Læsið þau inn og hendið lyklinum!

Mér finnst þetta svo ógeðslegt að það nær ekki tali, að lokka gamalmenni í húsasund til þessa að berja hann og ræna. Ég vona að þetta fólk fái langann dóm ! Þetta sannar kenningu mína að það vanti Guðsótta í landsmenn !

mbl.is Ránsparið handtekið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Nákvæmlega Arna !

Guðsteinn Haukur Barkarson, 29.5.2007 kl. 13:13

2 identicon

Það sem þér viljið að aðrir gjöri yður skuluð þér og þeim gjöra, segir í  Nýja Testamentinu.

Í Gamla testamentinu segir:  Auga fyrir auga, tönn fyrir tönn.

Íslensk lög sem varða líkamsmeiðingar sem þessar -  eru að sögn sniðin eftir Mannréttindasammála SÞ -  hygla níðingum á kostnað fórnarlambs. 

Er ekki kominn tími til þess að snúa þessu við, þ.e. að hygla fórnarlambinu á kostnað níðingsins?

Kolbrún (IP-tala skráð) 29.5.2007 kl. 18:46

3 identicon

Verð að biðjast afsökunar - þetta hlýtur að vera Alzheimer á byrjunarstigi - en ég átti auðvitað við MannréttindaSÁTTMÁLANN!

kolbrún (IP-tala skráð) 29.5.2007 kl. 18:56

4 Smámynd: Margrét St Hafsteinsdóttir

Refsing á að snúast upp í betrun, það er mín skoðun. Barnaníðingar fá litla sem enga hjálp hérna. Þeim er bara hent í fangelsi. Rannsóknir sína að fangar koma brotnari út úr fangelsum en þeir voru þegar þeir fóru inn. Er það lausn? Fyrir þá og þjóðfélagið?

Margrét St Hafsteinsdóttir, 29.5.2007 kl. 19:41

5 identicon

Margrét, málið snýst frekar um útilokun á endurtekningum en refsingum.

Það má vel vera að "fangar" séu brotnari eftir afplánun - en hvað með saklausa borgara eins og mig og þig, systkini okkar og foreldra sem er misþyrmt úti á götu bara vegna þess að við/þau erum þar á gangi?  Erum við ekki líka brotin?  Og síðan eilíflega hrædd ef við þurfum að hætta okkur út fyrir hússins dyr?

Nei segi ég - er sammála GHZ; lok lok og læs og henda lyklinum!

kolbrún (IP-tala skráð) 29.5.2007 kl. 19:59

6 Smámynd: Margrét St Hafsteinsdóttir

Ákaflega miskunnarlaus afstaða hjá þér Kolbrún. Ekki skrítið að glæpir grasseri þegar fólk hugsar eins og þú. Það er engin lausn að gera fólk verra en það er! Þú skalt líka athuga það að á bak við einn glæpamann eru foreldrar, systkini og ýmsir ástvinir oft og tíðum, sem flestir elska viðkomandi. Þar verður oft líka mikil sorg og harmur. Það er enginn alvondur. Ef þú ættir son og hann væri uppvís að glæp, þá myndirðu örugglega ekki að vilja þetta.......lok lok og læs og henda lyklinum. Svo skrítið að þegar maður fer inn á síður þar sem "trúfólk" skrifar eða kommentar mikið á þá finnur maður þessa ótrúlegu grimmd og miskunnarleysi. Þú ættir kannski Kolbrún að kynna þér mál fanga og sakborninga og þolenda betur áður en þú lætur svona ógeð frá þér fara. 

Margrét St Hafsteinsdóttir, 31.5.2007 kl. 12:46

7 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Magga mín, það er ekki sama hver glæpurinn er. Sumt kallar á meðferð og annað ekki. Ég er sammála þér að vissir glæpir eru þess eðlis að það þurfi á 'betrun' að halda. Eins og dæmunum sem þú taldir upp, en sumt er eins og þegar barn þitt gerir e-ð af sér og þú lætur það ekki viðgangast. Þetta er eitt af þeim dæmum, þetta fólk þarf að læra að það kemst ekki upp með hvað sem er og þarf að læra sína lexíu.

En auðvitað eru aðrir glæpir sem þarf að endurbyggja gerandann frá grunni, þá í formi algjörar endurhæfingar. Ég geri greinarmun á glæpum eftir vægi þeirra, þess vegna finnst mér allt í lagi að þetta fólk sem framdi ofangreint, fái smá rassskell !

Guðsteinn Haukur Barkarson, 31.5.2007 kl. 13:17

8 identicon

Ég verð nú aðeins að svara fyrir mig þegar ég er vænd um ógeð. 

Það hugsa þó eflaust fleiri eins og ég því líkamsárásir og morð gætu jú verið mun algengari.  Sjálf er ég svo gæfusöm að eiga ofbeldislausa ævi að baki í félagsskap ofbeldislausra ættingja og vina.  Því er ég sannfærð um tilveran gæti verið mun ljúfari fyrir fólk almennt ef hægt væri að útrýma ofbeldisverkunum.

Auk þess treysti ég Vernd alveg fyllilega til þess að styðja við brotamenn (af öllu tagi) og lögmenn þeirra til þess að gæta lagalegra hagsmuna þeirra. Hvað mig sjálfa snertir hef ég takmarkaðan áhuga á að kynnast hugarheimi morðingja og ofbeldismanna - en ég finn til með fórnarlömbunum.  

Lái mér hver sem vill.

kolbrún (IP-tala skráð) 31.5.2007 kl. 13:59

9 Smámynd: Linda

Lok lok og læs. Gott að losna við kirmmana úr þjófélaginu.  Svo er um að gera fóreldra ábyrga þeirra sem eru undir lögaldri, þá yrði stór breyting á uppeldi í landinu... 

Linda, 31.5.2007 kl. 14:04

10 identicon

Mig langar til þess að bæta aðeins við, ef ég má?  Eftirfarandi tilvitnun beindist að USA en gæti þó vel átt við fleiri "siðmenntuð" lönd.

"A society with such an enlightened tolerance of corruption and savagery needs to bear down hard on minor offences to convince itself that it still has standards"   (höfundur óþekktur)

kolbrún (IP-tala skráð) 31.5.2007 kl. 14:42

11 Smámynd: Þarfagreinir

Tja, mönnum greinir nú almennt séð mikið á um hvort harðar refsingar hafa forvarnargildi eða ekki, hvort glæpamönnum er við bjargandi, og svo framvegis ... en í þessu tilfelli tel ég alls ekki um grimmd né mannvonsku að ræða þegar þess er krafist að þetta fólk verði lokað inni. Kannski fullgróft að segja að það eigi að henda lyklinum, en er það nema furða að fólk sé reitt, miðað við það sem þetta fólk gerði? Það réðst á gamlan mann og lamdi hann til óbóta, fjárinn hafi það! Það er bara nákvæmlega engin afsökun fyrir þess háttar svívirðu. Einhvers staðar verður umburðarlyndið að enda - og það er ekki eins og fangar á Íslandi búi við slæman kost. Ég er viss um að þetta fólk á eftir að fá nægan andlegan stuðning og meðferð innan fangelsismúrana, og ef það verður til þess að það bæti ráð sitt er ekki nema gott eitt um það að segja.

Svona viðhorf hefur ekkert með kristna trú að gera, enda er Jesús Kristur held ég einna þekktasti friðar- og fyrirgefningarsinni mannkynssögunnar. Sjálfur er ég með öllu trúlaus, en tel engu að síður að refsa eigi þeim sem beita aðra ofbeldi harðlega, sérstaklega ef um ítrekuð brot er að ræða. Ekki endilega auga fyrir auga og tönn fyrir tönn, en alla vega veita ærlegan rassskell, eins og Guðsteinn segir. Samfélagið á ekki að umbera ofbeldismenn.

Og ef þetta fólk kemur brotnara út úr fangelsi en það var fyrir, þá er ætti það bara að vera þeim mun meiri hvati fyrir það að byggja sig upp aftur frá grunni. Stundum þarf maður að fá ærlegan skell til að vera minntur á að gjörðir manns hafa afleiðingar. Ekki það að þetta hafi virkað á Árna Johnsen, sem virðist einskis iðrast, en það er nú allt önnur saga ... en hann er alla vega lifandi dæmi um að það er til líf eftir fangelsið.

Þarfagreinir, 31.5.2007 kl. 14:43

12 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Mikið rétt, Dóri minn. Ég tók fullsterkt til orða í titlinum, en ég var að nota gamalt orðatiltæki í því, menn eiga ekki að taka slíkt svona alvarlega.

Guðsteinn Haukur Barkarson, 31.5.2007 kl. 14:47

13 Smámynd: Linda

Þarfagreinir er svo ótrúlega málefnalegur, maður bara getur ekki annað enn þótt gaman að lesa hans athugasemdir, bara flott.

Linda, 31.5.2007 kl. 18:59

14 Smámynd: Margrét St Hafsteinsdóttir

Þegar ég er hér að vitna í eða tala um fangelsismál og refsingar þá er ég ekki bara að skrifa vegna pistils Guðsteins. Þetta fólk sem réðist á gamla manninn á að sjálfsögðu að fá refsingu. Þau eru samt trúlega í neyslu og myndu líklega ekki gera svona hluti ef þau væru ekki í neyslu. Rannsóknir hafa sýnt að margir eða langflestir sem hafa gerst brotlegir undir áhrifum eiturlyfja hafa verið mjög ringlaðir og veruleikafirrtir. Varðandi aðbúnað í fangelsum á Íslandi og það sem þarfagreinir segir, þá er alls ekki hugsað nógu vel um fanga hér og reynt að betra þá. Það er brotin á þeim sá réttur sem þeir hafa á þannig þjónustu, vegna þess að þessi mál eru fjársvelt og hefur alltaf verið litið á sem aukamál sem helst má ekki tala um. Ég er persónulega búin að kynna mér þessi mál vel. Faðir minn starfaði innan þessa bransa megnið af æfinni en hann er nýfarinn á eftirlaun. Honum fannst og finnst margt ábótavant í þessum málum. Síðan starfaði ég sjálf hjá ákæruvaldinu í mörg ár. Líka þekki ég dæmi um nokkra aðila sem hafa fengið fangelsisdóma og þekki vel aðstandendur þeirra.  Það eru líka margir "krimmar" hér sem aldrei fá dóma. Varðandi dómskerfið, þá er þar víða pottur brotinn og alls ekki svona gott eins og þarfagreinir vill halda fram. Líka eins og það sé svona auðvelt fyrir illa brotið fólk að fóta sig i þjóðfélaginu? Lausnin er að refsing snúist upp í betrun. Það væri líka betra fyrir gamla manninn sem var ráðist á að það fólk sem gerði það, fengi einhvern tímann ráð og rænu og það mikið vit í kollin að það myndi biðja hann afsökunar sem dæmi. Og að þetta fólk þegar fangelsisvist þeirra lýkur kæmi "edrú" og betra út í þjóðfélagið aftur og gerðust gagnlegir borgarar. Hér er sem dæmi, fíklum í neyslu hent í fangelsi án meðferðar og svo eru allir voða hissa að það skuli finnast fíkniefni í fangelsum. Að henda fólki í fangelsi sem er í bullandi neyslu án allrar meðferðar, er ekki aðeins miskunnarlaust heldur hættulegt líka. Pabbi minn þurfti á sinni æfi nokkrum sinnum að koma að mönnum sem höfðu svippt sig lífi og lang flestir þeirra voru fíklar í neyslu þegar þeir voru settir inn. Svo áður en þið dæmið, kynnið ykkur málin betur frá öllum hliðum.

Margrét St Hafsteinsdóttir, 31.5.2007 kl. 23:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Guðsteinn Haukur

Guðsteinn Haukur Barkarson
Guðsteinn Haukur Barkarson

"Our life is a gift from God,
what we do with that life,
is our gift to God"

Höf. óþekktur

Sjá höfundasíðu fyrir ákveðna skilmála og upplýsingar um bloggarann 

Önnur snilld...

Hvaða þjóðir heimsækja þetta blogg?

free counters

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 587929

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 15
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Skoðanna könnun

Á að aðskilja ríki og kirkju?

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband