Góðar stundir ...

SöknuðurÉg hef ákveðið að fara ótímabundið bloggfrí. Undanfarnar vikur hafa orðið miklar breytingar á mínu starfi og hef ég ekki lengur tíma til þess að sinna blogginu lengur. Ég er ekki hættur, alls ekki en vegna mikilla anna verð ég að taka mér frí. Undecided

Ég get ekki einu sinni svarað athugasemdum lengur við færslur hjá mér vegna tímaskorts. Crying Ég mun samt fylgjast með og mun gera nokkrar athugasemdir annað slagið. Og með vorinu kem ég aftur galvaskur og mun halda samsýningu með nokkrum frábærum listamönnum hér á blogginu. Cool

Ég vil þakka ykkur öllum sem hafa lagt leið sína hingað og sýnt málefnum mínum áhuga.

Ég kveð ykkur með þessum orðum:

Jóhannesarguðspjall 11:25-26

25 Jesús mælti: ,,Ég er upprisan og lífið. Sá sem trúir á mig, mun lifa, þótt hann deyi.
26 Og hver sem lifir og trúir á mig, mun aldrei að eilífu deyja. Trúir þú þessu?`` 

Takk fyrir allt allir! Heart

Með Guðs blessun,

Guðsteinn Haukur Barkarson Hansen


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Ha´det godt í fríinu og ekki vinna yfir þig....það er ekki smart ! Hlakka til að lesa meira með hækkandi sól og minnkandi snjó!

bestu kveðjur!

Sunna Dóra Möller, 23.1.2008 kl. 22:47

2 identicon

Gangi þér vel í amstrinu . Hvaða mynd er með þessu bloggi eiginlega ?

Tár sjálfstæðismannsins kannski ? k.v Conwoy 

conwoy (IP-tala skráð) 23.1.2008 kl. 22:50

3 Smámynd: Linda

Gott að hafa nóg að gera í vinnunni þannig á það líka að vera, að fá borgað fyrir ekkert er eins og að stela.  Knús krútt.

Linda, 23.1.2008 kl. 22:51

4 Smámynd: Kjartan Guðmundur Júlíusson.

Ég trúi. hef alltaf gert og mun alltaf.

Hef alltaf verið trúaður en trúi ennþá meira sérstaklega eftir að faðir minn fór úr þessum heimi árið 2005.Gæti skrifað af hverju en ætla ekki að gera það núna. Vertu blessaður og hafðu það gott. 

Kjartan Guðmundur Júlíusson., 23.1.2008 kl. 22:52

5 Smámynd: Theódór Norðkvist

Ég þakka þér sömuleiðis fyrir ánægjuleg samskipti. Þetta er skynsamleg ákvörðun. Mér finnst bloggið hafa orðið meiri tímaþjófur en ég átti von á, hvað mig varðar.

Heyrumst síðar, hvenær sem það verður.

Theódór Norðkvist, 23.1.2008 kl. 22:53

6 Smámynd: Theódór Norðkvist

PS Í tilefni af innleggi Valgeirs, þá væri gaman ef þú laumaðir inn einni og einni færslu. Það dreifir huganum, sem getur verið gott stundum.

Theódór Norðkvist, 23.1.2008 kl. 22:57

7 identicon

hmmm ég fæ snert af dejavu hér :)
Hafðu það sem best.

DoctorE (IP-tala skráð) 23.1.2008 kl. 22:59

8 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Gangi þér vel í verkefnum þínum.  Þú lætur okkur svo frétta af þessari sýningu sem þú ert að tala um.

Ásdís Sigurðardóttir, 23.1.2008 kl. 23:10

9 Smámynd: Theódór Norðkvist

Smá málræktarátak:

...mun gera nokkrar athugasemdir annað slagið, ekki annars lagið.

En ágætt að þú sért ekki alveg horfinn, mér yfirsást þetta þegar ég kom með fyrri athugasemdir mínar.

Theódór Norðkvist, 23.1.2008 kl. 23:24

10 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæll kæri Guðsteinn. Ekki gleyma okkur alveg.  

Guð blessi þig kæri vinur og fjölskyldu þína.

Starfið er margt, en eitt er bræðrabandið,

boðorðið, hvar sem þér í fylking standið,

hvernig sem stríðið þá og þá er blandið,

það er: að elska, byggja og treysta á landið.

Höf: Hannes Hafsteinn: Aldamótin.

Rósa Aðalsteinsdóttir, 24.1.2008 kl. 00:12

11 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Jóhannesarguðspjall 11:25-26

 Þessi háheilagi texti er til spari og er helst notaður við jarðarfarir en ekki smá bloggfrí. 

 Fyrirgefðu  umvöndunina og það frá mér heiðingjanum en auðvitað verður þín sárt saknað í bloggfríinu en kosturinn er þó sá að við höfum eitthvað til að hlakka til. 

Bestu kveðjur á meðan.

Sigurður Þórðarson, 24.1.2008 kl. 00:12

12 identicon

Sæll Guðsteinn.

Ekki lái ég þér það ,að taka smá "rest" ,því það er búið að vera þvílík orrahríðin á þér á köflum og líka ofsafjör og þannig á það að vera .Vonandi kemur þú tvíelfdur til baka. Gangi þér vel að hvílast.

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 24.1.2008 kl. 04:01

13 Smámynd: Flower

Ég mun vissulega sakna þín meðan þú ert í þessu fríi Haukur en það þýðir kannski ekki að segja það þar sem þú lest ekki athugasemdirnar  

Flower, 24.1.2008 kl. 13:03

14 Smámynd: Margrét St Hafsteinsdóttir

Gangi þér sem allra best með allt sem þú ert að fást við og endilega láttu sjá þig hérna þegar þú getur. Þín verður saknað þrátt fyrir að það séu ekki allir þér sammála um þínar skoðanir og þá sérstaklega varðandi þúveisthvaðégávið málin En hafðu það sem best minn kæri og knús til þín

Margrét St Hafsteinsdóttir, 24.1.2008 kl. 17:47

15 Smámynd: Eiríkur Ingvar Ingvarsson

Hvað er þetta með þig og blogg-frí.

Lykil spurning hér áður en yfir og út. Hvernig gengur að hætta að reykja?

Þar sem þinn listi er nú við völd þá legg ég á og mæli um...Ekki ganga hálfa leið, farðu alla leið....

Eiríkur Ingvar Ingvarsson, 24.1.2008 kl. 18:01

16 Smámynd: www.zordis.com

Við vinnum til að lifa en lifum ekki til að vinna!  Farðu varlega kæri og njóttu alls hins besta á meðan þú þrælar þér út!

www.zordis.com, 24.1.2008 kl. 20:01

17 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Eiríkur, það er gott að við vinir guðsteins veitum honum jákvæða hvatningu í reykbindinu.  Þar sem hann er  í bloggfríi gerist ég svo framhleypinn að svara hérna. Síðast þegar ég heyrði í Guðsteini  var hann  ósprunginn.   Hann er reyndar með einhver  "hjálparefni "  (bévít. nikotín) en ég myndi ekki fara þá leið sjálfur.  En ef þetta tekst er ég ánægður fyrir hans hönd. 

Sigurður Þórðarson, 24.1.2008 kl. 23:21

18 Smámynd: Úlfar Þór Birgisson Aspar

Heillaóskir Guðsteinn og guð veri með þér og þínum.

Úlfar Þór Birgisson Aspar, 24.1.2008 kl. 23:31

19 identicon

Heill og sæll, Guðsteinn og aðrir skifarar !

Tek undir; með allmörgum skrifaranna hér. Hvet þig til, að koma skjótt, að nýju. Reyni; eftir föngum, að lesa greinar þínar, sem ég má, sökum allt of knapps tíma. Þetta kemur, með ellinni Guðsteinn minn, nægur tími, þegar ruggustólaaldurinn nálgast okkur, að nokkru.

Með beztu kveðjum / Óskar Helgi Helgason

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 24.1.2008 kl. 23:38

20 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Úlfur, úlfur!

Jón Steinar Ragnarsson, 25.1.2008 kl. 00:00

21 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Kæri Guðsteinn. Guð veri með þér og fjölskyldu þinni. Gangi þér vel og við verðum í sambandi. Vona að það komi  færsla annað slagið, bara til að hressa uppá okkur bloggvini þína. Annars þurfum við sennilega á áfallahjálp að halda.   

Rósa Aðalsteinsdóttir, 25.1.2008 kl. 00:13

22 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Takk allir, en varðandi reykingarnar þá er ég hættur og hefur gengið afar vel. En Jón Steinar  ... úlfur, úlfur... rétt er það og skil ég vel þá athugasemd (sem ég les víst kæra flower!) En ég þakka öllum kveðjurnar og ég sé ykkur seinna um bloggheima!

Mbk,

Guðsteinn Haukur Barkarson, 25.1.2008 kl. 08:41

23 Smámynd: Sigurlaug B. Gröndal

Hafðu það gott, vinur minn. Ég á eftir að sakna bloggsins. Vonandi hefurðu tök á að henda inn einni og einni færslu svo ég viti hvernig þú hafir það. Með bestu kveðju og óskir um gott gengi.

Sigurlaug B. Gröndal, 25.1.2008 kl. 08:47

24 Smámynd: Ragnar Kristján Gestsson

Við erum hlutar sama líkama: var, er og verður gott að lesa þig annað veifið.  Gangið þér allt í haginn í nýja starfinu.

Ragnar Kristján Gestsson, 25.1.2008 kl. 18:06

25 Smámynd: Guðrún Sæmundsdóttir

hæ kæri vinur, vá hvað ég er stolt af þér með að vera hættur að reykja þú getur þetta alveg! Það er í fínu lagi að nota hækjur á meðan að versta fráhvarfið gengur yfir. Áfram Haukur! Áfram Haukur! Þú getur þetta!

Guðrún Sæmundsdóttir, 26.1.2008 kl. 06:44

26 Smámynd: Gunnar Páll Gunnarsson

See u later aligaitor.

Gunnar Páll Gunnarsson, 26.1.2008 kl. 13:37

27 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

hafðu það gott í fríinu !

Bless

steina 

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 26.1.2008 kl. 13:51

28 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

See You Later, Alligator 

Gunnar Helgi Eysteinsson, 26.1.2008 kl. 14:53

29 Smámynd: Adda bloggar

kær kv til þín haukur minn!kv þín vinkona adda.

Adda bloggar, 26.1.2008 kl. 23:46

30 Smámynd: Vendetta

Sjáumst.

Vendetta, 28.1.2008 kl. 09:32

31 Smámynd: Magnús Paul Korntop

Hafðu það gott í fríinu og komdu aftur þegar þú ert tilbúinn,hef gaman af að lesa færslurnar þínar þó ég kommenti ekki á allar en það er vegna þekkingarskorts á málefninu í hvert skipti.

Vonandi gengur reykbindindið vel kæri vinur en hafðu það gott og farðu vel með þig.

Magnús Paul Korntop, 28.1.2008 kl. 17:06

32 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Hafðu það gott í bloggfríinu Guðsteinn minn. Gangi þér allt í haginn.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 28.1.2008 kl. 18:01

33 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Takk fyrir falleg orð, Guð leiði þig og þína.

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 29.1.2008 kl. 12:18

34 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Hafðu það gott í fríinu. Ætlaði bara að spyrja um hvernær við höldum sýninguna á blogginu, en sá svarið hér að ofan að það verður með vorinu.

Svava frá Strandbergi , 5.2.2008 kl. 17:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Guðsteinn Haukur

Guðsteinn Haukur Barkarson
Guðsteinn Haukur Barkarson

"Our life is a gift from God,
what we do with that life,
is our gift to God"

Höf. óþekktur

Sjá höfundasíðu fyrir ákveðna skilmála og upplýsingar um bloggarann 

Önnur snilld...

Hvaða þjóðir heimsækja þetta blogg?

free counters

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 587745

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 18
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Skoðanna könnun

Á að aðskilja ríki og kirkju?

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband