 10 ár er frá slysinu, og hefði mátt kalla á Jónínu Bjartmarz eða Bjarna Ben til þess að hraða málum ! Wink
mbl.is Samskip greiði ekkju sjómanns bætur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aumingja drengurinn !

Það er sorglegt að menn þurfa að nota stinningartæki, en jafnvel enn sorglegra að þurfa að stela þeim. Ég hef grun um að þessi grey drengur hafi ekki haft kjark til þess að kaupa þetta og brugðið á það ráð að stela því til þess að bjarga "machoinu" sínu. En eins og atburðir þessa fréttar sýna og sanna, "Crime doesn't pay!" W00t
mbl.is Ásælist hjálpartæki ástarlífsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að kalla þetta sárabætur !

Mikil er gúrkutíðin hjá fréttamönnum ef þetta á kallast frétt. Auk þess sé ég ekki miklar sárabætur í skitnum 30 þús. kalli. Ef ég væri fréttamaður þá hefði ég umorðað þetta all rækilega !
mbl.is Eiríkur Hauksson fékk sárabætur í Helsinki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Móðurást

Ekkert er jafn órjúfanlegt og móðurástin eins og í þessu tilfelli, þetta kallar mar að hafa trú á dóttur sinni !
mbl.is Veðjaði aleigunni á sigur dóttur sinnar í Evróvisjón
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bensínhákur í sparkeppni

Ég skil ekki alveg þetta, þeir nota bíl í keppni sem snýst um að spara bensín sem eyðir álíka og skriðdreki. Ég sendi þessum manni bestu árnaðarkveðjur og ætti að veita honum bjartsýnisverðlaun, því ég efast um að bensínið sem úthlutað er í keppninni dugi varla fyrir startinu.
mbl.is Keppir í sparakstri á 550 hestafla ofurbíl
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á hún einhverja vorkun skilið?

Nei, sá sem sáir ríflega mun ríflega uppskera ! Ég get ekki einu sinni pínt mig til þess að vorkenna henni, hún hefur fengið að mæta dómstólum fyrir afbrot sín og þar við situr.
mbl.is Paris niðurbrotin vegna fangelsisdómsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gott framlag í umræðuna !

Ég er ekki fullkomlega sammála öllu sem í þessari frétt er, en það er gott að sjá að önnur vestur-evrópu ríki vilja breyta keppninni.
mbl.is Breskur þingmaður krefst þess að Evróvisjón-kosningunni verði breytt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvaða fífl gerir svona??

Það er skömm af svona fólki, og vona bara að þeir náist sem fyrst og látnir dúsa í fangelsi !
mbl.is Málningu hellt yfir Litlu hafmeyjuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað er að því að menn tali saman?

Ég skil ekki æsinginn í þessari frétt og sama gildir um aðra bloggara. Þeim er hjartans mál að banna Steingrími að hafa samskipti við hina stjórnmála foringjanna vegna stjórnarmyndunar. Ég sé bara ekkert að því að menn tali sín á milli, og hverju skiptir það að stjórnarflokarnir séu í viðræðum. Þetta er fullorðið fólk og vel fært um að sjá um sín mál sjálft!


mbl.is Steingrímur: Stjórnarmyndunarumboð liggur ekki á lausu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Guðsteinn Haukur

Guðsteinn Haukur Barkarson
Guðsteinn Haukur Barkarson

"Our life is a gift from God,
what we do with that life,
is our gift to God"

Höf. óþekktur

Sjá höfundasíðu fyrir ákveðna skilmála og upplýsingar um bloggarann 

Önnur snilld...

Hvaða þjóðir heimsækja þetta blogg?

free counters

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (31.1.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 13
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Skoðanna könnun

Á að aðskilja ríki og kirkju?

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband