Athugasemdir

1 Smámynd: Nanna Katrín Kristjánsdóttir

Já en hvað á að kjósa, það er ekki eins og það sé til einn flokkur sem hefur það allt.  Og ekki getur maður treyst neinum.  Það er allt í rugli hjá öllum flokkum

Nanna Katrín Kristjánsdóttir, 12.3.2008 kl. 15:44

2 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Nanna - x-f!

Siggi Helgi - nákvæmlega! 

Guðsteinn Haukur Barkarson, 12.3.2008 kl. 15:48

3 identicon

Bíddu, er ekki x-f Frjálslyndi flokkurinn? Ja það væri það nú! Með beztu kveðju.

bumba (IP-tala skráð) 12.3.2008 kl. 16:02

4 identicon

Íslendingar kjósa þá sem þeir telja að valdi minnstum skaða.
því miður sé ég ekkert afl sem vit er í... so sad

DoctorE (IP-tala skráð) 12.3.2008 kl. 16:05

5 Smámynd: Halla Rut

Nanna F listinn hefur lofað ef hann kemst til valda að fella niður verðtryggingu. Það yrði mesta búbót sem Íslenskar fjölskyldur gætu nokkru sinni fengið. Við erum öll fangar þessarar verðtryggingar. Það að auki eru flest smærri og miðlungs fyrirtæki pínd með þessu sama og hækkar þeirra húsaleiga og lán í hverjum mánuði. Þegar kostnaður eykst þá þarf að hækka vöruna og þannig gengur þetta koll af kolli og hver borgar....jú einstaklingar og fjölskyldurnar í landinu; Ég og þú.

Einhver skattalækkun yrði allaf svo lág að hún mundi skipta einstaka fjölskyldu svo litlu en niðurfelling verðtryggingar mundi breyta öllu. 

Sjálfstæðisflokkurinn mun aldrei breyta þessu því hann er uppá háu herrana komin það er FF ekki og þess vegna er honum kleift að breyta þessu. Ef þú vilt lifa við sömu lánakjör og sama verðlag og gengur og gerist í okkar nágrannalöndum skaltu kjósa FF, það er eina leiðin eða að kjósa Samfylkinguna og ganga með henni ESB og afsala Íslandi til Brussel.

Þetta lítur hér allt út eins og kosningaáróður en það er það í raun ekki heldur er þetta hér ástæðan fyrir því að ÉG gekk í flokkinn. 

Halla Rut , 12.3.2008 kl. 16:11

6 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Halla Rut - á hvíta hestinum, takk innilega, þú ert alveg frábær!

Guðsteinn Haukur Barkarson, 12.3.2008 kl. 16:17

7 identicon

Allt er betra en það sem við höfum nú. Ég vona líka að Frjálslyndi flokkurinn muni taka það upp á stefnuskrá sína að byrja með sjúkrasamlag aftur eins og var. Þá myndi maður losna við þetta brjálæði sem almannatryggingar eru orðnar. Ég held nu bara að maður geti ekki talað um Almannatryggingar lengur á Íslandi. Annað eins borgar nú fólk í meðul og aðgerðir úr eigin vasa. Síðan um áramót þá er ég búinn að borga um 8o.ooo kr. í lyf, með afslætti. Af þessum þá líka tekjum sem ég er með.   Er orðinn leiður á þessu. Hvað má þá blessað fólkið segja sem minni penginga hefur en ég á milli handanna? Sérkennileg lógikk þetta. Með beztu kveðju.

bumba (IP-tala skráð) 12.3.2008 kl. 16:26

8 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

já þetta er alger SKANDALL er alveg viss um að FF er einn af betri kostum

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 12.3.2008 kl. 16:35

9 Smámynd: Halla Rut

Bumban: Að þú skulir þurfa að greiða svona mikið fyrir lyf er frásinna. Fólk sem þarf á miklum lyfjum að halda getur oft ekki unnið og er því á lágum tekjum. En aðal málið með lyfjaverð er einokun hér eins og í svo mörgu á Íslandi. Með betri samkeppni mundi lyfjanotandi og ríkið spara. En en og aftur er Sjálfstæðisflokkurinn háður þeim sem eiga allt og því breytist þetta ekki með honum. Þeir eru nú að gera eitthvað smá, leyfa póstverslun og fl. En dugar ekki. Alvöru samkeppni er málið.

Maður á Akranesi opnaði þar Apótek og það sem hann hefur þurft að fara í gegn um því Lyfja er að gera allt til að bola honum út af markaðinum til að geta setið einn um lýðinn. Þarna er krabbameinið. Samkeppnisstofnun er lömuð og gerir ekkert fyrr en árum eftir að skaðinn er skeður.

Fyrirgefðu langlokurnar hér Guðsteinn. 

Halla Rut , 12.3.2008 kl. 16:44

10 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

já Halla Rut, ég vil einnig benda á þessa frétt á ruv.is...

Barnafólk greiðir hærri skatta hér

Íslenskt barnafólk greiddi hærra hlutfall af tekjum í skatta árið 2006 en sex árum áður - en almennt hefur skatthlutfallið lækkað í ríkjum OECD. Þetta kemur fram í nýrri rannsókn Efnahags- og framfarastofnunarinnar.

Barnafólk í Ástralíu, Ungverjalandi, Írlandi og Nýja-Sjálandi - greiðir hlutfallslega minni skatta af tekjum en áður. Hér hafa skattar sem hlutfall af tekjum íslensks barnafólks hækkað. Við skipum okkur á bekk með löndum á borð við Grikklandi, Kóreu og Mexíkó. Þetta er vegna þess að skattleysismörkin hafa ekki hækkað til samræmis við verðbólgu.

Í fréttatilkynningu kemur fram að almennt hafa skattabreytingar í OECD-ríkjunum verið í þágu
láglaunafólks. Í nokkrum ríkjum, Ástralíu, Bandaríkjunum, Kanada, Kóreu, Lúxemborg, Noregi, Þýskalandi - og á Íslandi - hafa skattaumbætur hins vegar verið til hagsbóta fyrir hátekjufólk.

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 12.3.2008 kl. 16:52

11 Smámynd: Halla Rut

Anna og fleiri: þetta sem þú talar um hér er aðeins tekjuskattur. Við greiðum meira en allar þessar þjóðir í virðisaukaskatt. Í UK er virðisaukaskattur á matvælum og barnavörnum 0%. Einnig borgum við verndartolla á flestar innfluttar matvörur eins og t.d. grænmet og kjörvörur. Okkur er ekki "leyft" að ráðamönnum að fá matvæli á viðráðanlegu verði til að vernda fámenna stétt manna. Þar að auki eru samkeppnislög lömuð og kaupmenn okra á okkur alla daga með verðsamráði.

Er að fara á fund. Góðar stundir. 

Halla Rut , 12.3.2008 kl. 17:05

12 identicon

Ef íslensk þjóð hefur heila & vit þá verður sjálfstæðisflokkurinn að örflokki eftir næstu kosningar
En því miður er lítill séns á því

DoctorE (IP-tala skráð) 12.3.2008 kl. 17:09

13 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Fyrirgefðu langlokurnar hér Guðsteinn.

Nei vá Halla Rut! Þú stendur þig eins og hetja! 

Öðrum þakka ég innlitið! 

Guðsteinn Haukur Barkarson, 12.3.2008 kl. 17:14

14 Smámynd: halkatla

sjálfstæðisflokkurinn er á steinaldarstigi, ég þoli ekki íslensk stjórnmál en f-listinn lítur sífellt betur og betur út...

halkatla, 12.3.2008 kl. 19:27

15 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

já Anna KAren...satt!

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 12.3.2008 kl. 19:30

16 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

ffff??????????

Heimir Lárusson Fjeldsted, 12.3.2008 kl. 19:45

17 Smámynd: Linda

Ég var svo reið þegar ég sá fréttirnar í kvöld, og hverngi ríkistjórnin þótti þetta vera jákvætt, hvað er að í þessu landi vor? 

F-listinn er flokkur hins almenna borgara.!!

Linda, 12.3.2008 kl. 20:09

18 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

....

Gunnar Helgi Eysteinsson, 12.3.2008 kl. 20:24

19 Smámynd: Úlfar Þór Birgisson Aspar

Það er vakning meðal þjóðarinnar,og vonandi lærum við reikna þá sjáum við svart á hvítu hvernig mál standa.

Og það verður auðvitað ekki logið endalaust að okkur sjáandi,en ég verð að viðurkenna að það virðist bara hægt að bjóða okkur endalaust meiri skít og bull og við bara kokgleypum endalaust.

Úlfar Þór Birgisson Aspar, 12.3.2008 kl. 23:00

20 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

Úlfar...góður punktur....en það hefur verið LOGIÐ svo lengi?

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 13.3.2008 kl. 00:11

21 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Hárrétt Guðsteinn, eins og ég benti á í blogginu mínu þá  vildu Frjálslyndir  undir forystu Guðjóns Arnar leggja höfuðáherslu á að hækka skattleysinsmörkin. Ríkisstjónin vildi ekki fara þá leið.

Sigurður Þórðarson, 13.3.2008 kl. 00:23

22 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

já Sigurður...það er mjög SKRITIÐ, vegna þess að hver maður sér hvurslags bót það er fyrir lægstlaunuðu???

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 13.3.2008 kl. 01:19

23 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæl öll. Elsku Anna mín eigum við að ganga í Frjálslyndaflokkinn?

Frjálslyndar baráttukveðjur

Rósa Aðalsteinsdóttir, 13.3.2008 kl. 01:31

24 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

Veistu að Rósa að ég er alvarlega að hugsa um það...í alvöru!

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 13.3.2008 kl. 01:48

25 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæl Anna mín, við erum flottastar    Ég veit að þá verða Guðsteinn og Siggi sæti glaðir

Rósa Aðalsteinsdóttir, 13.3.2008 kl. 01:50

26 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Þið eruð báðar velkomnar ! Ég hef veriðm fjarri gamni og fagna þeirri málefnanlegri umræðu sem hefur átt sér stað. trú mín er sú að fólk sjái í gegnum óréttlætið og taki skynsamlega ákvörðun sem mér reyndar sýnsit margir vera að hallast að!

Linda, Rósa og Anna B - mikið er ég nú feginn að sjá skrif ykkar! 

Öðrum þakka ég umræðurnar og innlitið!

Guð blessi ykkur á meðan! 

Guðsteinn Haukur Barkarson, 13.3.2008 kl. 08:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Guðsteinn Haukur

Guðsteinn Haukur Barkarson
Guðsteinn Haukur Barkarson

"Our life is a gift from God,
what we do with that life,
is our gift to God"

Höf. óþekktur

Sjá höfundasíðu fyrir ákveðna skilmála og upplýsingar um bloggarann 

Önnur snilld...

Hvaða þjóðir heimsækja þetta blogg?

free counters

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 40
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 38
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Skoðanna könnun

Á að aðskilja ríki og kirkju?

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband