Fóstureyðingar - sjálfsagður réttur eða morð?

nursingÉg tek fram að ég hef ekki myndað mér skoðun á þessu máli, því kalla ég eftir umræðu. En þessi frétt sem ég vísa hér neðar vakti mig til umhugsunar.

En það eru tvær hliðar á hverjum peningi og hér eru þær eins og ég sé þær fyrir mér.

  1. Á móti:
    Mannslíf sama á hvaða stigi það er, er samt sem áður mannslíf.
    Samanber boðorðið, "Þú skalt ekki morð fremja". Það er hægt að finna rök víða um biblíuna gegn fóstureyðingum.
  2. Með:
    Það er sjálfsagður réttur kvenna að geta valið um hvort þær séu færar að sjá fyrir barninu og veitt því það líf sem þær vilja. Nauðganir réttlæta fóstureyðingu. Það er líka hægt að finna rök með þessu í biblíunni.

Til eru fleiri rök, en þar sem ég þekki ekki málefnið nógu vel treysti ég mér ekki til þess að koma með fleiri, ég vona að þið fyrirgefið mér það. Ég vitna til biblíunnar vegna þess að ég hef ekki séð nógu góð rök bæði með og á móti. Gaman væri að heyra fólk sem er beggja megin borðs og komið með málefnanleg rök bæði með og á móti. Mér finnst þessi umræða nauðsynleg til þess að fá báðar hliðar málsins á hreint. Smile


mbl.is Hæstiréttur Bandaríkjanna staðfestir bann við ákveðnum aðferðum fóstureyðinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þórdís Bára Hannesdóttir

Ekki veit ég svarið við þessu. Hef ekki þurft að standa frammi fyrir slíkri spurningu.   En hitt veit ég og fer þá kannski aðeins út fyrir efnið Það á alls ekki að blanda saman trú og pólítík.  Er alveg sannfærð um það.

Þórdís Bára Hannesdóttir, 18.4.2007 kl. 20:31

2 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Það er rétt hjá þér, en ég hef tekið eftir því hjá trúsystkynum mínum að þetta má réttlæta með ritningunni, sem ég er ekki alveg að skilja hvernig má komast að niðurstöðu út frá ritningunni einni, þetta er eins og þú segir pólitískt.

Þess vegna kalla ég eftir þessari umræðu, því ég er doldið sammála þér, það á ekki að blanda þessu saman, en það hefur verið gert í árþúsundir og er ég ekki að finna upp hjólið hér.

Guðsteinn Haukur Barkarson, 18.4.2007 kl. 20:37

3 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Takk fyrir þitt innlegg Pétur. Góð rök hjá þér.

Sömuleiðis vil ég þakka Henry fyrir góða punkta.

Það sem er mér óskiljanlegt í þessu er hvernig er hægt að finna rök með og á móti í ritningunni varðandi fóstureyðingar. Þess vegna kallaði ég eftir þessari umræðu.

Guðsteinn Haukur Barkarson, 18.4.2007 kl. 21:24

4 Smámynd: Helena Leifsdóttir

Ég finn til í hjarta mínu þegar þessi umræða fer í gang.Vegna þess að ég hef sjálf staðið frammi fyrir þessari þessum dómi yfir ófæddu lífi. Þegar ég var 42ja ára var ég hvött til þessarna af frægum lækni vegna þess að ég þótti of fullorðin að fæða barn,barnið gæti verið gallað! Ég sagði þessum ágæta lækni að barn væri Guðs gjöf og ég hefði valið að treysta Guði mínum. Þegar heim var komið dró ég Mannakorn og fékk yndislegt orð "Allir synir þínir eru lærisveinar Drottins" (jes.54,13-) Við hjónin eignuðumst yndislegan heilbrigðan dreng ( eigum 3 drengi) Sem er mikil blessun.

Hér áður fyrr voru börn borin út sökum fátæktar,í dag eru ca.800-900 fóstureyðingar framkvæmdar á Íslandi. Ég ætla ekki að leggja dóm á þær konur sem velja þessa leið.Þekki of margar konur/stúlkur sem ég hef beðið með og grátið vegna sársaukans sem fylgir í kjölfarið,líf þeirra verður aldrei hið sama,kona gleymir aldrei þeim degi sem hún fór í fóstureyðingu hver sem orsökin er. Virðing fyrir lífi er okkur áskapað, þessvegna þurfum við þjóðarvakningu varðandi fóstureyðingar og foreldrahlutverkið.

Hafðu þökk fyrir umræðuna. 

Helena Leifsdóttir, 18.4.2007 kl. 21:58

5 Smámynd: Þórdís Bára Hannesdóttir

Gleymdi einu áðan.  Það er hræðilegt fyrir konur sem hafa af einhverjum ástæðum þurft að láta eyða fóstri að segja við þær að þær hafi með því framið morð.  Það er hræðilegt fyrir þær að sitja uppi með þá ásökun. Svo er annað.  Ef konan hefur ekki þennan rétt t.d. vegna fátæktar eða sjúkdóms, hennar eða væntanlegs barns, á hún ein að bera ábyrgðina á barninu? hvað með samfélagið? er stuðingurinn fyrir hana nægur? Ég held ekki.

Þórdís Bára Hannesdóttir, 18.4.2007 kl. 22:08

6 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Ég vil þakka Helenu fyrir sitt einlæga innlegg, Guð blessi þig Helena.

Þórdís, þetta er einmitt atriði sem ég hef einmitt hugsað útí, ég myndi ALDREI kalla konu sem hefur farið í fóstureyðingu morðingja. Þess vegna er þessi réttur mikilvægur fyrir þau tilvik sem þú bendir á, samfélagið sýnir engan stuðning og ef aðstæðurnar eru mjög slæmar þá er varla réttlætanlegt fyrir barnið að koma í heiminn.

En svo er hin spurningin, er þetta aftaka mannslífs? Og verður raunveruleg sál til í barninu strax við getnað? Eða er þetta á 3ju viku þegar verður til taugakerfi? Ég persónulega veit það ekki, þess vegna kom ég þessari umræðu á stað.

Guðsteinn Haukur Barkarson, 18.4.2007 kl. 22:35

7 identicon

Ég myndi ekki vilja að mínu barni yrði eytt, en ég er samt ekki að fara að predika neitt. Konur verða að eiga þetta við sig sjálfar. Hinsvegar finnst mér það rangt þegar fóstureyðingar eru notaðar sem getnaðarvörn af því að fólk nennir ekki að taka inn pilluna eða nota smokk.

leggo beast (IP-tala skráð) 18.4.2007 kl. 23:06

8 Smámynd: Linda

Þessi dómur er gegn partial birth abortions, þá eru börn látin fæðast og þegar þau eru komin hálf út er stúngið á mænuna við hnakkann, þetta er gert þegar fóstur/börn eru komin yfir 6 mánuði á leið allt að 7 mánuði, þetta er morð og ekkert annað, betur hefði verið að fæða barnið og láta ættleiða það, við gerum nú annað eins í dag þegar börn er fyrirburar.  Svona lagað á ekki að viðgangast í neinu samfélagi. 

Linda, 18.4.2007 kl. 23:08

9 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Linda, ég er sjálfur fyrirburi fæddist einum og mánuði fyrir tímann og um tíma töldu læknar að best væri að eyða mér. Þess vegna snertir þetta málefni mig persónulega.

Guðsteinn Haukur Barkarson, 18.4.2007 kl. 23:13

10 Smámynd: Linda

Partial birth abortions. Ath hvað þetta er um hér: ég held að flestir væri ósammála að svona væri löglegt hér á landi.

 http://www.nrlc.org/abortion/pba/PBA_Images/PBA_Images_Heathers_Place.htm

Linda, 18.4.2007 kl. 23:14

11 identicon

Þó svo að skattgreiðendur/ríkissjóður sé ekki að moka út fjármunum í stuðning við konur sem telja sér ekki fært annað en að deyða fóstrið sitt vegna fjárhagslegra ástæðna, þá er hópur karla/kvenna sem leggur fjármuni til og húsnæði, ef þess gerist þörf fyrir þær konur sem vilja þiggja ef þær gefa barninu líf. Þá er hægt ef þær að fæðingu lokinni telja sig ekki, þrátt fyrir aðstoð, geta haldið barninu þá er því komið til barnlausra eins og t.d. Össurar Skarphéðinssonar og frúar og veitir þar ómælda gleði til framtíðar.

Siggi (IP-tala skráð) 19.4.2007 kl. 00:23

12 Smámynd: Margrét St Hafsteinsdóttir

Ég er ekki hlynnt fóstureyðingum nema þær fari fram á fyrstu vikum meðgöngunnar og alls ekki eftir 12. viku.  Sumstaðar hefur fóstrum verið eytt eftir 5 mánaða meðgöngu og finnst mér það skelfileg tilhugsun. Fóstureyðing á aldrei að vera annað en neyðarúrræði í undantekningar tilfellum.

Margrét St Hafsteinsdóttir, 19.4.2007 kl. 01:03

13 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Margrét, "Ég er ekki hlynnt fóstureyðingum nema þær fari fram á fyrstu vikum meðgöngunnar og alls ekki eftir 12. viku." Fullkomlega sammála þér.

Ég vil þakka öllum góð og málefnanleg innlegg. Ég sé að það til eru margar hliðar á þessu og hef ég loksins ákveðið afstöðu mína. Það skiptir öllu máli HVENÆR á vikum meðgöngunar hún er framkvæmd. Þá er hún réttlætanleg, því um er að ræða frumuklasa sem verið að fjarlægja. Að öðrum kosti þá sé þetta ALGJÖRT neyðarúrræði sem á ekki að framkvæma nema aðstæðurnar séu skelfilegar og líf móðurinnar í hættu. Þannig ég er á móti þessu, með undantekningum þó.

Guðsteinn Haukur Barkarson, 19.4.2007 kl. 17:04

14 Smámynd: Linda

Eitt orð og ekki fyrir viðkvæma og alls ekki ef þið hafið farið í fóstureyðingu, endurtekk alls ekki googlið ekki neðangreint!

Googlið Silent scream.

Linda, 19.4.2007 kl. 18:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Guðsteinn Haukur

Guðsteinn Haukur Barkarson
Guðsteinn Haukur Barkarson

"Our life is a gift from God,
what we do with that life,
is our gift to God"

Höf. óþekktur

Sjá höfundasíðu fyrir ákveðna skilmála og upplýsingar um bloggarann 

Önnur snilld...

Hvaða þjóðir heimsækja þetta blogg?

free counters

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 13
  • Frá upphafi: 587925

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 13
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Skoðanna könnun

Á að aðskilja ríki og kirkju?

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband