Hugleiðing

Af öllum sálmunum, þá er þessi án efa uppáhalds sálumurinn minn, enda er hann afar nákvæmur spádómur um afdrif Jesú, og skrifaður mörg hundruð árum fyrr. Cool

Sálmarnir 22:

Til söngstjórans. Lag: Hind morgunroðans. Davíðssálmur.

2 Guð minn, Guð minn, hví hefir þú yfirgefið mig? Ég hrópa, en hjálp mín er fjarlæg.
3 ,,Guð minn!`` hrópa ég um daga, en þú svarar ekki, og um nætur, en ég finn enga fró.
4 Og samt ert þú Hinn heilagi, sá er ríkir uppi yfir lofsöngvum Ísraels.
5 Þér treystu feður vorir, þeir treystu þér, og þú hjálpaðir þeim,
6 til þín hrópuðu þeir, og þeim var bjargað, þér treystu þeir og urðu ekki til skammar.
7 En ég er maðkur og eigi maður, til spotts fyrir menn og fyrirlitinn af lýðnum.
8 Allir þeir er sjá mig gjöra gys að mér, bregða grönum og hrista höfuðið.
9 ,,Hann fól málefni sitt Drottni. Hann hjálpi honum! hann frelsi hann,
því að hann hefir þóknun á honum!``
10 Já, þú leiddir mig fram af móðurlífi, lést mig liggja öruggan við brjóst móður minnar.
11 Til þín var mér varpað frá móðurskauti, frá móðurlífi ert þú Guð minn.
12 Ver eigi fjarri mér, því að neyðin er nærri, og enginn hjálpar.
13 Sterk naut umkringja mig, Basans uxar slá hring um mig.
14 Þeir glenna upp ginið í móti mér sem bráðsólgið, öskrandi ljón.
15 Mér er hellt út sem vatni, og öll bein mín eru gliðnuð sundur;
hjarta mitt er sem vax, bráðnað sundur í brjósti mér;
16 gómur minn er þurr sem brenndur leir, og tungan loðir föst í munni mér. Og í duft dauðans leggur þú mig.
17 Því að hundar umkringja mig, hópur illvirkja slær hring um mig, hendur mínar og fætur hafa þeir gegnumstungið.
18 Ég get talið öll mín bein _ þeir horfa á og hafa mig að augnagamni,
19 þeir skipta með sér klæðum mínum og kasta hlut um kyrtil minn.
20 En þú, ó Drottinn, ver eigi fjarri! þú styrkur minn, skunda mér til hjálpar,
21 frelsa líf mitt undan sverðinu og sál mína undan hundunum.
22 Frelsa mig úr gini ljónsins, frá hornum vísundarins. Þú hefir bænheyrt mig!
23 Ég vil kunngjöra bræðrum mínum nafn þitt, í söfnuðinum vil ég lofa þig!
24 Þér sem óttist Drottin, lofið hann! Tignið hann, allir niðjar Jakobs!
Dýrkið hann, allir niðjar Ísraels!
25 Því að hann hefir eigi fyrirlitið né virt að vettugi neyð hins hrjáða og eigi hulið auglit sitt fyrir honum, heldur heyrt, er hann hrópaði til hans.

Og allt þetta rættist fyrir 2007 árum síðan.
Guð blessi ykkur öll.  Halo

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Linda

Þannig er  þetta bara, sumir neita að sjá þetta, sumir snúa út úr þessu enn það breytir engu því orðið er skírt varðandi þá aðila líka. Við biðjum að ljósið muni opna augun þeirra fyrir því sem yndislegt sem er Heilög Ritning í Jesú nafni.

Linda, 12.7.2007 kl. 13:11

2 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Amen Linda !

Guðsteinn Haukur Barkarson, 12.7.2007 kl. 13:59

3 Smámynd: Hjalti Rúnar Ómarsson

"...enda er hann afar nákvæmur spádómur..."

Hvað í sálminum sjálfum bendir til þess að um spádóm sé að ræða? 
Oftast þekkir maður spádóma á því að þar er spáð einhverju um
framtíðina.

Raunin er sú að höfundar guðspjallanna höfðu þennan spádóm fyrir framan sig þegar þeir skrifuðu guðspjöllin og notuðu hann til þess að skálda atburði.

Gott dæmi um þetta er vers 19, þar sem stílbragð sem er víst algengt í hebresku er notað, að tala tvisvar um sama hluti. Höfundur Jóhannesarguðspjalls skiptir þessu upp í tvo aðskilda
atburði:

Jh 19:23

Þegar hermennirnir höfðu krossfest Jesú, tóku þeir klæði hans og skiptu í fjóra hluti, og fékk hver sinn hlut. Þeir tóku og kyrtilinn, en hann var saumlaus, ofinn í eitt ofan frá og niður úr.

Hjalti Rúnar Ómarsson, 13.7.2007 kl. 01:29

4 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Þú ert sem sé að segja að þetta er eitt stórt samsæri? Og að höfundar guðspjallanna séu allir lygarar?

Þetta fer þér ekki Hjalti, og það veistu vel. Þetta er gömul tugga sem nær aldrei að verða neitt nema innihaldslaus kenning, sé maður mannþekkjari þá er auðvelt að koma auga á hver lýgur og hver ekki ! 

En halt þú í þína trú og guðleysi, ég ritaði þetta til þeirra sem trúa og vona á dýrð Jésum Krists. 

Guðsteinn Haukur Barkarson, 13.7.2007 kl. 02:03

5 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

† + =

+ =

hehehe ... bara til þín Hjalti ! 

Guðsteinn Haukur Barkarson, 13.7.2007 kl. 02:10

6 Smámynd: Hjalti Rúnar Ómarsson

"Þú ert sem sé að segja að þetta er eitt stórt samsæri?"

Nei, hvers vegna heldurðu það?

"Og að höfundar guðspjallanna séu allir lygarar?"

Nei, hvers vegna heldurðu það?

Málið er það að höfundar guðspjallanna töldu Gamla testamentið búa
yfir leyndum skilaboðum um Jesú, þannig að þeir töldu ranglega að í Sálmi 22 hefðu þeir fundið lýsingu á dauða Jesú og byggðu þá einfaldlega frásögn sína á þessu. Ekkert samsæri og engir lygar.

Hjalti Rúnar Ómarsson, 13.7.2007 kl. 15:25

7 identicon

Hjalti, er ekki líklegra að þú telur Biblíuna búa yfir leyndum misskilningi postulanna þannig að þú telur ranglega að þú hafir fundið villu í túlkun þeirra á ritningunni.

"Gott dæmi um þetta er vers 19, þar sem stílbragð sem er víst algengt í hebresku er notað, að tala tvisvar um sama hluti. Höfundur Jóhannesarguðspjalls skiptir þessu upp í tvo aðskilda
atburði"

Ég hefði nú haldið að postularnir væru færari um að þekkja þetta stílbragð en við og þyrftu því ekki að 'misskilja' textann svona

Andri (IP-tala skráð) 14.7.2007 kl. 17:24

8 identicon

Annars segir þú í fyrra svari þínu:

"Raunin er sú að höfundar guðspjallanna höfðu þennan spádóm fyrir framan sig þegar þeir skrifuðu guðspjöllin og notuðu hann til þess að skálda atburði."

og svo segirðu:

"Ekkert samsæri og engir lygar."

Þegar þú segir postulana vera að skálda eitthvað, þá skil ég það þannig að þú segir þá vera að ljúga.

En það er bara ég...

Andri (IP-tala skráð) 14.7.2007 kl. 17:28

9 Smámynd: Hjalti Rúnar Ómarsson

"Hjalti, er ekki líklegra að þú telur Biblíuna búa yfir leyndum misskilningi postulanna þannig að þú telur ranglega að þú hafir fundið villu í túlkun þeirra á ritningunni."

Andri, ég skil ekki þessa spurningu.

"Ég hefði nú haldið að postularnir væru færari um að þekkja þetta stílbragð en við og þyrftu því ekki að 'misskilja' textann svona"

Ef til vill, en þeir gerðu það greinilega ekki alltaf. Frægasta dæmið er auðvitað það þegar höfundur 
Matteusarguðspjalls lætur Jesú ríða á tveimur ösnum inn í Jerúsalem.

"Þegar þú segir postulana vera að skálda eitthvað, þá skil ég það þannig að þú segir þá vera að ljúga."

Eru þeir sem semja skáldskap lygarar?

Hjalti Rúnar Ómarsson, 14.7.2007 kl. 20:18

10 identicon

"Ef til vill, en þeir gerðu það greinilega ekki alltaf. Frægasta dæmið er auðvitað það þegar höfundur 
Matteusarguðspjalls lætur Jesú ríða á tveimur ösnum inn í Jerúsalem."

Þessi þráður fjallar nú reyndar ekki um þetta en ég má til að svara þessu þar sem þú ert að reyna að gera lítið úr Orði Guðs sem er heilagt og fullkomið eins og það er.

Þú ert væntanlega að tala um Matteus 21.2 og Sakaría 9.9:

"Fagna þú mjög, dóttirin Síon, lát gleðilátum, dóttirin Jerúsalem! Sjá, konungur þinn kemur til þín. Réttlátur er hann og sigursæll, lítillátur og ríður asna, ungum ösnufola." Sak 9.9

"og sagði við þá: "Farið í þorpið hér framundan ykkur, og jafnskjótt munuð þið finna ösnu bundna og fola hjá henni. Leysið þau og færið mér." Mat 21.2

Ég er nú ekkert sleipur í hebresku (reyndar kann ég bara einstaka orð) en sumar þýðingar hafa orðið "og" á milli "asna" og "ungum ösnufola".  Ég veit ekkert hvort er réttara að þýða.

En það skiptir ekki máli.  Jafnvel þó Sakaría hafi bara verið að tala um einn asna þá þýðir það ekki að það geti ekki verið fleiri með í för.  Sakaría sagði aldrei að Konungurinn kæmi á aðeins einum asna og ekki fleirum.

Ef ég segi þér að ég ætli í bíó með Sigga á morgun, svo fréttir þú að ég hafi farið í bíó með Sigga og Óla, þýðir það þá að ég hafi logið.  Nei, ég fór í bíó með Sigga, en líka Óla.

Þetta er bara ein af mörgum aðferðum sem trúleysingjar nota til þess að fá þá, sem ekki skoða málið betur, til þess að trúa ekki Orði Guðs.

Andri (IP-tala skráð) 18.7.2007 kl. 21:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Guðsteinn Haukur

Guðsteinn Haukur Barkarson
Guðsteinn Haukur Barkarson

"Our life is a gift from God,
what we do with that life,
is our gift to God"

Höf. óþekktur

Sjá höfundasíðu fyrir ákveðna skilmála og upplýsingar um bloggarann 

Önnur snilld...

Hvaða þjóðir heimsækja þetta blogg?

free counters

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.12.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 25
  • Frá upphafi: 588367

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Skoðanna könnun

Á að aðskilja ríki og kirkju?

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband