Bloggfærslur mánaðarins, maí 2007

Kalli orðinn Hvítasunnumaður?

Er Biskupinn orðinn Hvítasunnumaður? Ég hef aldrei heyrt nokkurn prest þjóðkirkjunnar tala á þessa leið. En ef svo er þá erþað bara fagnaðarefni !! Wink
mbl.is Biskup Ísland hvetur presta til að gera hvítasunnu að þjóðahátíð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þótt fyrr hefði verið !

Ég veit ekki hvert siðferðið hjá stjórnenda torrent er hátt, en það að hann skuli hafa verið píndur til þess að taka þetta út af löggunni segir sína sögu. Þetta eykur auðvitað vinsældir inná síðuna hans og er besta auglýsing sem hann hefur fengið lengi. Allt er gert til þess að þjóna mammón og siðferðið geldur þess í stað fyrir vikið.

Ég er sjálfur nörd og hef notað þessa síðu og hef aðgang að. Ég hvet alla samnörda mína til þess að nota hana ekki í refsingarskyni fyrir siðleysi stjórnenda hennar. Reyndar ég hvet alla til þess að nota hana ekki hvort sem þeir eru nördar eða ekki.

Eða eins og einn góður bloggvinur minn hann Þrymur Sveinsson sagði: "Frelsi fylgir ábyrgð", ábyrgð er stundum falinn í því að vit á hvað skynsamlegt og hvað er bókstaflega skaðsamlegt ! Þeir brugðust algjörlega í þessu tilfelli, stjórnendur torrent.


mbl.is Nauðgunarleikur fjarlægður af íslenskri vefsíðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bestu myndir allra tíma !

YodaÉg er mikill og einlægur aðdáandi Stjörnustríðs myndanna. En mér finnst ég vera orðinn hálf gamall þegar ég las þetta, ég var eins árs þegar fyrsta myndin kemur út, ok ... gott og gilt. Ég man þegar ég fór á frumsýningu "The Return of The Jedi" í sneak preview sýningu í West Edmonton Mall í Kanada. Ég var 8 ára og man ennþá hvað þetta var rosaleg tilfinning að sjá þessa mynd !!
mbl.is Aðdáendur fagna 30 ára afmæli Stjörnustríðs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Soltnir í Guðs orð!

bibleÉg veit eiginlega ekki hvað á að segja um þessa þjófa, annað en að vantrúarmenn og þeirra endalausu tölur um flótta frá Kristni geta kysst á mér *****!! Tounge 

Þarna er lifandi sönnun þess að menn grípa til örþrifaráða til þess að verða sér út um Guðs orð! Ég vona að þeir verða dæmdir réttlátlega þessir grey menn. Halo


mbl.is Stálu biblíu og sálmabók úr kirkju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enn annað sálarmorðið!

Ég veit ekki hvað hefur komið yfir mig, en eftir að ég las þessar nauðgunartölur þá er ég kominn í sjálfskipaða herför gegn nauðgunum! Næsta V-dag ætla ég að leggja mitt af mörkum til þess að koma í veg fyrir svona viðbjóð, ég hvet aðra karlmenn eindregið til þess að gera slíkt hið sama !!!

Þetta ógeð sem gerði þetta fær 15 mánaða dóm, fyrir mér er þessi dómur eins og hann hafi stolið kók og prins frá þessari stúlku! Dómurinn er með sama vægi allavega, það er virkileg skömm af þessu dómskerfi !!


mbl.is Dæmdur í 15 mánaða fangelsi fyrir kynferðisbrot
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

I rest my case !!

Sjá síðustu grein mína !!! Angry  Svona finnst mér argasti viðbjóður !!!
mbl.is Nauðgunarþjálfun á Netinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Afhverju nauðga karlmenn ???

Ég tók þessa frétt af vísi.is ásamt myndinni:

Alls voru 180 nauðganir tilkynntar til Stígamóta í fyrra. Það eru 65 fleiri nauðganir en tilkynntar voru árið áður. Nærri lætur að ein nauðgun sé tilkynnt annan hvern dag að meðaltali. „Þessar tölur eru sláandi," segir Guðrún Jónsdóttir, talskona Stígamóta.

Guðrún segir jafn margar nauðganir ekki hafa komið til kasta Stígamóta síðan á upphafs árum þess fyrir um sautján árum. Þá hafi gríðarlegur uppsafnaður vandi verið í samfélaginu þar sem úrræði fyrir þolendur kynferðisofbeldis.

Tilkynningum um sifjaspell fjölgaði einnig frá árinu 2005 til 2006. Alls voru 165 sifjaspellsbrot tilkynnt á fyrra árinu en því síðara voru þau 185 talsins.

Guðrún segist ekki hafa skýringar á þessari fjölgun. Tvennt komi til greina það er að kynferðisbrotum hafi fjölgað eða að fleiri en áður kjósi að leita aðstoðar samtakanna. Upplýsingarnar séu mikið áhyggjuefni.
10,7 prósent þeirra mála sem komu á borð Stígamóta voru kærð. Það er mikil aukning frá því í fyrra en þá voru aðeins 4,3 prósent mála kærð.

rapeÍ fyrsta lagi er þetta hárrétt, þær konur sem lenda í þessu sálarmorði hafa fá úrræði hvert þær eiga að leita ! Þess vegna finnst mér að nýsett "velferðarstjórn" taki sem fyrst á þessum vanda.

Margir ungir strákar og karlmenn í dag eru alls ekki nógu meðvitaðir um gjörðir sínar, þeir virðast ekki átta sig á að svona lagað hefur afleiðingar. Ég er alls ekki að reyna að réttlæta þá sem framkvæma svona viðbjóð, enda er þetta sálarmorð að mínu mati, en ég vil benda á nokkrar forvarnir í þessu sem mér finnst ekki hafa verið sinnt.

Hvernig?
Við höfum menntakerfið, þar þarf að leggja miklu meiri áherslu á að fræða karlmenn um kvenlíkamann og konur yfir höfuð. Eins og staðan er núna virðast stelpur fá miklu meiri fræðslu en karlmenn, sem er út í hött. En með meiri fræðslu og forvörnum væri hægt að fyrirbyggja að minnsta kosti svona hrylling. Þetta á líka við um þá sem stunda sifjaspell, mér brá heldur í brún þegar ég sá þessar tölur!! Angry

Sömuleiðis verða foreldrar að vera duglegir að fræða börnin sín, og setjast niður og tala við þau, sem er orðið allt og fátítt í þessu hraða samfélagi. Þetta á ekki bara við um nauðganir, heldur um ofbeldi gegn konum líka, það virkilega að fræða ungdóminn okkar áður en allt fer úr böndunum !


Gott framtak !

Eftir að hafa lesið stefnuyfirlýsingu þessara tveggja flokka, er ég barasta ánægður. Ég hefði viljað sjá vinstri stjórn líka, en eftir sigur Sjálfgræðisflokksins var ekki annað hægt en að hafa þá með. Eina sem ég set ennþá spurningarmerki við, er að ríkisstjórnin "harmar" stríðið í Írak en tekur enga aðra afstöðu en það. Það segir ekkert um að Ísland verði fjarlægt af lista þeirra þjóða sem studdi innrásina sem byggð var á lygum. En ég svo sem treysti Sollu til þess að ganga frá því máli, fyrir fullt og allt.
mbl.is „Vonast til að ný stjórn leiði erfið deilumál til lykta"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyrirspurn til Samfylkingarinnar

Ingibjörg Sólrún er nú að ganga í eina sæng með íhaldinu. Það er nú frægt að Dabbi og Dóri veitt blessun sína yfir stríðið í Írak flestum íslendingum til mikillar gremju. Ég vona að þetta atriði skýrist í þeirra samstarfssamningi. Ef svo er ekki þá er þetta klassískt kosningasvik Angry. Það stendur á heimasíðu samfylkingarinnar:

Taka Ísland af lista hinna vígfúsu þjóða og draga formlega til baka pólitískan stuðning Íslands við ólöglega innrás í Írak.

Mér er spurn, verður nokkuð úr þessu afþví að Samfylkingin er kominn í samstarf við íhaldið? Frown


Hvaða máli skiptir það?

Er þetta ekki hennar brúðkaup? Má hún ekki skipta um skoðun til þess að hún sé sátt og ánægð? Mér finnst vera gera frétt út engu í þessu tilfelli !!
mbl.is Longoria erfið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Guðsteinn Haukur

Guðsteinn Haukur Barkarson
Guðsteinn Haukur Barkarson

"Our life is a gift from God,
what we do with that life,
is our gift to God"

Höf. óþekktur

Sjá höfundasíðu fyrir ákveðna skilmála og upplýsingar um bloggarann 

Önnur snilld...

Hvaða þjóðir heimsækja þetta blogg?

free counters

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 4
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 587930

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Skoðanna könnun

Á að aðskilja ríki og kirkju?

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband