Ég er búinn að segja mig úr Frjálslyndaflokknum ...

Ég er búinn að segja mig úr Frjálslyndaflokknum, og hef ákveðið að vera utan flokka þar til annað kemur á daginn. En eitt er víst, að ég ber engan kala til Frjálslyndra, það er ekki málið, heldur er ég ekki hrifinn af ólýðræðislegum vinnubrögðum og valdagræðgi.

Margsinnis hefur verið reynt að knýja fram landsþing, og hefur því alltaf verið slegið á frest. Nú loks þegar landsþing er haldið, þá er það í einangrun útá landi. Ekki það sé neitt að því að fara útá land, en það verður að vera á réttum forsendum, og tel ég þær ekki vera eins og málin standa. Ég þyrfti að gista í tjaldi þar sem hótelið er uppbókað, og það geri ég ekki.

Krafan um endurnýjun og breytingar hefur algjörlega verið hunsuð, gömlu herrarnir vilja stjórna áfram hvað sem það kostar, þótt góður þorri flokksmanna segi allt annað og er það fyrir tómum eyrum. Það tel ég ekki lýðræðislegt að hlusta ekki á flokksmenn sína og á þetta herbragð þeirra eftir þurrka út þennan góða flokk sem mælist með 1% fylgi núna.

Til þess að bjarga þessu þarf að mæta sjálfsagðri kröfu algera endurnýjun, eins og til dæmis sannaðist hjá Framsóknarflokknum um daginn, enda jókst fylgi þeirra verulega fyrir hlúa að þessum lýðræðislega þætti. 

Ég tek heilshugar undir gagnrýn Ásgerðar Jónu, því sú gagnrýni á virkilega rétt á sér að mínu mati. 

Það var hugsjón Frjálslyndaflokksins sem heillaði mig, en það nægir ekki ef lýðræði er ekki til staðar. Þess vegna ætla ég að vera "rotta" eins og einhver orðaði það, því meira að segja lítil dýr eins og rottur finna á sér þegar skip sekkur og allir farast. Ég er því stollt rotta sem þakkar þeim sem ég starfaði með gott samstarf! 

Ég tek reyndar ofan fyrir Jóni Magnússyni hér um daginn þegar hann sagði sig úr flokknum, því hann vann af heilindum fyrir flokkinn, ég tók þátt í að vera í stjórn málefnafélags Frjálslyndra í Reykjavík sem Jón og fleiri áttu hugmyndina að. En innbyrðis deilur sem og árásir á hann gengu fram af honum, sem ég skil vel og virði því ákvörðun hans.

Gangi þér vel í þessari barráttu Ásgerður Jóna og Guðrún María, og ég vona að þið fyrirgefið mér að sé ekki lengur meðal ykkar og þið skiljið ákvörðun mína. En þessi ávörðun mín snýst aðallega um mig sjálfan prívat og persónulega, og vil ég ekki vera bundinn neinum stjórnmála samtökum eins og staðan er hjá mér sjálfum í dag, en lengi lifi hugsjónin og Guð blessi þennan flokk, hvað svo sem um hann verður. Tíminn mun leiða það í ljós.

Ég er samt ekki hættur að skipta mér af pólitík, því það mun aldrei gerast að ég hætti því, ég mun bara vera við hliðarlínuna. Smile


mbl.is Gagnrýna flokksforystuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Þóra Hjaltadóttir

Málefnaskrá FF er fín, en hún er lítið eða ekki notuð því það eina sem talað er um er möskvastærð og þorskígildi. Nema Jón Magnússon sem reyndi með lítilli hrifningu "valdsins" í flokknum. Ný öfl munu myndast sem vonandi rúmar fólk með heiðarlega hugsun.

Guðrún Þóra Hjaltadóttir, 15.2.2009 kl. 17:53

2 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Ég vona sannarlega að svo verði Guðrún Þóra, virkilega. Því tek ég undir að ég sé ekkert að málefnaskránni, en til hvers er hún ef enginn fer eftir henni að heilindum?

Guðsteinn Haukur Barkarson, 15.2.2009 kl. 17:59

3 Smámynd: Offari

Flokkurinn átti einmitt tækifæri núna til að gera breytingar.

Offari, 15.2.2009 kl. 18:00

4 Smámynd: Guðrún Þóra Hjaltadóttir

Guðsteinn! við tökum bara stefnuskránna með annað og vinnum eftir henni. Þá fengjum við gott land.

Sorglegt að FF hafi klúðrað þessu öllu af valdagræðgi og þörf fyrir vellaunaða inni vinnu.

Guðrún Þóra Hjaltadóttir, 15.2.2009 kl. 18:10

5 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Kæri Guðsteinn ég skil ákvörðun þína vel og þakka þér innilega fyrir samveruna í flokknum en harma að svona þurfi að fara að við séum að hverfa sitt í hvora áttina. Ég er búinn að vera í FF frá upphafi og tek sannarlega undir með þér að við höfum bestu stefnuskránna.  En hugsjónin lifir og því trúi ég því að leiðir okkar muni liggja saman fyrr en varir.

Sigurður Þórðarson, 15.2.2009 kl. 18:23

6 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Offari - tækifærið var ekki nógu gullið fyrir þá. Þeir vildu meira.

Guðrún Þóra - veistu, mer líst ekkert illa á það.

Siggi - sömuleiðis Siggi minn, en ég minni samt á að þetta er af persónulegum ástæðum sem ég tek þessa ákvörðun.

Guðsteinn Haukur Barkarson, 15.2.2009 kl. 18:25

7 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Best væri að sem flestir flokkar tækju upp stefnuskrá Frjálslyndra.

Sigurður Þórðarson, 15.2.2009 kl. 18:34

8 Smámynd: arnar valgeirsson

frjálslyndir eru uppgjafa sjálfstæðismenn haukur og aðhyllast hægristefnuna algjörlega. en þú um það hvar þú vilt vera í pólítikinni. hélt reyndar að félagshyggjan væri þér hugleikin en kannski tók ég bara feil.

ef hægriflokkarnir taka aftur völdin erum við endanlega fokkt, því það er voða gott fyrir suma þegar þeir ráða en voða vont fyrir flesta. langflesta.

arnar valgeirsson, 15.2.2009 kl. 18:35

9 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Siggi - sammála.

Arnar - félagshyggjan er mér hugleikinn, þú tókst engan feil. Ég vil bara vera meðal fólks sem er fylgjandi hlutunum og segir ekki nei við öllu, eins og eitur-grænir.

Guðsteinn Haukur Barkarson, 15.2.2009 kl. 18:46

10 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ég óska þér góðs gengis Guðsteinn minn.  Það er von að fylgi Frálslyndaflokksins mælist ekki hátt en það er ekki vegna ólýðræðislegra vinnubragða heldur vegna þess óróleika og slæmrar umræðu sem verið hefur núna lengi.  Ég þekki bæði Guðjón Arnar og Magnús Reyni afskaplega vel, við erum öll skólasystkin frá barnæsku,  ekkert er fjær þessum mönnum en að mylja undir sig sjálfa.  Þeir eru þar sem þeir eru vegna málefnanna, eins og við erum mörg hver.  Að halda landsþingið úti á landi er einvörðungu vegna þess að það er mörgum sinnum ódýrara en sambærilegur salur í Reykjavík.   Þar munar tífallt, og skiptir verulegu máli þegar smáflokkur á í hlut, sem ekki hefur mikil fjárráð og kosningabarátta framundan. 

Mín tilfinning um Jón Magnússon og þá sem með honum komu inn í flokkinn var að þau ætluðu sér að yfirtaka flokkinn.  Hann hefur lýst því yfir opinberlega að hann vildi breyta stefnuskrá flokksins, og færa hana nær sínu höfði.  Það tóksk ekki svo þar af leiðandi fór hann.  Flest hans fólk fór með honum og það er hið besta mál að þau eigi sín áhugamál annarsstaðar.  Ég óska þeim líka alls góðs, því ég held að þau hafi líka viljað vel á sinn hátt, þó erfitt sé að halda slíkt um alla félaga hans, og er ég þá að hugsa um ljóta umsögn eins félaga Jóns á útvarpi Sögu.  Sem mér skilst að hafi ekki verið endursendur vegna ruddaskapar.

Ég óska líka Guðrúnu Maríu og Ásgerði Jónu alls góðs, það ætti ekki að vera vandamál að komast í Stykkishólm, því það verða rútferðir frá Reykjavík og einnig raðað í bíla, bæði frá Rvík og annarsstaðar af landinu.  Það verður því ekki vegna þess að fólk komist ekki til að kjósa heldur af öðrum ástæðum ef þær ná ekki sigri.

En sem betur fer þá fer að skapast meiri friður um flokkinn og störf hans,  hann er að vísu orðin talsvert minni, en líka talsvert einarðari um að standa vaktina um málefnasamninginn og þau góðu mál sem flokkurinn er stofanður um.  Það er nefnilega málið að okkar þingmenn, hafa staðið vel að því að virða málefni flokksins og má sjá samþykktir þeirra og þingmál því til stuðnings.  Og hvað skyldi nú skipta meira máli menn eða málefni?  'Eg vil málefnin fyrst og fremst, síðan koma forystusauðirnir. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 15.2.2009 kl. 18:47

11 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Ásthildur - mér þykir vænt um að sjá athugasemd þína og útskýrir það talsvert fyrir mér. Hvað varðar þessar innanflokksdeilur get ég ekki tjáð mig almennilega um, nema það sem hefur gengið á milli manna, því ég þekki lítið sem ekkert til þessara manna og kosið að halda mig utan við þau átök.

En ég er með nokkrar spurningar:

Ef húsnæðið var svona dýrt afhverju var ekki nýtt sem var þegar til staðar? Flokksskrifstofuna, hún ætti að rýma þetta. Og er ég þá ekki alveg að skilja þá afsökun að flytja þetta útá land þegar húsnæðið er þegar til staðar.

Ég tel það ekki lýðræðislegt að fresta og fresta sjálfsögðu landsþingi, og loksins þegar það gerist er ekki pláss nema fyrir örfáar hræður. Þess vegna hefði bæði verið ódýrara og skynsamlegra að halda þingið í Reykjavík, fleiri hefðu komist og minna af peningum hefði verið eytt. Bara spurning um skipulag og uppröðun, ekkert annað.

Ég er ekki í neinni "grúppu" og hef aldrei verið. Vissulega á ég vini innan flokksins en eru þeir úr allri flórunni, ég hefði stutt Sigurjón Þórðar til Formanns því það heitir endurnýjun sem er sjálfsögð krafa af höndum flokksmanna og reyndar samfélagsins alls, sem gerir skýra kröfu um algjöra endurnýjun hjá ÖLLUM flokkum. Þeir hafa FF algerlega brugðist, enda hefur meira að segja Framsókn sannað það fyrir alþjóð. Hver verður þá endurnýjunin? Hver verður þá áherlsan eftir þing?

Ég er hræddur um að lítið breytist ef núverandi stjórn fer ekki frá til þess að auka tiltrú á flokknum sem sætir nákvæmlega enga ábyrgð á því sem gengur yfir landsmenn, og það sem fer mest í mig er að forystan brást algjörlega þegar gullið tækifæri blasti við þeim, en ákvörðunarfælnin var svo mikil að EKKERT gerðist. Ég kalla það tannlaust ljón!

En takk fyrir greinargóðar skýringar Ásthildur mín, því alltaf hefur mér þótt vænt um þig þótt við séum ekki alltaf sammála.

Guðsteinn Haukur Barkarson, 15.2.2009 kl. 19:05

12 Smámynd: Eiríkur Ingvar Ingvarsson

Ágæti Haukur

Komdu yfir í ljósið...

Þinn vinur Eiríkur

Eiríkur Ingvar Ingvarsson, 15.2.2009 kl. 19:19

13 identicon

Til hamingju með ákvörðun þína Haukur.

Með bestu kveðju.

Valgeir Matthías.

Valgeir Matthías Pálsson (IP-tala skráð) 15.2.2009 kl. 19:31

14 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Guðsteinn minn ég held að miðað við fyrri tíma þá muni flokksskrifstofan ekki rýma landsþing.  Þar eru líka málefnafundir í gangi og það þarf pláss fyrir slíkt.  Þannig að það er algjörlega borin von að skrifstofan okkar dugi.

Veit ekki hvað þú ert að tala um frestun á frestun ofan með landsþingi, því það var samþykkt á miðstjórnarfundi sem ég var á að hafa fundinn í apríl, þegar færð væri orðin betri, og þá var strax talað um að hafa fundinn úti á landsbyggðinni.

það var svo búið að fá sal í Borgarnesi þegar varamenn í miðstjórn vildu halda fundinn í Reykjavík, þannig að við misstum þann sal, sem hefði ef til vill verið heppilegri ef það er miklu lengra fyrir fólkið í Reykjavík að fara út á land en fyrir landsbyggðafólk að fara til Reykjavíkur.

Í mínum huga eru 4oo manns ekki örfáar hræður, þarna er enn ein sönnu þess hvernig búið er að hagræða sannleikanum og matreiða hann ofan í velmeinandi fólk.

Sigurjón er  flottur maður, og ég hef ekkert á móti honum.  En ég tel Guðjón einfaldlega betri kost,  Það sem fólk skilur ekki er að Guðjón er einfaldlega límið í flokknum.  Það er mitt mat.  Þessar óánægjuraddir hafa stórskaðað flokkinn, og þetta með endurnýjunina skil ég ekki alveg, því eini flokkurinn fyrir utan Vinstri Græna er Frjálslyndi flokkurinn sem hvergi hefur komið nærri spillingunni í stjórnsýslunni.  Og ég get ekki séð að Vinstri grænir ætli að endurnýja, enda er enginn krafa þar á bæ um endurnýjun.  Veit ekki betur en Steingrímur ætli að leiða þann lista og Ögmundur fara fram Kolbrún og fleira gott fólk.

Nei það sem gerst hefur er að fólk sem vill sinn eigin frama meiri í flokknum hefur því miður farið fram með baknag og undirróður sem gengið hefur nærri flokknum.  Mér þykir það leitt, og vona að slíkt hætti þegar þetta ágæta fólk hefur fundið sinn eigin farveg og tekið ákvörðun um að halda áfram annarsstaðar.

Nú er mál að linni.  Svo er að sjá hvort við lifum af eða deyjum, en við deyjum þá með sæmd, og látum ekki einhverja framagosa taka flokkinn breyta honum í eitthvað annað en hann var stofnaður til, til þess eins að koma sjálfum sér á framfæri.  En þetta er mín meining og við hana stend ég. 

Það er nefnilega hvergi hægt að sýna fram á neitt annað en að forysta flokksins hafi haldið sig við málefnasamning flokksins svo ég vísa því alfarið á bug að þar ríki einhver annarleg sjónarmið og ætlanir. Þær komu annarsstaðar frá og hafa beðið lægri hlut sem betur fer.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 15.2.2009 kl. 19:53

15 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Sæll aftur ágæti Haukur ég sé að hún Ásthildur okkar telur sér trú um að baknagið muni minnka eftir því sem fækkar í flokknum, vonandi er það rétt hjá henni. Hún er góð kona og stendur með skóla- og fermingarsystkinum sínum og það tel ég til mannkosta en það er engin sæmd að því að etja vinum sínum á foraðið og láta sameiginlegar hugsjónir sínar deyja þar. Hún telur líka að límið í flokknum sé ísfirskt.  Kannski er það rétt hjá henni en er það tonnatak eða matarlím?

Sigurður Þórðarson, 15.2.2009 kl. 20:42

16 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Sigurður það er ef til vill matarlím, en við skulum bara sjá hvað setur. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 15.2.2009 kl. 21:06

17 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæll Guðsteinn minn

Til hamingju að forða þér af sökkvandi skipi en mér sýnist á skoðunarkönnunum að Frjálslyndiflokkurinn sé í dauðateygjunum. Það er mjög slæmt því málefnaskráin var mjög fín og startið var flott. En það er ekki nóg. Það verður auðvita að fylgja málum.

Flokkurinn fær c.a. 15.000.000 frá ríkinu. 

Við viljum fá að kjósa flokka sem eru fyrir alla landsmenn þó svo að ég sé hálfur Vestfirðingur. http://zeriaph.blog.is/js/tiny_mce/plugins/emotions/images/Grin.png

Góð stelpa hvíslaði að mér að Guðjón Arnar væri kvótaeigandi.  Surprise.

Sannleikurinn mun gjöra Guðstein frjálsan. http://zeriaph.blog.is/js/tiny_mce/plugins/emotions/images/Wink.png

X-Jesús

Guð veri með þér og þínum.

Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 15.2.2009 kl. 21:14

18 Smámynd: Halla Rut

Mikið rétt hjá þér, Guðsteinn, sorglegt er þetta. Ef það eitthvað sem ég þoli ekki þá er það spilling og misnotkun á almannafé. Þetta stundar FF og því fór ég líka. Mér ofbauð. En mér er sagt að svona sé þetta í raun í öllum flokkum. Ég veit ekkert um hvort það sé satt eða ekki. 

Ég vona að ég eigi eftir að starfa með þér Guðsteinn á öðrum vettvangi.

Ásthildur:  Guðjón Arnar límið í flokknum segir þú. Hvað er hann að líma? Ekki er hann að halda flokknum saman og ekki er hann að halda fylgi. Öllu líklegra að það sé vaselín í túpunni hjá honum.

Milli 30-40 virkir meðlimir hafa sagt sig úr flokknum og fylgið er 1,5% sem er um 80% fylgishrun sem hlýtur að vera hlutfallslega mesta fylgishrun Íslandssögunar. Þú verður að fyrirgefa en ég get bara ekki séð hetjur í því. Ef kvótakerfið er ykkur virkilega svona mikilvægt þá hefðuð þið leyft lýðræðinu að ráða til að flokkurinn ætti von um að komast áfram en þið völdum hinn kostinn, þ.e. að málefni ykkar kæmust ekki áfram. Af hverju skyldi það vera? Hefur það kannski eitthvað með það að gera að Guðjón á sjálfur Kvóta eins og Rósa talar hér um að ofan. 

Þrjár spurningar sem landsmenn eiga rétt á að vita:

  1. Er þetta rétt með Guðjón. Á hann kvóta?
  2. Eru þar fleiri ykkar á meðal sem eruð "límd" saman sem eigið kvóta eða hafa hagnast af kvóta?
  3. Er það trúverðugt að einhver sem á kvóta og einhver þar sem fjölskylda hans á kvóta sé formaður afls sem er að berjast á móti kvótaeign? Er trúverðugt að einhver sé í baráttu gegn sjálfum sér og eigin afkomu?
Gaman þætti mér að sjá hér svar Ásthildur eða þá frá einhverjum "límherjum" þínum. En Ásthildur ég tel þig vera góða og mikla manneskju og ég kann vel við þig. Þetta er ekki persónulegt þrátt fyrir rottutalið hér fyrr í vikunni.




PS:Þeir sem vilja skemmta sér aðeins yfir þessu öllu endilega lesið þetta: http://hallarut.blog.is/blog/hallarut/entry/803411/

Halla Rut , 15.2.2009 kl. 22:37

19 identicon

Merkilegt að einhver sé í þessum flokkum á íslandi í dag, þeir eru hver öðrum verri.
Ekki ætla ég að gleypa við td framsókn, andlitsupplyfting og loforð um að halda nú upp á þau gildi sem þeir gátu ekki haldið áður.... og Birkir er varaformaður... muuhahahah

Ég eiginlega skil ekki að menn séð að ræða annað en að losa sig við þessa skítaflokka alla saman ;)

DoctorE (IP-tala skráð) 15.2.2009 kl. 23:15

20 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Ásthildur - þú segir:

Nú er mál að linni.  Svo er að sjá hvort við lifum af eða deyjum, en við deyjum þá með sæmd, og látum ekki einhverja framagosa taka flokkinn breyta honum í eitthvað annað en hann var stofnaður til, til þess eins að koma sjálfum sér á framfæri.

Hverjir eru þessir framagosar? Og á einhver eignarrétt á flokknum? Breyttir tímar þýða breytt umhverfi, og slíkt kallar á breytingar sem ber að fagna en ekki hræðast. Ólsípaður demantur er til dæmis ekkert augnayndi fyrr en gullsmiður er búinn að meðhöndla hann. Eins er með flokkinn.

Í mínum huga eru 4oo manns ekki örfáar hræður, þarna er enn ein sönnu þess hvernig búið er að hagræða sannleikanum og matreiða hann ofan í velmeinandi fólk.

Ég sagði aldrei að þetta væru "öfáar hræður", en ég vildi aðeins benda á aðra ódýrari möguleika. Og hvaða sannleika er búið að hagræða? Þannig að spyrji eins auli ...

Ég segi mig úr flokknum aðallega vegna persónulegra aðstæðna, ég er kominn í skóla og get lítið sinnt öðru á meðan, eins hefur kona mín kvartað undan fjarveru minni vegna svona starfa sem ég tek að mér - fjölskyldan verður að hafa forgang. Þess vegna er ég farinn út og vil helst ekki vera bundinn neinum  flokki eins og er, hvað sem hann heitir. 

Rósa - þú segir:

Sannleikurinn mun gjöra Guðstein frjálsan.

Þessvegna hef ég Jesú!

Halla Rut -  þér var líka ýtt út með valdi að mér skilst, og satt að segja er það stór ástæða þess að ég tek þessa ákvörðun. Slíkt á ekki að viðgangast eins og farið var með þig! Ég hef hvorki taugar né hjarta í mér til horfa uppá slíkt óréttlæti.

Ég vona að ég eigi eftir að starfa með þér Guðsteinn á öðrum vettvangi. 

Segjum tvö!!! Við rotturnar!

Guðsteinn Haukur Barkarson, 15.2.2009 kl. 23:19

21 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Dokksi - oft kemur þetta eins og þruma úr heiðskíru lofti, en ég er aldrei þessu vant soldið sammála þér!

P.s. náðir þú að horfa á Omega þáttinn?

Guðsteinn Haukur Barkarson, 15.2.2009 kl. 23:21

22 Smámynd: Halla Rut

Ekki er kannski rétt að mér hafi verið ýtt út með valdi en framkoma ákveðinna manna og kvenna inna flokksins voru algjörlega með eindæmum. Baktalið um mína persónu sem vó t.d. að útliti mínu var eitt það undarlegasta sem ég hef bara á ævi minni lent í og það af fullorðnu fólki. Sömuleiðis var ég ráðin til ákveðinna starfa sem ég fékk aldrei borgað fyrir og orsakaði sú ráðning einhverskonar stríð á milli mann sem var mér í raun algjörlega óviðkomandi. Þetta var eins og á einhverju vitleysingahæli þar sem engin virtist hafa nein meðferðarúrræði.

Menn segja mér að það hafi verið ákveðin hræðsla sem olli og einmitt hræðsla við það sem þú talar um hér í commenti þínu hér að ofan. Þau vildu ekki nýtt fólk og vildu ekki þróast og vildu ekki stækka. Ég spyr þá hvernig geta þau verið að gera málefninu sem best ef þau vilja ekki vera nægilega stór flokkur til að knýja breytingarnar fram? Um leið spyr ég, er það vegna eigin kvótaeignar?

Það bara hreinlega passar ekki að stjórnmálaflokkur vilji ekki stækka og vilji ekki eiga möguleika á að koma málefnum sínum á framfæri. Þessi flokkur hefur verið í 10 ár og í 10 ár hefur verið hamast á þessu kvótamáli. Og árangurinn jú hann er nákvæmlega enginn. Þeir sem eiga kvótann hljóta að vera rosalega ánægðir með Frjálslyndaflokkinn og vil ég vita hvort formaðurinn sé einn þeirra glöðu.

Ég bíð spennt eftir svörum við spurningum mínum hér í mínu fyrri athugasemd en skil um leið að þögn er sama og samþykki.   

Halla Rut , 15.2.2009 kl. 23:37

23 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Guðsteinn og velkominn sem bloggvinur minn.

Takk fyrir síðast þegar þú varst með okkur á sjómannadaginn að mótmæla mannréttindabrotum á sjómönnum.

Þakka þér einnig góð orð í minn garð, en varðandi þær spurningar sem við Ásgerður setjum fram teljum við þær nauðsynlegar nú.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 15.2.2009 kl. 23:59

24 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Guðrún María - gangi ykkur sem allra best, því ég hef trú á að þið tvær geti gert góða hluti! Guð veri með ykkur báðum!

Halla Rut - ég átti ekki við með líkamlegu valdi, ég á við andlegu. Og sagan sem þú segir strax á eftir staðfestir orð mín. Svona gera menn ekki !

Guðsteinn Haukur Barkarson, 16.2.2009 kl. 00:02

25 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæl Cesil.

Ég sé mig knúna til að spyrja um ýmislegt í þessu þínu innleggi hér.

"  Þessar óánægjuraddir hafa stórskaðað flokkinn, og þetta með endurnýjunina skil ég ekki alveg,....

Nei það sem gerst hefur er að fólk sem vill sinn eigin frama meiri í flokknum hefur því miður farið fram með baknag og undirróður sem gengið hefur nærri flokknum.  Mér þykir það leitt, og vona að slíkt hætti þegar þetta ágæta fólk hefur fundið sinn eigin farveg og tekið ákvörðun um að halda áfram annarsstaðar.

Nú er mál að linni.  Svo er að sjá hvort við lifum af eða deyjum, en við deyjum þá með sæmd, og látum ekki einhverja framagosa taka flokkinn breyta honum í eitthvað annað en hann var stofnaður til, til þess eins að koma sjálfum sér á framfæri.  En þetta er mín meining og við hana stend ég.  "

Er ég " framagosi " vegna þess ég nýtti minn rétt sem flokksmaður til þess að bjóða mig fram til starfa ?

Þú skilur ekki þetta með endurnýjun en hvers vegna hefur þú verið að hvetja til mótmæla á þinni bloggsíðum öllum stundum ?

Er núverandi forysta Frjálslynda flokksins yfir alla gagnrýni hafin í þínum huga ?

Viltu að þeir sem spyrja spurninga/mótmæla/gagnrýna fari bara úr flokknum ?

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 16.2.2009 kl. 00:47

26 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Nú er farið að þykkna  í henni Guðrúnu minni. Ætlar greinilega ekki að láta stuðningsmenn Guðjóns eiga neitt inni hjá sér. Það verður fróðlegt að lesa svörin.

Mér hugnast vel að kjósa þig Guðrún mín og vildi óska að flokkurinn ætti fleiri svona, já helst marga, svona framagosa eins og þig.

Sigurður Þórðarson, 16.2.2009 kl. 01:18

27 Smámynd: Halla Rut

Þetta er málið í hnotskurn er Guðrún María mælir hér en ég hlýt að spyrja um leið hvort hún kannist nú ekki einmitt við að hafa eitt sinn, ekki það ekki alls fyrir löngu, verið sömu megin við borðið og forustan en nú. "Verri er fló á eigin skinni".

En gott skal vera það sem betur fer og hefur G. María allan minn stuðning í þessu máli enda er lýðræðið gjörsamlega brotið á henni og öllum öðrum sem viljað hafa að bjóða sig fram í þessum flokki.

Halla Rut , 16.2.2009 kl. 01:44

28 Smámynd: halkatla

ég styð þetta vegna þess að ég er líka utan flokka og fatta ekki þá sem meika að hrærast eitthvað í innri valdabaráttu eða að deila ábyrgð á sumu því sem pólitíkusarnir "þeirra" gera og segja. Sorrí en það er ekki mín deild. Þú ert á frábærum stað andlega og eðlilega finnst fólki fínt að hafa þig í sínu liði, en það er líka hægt að veita persónum og semsagt einstaklingum stuðning, án þess að vera starfandi í pólitík.

halkatla, 16.2.2009 kl. 01:54

29 Smámynd: halkatla

Halla Rut, ég tel að íslensk pólitík þurfi sárlega á fólki einsog þér að halda! Með stuðningsaðila einsog mig og Guðstein og alla hina sem þrá að sjá hugrakka og réttlætissinnaða einstaklinga í þessum verkum, þá eru þér allir vegir færir. Þinn tími mun koma

halkatla, 16.2.2009 kl. 01:59

30 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæl Halla Rut.

Vil minna þig á samtal sem ég átti við þig um það atriði að vera nýr einstaklingur í flokki án vitneskju um " heimskulegar innanflokksdeilur " og ráð mín til þín þá.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 16.2.2009 kl. 02:06

31 Smámynd: Halla Rut

Takk Anna mín.

Sjáum til en ég svona hálfpartinn fékk ógeð á þessu öllu saman svo mikið var ofboðið.

Halla Rut , 16.2.2009 kl. 08:01

32 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Halla Rut - Anna Karen mælir af visku, ef þú ferð einhvertíma aftur í pólitík, þá áttu stuðning minn og sýnist mér Önnu Karenar vísan.

framagosinn Guðrún María - ég nokkuð viss um að núverandi stjórn sé afar hrædd við breytingar. Ég er sjálfur margmiðlunarfræðingur og bar það upp á fundi einu sinni að breyta og hressa upp merkjum flokksins, til þess eins að fá ferskari ímynd. Þessar hugmyndir mínar voru aðeins vísir af því sem hægt var að gera, og benti ég þeim á að leita til auglýsingastofu í kjölfarið.

Þetta var með góðum vilja gert og fékk ég þau svör stjórnin myndi "skoða þetta". Síðan þá eru sömu gömlu flokksmerkin og enginn breytt ásýnd/ímynd sem ungt fólk sem og heldra getur tengt sig við. Breytingum ber að fagna ef hún er til hins betra, og ekki bara til þess að breyta. Það er hugmyndfræði sem þeir munu seint skilja.

Guðsteinn Haukur Barkarson, 16.2.2009 kl. 08:37

33 identicon

Það er bara aulaskapur að skrá sig í einhvern flokk... flokkar eru óvinir okkar, þeir hugsa bara um flokkinn og meðlimi hans.
Fuck da flokks :)

DoctorE (IP-tala skráð) 16.2.2009 kl. 10:34

34 identicon

ohh.. nei ég sá ekki þáttinn Guðsteinn... vonandi síðar.

DoctorE (IP-tala skráð) 16.2.2009 kl. 10:35

35 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Guðrún María Óskarsdóttir framagosi!

Ég er viss um að framagosinn mun rífa flokkinn upp ef hann nær kjöri á landsþinginu. Það nennir enginn alvöru framagosi að vera formaður í smáflokk þannig að Guðrún María mun bretta upp ermarnar og koma þessu áfram.  Það þýðir ekki neitt að kjósa einhvern sem er metnaðarlaus. Við þurfum framagosa. 

Sigurður Þórðarson, 16.2.2009 kl. 12:20

36 Smámynd: halkatla

ok hérna er hvernig ég sé amk hluta af mistökum frjálslynda flokksins:

það er þannig að mér fannst alltaf virka einsog frjálslyndi flokkurinn innihéldi allskyns óvenjulegar týpur (manneskjur) og gæti komið manni dáldið á óvart, en til að byrja með væru þetta svona allskyns kallar sem kæmu ákveðinni ímynd á framfæri sem væri ágæt ein og sér til að byrja með, en sem þyrfti gjörsamlega að mildast einhvernvegin og verða fjölbreytilegri með tíð og tíma. Svo fór ég að rekast á blogg margra frjálslyndra hér á blog.is (ekki þeirra sem eru þekktastir) og las að Guðsteinn Haukur væri genginn í flokkinn og hvað eina, mér fannst Halla Rut einn frambærilegasti stjórnmálapenni (og hugsuður) landsins og ég hélt eðlilega að svona fólk fengi að koma að framþróun flokksins. En nei, vitiði hvað, það hefur ekkert breyst! Í augum kjósendanna þá sér maður alltaf bara þessa sömu drumba, EKKERT sem breytist eða léttir yfir í sambandi við stefnumálin og það, þetta er alltaf bara sama harkan, og svo bætast endalaust við fleiri drumbar með allskyns slepjuleg leiðindafortíðarmál á bakinu... sko ég skil VEL þá sem nenna ekki að dunda sér þarna... Þetta er bara einsog Dokksi segir. Þessar konur (og ýmsir menn) sem bjóða sig fram til að gera eitthvað skynsamlegt og gott í flokkunum eru oft bara kveðin í kútinn. Það kom sér sérstaklega illa fyrir Frjálslynda flokkinn því hann þurfti mest á ykkur að halda fyrir ímyndina og lausn á vandamálum (rifrildi á fundum milli gömlu durganna, hehe)

Ég styð að þið takið ykkur frí, en það þarf að breyta íslenska kerfinu algjörlega frá a-ö, leggja af flokkana sem eru núna (já VG litli myndi lenda í því líka en það er bara fórn sem verður að færa) og þetta yrði meira um fólk heldur en eitthvað annað... Eg er til í að sjá einhvern stofna dýraverndarflokk sem myndi fókusa á allt svoleiðis, það gæti t.d bara verið örflokkur en það er þörf á rödd fyrir dýrin inn á þing

halkatla, 16.2.2009 kl. 13:49

37 Smámynd: Halla Rut

Anna, ég kem bara við að sjá hvað þú skrifar fallega um mig og hvað þú hefur mikla trú á mér. Ég er sammála þér með Guðstein, það var frábært að vinna með honum og hann var fullur af nýjum hugmyndum og orku. En það var ekki það sem forustan vildi og ég sé það svo vel svona eftir á að það var ekki vegna þess að þeim líkaði ekki við okkur eða að við værum ekki að starfa vel heldur einmitt vegna þess að hún (forustan) hræddist orku okkar og dugnað. Þeir hræddust að er kæmi að kosningum í helstu stöður að þá kæmu frambærari menn og/eða konur fram. Það er því svo greinilegt að forustan telur sig eiga flokkinn og það eru málefnin sem eru í fyrsta sæti heldur þeir sjálfir.

En þetta sjáum við víðar og er í raun ástæða fyrir því hvernig komið er fyrir okkur nú.

Arnold Schwarzenegger, fylkistjóri í Kaliforníu, er einn vinsælasti fylkistjóri er Bandaríkin hafa átt. Hann er ríkur og hann er frægur og því þarf hann ekki að staða sín veiti sér frægð eða peninga. Hann vinnur svo sannarlega fyrir fólkið og er ekki að nota stöðuna til að koma sjálfum sér áfram né til að hagnast á henni sjálfur. Hann t.d. nýtir hvorki einkaflugvél né hús er fylgir stöðunni. Hann hefur tekið fjölda óvinsælar ákvarðanir sem öðrum pólitíkusum og embættismönnum hefur ekki líkað en honum er alveg sama, fólkið hans kemur númer eitt.

Þetta er einmitt það sem Ísland þarf núna. Það er þyngra en tárum tekur að horfa á alþingi Íslendinga og sjá allt þetta fólk rífast um hver átti þetta fyrst og hver "fattaði" upp á hinu á undan. Allt fjallar þetta um þeirra eigin stöður og þeirra eigin framtíð í stjórnmálum. Eiginhagsmunaáráttan er orðin svo ríkjandi að þau eru blind á hana sjálf og kunna ekki lengur að fela hana.

Halla Rut , 16.2.2009 kl. 15:31

38 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Amen Halla Rut og Anna Karen! Mikið er ég heppinn er vera umkringdur svona skynsömum konum! Ég á við ykkur allar sem hafa tjáð sig hér!

... takk stelpur!

Guðsteinn Haukur Barkarson, 16.2.2009 kl. 15:54

39 identicon

Ég sé bara eina leið... að ég stýri öllu heila klappinu... ég nenni ekki að verða ríkur og á ekkert marga vini :)

DoctorEnglnegger

DoctorE (IP-tala skráð) 16.2.2009 kl. 16:25

40 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Guð sé oss næstur ef svo færi Dokksi, Guð sé oss næstur!!

Guðsteinn Haukur Barkarson, 16.2.2009 kl. 16:44

41 identicon

Alveg rétt hjá þér Guðsteinn..þá verður guddi yður næstur ;)

DoctorE (IP-tala skráð) 16.2.2009 kl. 17:13

42 Smámynd: Halla Rut

Guðsteinn er nú einn af þeim er vita vel að ekki skuli blanda trú saman við pólitík nema þá helst að fylgja þeim siðferðisboðskap og náungakærleik er hann trúir á.

Halla Rut , 16.2.2009 kl. 17:36

43 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Halla Rut! Loksins einhver sem skilur boðskap minn! Það er nákvæmlega það sem ég meina! Vei þeim degi er Kristnir fara að haga sér eins og Íslamistar! Við verðum að læra af reynslu þeirra og okkar eigin.

Guðsteinn Haukur Barkarson, 16.2.2009 kl. 17:45

44 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Hvað segiði var einhver að tala um tonnatak?   Já, það er nú varla hægt að hnika manni úr stól sem er allur löðrandi í lími.

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 16.2.2009 kl. 18:11

45 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Einmitt Jóhanna, hann og Davíð Oddson eru sennilega með sama byrgja varðandi límið. Lím sem er óleysanlegt! 

Guðsteinn Haukur Barkarson, 16.2.2009 kl. 18:24

46 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

 Eftirfarandi bréf sendi ég í tölvupósti til yfirstjórnar og fjölmargra aðila  innan Frjálslynda flokksins 25.11.2008, m.a. til Guðjóns Arnars - ef ég væri formaður eða framkvæmdastjóri í flokki og fengi svona bréf þá myndi ég a.m.k. segja takk  ... 

 

(bréfið er örlítið stytt, ég var full orðmörg) .. ´vona að það afritist ekki allt í belg og biðu hér í athugasemdum.

 

"Góðan dag,  Nú langar mig að skipta mér af, enda komin af stjórnsömum konum úr báðum ættum. Fyrsti NÝI flokkurinn sem verður stofnaður í þessu ástandi verður heitasti flokkurinn. Að því gefnu að hann sé með góðan málstað og höfði til meirihlutans, að sjálfsögðu. Fólk hrópar á ferskt, samstætt afl í pólitíkina – NÚNA.  Ég sem utanaðkomandi, en þó mjög náinn áhorfandi langar að segja mitt álit – og vonandi enginn taki því illa.  ·         Vörumerkið/ímyndin: „Frjálslyndi flokkurinn“ er mjög neikvætt í dag og hefur verið í einhvern tíma.·         Frjálslyndi flokkurinn hefur yfir sér full mikinn ,,karllægan“ blæ, sem er ekki það sem líklegt er til vinsælda í dag. Karlar eru bráðnauðsynlegir, en það eru konur líka ;-) ·         Flokksmenn eru mjög ósamstíga. ·         Flokksmenn (og sumir forkólfar)  eru sumir hverjir hættir að hafa trú  á  flokknum (það er vonlaust og óheiðarlegt að reyna að selja eitthvað sem maður trúir ekki sjálfur á). ·         Flokksmenn (sumir)  eru mjög óvarkárir í framsetningu  á bloggi, setja t.d. út á sinn flokk og segja hluti sem skaða flokksímynd. ·         Meiri hluti flokksmanna sýnist mér vera óánægður með framvarðasveitina og þá sérstaklega formanninn (sem formann) augljóslega yndislegur maður en ekki sá leiðtogi í sér (lengur?) sem þarf. Góður leiðtogi þarf að halda betur utan um ,,hjörðina“ .. en hún er villuráfandi í dag.   Hugmynd:  ·         Stofna nýjan flokk eða breyta nafni flokksins í ,,Ný- frjálslynd“ eða eitthvað í þeim dúr (mætti koma með tillögur) með heilsteyptu fólki innanborðs sem er tilbúið að standa saman og tala við hvert annað, en ekki bara um hvert annað. Þetta sama fólk þarf að taka og þola uppbyggilega gagnrýni hinna. Læra af henni og reyna að nýta sér. Ef það er ekki hægt þá er það ekki tilbúið í samstarf. ·         Áríðandi: Það þarf að hafa leiðbeinandi ímyndarmanneskju, „public relations“ fulltrúa sem gefur ráð, t.d. hvernig koma skuli fram og ekki skuli koma fram, bæði í persónu og rituðu máli. Ef félagar heyra eitthvað útundan sér (jákvætt/neikvætt) um flokkinn, þá þyrfti að láta þennan p.r. fulltrúa vita um það. Nær væri að upplýsa viðkomandi félagsmann um það sem hann mætti bæta, sé það hægt. Það væri að sjálfsögðu verk þessa p.r. fulltrúa. ·         Konur þurfa að vera  meira áberandi í framvarðasveit. ·         Talsmenn/konur þurfa að koma fram af kurteisi, tala málefnalega og halda virðingu sinni. Hugsa vel áður en talað er. ·         Flokkurinn þarf að vera duglegur við að fá fagfólk til aðstoðar og ráðgjafar.  Einnig í framkomu og tjáningu, það er löngu sannað að viðmót fólks getur skipt meira máli en orðin sem það lætur út úr sér!  ·         Þegar nýr félagsmaður skráir sig, þarf hann að fá bréf eða email þar sem hann er boðinn velkominn og upplýstur um allt sem er í gangi í flokknum, nefndir, félög o.fl.  Ég skráði mig á netinu og heyrði aldrei múkk.  Ég er mjög sátt við málefnaskrána, en þó það hafi verið sárt þá hafði Baltasar Kormákur örlítið rétt fyrir sér á Eddu verðlauna-afhendingunni. Frjálslyndi flokkurinn er með góð mál – en ,,presenterar“ þau ekki almennt nógu vel.  Afnám verðtryggingar, kvótamálið, nú lækkun stýrivaxta .. eru mál sem höfða til þjóðarinnar. Útlendingaumræðan fór algjörlega vitlaust í landann. Ég persónulega myndi vilja sjá mikla áherslu á jafnréttismál af öllum toga. Allri viðkvæmri umræðu þarf að stýra á mjög diplómatískan hátt. Reyna að sjá fyrirfram hvernig viðbrögð verða o.s.frv. Það þýðir ekkert að koma eftir á og segja ,,ég meinti sko þetta“ .. Svo er það nú þannig að það er ekki sama úr hvaða munni sami hlutur kemur. L ..   Að lokum:  Þetta bréf mitt er orðið langt J .. Óska ykkur góðs gengis og skora á ykkur að verða fyrsta aflið til að grípa boltann sem er nú á lofti, sé það ekki of seint.  

Jóhanna – Mamma Mia flokknum J .. "

 

Svona var nú þetta bréf .. og nú er fylgið að hverfa , ekki er hlustað á ráð, hvorki mín né "framagosanna" .. svo verði þér að góðu Guðjón Arnar, hafðu þinn flokk fyrir þig og þína   (ef ég væri ekki svona kurteis kona hefði ég kannski gleymt - ellinu í flokk! )

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 16.2.2009 kl. 19:00

47 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Þetta kom náttúrulega allt í belg og biðu, en var sett upp á skilmerkilegan hátt ;-) ekki nógu góð í kópí peistinu ..

 sent af góðum hug! .. 

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 16.2.2009 kl. 19:07

48 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Glæsilegt framtak Jóhanna, nú mun aðeins tíminn leiða í ljós hvort mark sé tekið á þér. En flott Jóhanna, ekki var vanþörf á þessu!

Ps. regla #1 á blogginu, aldrei peista úr Word, bara úr notepad, annars fer allt í rugl.

Guðsteinn Haukur Barkarson, 16.2.2009 kl. 19:40

49 Smámynd: Offari

Ég ætla að ganga í Frjálslynda flokkinn og bjóða mig fram til formans. Ef ég fæ ekki formansstöðuna fer ég bara í fýlu og segi mig úr flokknum.

Offari, 16.2.2009 kl. 20:38

50 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Ertu ekki framsóknarmaður offari? Svona grænt tröll eins og þú?

Guðsteinn Haukur Barkarson, 16.2.2009 kl. 20:40

51 Smámynd: Halla Rut

Flott bréf hjá þér Jóhanna og heiðarlegt að senda þeim sem um ræðir bréfið beint. En það var svo sem vitað að ekki yrði á því tekið mark en þó þarft að senda bréfið enda hefur svo vel komið í ljós að þetta er allt 100% rétt hjá þér.

Tíminn mun ekki leiða neitt í ljós Guðsteinn. Tíminn er liðinn. Jóhanna sendi þetta bréf í nóvember og ekki var einu sinni litið upp yfir því.

Halla Rut , 16.2.2009 kl. 20:42

52 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Takk Halla,  rétt bréfið var sent í nóvember og gildir í raun ekki lengur, því ég er búin að sjá að þessum flokki er ekki viðbjargandi með þessari stjórn eða óstjórn ætti ég nú frekar að segja.

Ég hef líka skráð mig úr flokknum. Það endar kannski bara með því að þetta verður bara lítill kósý saumaklúbbur?

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 16.2.2009 kl. 20:49

53 Smámynd: Ingvar Valgeirsson

Þetta er ekki frumlegasta múvið í dag...

:)

Ingvar Valgeirsson, 16.2.2009 kl. 21:38

54 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Jóhanna, það var virðingarvert af þér að skrifa þetta bréf þó það komi að sama gagni og ef þú hefðir sent forystunni flöskuskeyti eða kannski  hugskeyti.  En þú hefur skrifað þig frá málinu.

Sigurður Þórðarson, 16.2.2009 kl. 22:27

55 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Jóhanna og Halla - í nóvember? Virkilega? þá er það eins og Siggi segir, þú gast alveg eins sent elliæra og fjaðurlausa dúfu.

Hvaða "múv" ertu að tala um Ingvar, og auk þess er þessi grein síðan í gær. Explain.

Guðsteinn Haukur Barkarson, 16.2.2009 kl. 23:11

56 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

P.s. líst vel á þessa saumaklúbbs hugmynd Jóhanna.  =)

Guðsteinn Haukur Barkarson, 16.2.2009 kl. 23:12

57 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Svo getum við stofnað annað saumaklúbb.

Guðsteinn, Siggi, Ingvar, Arnar, Offari, Valgeir og frábæri Doctor E. mæta ásamt okkur stelpunum.

GÓÐA NÓTT 

Rósa Aðalsteinsdóttir, 16.2.2009 kl. 23:24

58 Smámynd: Árni Gunnarsson

Það var ekki einleikið hvað gömlu beljurnar í fjósinu urðu hvumsa þegar þær sáu hvað við Reykjavíkurpakkið vorum búin að ná í glæsilegan og dugmikinn starfskraft fyrir félagsstarfið í Reykjavík. Allt frá þeim degi sem Halla Rut bjó um sig í tölvukytrunni í horninu var óróinn hjá officeraklúbbnum við jarðhræringamörk.

En með eljusemi og samhentu átaki tókst þeim guðsélof að losa sig við hana úr horninu og síðan úr flokknum áður en til áfallahjálpar drægi. Og nú hefur þeim tekist að losa sig við fleiri -já bara fjölmarga. Nú er allt á réttri leið- loksins!

Ég held að þetta sé rétt hjá þér Ásthildur Cesil. Það mun ríkja mikil eindrægni í flokknum eftir að hún Guðrún María og þær stöllur fá reisupassann á fundinum í Hólminum. Og þá verða dregnar upp harmonikkur og þá verður mikið gaman- mikið grín!

Árni Gunnarsson, 17.2.2009 kl. 00:34

59 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Sæll Árni frændi, hún Ásthildur vinkona okkar líkti formanninum við matarlím, sjá athugasemdir hér að ofan.  Forystan skákar í því skjólinu að flokkurinn er orðinn svo mikill ræfill að það nennir enginn að keppa við hana um völdin og því getur hún flúið til fjalla nær átölulaust. Hvort tónlistin verður svanasöngur, líkaböng eða harmonikkuleikur skal ég ekki segja en vonandi verður þetta glaðvært erfi. Á slíkum stundum er ekki við hæfi að ræða óheilsusamlegt líferni hins látna né læknamistök.

Ó nei, ég sé Ásthildi fyrir mér hrósa sjálfri sér og skólabræðrum sínum fyrir að hafa fallið með sæmd eftir hetulega baráttu við framagosana sem gáfust upp.

Sigurður Þórðarson, 17.2.2009 kl. 08:02

60 identicon

Það er alveg hægt að fá aðra gistingimöguleika þarna heldur en bara ótelið

nú drepsit flokkurinn eftir þessar kosningar þá verður bara svo að vera.

heldur virkilega enginn að það sé líf eftir pólítík?

Þið eruð algjörlega orðin snargeðveik ef þið haldið öðru fram.

fólk vill hvors sem er fá sjálfsstæðismenn aftur í stjórn miðað við kannanir á undanförnu.

því miður þá erum við öll heimsk og þið einnig(pólítískt séð)


Tómas Sigurðs. (IP-tala skráð) 17.2.2009 kl. 08:28

61 Smámynd: ThoR-E

Jón sagði sig aðeins úr FF vegna þess að ESB aðild var hafnað í könnun meðal flokksins.

Þannig að ... þú getur svosem tekið hatt þinn ofan fyrir því ... en ekki verra að þú vitir hvað þarna er að baki.

Jón vann aldrei af heilindum fyrir flokkinn, hann er flokkaflakkari og tækifærissinni sem sá tækifæri á að fá þingsæti og fá fastan launatékka. 

Farið hefur fé betra!

ThoR-E, 17.2.2009 kl. 09:10

62 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Ace, ég get sagt þér að Jón Magnússon kemur þessu máli ekkert við.

Ég þekki til allra sem hafa tjáð sig hér á síðunni hér er ein kona sem kom með Jóni fyrir tveimur árum.  Allir aðrir eru yfirlýstir andstæðingar þess að Ísland gangi í Evrópusambandið t.a.m vegna sjávarútvegsstefnu þess og sjálfur hef ég starfað í Heimsýn. 

En af því að þú minnist á fé, þá er mér hugleikið hvers kyns sauður þú ert eiginlega. 

Sigurður Þórðarson, 17.2.2009 kl. 09:46

63 Smámynd: Rannveig H

Ace! Þessar yfirlýsingar eru út í hött, ég er hætt að skilja þessa mýtu um Jón Magnússon ég seigi eins og Siggi þetta snýst ekkert um hann heldur lýðræðisvinnubrögð í þessu örflokki. Ace ég vil benda þér að lesa inleggin hennar Höllu Rutar það sem hún seigir er það sem er akkurat það sem er að gerast.

Rannveig H, 17.2.2009 kl. 12:06

64 Smámynd: ThoR-E

Sigurður:  Þú ert augljóslega í klappliði Jóns og getur ekki annað en kallað fólk nöfnum þegar einhver segir skoðun sína á manninum sem er þér ekki þóknanleg. Þú mátt kalla mig sauð ef þér líður betur.

En ég er kjósandi Frjálslyndaflokksins og hef verið það lengi. Sambandi við Jón að þá hef mínar upplýsingar um fráhvarf hans úr Frjálslyndaflokknum og hegðun hans innan hans og hef myndað mér skoðun á manninum út frá því. 

Hvort sem þér þyki þær út í hött eða ekki.

Hér var minnst á Jón í umræðu um úrsögn úr Frjálslyndaflokknum og var þetta mitt innlegg. Eða ert þú farinn að segja fólki hvað það má skrifa á spjallþráðum á netinu Sigurður???

Ef svo er raunin ættirðu að fara að taka þér eitthvað annað fyrir hendur.

ThoR-E, 17.2.2009 kl. 13:48

65 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Ace: "Jón vann aldrei af heilindum fyrir flokkinn, hann er flokkaflakkari og tækifærissinni sem sá tækifæri á að fá þingsæti og fá fastan launatékka."

Heldur þú virkilega "Ace" að lögfræðingur fái ekki betri laun við eigin praktík heldur en að vinna fyrir stjórnmálaflokk? ..

..og hvaðan færð þú þínar upplýsingar "Ace" ? .. Af hverju þorir þú ekki að sýna á þér fésið?

Mér finnst lágmark, þegar fólk er með aðdróttanir í garð annarra að það þori að gera það i eigin nafni, annað er bara heigulsháttur og ekkert annað!

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 17.2.2009 kl. 14:28

66 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Af heimasíðu Frjálslynda flokksins:  

"Guðjón Arnar hefur í raun orðið persónugervingur flokksins"

Hér klippi ég úr frétt mbl.is:

"Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins nýtur minnst trausts og lendir neðstur á lista yfir þá sextán stjórnmálamenn sem spurt var um. 8,6% segjast bera mikið traust til Guðjóns Arnars en 51,2% segjast bera lítið traust til hans."

Þetta segir allt sem segja þarf um hvert Frjálsyndi flokkurinn stefnir.

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 17.2.2009 kl. 14:48

67 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Kæru vinir hér hefur ýmislegt fokið m.a. frá mínu lyklaborði, það er afleit staða að vera að kýta við skoðanasystkini sín í sameiginlegu svekkelsi yfir því að hlutirnir séu ekki að ganga upp.

Notum frekar kraftana til að vinna hugsjónum okkar gagn hvort sem við verðum saman eða sundur.

Sigurður Þórðarson, 17.2.2009 kl. 15:36

68 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Ace og aðrir sem þetta lesa. Lesið þessar frétt:

mbl.is Samfylkingin stærst

Og hvað gefur þessi mynd til kynna?

<em></em>
//

Slóð: http://www.mbl.is//mm/frettir/popup/mynd.html?imgid=490713;nid=1399338
Skoðað: 2009-02-17 15:55
© mbl.is/Árvakur hf

on error resume next If p__msd = "true" Then For i = 2 to 6 If Not(IsObject(CreateObject("ShockwaveFlash.ShockwaveFlash." & i))) Then Else p__r_f = 2 p__r_v = i End If Next End If If p__r_f = 0 Then p__r_f = 1 End If <img width="1" height="1" src="http://mbl.teljari.is/potency/potency.php?o=29;i=2;p=frettir-popup-mynd" alt="" border="0" /> var DOCUMENTGROUP=&#39;Frettavefu&#39;; var MEMBERID = &#39;zeriaph&#39;; <img alt="" src="http://stats.indextools.com/p.pl?a=10001419076786&js=no" width="1" height="1" />
Hún þýðir einfaldlega að samvæmt þessari könnun er FF minni en Íslandshreyfingin og á talsvert eftir í kjörfylgið. Segir þetta ekki eitthvað? Þarf að ekki að gera einhverjar ráðastafanir til þess að bjarga þessu? Sérstaklega sú sjálfsagða krafa um endurnýjun af hálfu samfélagsins til ALLRA stjórnmálaflokka? Af hverju er svona erfitt að sætta sig við ofureinfaldar staðreyndir?

Guðsteinn Haukur Barkarson, 17.2.2009 kl. 16:03

69 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Ekkert um að vera hér hjá þér Guðsteinn

Hér er ró og hér er friður

Friðarkveðjur/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 17.2.2009 kl. 22:00

70 Smámynd: Dexter Morgan

Sjá þetta FF pakk mæra hvert annað hérna, hehe. FF=flokkur ósamstöðu, valdapots og tækifærissinna. Ekki nema von að hann fái bara 2,5 % í síðustu könnun.

Dexter Morgan, 17.2.2009 kl. 22:28

71 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Rósa, utan við þennan ómálefnalega náunga sem kennir sig við fjöldamorðingjann Dexter (sem er kallað á netmáli: "Tröll", ég bið fólk um hunsa svona bjánalegar athugasemdir), þá er rólegt og veistu ég er bara feginn!

Guðsteinn Haukur Barkarson, 17.2.2009 kl. 22:32

72 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Nú stefnir í að flokkurinn fái engan þingmann í næstu kosningum. En í því felast gríðarleg sóknarfæri því þá verður hægt að stokka upp forystuna.

Eftir því sem kvótakerfið stendur lengur verður það verður það óvinsælla þannig að flokkurinn gæti orðið drifkraftur mikilla breytinga ef kosið verður aftur eftir tvö ár eins og sagt er. 

Sigurður Þórðarson, 18.2.2009 kl. 10:36

73 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæll Siggi minn

En á  Guðjón Arnar kvóta? Var hann allan tímann að sigla undir fölsku flaggi?

Guðs blessun

Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 18.2.2009 kl. 11:17

74 Smámynd: ThoR-E

Jóhanna: Það má vera að þetta hafi verið harðort hjá mér. En mér finnst bara slæmt þegar flokkurinn er í þessari stöðu að þingmenn flokksins yfirgefa flokkinn í fússi ... ef hann var ákveðinn í að yfirgefa FF þá hefði hann getað gert það öðruvísi.

En þetta er bara mín skoðun.

ThoR-E, 18.2.2009 kl. 11:49

75 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Takk fyrir þetta Ace. Ég held nú bara að bikar Jóns hafi verið barmafullur, eins og margra annarra  hjá Frjálslyndum, vegna óstjórnar og þá flæðir yfir barma hjá prúðasta fólki. Þekki þó ekki hvort Jón fór valhoppandi út um dyrnar eða í fússi.

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 18.2.2009 kl. 13:00

76 Smámynd: ThoR-E

Eflaust hárrétt hjá þér Jóhanna.

Manni finnst bara nú þegar stutt er í kosningar og FF mælist varla með 2% fylgi... að fólkið í flokknum eigi að standa saman.. frekar en að rífast og skammast .... hvað þá í fjölmiðlum.

Ég ætla mér samt að kjósa Frjálslyndaflokkinn.. en ég vona innilega að þessi átök innan flokksins verða ekki til þess að flokkurinn þurrkist út í kosningunum... það væri virkilega fúlt því þessi flokkur hefur mikið upp á að bjóða og hefur innanborðs mikið af hæfileikaríku fólki sem starfar af heilindum í þeim málefnum sem FF stendur fyrir.

En við verðum bara að vona það besta ...

ThoR-E, 18.2.2009 kl. 13:15

77 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Ace, felst ekki einmitt tækifæri í því ef flokkurinn dettur út  af þingi að geta lært af mistökunum, endurskipulagt hann og byggt hann upp frá grunni?  Mér sýnist það vera það eina í stöðunni núna. Við þekkum það að það getur stundum verið það besta sem getur komið fyrir áhugalaus lið að falla um deild. 

Sigurður Þórðarson, 18.2.2009 kl. 13:37

78 Smámynd: ThoR-E

Sigurður: Það má vera, þótt vissulega yrði það mjög leitt að hafa ekki Frjálslyndaflokkinn á þingi.

En ef þessi forysta fer fram í kosningunum og flokkurinn dettur út, að þá er það náttúrulega ekkert annað en algjör endurnýjun sem yrði í flokknum og forystu hennar.

En ég held að við eigum meira inni en 2% ... ég spái að flokkurinn nái 4 mönnum inn. Vona síðan að það gangi eftir :)

ThoR-E, 18.2.2009 kl. 14:00

79 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Ace, það þyrfti þá aldeilis að bretta upp ermar og það ekki seinna en í gær en það er ekkert verið að gera og engin áætlun til. Það er því eins gott að fara að huga að næsta tímabili. 

Sigurður Þórðarson, 18.2.2009 kl. 14:17

80 Smámynd: ThoR-E

Það er reyndar alveg rétt.  Í gær eða í fyrradag.

Kosningarnar nálgast með ógnarhraða... og ekkert er að gerast...

Vonbrigði ... :(

ThoR-E, 18.2.2009 kl. 14:25

81 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Ace, þú getur reynt að draga af þeim sængina.

Sigurður Þórðarson, 18.2.2009 kl. 14:48

82 identicon

Sigurður Þórðar.

Hvað viljið þið nákvæmlega gera?

þið talið að ekkert er að gerast en þið hafið heldur enginn svör séuð þið spurð að því. þið eruð bara eins og núverandi ríkisstjórn, viljið breytingar en vitið ekkert hvað þið eigið að gera....

þið bara talið en framkvæmið ekki....meira ruglið.

Tómas Sigurðs. (IP-tala skráð) 18.2.2009 kl. 17:25

83 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Tómas, þú ættir að kynna þér málefnaskrá Frjálslynda flokksins.

Sigurður Þórðarson, 18.2.2009 kl. 19:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Guðsteinn Haukur

Guðsteinn Haukur Barkarson
Guðsteinn Haukur Barkarson

"Our life is a gift from God,
what we do with that life,
is our gift to God"

Höf. óþekktur

Sjá höfundasíðu fyrir ákveðna skilmála og upplýsingar um bloggarann 

Önnur snilld...

Hvaða þjóðir heimsækja þetta blogg?

free counters

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 27
  • Frá upphafi: 587832

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Skoðanna könnun

Á að aðskilja ríki og kirkju?

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband