Ég gerði myndband um Framsóknarflokkinn ...

Ég verð að segja, að ég er ekkert sérstaklega hrifinn af tillögum Framsóknarmanna. Sér í lagi vegna  þess að seðlabankinn hefur reiknað út hvað þetta kostar og sýnt að tillaga þessi mun koma þeim ríku sérstaklega til góða, en ekki þeim fátæku. Persónulega líst mér þá betur á tillögu Lilju Mósesdóttur, frambjóðanda VG um að afskrifa rúmar 4. milljónir á mann. En sú leið er dýr líka.

Önnur áróðursmynd sem ég gerði ...Allt kostar þetta pening og hef ég persónulega áhyggjur af þeim fjármálafyrirtækjum sem þyrftu þá að "afskrifa" þessi 20%, ég nefni þó sérstaklega íbúðarlánasjóð (sem betur fer gat Jóhanna stoppað Sjallanna af þegar þeir vildu leggja hann niður!) sem ég er ekki viss um að hafi burðarþol í að afskrifa svona háar upphæðir. Sömu sögu er að segja um þá banka sem eru ennþá með íbúðarlánastarfssemi. Er ekki nóg að hafa eitt hrun á fjármálakerfinu?!

Kostirnir við þessar tillögur er að peningaflæðið fer vissulega að streyma á ný, en á kostnað hvers? Hver græðir mest á þessu? Af hverju á ég að veita gullrössum sem eiga kannski risastóra íbúð svona mikinn afslátt fram yfir mig? Það skortir réttlæti í þessum tillögum og get ég ekki samþykkt þær að neinu leyti fyrir vikið. Þess vegna tel ég kostina ekki nógu skýra og hægt er að finna aðrar leiðir til þess að auka peningaflæðið.

Framsóknarflokkurinn stjórnaði bankamálaráðuneytinu þegar bankarnir voru einkavæddir. Meira að segja Geir Haarde viðurkenndi að mikil mistök höfðu orðið í því söluferli eins og alþjóð veit.

Eins get ég illa treyst flokki sem ekki er tilbúin að opna bókhald sitt og sýna fram á hvaða styrki þeir hafa fengið í gegnum tíðina, þótt þeir leyti "samþykkis" hjá þessum aðilum, þá dreg ég í efa að þær tölur birtist fyrir kosningar. Eins eru það furðuleg rök miðað við að allir aðrir flokkar hafa birt sínar tölur blygðunarlaust, hvað hafa þeir að fela spyr ég nú bara!

Hér ber svo að líta myndband sem ég setti saman í forritinu "Adobe Flash", og einnig mynd sem ég hannaði út frá því:

 


 

 Góðar stundir.


mbl.is Framsókn leitar samþykkis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Flott hjá þér. Glæsilegt. Til hamingju með þetta... Gangi þér vel.

Valgeir Matthías Pálsson (IP-tala skráð) 11.4.2009 kl. 17:26

2 identicon

Mögnuð tónlist undir haukur.

Karl jónas (IP-tala skráð) 11.4.2009 kl. 17:40

3 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Takk Valgeir Matthías -

Kalli - ég leitaði að drakúla tónlist og fann hana ... fannst það viðeigandi. 

Guðsteinn Haukur Barkarson, 11.4.2009 kl. 17:46

4 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæll minn kæri

Þetta er magnað hjá þér. Svo þarftu að hanna eitthvað fyrir Samfylkinguna og Vinstri Græna þar sem þeir eru á beit út í haga hvort sem það eru hrútar eða ær :-) 

Skilaboð bíða þín!!!

Vertu Guði falinn

Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 11.4.2009 kl. 17:47

5 Smámynd: Sveinn Hjörtur

Helvíti er þetta gott hjá þér! Þú leynir á þér!!

Margt af þessu sem kom fram er rétt hjá þér, eins og það; Hvers vegna að skipta alltaf út merki?

Sveinn Hjörtur , 11.4.2009 kl. 17:49

6 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Rósa - þeir eru næstir á listanum, ég er utan flokka og ætla taka sem flesta fyrir.

Sveinn - takk fyrir það, sannleikurinn er manna sárastur er stundum sagt. 

Guðsteinn Haukur Barkarson, 11.4.2009 kl. 17:54

7 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Guðsteinn minn og þá auðvita manst að Vinstri grænir eru út í haga að bíta gras, bæði hrútar og ær.

Shalom/Rósa pólitískt viðrini :-) 

Rósa Aðalsteinsdóttir, 11.4.2009 kl. 18:01

8 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Rósa - annað hvort það eða Goldfinger fyrir VG.  

Guðsteinn Haukur Barkarson, 11.4.2009 kl. 18:02

9 Smámynd: Jón Aðalsteinn Jónsson

Það sem virðist ekki ná inn í umræðuna er það að það er búið að afskrifa þetta en á að láta okkur borga allan hlutann.

X fékk 1000 000 hjá gamla Y sem að fékk 1000 000 að láni hja td Deutse bank til að lana x. Gamla Y  fór á hausinn og nýtt Y reis eins og fuglinn Fönix. 1000 000 sem sá gamli fékk lánaða frá DB var skilin eftir í gamla Y en nýi keypti 1000 000 skuld x af þotabúinu á  ca 650 000 en ætlar að rukka X um 1000 000 + verðbólgu vegna skots sem að gamla Y  orsakaði sjálft með því að fíflast í genginu samtals ca 1500 000 og Y ætlar sko ekki að gefa afslátt á því það má lengja í því borga það á biðreikning  og hvað eina náttúrulega allt á vöxtum en X skal borga eða missa alt. Þess vegna aðhyllist ég 20% eða færslu vísiölu aftur til 1mars 2008 Því það er þegar búið að afskrifa þetta það á að nota þetta til að láta almúgann í landinu skjóta stoðum undir bankanna að nýju. 

Jón Aðalsteinn Jónsson, 11.4.2009 kl. 18:34

10 Smámynd: Hilmar Gunnlaugsson

Þessar tilögur Framsóknarmanna þykir mér ágætar og myndu stórbæta hag margra en bókhaldið ber þeim siðferðisleg skylda til að birta opinberlega í samræmi við aðra flokka.

Hilmar Gunnlaugsson, 11.4.2009 kl. 19:16

11 Smámynd: Benedikt Sigurðarson

Hræddur er ég um að þú hafir ekki sett þig inn í málið er varðar 20% leiðréttingu á yfirskoti vísitölunnar vegna hrunsins  - það er að segja að vísitalan mælir ávöxtun fyrir fjármagnseigendur í stað þess að allar óverðtryggðar fjármuna-eignir taka á sig "kreppuleiðréttingu" . . sem verðtryggðu lánin eru ónæm fyrir.

hvet þig til að kíkja á röksemdir fyrir leiðréttingunni hér http://blogg.visir.is/bensi/2009/04/06/hagsmunir-heimilanna-og-lei%c3%b0retting-lana/

svo skulum við "rökræða" málið . . allt í heild. . .

Mesta áhættan er nefnilega að aðhafast ekkert til að lækka veðmörk eigna og létt á almennri greiðslubyrði heimilanna . . . það kostar nefnilega miklu meira en að leiðrétta fyrir vísitöluyfirskotinu . .

Benedikt Sigurðarson, 11.4.2009 kl. 20:14

12 Smámynd: Linda

Hæ Haukur, eins og ég sagði við þig í símanum sem ég endurtek ekki hér nema eitt, við munum komast undan þessu og þú veist hvað ég á við :).  þú er snilli með videóið, verður fróðlegt að sjá töku þína á hinum flokkunum. Ahem..  Ég er ljósrauð áfram.

 bæjó.

Linda, 11.4.2009 kl. 21:08

13 Smámynd: Adda Laufey

Haukur kæri vinur.óska þér og fjölsk þinni gleðilegra páska!

Adda Laufey , 11.4.2009 kl. 21:31

14 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Þú ert hreinn snillingur Haukur!

 Myndbandið þitt er alveg stórgott og hnitmiðað, tekur á kjarna málsins, lýðskruminu.   Þetta minnir mig á bóndann sem skar skottið af hundinum sínum og gaf honum að éta.

 Kæri vinur: Eigðu gleðilega páskahelgi með fólkinu þínu. 

p.s. þú mátt hringja í mig við tækifæri út af öðru.

Sigurður Þórðarson, 11.4.2009 kl. 21:36

15 identicon

Ég er sammála þeim Jóni Aðalsteini og Benedikt hér að ofan. Jón Aðalsteinn takk fyrir að taka þetta svona skýrt saman. Ég vil samt frekar leiðréttingu á vísitölunni, heldur en 20% á veðlán. Þar ber ég aðalega hag lífeyrissjóðana fyrir brjósti. Þá lækka eignirnar og líka skuldirnar þeirra. Þannig að þetta yrði ekki eins þungur róður. Ég er tilbúin til að láta lækka mínar vertryggðu eignir, gegn þessu.

Elsa Margrét (mágkona Hauks) (IP-tala skráð) 11.4.2009 kl. 22:02

16 Smámynd: Ægir Óskar Hallgrímsson

Fólk er ekki alveg að fatta þetta út á hvað þetta gengur, það er/verður líklega afskrifaðar skuldir gömlu bankanna upp á 50% og Framsókn og fleiri eru að tala um að þeim finnst ekkert vera að því að skuldarinn fái 20% niðurfellingu af þessum lánum, svo hjól atvinnulífsins geti farið að snúast fram á við, ekki á aftur á bak.

Ægir Óskar Hallgrímsson, 11.4.2009 kl. 22:35

17 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Ég þakka öllum afskaplega góð og málefnalegar athugasemdir. Ég er búinn að lesa allt sem hefur verið hér skrifað, og get ég alveg fallist á röksemdarfærslu sumra. En einu hefur ekki verið svarað, sem ég tel vera mikilvægasta þáttinn: Ef þessi leið verður farinn, hvernig getum við tryggt að sá ríkasti fái ekki stærsta bitann?

Guðsteinn Haukur Barkarson, 11.4.2009 kl. 23:14

18 identicon

Látum Börnin Borga

er það ekki málið

Hugsið Málið

Við erum greinilega öll aumingjar

Kveðja

Æsir (IP-tala skráð) 11.4.2009 kl. 23:26

19 identicon

Ég bara sé ekki yfir hverju sumir eru svona ánægðir með, og mér sýnist aðalmálið vera að sumir fái meira en aðrir.  Hverju skiptir það þó þeir sem skuldi mest fái meiri afslátt.  Allt væri þetta í prósentum, eins og td skattarnir, þar sem allir borga sömu prósentu en þeir sem hafa hærri laun borga HÆRRI krónutölu.  Það sem þessi tillaga Framsóknar gengur út á er að lánadrottnar bankanna borgi þennan mismun, ekki bankarnir sem eru í gangi í dag heldur þeir sem lánuðu gömlu bönkunum svo hvað er svona slæmt við þetta?

Viðar (IP-tala skráð) 12.4.2009 kl. 00:19

20 Smámynd: Ægir Óskar Hallgrímsson

Guðsteinn, með þessu sem Framsóknarflokkurinn er að leggja fram, þ.e.a.s. 205 niðurfellingu á öllum skuldum, hljóti það að vera óumflýjanlegt að eftir því sem skuldin er hærri, þá verði niðurfellingin meiri, en þetta eru fyrirtæki á íslandi með starfsfólk í vinnu, sum þessarar fyrirtækja gætu bætt stöðu sína umtalsvert og gæti haldið öllu sínu starfsfólki og kannski gott betur, bætt kannski við sig, með því móti væri hægt að minnka þennan hnút sem þessi atvinnuleysi er orðið eitthvað, en að mínu viti snýst þetta ekkert um að einhver fái meiri niðurfellingu en annar, mín sýn er að Íslensk fyrirtæki, Íslensk alþýða komist sem best upp úr þessari stöðu sem við erum í, við eigum ekki á þessum tímamótum að vera að hnýtast, fólk á að koma með lausnir, en ekki hnýta í þá sem eru með lausnirnar, eins og Samfylkingin er ansi gjörn á.

Ægir Óskar Hallgrímsson, 12.4.2009 kl. 21:02

21 Smámynd: Ingvar Valgeirsson

Mér fannst þessi 20% afskriftapæling ágæt að hluta til. Mér finnst samt að það ætti að vera hámark þar sem mér finnst hálfasnalegt að ríkissjóður (þ.e. við) séum að greiða niður 20% af 300 milljón króna einbýlishúsum á Arnarnesinu...

Ingvar Valgeirsson, 13.4.2009 kl. 13:11

22 identicon

Sammála síðasta ræðumanni.

Valsól (IP-tala skráð) 14.4.2009 kl. 07:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Guðsteinn Haukur

Guðsteinn Haukur Barkarson
Guðsteinn Haukur Barkarson

"Our life is a gift from God,
what we do with that life,
is our gift to God"

Höf. óþekktur

Sjá höfundasíðu fyrir ákveðna skilmála og upplýsingar um bloggarann 

Önnur snilld...

Hvaða þjóðir heimsækja þetta blogg?

free counters

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Skoðanna könnun

Á að aðskilja ríki og kirkju?

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband