Bænheyrsla !

Herforingjastjórnin í Búrma hefur loks látið af drambi sínu og hleypt hjálparstarfsmönnum inn. Veit ég vel að þetta hefur verið bænarefni víðs vegar um hin kristna heim að þetta loks leysist.

Og hver segir að bænin virki ekki? Cool


mbl.is Búrma þiggur alla aðstoð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ekki gera lítið úr sjálfum þér og þinni trú Guðsteinn, verulega LAME pistill.
Ég myndi eyða þessum pistli ef ég væri þú.

DoctorE (IP-tala skráð) 23.5.2008 kl. 09:48

2 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæll og blessaður.

Drottinn er góður.

Frábær pistill. Frábært að vekja athygli á góðum fréttum.

Þú er nýbúinn að blogga um bænasvar: Svifdrekamenn bænheyrðir og núna um Burma. Drottinn heyrir bænir.

Mikið er dásamlegt að eiga Jesú og geta talað við hann um allt.

Drottinn blessi Guðstein og Doctor E.

Shalom/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 23.5.2008 kl. 09:58

3 Smámynd: Linda

Já Amen og  mikið rétt Haukur minn, þetta er dásamleg bænheyrsla, Guði sé lof.

knús

Linda, 23.5.2008 kl. 10:04

4 identicon

Sæll Guðsteinn minn.

Ég var vakandi þegar fréttin kom í loftinu í morgun og ég komst við af fögnuði og það var fölskvalaust.

Orð DoctorE eru í mínum eyrum gutl. Láttu hann ekki pirra þig! 

Þakka þér birtinguna á fréttinni. Heyrumst.

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 23.5.2008 kl. 10:05

5 identicon

Jesú lét hamfarirnar ganga yfir Búrma og Kína.... það er það sem þið eruð að segja, til hamingju með að uppljóstra einfeldni ykkar.
Sorglegt

DoctorE (IP-tala skráð) 23.5.2008 kl. 10:10

6 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Dokksi: 

Ekki gera lítið úr sjálfum þér og þinni trú Guðsteinn, verulega LAME pistill.
Ég myndi eyða þessum pistli ef ég væri þú.

Mikið rosalega berðu litla virðingu fyrir sjálfum þér, kom þetta þér svona rosalega á óvart eða ert bara illa læs?

Ekki skánar þetta hjá þér:

Jesú lét hamfarirnar ganga yfir Búrma og Kína.... það er það sem þið eruð að segja, til hamingju með að uppljóstra einfeldni ykkar.
Sorglegt

Heimskuleg orð þín dæma þig sjálf/ann. Hvort sem þú ert ??? 

Rósu, Lindu og Þórarinni vil ég þakka fögur orð.

Guðsteinn Haukur Barkarson, 23.5.2008 kl. 10:21

7 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Takk fyrir þessa góðu slóð Grétar, sem þú gerir í góðum kærleika.

Guðsteinn Haukur Barkarson, 23.5.2008 kl. 10:37

8 Smámynd: Haraldur Davíðsson

Eigum við ekki bara að vera glöð yfir því að nú fær fólk að borða....sé ekki ástæðu til að eigna það neinum eða neinu.

Við skulum ekki vera að skreyta okkur með stolnum fjöðrum.............

Haraldur Davíðsson, 23.5.2008 kl. 10:41

9 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Hefur þú nokkurn tíma prófað að biðja Haraldur? Þá meina ég virkilega prófa það? Ef ekki hvernig er þú fær að dæma um þetta og segja þetta stolnar fjaðrir?

Guðsteinn Haukur Barkarson, 23.5.2008 kl. 10:50

10 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sælir Grétar og Haraldur.

Milljónir af kristnu fólki út um allan heim hafa beðið Jesú Krist um lausn fyrir fólkið í Burma. Við getum ekki horft framhjá þeirri staðreynd og  við vitum að Jesús heyrir bænir og þarna átti bænheyrsla sér stað. Höfum sjálf upplifað bænheyrslu. 

Þið megið hafa ykkar skoðun og við okkar, eða hvað?

Megi almáttugur Guð gefa ykkur góðan dag og bjarta framtíð.

Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 23.5.2008 kl. 10:58

11 Smámynd: Haraldur Davíðsson

Það að vilja segja " sjáið hvað kom útúr bænunum MÍNUM til guðsins MÍNS, er að skreyta sig með stolnum fjöðrum.

Þar fyrir utn, má minna á sköpunarsöguna, þar sem guð segir; ...nú hafið ÞIÐ hleypt dauðanum í Paradís.... Hann er löngu búinn að setja þetta allt í okkar skítugu hendur og er ekkert að skipta sér af okkur. Af hverju ætti hann að gera það?

Þeir sem trúa eru hólpnir ekki satt? svo ég sé ekki af hverju hann ætti að vera að skipta sér af

Veðrið og náttúruöflin eru hans er það ekki...svo samkvæmt því er það alveg eins rétt kjá Dokksa að guð beri ábyrgð á hörmungum.

Persónulega tel ég að hann hafi ekkert með neitt af þessu að gera.

FRIÐUR ( ekki bara með útvöldum )

Haraldur Davíðsson, 23.5.2008 kl. 10:59

12 identicon

Við skulum hafa það á tæru að ef guð gat stoppað hörmungarnar af en gerði það ekki ... þá höfum við ekkert að þakka honum fyrir.
Þetta liggur í augum uppi

En guð er náttúrulega ekki til þannig .... að þetta er ekki honum að kenna og eða að þakka.

DoctorE (IP-tala skráð) 23.5.2008 kl. 13:58

13 Smámynd: Haraldur Davíðsson

Rósa ég get spurt hins sama, nema hvað að ég veit hvert svarið verður.

Annað hvort er guð við stjórnvölinn eða ekki.

Biblían segir strax í sköpunarsögunni að svo sé EKKI.

Þú vilt þó ekki meina  að djöfullinn stýri veðrinu? Nú eða trúleysingjar

eða ég eða þú........

Haraldur Davíðsson, 23.5.2008 kl. 14:12

14 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæll Haraldur.

Þú mátt hafa þínar skoðanir og ég ætla að hafa mína trú. Leiðinda innlegg hjá þér, frekar neikvæð og hálf ruddaleg.

Nenni ekki að karpa við þig. Það er bara rugl að eyða tíma í það hvort sem þú heitir Haraldur eða eitthvað annað?

Vona að þú hafir það gott og njótir skrifa þinna.

Shalom/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 23.5.2008 kl. 14:59

15 Smámynd: Hjalti Rúnar Ómarsson

Hvað segirðu Haukur, lét guðinn þinn herforingjana skipta um skoðun? Er frjáls vilji ekki lengur það mikilvægasta sem til er í augum guðs?

Svo skil ég ekki hvað þér finnst að því að segja að Jesús hafi látið hamfarirnar ganga yfir Kína og Búrma. Skapaði hann ekki náttúruna? Ræður hann ekki yfir henni?

Hjalti Rúnar Ómarsson, 23.5.2008 kl. 15:17

16 Smámynd: Sigurður Rósant

Já, Drottinn er kannski farinn að bænheyra meira en hann gerði á dögum Móse, þegar Móse greyið bað um leyfi til að fara með 1.5 mjlljónir manna úr Egyptalandi með umskurðaráhöldum, tjöldum, húsdýrum og kvikfénaði að auki. En þá brást Drottinn svona við: "En Drottinn herti hjarta Faraós, svo að hann leyfði ekki Ísraelsmönnum burt að fara."

Bara til að sýna mátt sinn og megin. Hafði eitthvað gaman af að senda sínar frægu plágur til að kvekkja á Egyptum, þessari framfarasinnuðu þjóð. 

Ekki veit ég hvað Drottinn hefur séð við þennan Than Schwe að hann skyldi ekki herða hjarta hans lengur en raun varð á. Já og senda honum fyrst einhverjar plágur, malaríu, bólusótt eða bara einn Svarta dauða.

Sigurður Rósant, 23.5.2008 kl. 19:01

17 Smámynd: Haraldur Davíðsson

Rósa mín, þú ert nú ekki málefnalegasta manneskjan á blogginu, en umræðan skiptir miklu meira máli en bæði ég og þú.

Hvað varðar nafn mitt þá hvet ég þig til að sleppa svona aðdróttunum, þar sem ég skrifa undir fullu nafni, en ekki þú.

Það er alveg makalaust að þú getir ekki skilið milli manns og skoðana hans, verandi jú kristin manneskja.

Sjálfur tel ég mig ekki trúlausan, aðeins sama marki brenndur og Jesú, það er að segja, ég er mannlegur og ég efast.

Ég efast sérstaklega um orð manna, sama hvar þau standa skrifuð.

Þú kýst að vera persónuleg, og árásargjörn svo að þú lýsir þér best sjálf.

Hafi ég verið á skjön við heimsmynd þína þá er það bara hið besta mál, og Rósa, SHALOM, ertu viss um að þú skiljir hvað það þýðir?

Al Salaam Alaykum, Rósa þú ert meistara þínum til mikils sóma.

Haraldur Davíðsson, 24.5.2008 kl. 14:28

18 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Hjalti - þetta er ekki einu sinni svaravert hjá þér og mjög ómálefnanlegt.

Rósant - hefur þú heyrt um orðatiltækið: "tilgangurinn helgar meðalið". Eins er með allt það sem þú nefnir.

Rósa - Nú verð ég að áminna þig, sagt er: "aðgát skal sýnd í nærveru sálar" og skulum við vera málefnanleg, því ekki var þetta kærleiksríkt af þér að þessu sinni. Við eigum að boða trú, ekki fæla frá henni. 

Haraldur -  við skulum róa þetta aðeins.

Guðsteinn Haukur Barkarson, 24.5.2008 kl. 15:05

19 Smámynd: Haraldur Davíðsson

Fyrirgefðu Guðsteinn, ég er breyskur maður, auðvitað á ég ekki að láta svona ná til mín, orð eru bitlaus þangað til þau ná eyrum OKKAR.

FRIÐUR ( á netinu )

Haraldur Davíðsson, 24.5.2008 kl. 15:28

20 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæll elsku Guðsteinn minn.

Þetta er alveg rétt hjá þér. Ég var búin að karpa við hann á annarri síðu og fór yfir strikið núna. Þar hafði ég vit á því að hætta að karpa því það hefði annars endað í vitleysu. Ég er mannleg og breysk og viðurkenni það fúslega.

Nú er ekkert annað að gera en að biðja Harald og þig afsökunar á hegðun minni.

Strákar mínir, viljið þið fyrirgefa mér þessi skrif mín sem eru mér ekki til sóma.

Shalom/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 24.5.2008 kl. 17:43

21 Smámynd: Haraldur Davíðsson

Rósa, þér fyrirgef ég fúslega. Enda ekkert betri maður en þú.

Og karpið okkar þjónar tilgangi, umræða er mikilvægari en skoðun okkar beggja.

FRIÐUR ( með öllum mönnum )

Haraldur Davíðsson, 24.5.2008 kl. 18:24

22 Smámynd: Hjalti Rúnar Ómarsson

Hjalti - þetta er ekki einu sinni svaravert hjá þér og mjög ómálefnanlegt

Nú? Það tengist sem sagt ekki málefninu að spyrja hvernig guðinn þinn svaraði þessum bænum? Var guðinn þinn að krukka í frjálsum vilja herforingjanna?

Síðan skil ég ekki hvers vegna þú telur hina spurninguna ekki vera svaraverða og ómálefnalega. Er virkilega deilt um það að kristnir menn trúa því að guð/Jesús skapaði náttúruna og ræður yfir henni?

Hjalti Rúnar Ómarsson, 25.5.2008 kl. 00:04

23 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæll Haraldur.

Kærar þakkir og við erum sátt og látum ekki hvort annað gera at í hvort öðru sem endar með leiðindum. Ræðum málin eins og fullorðið fólk. Hittumst aftur á blogginu.

Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 25.5.2008 kl. 00:06

24 Smámynd: Haraldur Davíðsson

......engin hætta á öðru Rósa, en að við hittumst aftur..........

      FRIÐUR ( fyrir framtíðina )

Haraldur Davíðsson, 25.5.2008 kl. 00:49

25 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Gott er að sjá þessi málalok hjá ykkur Rósa og Haraldur, og tel ég mikinn sóma af Rósu minni að biðja Harald afsökunar.

Hjalti - mér leiðist þessar gildru spurningar þínar, um þetta atriði höfum við áður deilt og veistu það vel. Guð ræður jú yfir náttúrulögmálunum því hann setti náttúrunni lög sem hún fer eftir, hann stjórnar þeim ekki eins og strengjabrúðumeistari eins og þú vilt meina, þess vegna finnst mér þú vera á rangri leið. Ég hef sagt þetta við þig áður og leiðist að þurfa að endurtaka það í sí og æ.

Guðsteinn Haukur Barkarson, 25.5.2008 kl. 01:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Guðsteinn Haukur

Guðsteinn Haukur Barkarson
Guðsteinn Haukur Barkarson

"Our life is a gift from God,
what we do with that life,
is our gift to God"

Höf. óþekktur

Sjá höfundasíðu fyrir ákveðna skilmála og upplýsingar um bloggarann 

Önnur snilld...

Hvaða þjóðir heimsækja þetta blogg?

free counters

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 587837

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Skoðanna könnun

Á að aðskilja ríki og kirkju?

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband