ESB andstæðingar skráið ykkur á ósammála.is!

Ég vildi bara vekja athygli ESB andstæðinga (ég er ESB andstæðingur), á ósammála.is! Endilega skráið ykkur og látið alla vita sem eru ekki hlynntur ESB aðild.

 

noEU

 


mbl.is Ósammála punktur is
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Tengillinn hjá þér hann virkar ekki nema að þú bætir http:// við fyrir framan :)

Arnar Geir Kárason (IP-tala skráð) 22.4.2009 kl. 20:53

2 identicon

Þangað til þú kippir því í lag má benda fólki á að smella hér

Arnar Geir Kárason (IP-tala skráð) 22.4.2009 kl. 21:34

3 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæll Arnar Geir.

Ég klikkaði á fréttina "Ósammála punktur is" sem er neðst í færslunni hjá Guðsteini og þar birtist undirskriftarlistinn á sama hátt og í athugasemdinni þinni ef ég klikka á "smella hér"

Gangi þér vel Guðsteinn minn að horfa á pólitíska umræðu í sjónvarpinu núna og þú hlýtur að fara að geta ákveðið hvað þú ætlar að kjósa. hvernig fannst þér leikkonan Kolbrún Halldórsdóttir í dag. Hún vill ekki að við hefjum olíuleit á Drekasvæðinu. Algjörlega ósamála henni. Ef við getum breytt verðmætum sama hvað þau heita í gjaldeyristekjur, borgað skuldir okkar og komið hlutunum í lag þá er ég því samþykk.

Ætli Kolbrún Halldórsdóttir leikkona hafi ekki hitt neinn sem á í erfiðleikum núna eftir bankahrunið? Ætli mæti eins margir í leikhús og áður fyrr? Þú ættir að sjá færslu hjá Jenna vini okkar um Kolbrúnu.

Sælir drengir mínir og gangið á Guðsvegum - Bænagangan.

Shalom/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 22.4.2009 kl. 21:54

4 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Arnar - úps, búinn að laga.

Guðsteinn Haukur Barkarson, 22.4.2009 kl. 22:40

5 Smámynd: Hilmar Gunnlaugsson

Væri ekki nær að þjóðin næði sáttum um þjóðaratkvæðagreiðslu?

Hilmar Gunnlaugsson, 22.4.2009 kl. 22:59

6 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Væri ekki ágætis byrjun að þú náir sátt við sjálfan þig Hilmar minn.

Sigurður Þórðarson, 22.4.2009 kl. 23:12

7 Smámynd: Hilmar Gunnlaugsson

Hvað átt þú við Sigurður?

Hilmar Gunnlaugsson, 22.4.2009 kl. 23:15

8 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Siggi þú ert flottastur

Rósa Aðalsteinsdóttir, 22.4.2009 kl. 23:16

9 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Hilmar leitaðu svarsins í bæn og þú munt finna það.  Takk fyrir Rósa. Rósa mín af því að þú er mikil Guðs-kona, myndir þú ekki vilja vera svo væn að biðja fyrir honum Hilmari? Friður sé með ykkur öllum.

Sigurður Þórðarson, 22.4.2009 kl. 23:37

10 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Rósa - Kolbrún Halldórs er ... vitleysingur og hvet ég þá sem ætla að kjósa VG að strika hana út!

Hilmar - sammála Sigga, ég er ekki par hrifinn af því að vera kallaður "rassisti" og það dæmt út frá skoðunum annarra. Þótt að Jón Magnússon segi eitt, þá er ég ekki endilega sammála honum í því.  Ég var í Frjálslyndaflokknum, sem ég hef reyndar sagt skilið við, en eftir stendur að þú hengir bakara fyrir smið. hví dæmir þú heilan hóp manna svo hart út frá örfáum?

Siggi - sammála!

Guðsteinn Haukur Barkarson, 22.4.2009 kl. 23:42

11 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Siggi minn, hef þetta á bak við annað eyrað.

Rósa Aðalsteinsdóttir, 22.4.2009 kl. 23:52

12 Smámynd: Hilmar Gunnlaugsson

Ég minnist þess ekki að hafa kallað þig rasista Guðsteinn. Þú getur lesið á heimasíðu minni greinar mínar um flokkinn þar sem ég færi góð rök fyrir því að um rasistaflokk sé að ræða en þér er velkomið að blanda þér inn í umræður á síðu minni næst þegar ég fjalla um flokkinn.

Snerist þessi umræða ekki annars um ESB?

Hilmar Gunnlaugsson, 22.4.2009 kl. 23:57

13 identicon

Ég skal taka það að mér að biðja fyrir honum

Nei en svona að öllu gamni slepptu að þá þarftu að fara að slaka á í alhæfingum þínum Hilmar, ég átti nú í miklum rökræðum við þig á blogginu þínu og ég verð bara að segja eins og er að ég hef varla hitt klikkaðari manneskju á blogginu.  Ég veit eiginlega ekki hvað ég á að gera í því á ég að óska þér til hamingju með það eða á ég að vorkenna þér fyrir það ???

Arnar Geir Kárason (IP-tala skráð) 23.4.2009 kl. 01:02

14 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Hilmar - hugsaðu málið til enda, þú dæmir heilan hóp manna vera rassista, var ég ekki hluti af þeim hóp? Þá hefur þú kallað mig rassista.

Enda hef ég lesið þessi rök þín sem mér þykja afar veik. Þú tekur setningar frá nokkrum meðlimum FF, og alhæfir út frá því, sem er rangt að gera og vona ég innilega að gerir betrumbót og dragir slíkt til baka.

Siggi hér ofar er hluti af FF, hann er enginn rassisti frekar en ég. Samt setur þú þig böðuls og dómara sæti? Gagnrýndu fremur þá sem létu þessi orð falla en að dæma heilann flokk, því það sem þér láðist að gera er vísa í hvar flokkurinn sjálfur heldur svona fram, enda er það hægt því hann heldur ekki svona fram eins þú virðist halda.

Guðsteinn Haukur Barkarson, 23.4.2009 kl. 09:56

15 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Rósa - þú ert flott, við Arnar munum vera með þér í að biðja fyrir Hilmari.

Guðsteinn Haukur Barkarson, 23.4.2009 kl. 09:58

16 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

P.s. Rósa, ég var of seinn að birta upplýsingar um bænagönguna! Mér finnst ekki taka því uppúr þessu ...

Guðsteinn Haukur Barkarson, 23.4.2009 kl. 10:19

17 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæll Guðsteinn

Ég var að koma heim úr frábærri Bænagöngu. Sumir eru ennþá á göngu.

Guð blessi Hilmar.

Guð blessi þig og varðveiti

Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 23.4.2009 kl. 10:23

18 Smámynd: Kristján Eldjárn Þorgeirsson

Guðsteinn Haukur minn!  Þið fegðar eruð ósammála, sem er gott mál.  Mér heyrðist á karli föður þínum um daginn að hann styddi inngöngu í ESB.  En ég er sammála þér.  Ég er á móti ESB að svo stöddu,  ég veit ekkert hvað það mun gera fyrir mig og það vantar alla kynningu á hvað ESB er og hvað það býður upp á.  Þetta þarf að gera áður en farið er í aðildarviðræður þannig að þjóðin viti hvað hún mögulega fær og hverju hún mögulega tapar.  Ég treysti ekki pólitíkusunum til að fara til Brussel og gera einhvern samning með þeim fyrirvara að þjóðin samþykki hann í þjóðaratkvæðagreiðslu

Kristján Eldjárn Þorgeirsson, 23.4.2009 kl. 13:26

19 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Kristján - já, pabbi er soldan krati, og hefur ætíð verið. En gott er að við stöndum saman gegn þessu, sama hvað faðir minn kann að segja! (Nú fæ ég skammir)

Guðsteinn Haukur Barkarson, 23.4.2009 kl. 13:59

20 Smámynd: Linda

Búin oh yeah baby

Linda, 23.4.2009 kl. 14:44

21 Smámynd: Marteinn Unnar Heiðarsson

Lesiði nýjasta bloggið hjá Birni Bjarna og þá sjáiði sannleikann í þessu ESB bull samfó hún er búin að lofa Bretum að ganga í ESB og er búin að vera að vinna í því á fullu ekki furða að samfó sé að fara á taugum vegna ESB núna fyrir kosníngar vona bara að fólk átti sig á þessu nógu fljótt svo að samfó komist að eftir kosningar

Marteinn Unnar Heiðarsson, 23.4.2009 kl. 17:57

22 Smámynd: Hilmar Gunnlaugsson

Ég hef dæmt flokkinn sem rasistaflokk og er ekki einn um það. Á sínum tíma þótti Geir H. Haarde þáverandi forsætisráðherra nauðsynlegt að vara við málflutningi flokksins og sagði þá fiska í gruggugu vatni með innflytjendastefnu sína.

Ég hef vitnað í orð nokkurra aðila en einnig tekið dæmi um stefnu flokksins t.d. í málefnum sárafárra múslímakvenna sem ætluðu að setjast að á Skaganum en flokkurinn vildi neita þeim um hæli vegna uppruna þeirra og trúar.

Flokkurinn hefur aldrei beðist afsökunar á ummælum þessa fólks, aldrei dregið málflutning sinn gegn innflytjendum til baka, verðlaunað mestu rasistana t.d. Jón Magnússon með þingsæti og Guðjón Arnar hefur varið þessa stefnu t.d. í Zetunni nú nýverið. Ef flokkurinn væri ekki rasistaflokkur hefði hann beðist afsökunar á ummælum þessa fólks, rekið rasistana úr flokknum og neitað að taka undir þessa stefnu sem flokksmeðlimir hafa keppst við að verja sem "ábyrgan málflutning".

Þar sem enginn vafi leikur á að þetta sé rasistaflokkur finnst mér viðeigandi að vara við honum því þessi málflutningur getur haft afar slæmar afleiðingar í för með sér t.d. krotuðu krakkar hakakrossa og slagorð Frjálslynda flokksins á hús innflytjenda eftir að flokkurinn hóf herferð haturs gegn þeim.

Ég átta mig þig þó á því að ekki allir meðlimir flokksins eru rasistar. Sumir átta sig ekki á því að þetta er rasistaflokkur og styðja hann t.d. vegna kvótamála. Þetta hef ég minnst á og oft tekið fram að ekki allir meðlimirnir séu rasistar. Því hef ég ekki stimplað alla meðlimi flokksins sem rasista.

Hilmar Gunnlaugsson, 23.4.2009 kl. 17:58

23 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Taktu þennan Hilmar ekki alvarlega Guðsteinn minn, maðurinn virðist vera ansi ruglaður og andsetinn.  Rugludallur ef þú spyrð mig.  En ég er auðvitað búin að skrifa undir þetta.  gott mál að fá þetta fram. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 23.4.2009 kl. 20:03

25 identicon

Sælir Guðsteinn.

Ég vil í ESB og því mun ég ekki skrá mig í samtökin. Ég tel á heildina litið að við munum ekki koma okkur út úr þeim ógöngum sem landið er statt í nema að við sækjum um ESB aðild. Það er nú bara þannig. Hvað með 2.063 miljarða skulda bagga sem ríkið glímir við. Það er engin smá upphæð.

Valgeir Matthías Pálsson (IP-tala skráð) 23.4.2009 kl. 21:22

26 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Linda - rock on!

Hilmar - ég er enn ekki sannfærður um rök þín, og sé ég ekki hvernig þú firrar þig ábyrgð á að stimpla alla sem í flokknum eru rassistar.

Ásthildur - ég vil ekki kalla hann vitleysing þótt hann sé á öðru máli en við, en hann má skammast sín fyrir málflutninginn.

Adda - takk!

Valgeir Matthías - það er enginn skylda að vera alltaf sammála, ekki satt? 

Guðsteinn Haukur Barkarson, 23.4.2009 kl. 21:36

27 Smámynd: Hilmar Gunnlaugsson

Ég sagði.

"Ég átta mig þig þó á því að ekki allir meðlimir flokksins eru rasistar. Sumir átta sig ekki á því að þetta er rasistaflokkur og styðja hann t.d. vegna kvótamála."

Ásthildur þessi hefur horn í síðu minni og er ofstækisfull þegar einhver mótmælir rasisma t.d. réðst hún harkalega á virta blaðakonu Morgunblaðsins eftir að hún skrifaði ágætis grein um FF og hefur áður látið miður falleg orð falla um mig.

Ekki skammast ég mín fyrir að vara við þeirri hættu sem stafar af rasisma. Frjálslyndi flokkurinn fór á stað með óábyrgan málflutning sem hefur valdið aukinni andúð á innflytjendum og orðið til að fleiri og fleiri rasistar eins og krakkarnir á Suðurnesjum hafa komið út úr skápnum með hatur sitt. Þetta þarf að benda á og er víti til varnaðar. 

Hilmar Gunnlaugsson, 23.4.2009 kl. 22:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Guðsteinn Haukur

Guðsteinn Haukur Barkarson
Guðsteinn Haukur Barkarson

"Our life is a gift from God,
what we do with that life,
is our gift to God"

Höf. óþekktur

Sjá höfundasíðu fyrir ákveðna skilmála og upplýsingar um bloggarann 

Önnur snilld...

Hvaða þjóðir heimsækja þetta blogg?

free counters

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 11
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Skoðanna könnun

Á að aðskilja ríki og kirkju?

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband