Bloggfærslur mánaðarins, maí 2007

Dánarfregn og jarðarför Framsóknar !!

Ég hef verið bænheyrður! Mitt vinstra hjarta tók kipp við þessi tíðindi. Moggamenn gera þessari ríkisstjórn góð skil í þessari minningargrein. En nú taka betri tímar við !!! Grin


mbl.is 12 ára ríkisstjórnarsamstarf Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks á enda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stórkostlegt !!!!!!!!!!!!!!!!

Geir Harði segir af sér og Samfó er kominn í stjórn ! Þetta er stórkostlegur uppstigningardagur !!

Til hamingju allir vinstri menn !!!  W00t  Wizard  Grin 


mbl.is Formlegar stjórnarmyndunarviðræður hefjast væntanlega á morgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Risa risa lúðan !

Ég vil bara óska sjómönnum Arnars KE 260 til hamingju með þessa stórkostlegu veiði! Lúða er uppáhladsfiskurinn minn !
mbl.is Lönduðu 181 kg þungri lúðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vona að íkveikju mennirnir fái reykeitrun !

Það er enginn virðing borinn fyrir verkum annara! Þessi listaverk eru gerð eftir höndum manna og þar eru sviti blóð og tár á bak við. Þetta er virðingarleysi og svívirða á háu stigi !!  Angry

Auk þess var þetta ágætis áminning fyrir þá bílstjóra sem keyra of hratt i Ártúnsbrekkunni, þar sem þessi bílhræ minntu mann óneitanlega á bílslys!! 


mbl.is Eldur í bílhræjum í Ártúnsbrekku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Warhol myndi snúa sér við í gröfinni !

Andy Warhol var vissulega athyglissúkur, en fé gráðugur var hann ekki. Hann hefði aldrei tekið í mál að slíkar upphæðir væru borgaðar fyrir verk sín. Karlin var auðvitað stórskrítinn, en hann hafði sín prinsip og fór eftir þeim samkvæmt bókstafnum ! 
mbl.is „Grænt bílslys" slegið á 71,7 milljónir dala
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er þá von fyrir okkur strákar ! :)

Þetta vandamál er eitt sem svo mörgum karlmönnum óttast hvað mest, og er ég þar enginn undantekning! Það er þá von að við endum ekki eins og Denni J. eða Ómar !Grin  
mbl.is Vonir glæðast um að hægt sé að meðhöndla skalla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú verður talað um Brown Bush !

Hehehehehehe .... ég stóðst ekki mátið með þessa fyrirsögn, sérstaklega þar sem hefur verið svo oft talað Blair, Bush. Mér fannst þessi tvö nöfn koma hálf fáranlega út ! Tounge
mbl.is Brown eini frambjóðandinn í leiðtogakjöri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Farið nú að klára þetta !!!

Þjóðin stendur á öndinni á meðan á þessu stendur, ég kalla á niðurstöðu í þessu máli! Nú er komnir 5 dagar frá kosningum og ég bendi á að það er langur tími í pólitík!
mbl.is Vaxandi vantrú á framhald stjórnarsamstarfs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Trúir þú þessu?

39  Nokkrir farísear í mannfjöldanum sögðu við hann: ,,Meistari, hasta þú á lærisveina þína.”  40 Hann svaraði: ,,Ég segi yður, ef þeir þegja, munu steinarnir hrópa.” 41  Og er hann kom nær og sá borgina, grét hann yfir henni  42 og sagði: ,,Ef þú hefðir aðeins vitað á þessum degi, hvað til friðar heyrir! En nú er það hulið sjónum þínum. (Lúk. 19:39-41)


Jesus_wsJesús grét því hann vissi að dómur Guðs kæmi yfir Jerúsalem. Óvinirnir myndu koma og setjast um borgina. Þeir mundu leggja hin forna höfuðstað undir sig, brjóta niður varnarvirki, hýbýli og fella íbúanna.

Þetta gekk líka eftir. Rómverjar komu árið 70 eftir Krist og tóku borgina eftir langt og blóðugt umsátur, nákvæmlega eins og Jesús hafði sagt fyrir. Gyðingar gerðu uppreisn gegn Rómarveldi nokkrum árum áður, þessari uppreisn refsaði Rómarkeisari gyðingum með því að leggja borgina þeirra í eyði. Sem og eyðileggja musteri þeirra.

 En hvers vegna hlaut þvílík refsing að dynja yfir ? Hafði Jerúsalem syndgað svo herfilega úr því að hegningin var jafn skelfileg og raun bar vitni?

 Tökum eftir orðum Jesú. Allt þetta mun verða, segir hann, “vegna þess að þú þekkir ekki þinn vitjunartíma”(Lúk. 19:44)

Við skiljum hvað þetta þýðir. Guð hafði vitjað Jerúsalem þar sem Messías hans var kominn, Jesús Kristur, sonur Guðs.

Til er hjálp við syndunum, því að sá er særður skyldi vera vegna okkar og myndi taka alla hegningu alls mannskyns. Hann er sá sem var bölvaður á trénu, (en það var trú gyðinga að sá sem dó festur við tré skyldi bölvun hljóta) hann er sá sem úthellti blóði sínu svo við gætum lifað. Við síðasta andadráttinn og þegar hann laut höfði og gaf upp andann, þá varð landskjálfti mikill, svo sterkur að hann hristi musterið þannig að fortjaldið, sem lá inn til þess ALLRA helgasta rifnaði. Aðeins æðsta prestinum einum var heimilt þangað inn, og áður en hann gekk þangað inn, (sem gerðist einu sinni á ári um páska) þá gekk hann í gegnum MJÖG strangt hreinsunarferli, svo heilagt var það.

Dýrð Drottins hvíldi yfir því allra helgasta, og hver sem er gat ekki meðtekið hana nema hann væri útvalinn eða æðsti prestur. Fortjaldið sem var gert með manna höndum rifnaði við þessa atburði og þess vegna er það táknrænt að Jesús reif í sundur allar mannasetningar sem voru orðnar mönnum mikilvægari og náðu fram yfir trúna á Guð sjálfan.

 Einnig sló yfir mikið myrkur á miðjum degi, og það var þá sem allar syndir manna söfnuðust saman og fóru allar í líkama Jesú, það var þá sem Jesús hrópaði sín síðustu orð:

“33 Á hádegi varð myrkur um allt land til nóns. 34 Og á nóni kallaði Jesús hárri röddu: ,,Elóí, Elóí, lama sabaktaní!`` Það þýðir: Guð minn, Guð minn, hví hefur þú yfirgefið mig?”

Er það furða að hann hafi öskrað þetta, hann var jú að taka á sig syndir allra manna, meira að segja fyrir mig og þig. 

En þrátt fyrir allt þetta, vildu þeir ekki trúa á Jesú, þeir meðtóku ekki ást hans. Enn þann dag í dag eru menn efins um tilvist hans. Eins og Jesús sagði sjálfur við Tómas:

27 Síðan segir hann við Tómas: ,,Kom hingað með fingur þinn og sjá hendur mínar, og kom með hönd þína og legg í síðu mína, og vertu ekki vantrúaður, vertu trúaður.``

28 Tómas svaraði: ,,Drottinn minn og Guð minn!” 29 Jesús segir við hann: ,,Þú trúir, af því þú hefur séð mig. Sælir eru þeir, sem hafa ekki séð og trúa þó.”

 (Jóh. 20:27-29)

Ég efast ekki sjálfur um þessa atburði, enda sýna þeir kærleika Jesú til manna í hnotskurn. En það er auðvelt að falla í gildu vantrúar, meira að segja nánust lærisveinar Jesú urðu sekir um það. Eins og Jesús sagði sjálfur hér ofar: “Sælir eru þeir, sem hafa ekki séð og trúa þó.”

Það er það sem á við okkur mennina í dag, að sjá ekki og trúa þó.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Guðsteinn Haukur

Guðsteinn Haukur Barkarson
Guðsteinn Haukur Barkarson

"Our life is a gift from God,
what we do with that life,
is our gift to God"

Höf. óþekktur

Sjá höfundasíðu fyrir ákveðna skilmála og upplýsingar um bloggarann 

Önnur snilld...

Hvaða þjóðir heimsækja þetta blogg?

free counters

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (31.1.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 13
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Skoðanna könnun

Á að aðskilja ríki og kirkju?

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband