Fólk flýr blog.is - Opið bréf til ritstjórnar blog.is

Ég er með marga bloggvini, og það eru að hrúgast inn skilaboð í einkaskilaboðakerfinu frá fólki sem ætlar að yfirgefa blog.is í mótmælaskyni við ráðningu Davíðs Oddssonar sem ritstjóra morgunblaðsins. Einstakir, sem þó eru færri fagna svo ráðningu Davíðs en eru þeir í miklum minnihluta.

Mín spurning er því sú, og beini ég henni að ritstjórn blog.is:
  1. Hefur einhver breytt ritstjórnarstefna blog.is verið rædd með tilkomu nýs ritstjóra Morgunblaðsins?
  2. Verður einhver niðurskurður á þjónustu blog.is eða getum við andað rólega?
  3. Því Gróa á leiti er dugleg kerling og margir hafa jafnvel rætt að ætti að loka blog.is endanlega?

Stórt er spurt, og vænti ég svara frá ykkur kæra ritstjórn og bið ég ykkur um að gera athugasemdir fyrir allra augu svo að fólk geti andað léttar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sé blog.is undir Mogganum mun Davíð ekki líða neikvæða umræðu um sjálfan sig. 

ALLS EKKERT UM hvernig síðasta afrek hans var, þ.e. þegar honum tókst að koma Seðlabanka Íslands á hausinn, takk fyrir, eða hversu arfalélegur seðlabankastjóri hann yfir höfuð var. 

Maður gæti haldið að maðurinn hefði lært lögfræði með rassg......  svo vitlaus er hann.

Varið ykkur á blog.is - við vitum ÖLL hvernig hefnigirni þessa manns er.  Ófáir hausar hafa fokið í gegn um tíðina vegna taugaveiklunar og spéhræðslu hans.

Eiginlega ætti að standa stórum stöfum  VARÚÐ þegar blog.is er opnað!!!

Daníel (IP-tala skráð) 25.9.2009 kl. 07:17

2 Smámynd: Sigurður Ingi Kjartansson

Ég held áfram að blogga hér á meðan það er hægt.

Tel það vera bull að hætta að blogga þar sem þetta er jú ennþá besta outletið fyrir skoðanir.

Ef það breytist og ég verð var við meiri ritskoðun þá endurskoða ég þetta.

Sigurður Ingi Kjartansson, 25.9.2009 kl. 08:23

3 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

Ég skil ekki þessa reiði fólks

Jón Snæbjörnsson, 25.9.2009 kl. 08:41

4 Smámynd: Addý og Ingi

Við spurningum Guðsteins er að finna eftirfarandi svör hér að neðan:

  1. Engar umræður hafa átt sér stað um breytingu á ritstjórnarstefnu blog.is.
  2. Við reiknum ekki með niðurskurði á þjónustu blog.is.
  3. Gróa á Leiti er ekki tengd ritstjórn blog.is og hefur því engin áhrif á framtíð þess.

Ingvar Hjálmarsson, netstjóri mbl.is

Addý og Ingi, 25.9.2009 kl. 08:49

5 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Ingvar Hjálmarsson - takk fyrir skýr svör!

Guðsteinn Haukur Barkarson, 25.9.2009 kl. 09:05

6 identicon

Fyrir mér skipti ritstjórnarstefna blog.is ekki máli. Ég fór vegna þess að ég vil ekki auglýsa moggann á blogginu mínu og leggja þar með blessun mína yfir það að einn helsti gerandinn í hruninu fái úr ritstjórastóli sínum að hafa bein og óbein áhrif á umfjöllun um hrunið og fleiri umdeild mál sem honum eru tengd. En moggabloggið hefur lengi verið ein helsta og öflugasta auglýsing sem Mogginn hefur fengið enda hefur stór partur af þjóðmálaumræðunni farið þar fram. Þú, Haukur, mátt halda áfram að auglýsa Moggann frítt ef þú hefur lyst á því. Ég hef ekki slíka lyst.

Ef Davíð, aftur á móti, fer að óttast bloggið það mikið að hann sjái ástæðu til að grufla í ritstjórnarstefnunni eða skrifum einstakra bloggara, þá efast ég um að það verði að loknum umræðum við undirsáta.

Andrés Björgvin Böðvarsson (IP-tala skráð) 25.9.2009 kl. 12:17

7 identicon

Þurfa menn að hafa nokkrar áhyggjur af þessu? Er ekki mentamálaráðherra að kynna til sögunnar ,,Eftirlitsstofnun með fjölmiðlum'' ?

En eitt er víst að við erum mörg sem höfum skemmt okkur yfir titringnum í vinstrisinnuðum einstaklingum sem virðast vera að fara á límingunum yfir ráðningu DO sem ritstjóra. Undir þetta kynda síðan einstaklingar sem kalla sig ábyrga blaða og fjölmiðlamenn, þeir hinir sömu og hafa verið í forystu eineltistilburða við DO, tóku fullan þátt í að mæra höfuðpaura efnahagshrunsins og voru í klappliði forseta Íslands þegar hann hafnaði staðfestingu fjölmiðlalaganna um árið! Þetta er aumkunnarverður grátkór svo ekki sé meir sagt!

Elías Bj (IP-tala skráð) 25.9.2009 kl. 15:19

8 Smámynd: Gústaf Níelsson

Farðu í friði. Hver maður verður að þjóna lund sinni. Það dæmir þig enginn.

Gústaf Níelsson, 25.9.2009 kl. 20:08

9 Smámynd: Sigurður Rósant

Davíð Oddsson er hinn vænsti maður, eftir því sem ég best veit, þó vissulega geti honum orðið heitt í hamsi og misst taumhald á tungu sinni eins og gengur og gerist.

Bara meira eftir því tekið því hann hefur ekki skotið sér undan 'papparazzi' blaða- og ljósmyndasnápum.

En ég vona að sem flestir glansmynda-kristlingar láti sig hverfa héðan af blogginu og komi aldrei aftur.

Sigurður Rósant, 25.9.2009 kl. 20:48

10 identicon

Bara svo þú vitir, Guðsteinn, þá er ég mjög feginn að þurfa ekki að rekast á rugl þitt og fleiri, hér inni. Í guðana bænum bið ég þig að draga allt þetta vinstra lið sem hefur annars liðið vel þarna inni, með þér eitthvert þar sem þið hópist saman, öðrum ekki til mæðu. Annars er merkilegt með þig og þína líka, þig eruð öll skygn. Vitið nákvæmlega FYRIRFRAM nærri því hvert orð sem DAVÍÐ, "óvinur" ykkar mun skrifa í framtíðinni !  Mikið vildi ég hafa svona skyggnigáfu, þá þarf ég ekki að býða spenntur við bréfalúguna á hverjum morgni til að lesa leiðara hans. Good riddance !

Örn Johnson ´43 (IP-tala skráð) 25.9.2009 kl. 21:05

11 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Gústaf - hver er að fara?

Rósant:

En ég vona að sem flestir glansmynda-kristlingar láti sig hverfa héðan af blogginu og komi aldrei aftur. 

Hvað áttu við?

Örn - endilega reyndu að koma þér reiðistjórnunarnámskeið eða eitthvað. Svei mér þá!

Guðsteinn Haukur Barkarson, 25.9.2009 kl. 23:09

12 identicon

Takk, Guðsteinn, að benda mér á reiðistjórnunarnámskeið, takk, takk. Guð geymi okkur báða og bendi þér á leiðir til að losna við hatur úr hjarta þínu. Davíð lifi !

Örn Johnson ´43 (IP-tala skráð) 26.9.2009 kl. 00:03

13 Smámynd: Steingrímur Helgason

Haukur minn, við rólegheitamennirnir höfum nú zéð zuma kónga falla & einhverjar drottníngar deyja, bara í bókinni góðu.

Við verðum bara hérna ævarandi rólegir áfram...

Steingrímur Helgason, 26.9.2009 kl. 00:21

14 Smámynd: Theódór Norðkvist

Ég hvet alla bloggara hér á blog.is til að færa sig, á Wordpress eða eitthvert annað og hætta að fjármagna þessa blóðsugu, Morgunblaðið.

Það er ábyrgðarhlutur að styðja spillta fjölmiðla- og kvótakónga sem hafa kostað skattgreiðendur a.m.k. 3 milljarða og fóðra ritstjóra sem henti 350 milljörðum af skattfé út um gluggann sem seðlabankastjóri og er aðalhönnuður íslenska efnahagshrunsins sem forsætisráðherra.

Farið sam helst ekki úr öskunni í eldinn, til Jóns Ásgeirs á blogg.visir.is.

Theódór Norðkvist, 26.9.2009 kl. 00:37

15 Smámynd: josira

Ekki hef ég trú á, að ráðning þessara manna og uppstokkun hjá mbl. komi til með að breyta neinu hér á blogginu...

Hér eru raddir fólksins, hjartsláttur samfélagsins, þverskurður skoðana, á öllum sviðum, frá öllum hliðum...

Reiknaði með ritstörfum á öðrum vettfangi...

josira, 26.9.2009 kl. 01:25

16 identicon

Ég leyfi mér að efast um að Ingi hafi nokkra hugmynd um hvað mun gerast með blog.is og eða mbl... rétt eins og gróa á leiti hefur ekki neitt að segja með þessi mál.. þá hafa orð Inga ekkert um málið að segja heldur.
Mbl gæti allt eins verið dautt á næsta ári... vonandi fer xD með því í gröfina.

DoctorE (IP-tala skráð) 26.9.2009 kl. 10:52

17 Smámynd: Sigurður Rósant

Glansmynda-kristlinga kalla ég þá bloggara sem hafa aðallega það til málanna að leggja, að setja glansmyndir í stað athugasemda við færslur.

En við nánari eftirgrennslan sé ég að þeim hefur stórlega fækkað en lok, lok og læs-kristlingum fjölgað að sama skapi, þ.e. þeir sem vilja ritskoða allar athugasemdir áður en þær birtast og jafnvel sleppa alveg að birta þær til að þurfa ekki að svara þeim. Þeir mættu alveg hverfa líka, min vegna.

Sigurður Rósant, 26.9.2009 kl. 14:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Guðsteinn Haukur

Guðsteinn Haukur Barkarson
Guðsteinn Haukur Barkarson

"Our life is a gift from God,
what we do with that life,
is our gift to God"

Höf. óþekktur

Sjá höfundasíðu fyrir ákveðna skilmála og upplýsingar um bloggarann 

Önnur snilld...

Hvaða þjóðir heimsækja þetta blogg?

free counters

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 28
  • Frá upphafi: 587833

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 27
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Skoðanna könnun

Á að aðskilja ríki og kirkju?

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband