Til hamingju Reykvíkingar

Þetta var virkilega sterkur leikur hjá Ólafi F. hann var hvort eð er í sömu stöðu Bingi fyrir síðustu stjórnarslit. Nú fær Frjálslyndiflokkurinn loks tækifæri til þess að sýna hvað í honum býr!

Til hamingju Reykvíkingar með nýjan meirihluta! Wizard


mbl.is Ingibjörg Sólrún: telur nýjan meirihluta óstarfhæfan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hvað kemur Frjálslyndiflokkurinn þessu við....?

Steindór (IP-tala skráð) 22.1.2008 kl. 10:55

2 Smámynd: Flower

Það er s.s auðvitað að þú fagnar þessu Haukur en ég er fegin að búa ekki í Reykjavík. Mér líst ekkert á þetta brölt hjá þeim, þeir virðast bara sjá völdin en ekki hagsmuni borgarbúa og það er ekki mjög traustvekjandi.

Flower, 22.1.2008 kl. 12:14

3 Smámynd: halkatla

tek algerlega undir með Flower, þetta er mesta spilling í stjórnmálum sem Ísland hefur nokkru sinni orðið vitni að.

"Ólafur F er ekki vitgrannur þó þessi liðsfórn hans til tímabundins ávinnings í pólitísku valdatafli sé algerlega siðlaus fyrir margar sakir. "

þessari setningu stal ég hjá Svani lækni hér á blogginu, hún segir allt sem segja þarf um Ólaf F, því miður. Þetta verður til þess að hinn almenni kjósandi treystir þeim sem bendla sig við frjálslynda (sem óháðir væru) ekki framar... skil ekkert í þér að fagna þessu Guðsteinn.

halkatla, 22.1.2008 kl. 12:23

4 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæl öll. Meirihlutinn sem nú er allur var hrikaleg samsuða. Rei málið var hrikalegt spillingarmál og þar var Björn Ingi í fararbroddi og ætlaði að verlauna fullt af Framsóknamönnum fyrir dyggð við hann eins og kosningastjóra hans sem er héðan frá Vopnafirði af öllum stöðum á landinu.  Svandís vann ötullega gegn þessari spillingu. Fljótlega voru þau Björn Ingi komin í eina sæng ásamt Dag og Margréti Sverrisdóttir. Get ekki ímyndað mér að það hafi verið ljúft.

Rósa Aðalsteinsdóttir, 22.1.2008 kl. 13:31

5 identicon

Þetta er sorglegt, það er sorglegt hvernir er komið fyrir stjórnmálamönnum þessarar þjóðar, ÞEIM ÖLLUM

DoctorE (IP-tala skráð) 22.1.2008 kl. 14:13

6 Smámynd: Eiríkur Ingvar Ingvarsson

Ég veit ekki hvað skal segja...Ég er með dálítið súrt bragð í munninum...Ég kaupi mér aldrei neitt súrt.

Ég gleðs yfir falli Rei listans en ég er ekki sáttur við mína menn.

Eiríkur Ingvar Ingvarsson, 22.1.2008 kl. 15:58

7 Smámynd: Theódór Norðkvist

Ég samhryggist borgarbúum að lýðræðið sé fótum troðið. Maður sem 5% atkvæðisbærra borgarbúa treysta til pólitískra ábyrgðarstarfa er nú orðinn borgarstjóri.

Theódór Norðkvist, 22.1.2008 kl. 17:28

8 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson


Gunnar Helgi Eysteinsson, 22.1.2008 kl. 17:46

9 Smámynd: Halla Rut

Þeir fengu nú rúm 10% sem er um 4% meira en Framsóknarflokkurinn. 

Halla Rut , 22.1.2008 kl. 17:48

10 Smámynd: Theódór Norðkvist

Afsakaðu Halla, minnti að þeir hefðu minna fylgi. Það breytir ekki því að 90% borgarbúa kusu ekki FF.

Ég gagnrýndi líka að Framsóknarflokkurinn hefði völd langt umfram fylgi, en bendi á að borgarstjórastjóllinn er æðsta valdastaða borgarkerfisins og æskilegra að því gegni stjórnmálamaður með meira fylgi á bak við sig.

Theódór Norðkvist, 22.1.2008 kl. 17:56

11 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Ef það er einhver sem er ekki tækifærissinni í þessu máli þá er það Ólafur F. Magnússon. Verkefnaskrá meirihlutans er nánast kópía af stefnuskrá Frjálslyndra. Þessum málum ver ekki hægt að ná fram í fráfarandi meirihluta og því var Ólafur að leggja allt í sölurnar til að efna kosningaloforð.

Sigurður Þórðarson, 22.1.2008 kl. 18:43

12 Smámynd: Theódór Norðkvist

Ólafur F. hefur ekki bara komið aftan að samstarflokkum sínum, heldur sínum eigin flokki!

Er hægt að treysta svona manni til að stýra höfuðborg landsins? Hvern stingur hann næst í bakið?

Vilhjálmur hefur gerst sekur um stórkostlegt dómgreindarleysi í REI-málinu og skipar síðan sjálfan sig sem borgarstjóra í þessu vanheilaga bandalagi við Ólaf.

Ekki líst mér vel á þetta gengi sem hefur rænt völdum í borginni. 

Theódór Norðkvist, 22.1.2008 kl. 21:38

13 Smámynd: Calvín

Það er best að hafa sem fæst orð um þennan gjörning í borgarstjórn Reykjavíkur. Hann á ekki eftir að vera neinum til heilla því miður.

Calvín, 22.1.2008 kl. 21:47

14 Smámynd: Linda

Ég átti ekki til orð, og á nokkur núna en læt þau ekki á borð hér, ég er sjúklega leið á þessu veseni hér í borginni og ég sé enga hamingju í þessu heldur upplausn.  Ég er svo glöð að ég er hætt að pæla í þessari svikastarfsemi sem pólitík er.

Sam, Sjálf, fram,Frjáls eða Vg þá er þetta allt sama hyskið. það mætti ætla að það væri ekki fullorðin fólk á meðal þeirra...

ok búin að æsa mig. 

Linda, 22.1.2008 kl. 22:04

15 identicon

Sæll Guðsteinn minn.

Ofsalegri farsi  hefur aldrei komið upp í Íslenskum Borgarstjórnarmálum.En ég ætlaði að leiðrétta þig. Frjálslyndi flokkurinn,sama hvernig maður lítur á málið á bara engann fulltrúa í fyrstu sætin.Meira segja Ólafur er ekki í Frjálslynda flokknum og ekki styðja Varaboragarfulltrúi Ólafs og varamaður hennar,Háttvirtan  Ólaf.Ég á eftir að skrifa um þetta GERRÆÐI í Íslenskri Pólitík. Hugsaðu ,að þegar Ólafur er að mynda þessa stjórn þá HUNSAR HANN SINN VARABORGARFULLTRÚA með því að láta hana ekki vita NEITT hvað væri í aðsigi.

.Er nokkur hissa á því að hún hafni honum  og þó grátið sé Krókadílatárum. EKKI ég og  það er eitthvað stórlega mikið að í okkar stjórnmálum.

Þetta er ekki vegna HUGSJÓNA,  HELDUR er þetta GRÆÐGI í VÖLD. Ég held að Ólafur eigi ekki frið í vændum.Ég er ekki að segja að framferði hinna sé skárra.

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 23.1.2008 kl. 01:23

16 Smámynd: Úlfar Þór Birgisson Aspar

Nú eru komnir 3 borgarstjórar á laun ykkar Reykvíkinga,einn ríkjandi Borgarstjóri og 2 á biðlaunum.Það veit ekki á gott að bruðla svona með fé Borgarbúa.

Og eins og ég sé þetta þá er ég sammála ykkur um að hagur Reykvíkinga hefur ekkert lengur með neitt að gera,þetta snýst allt um að koma sér að og fá sitt sama hvað það kostar.Það komast engin mál í gegn ef alltaf er núll staða og nýr meirihluti verður ekkert öfundsverður svo rúinn trausti sem hann og er.

Úlfar Þór Birgisson Aspar, 23.1.2008 kl. 06:09

17 Smámynd: halkatla

það er mjög ósmekklegt að troða stefnumálum frjálslyndra á alla borgarbúa (enn skrítnara að frjálslyndir tali um það einsog eitthvað sem er jákvætt og eðlilegt!) og hvað þá undir þessum aðstæðum og ég skil bara ekkert í frjálslyndum að fagna þannig kúgun og óréttlæti - þeir hafa engan rétt til þess með sitt litla fylgi (og varamennirnir fylgja honum ekki einu sinni enda talaði enginn við þá) þetta er nýjasta hneykslismálið í frjálslyndaflokknum sem á stuttum tíma hefur næstum náð Framsókn hvað spillingu varðar. Hinsvegar vorkenni ég Ólafi í dag, hann er rúinn öllu trausti og maður hélt að þetta væri fínasti maður... hann verður að bakka og biðjast afsökunar ef hann á að vaxa í áliti á ný.

halkatla, 23.1.2008 kl. 08:59

18 Smámynd: Vendetta

Anna Karen, hefur þú séð eitthvað jákvætt við fráfarandi stjórn með Dag í fararroddi? Ekki ég. Þegar ég hugsa um Binga, Dag, Björk og Margréti, þá sé ég fyrir mér úldin hræ, eiginhagsmunaseggi, sem lyftu ekki fingri í rúmlega 3 mánuði, en voru alveg gífurlega ánægð með sjálfa sig. Algjörir viðvaningar.

Og þegar þessi Tjarnarkvartett er að gagnrýna Villa og Ólaf fyrir bolabrögð, þá eru þau að kasta grjóti úr glerhúsi. Þeim fannst allt í lagi að stinga undan Villa sl. október, þá var allt í lagi, þótt þau hafi einungis sólgzt etir völdum, engu öðru.

Þótt ég sé lítið gefinn fyrir Íhaldið, þá getur ekkert orðið verra en það sem var áður. Eða þar áður. Að geta hrakið ófétið Björn Inga frá völdum var gjöf frá æðri máttarvöldum til Reykvíkinga. En væntanlega munu næstu kosningar árið 2010 skýra línurnar. Þá munu kannski bara tveir flokkar fá inni í borgarstjórn, S og D.

Vendetta, 23.1.2008 kl. 14:58

19 Smámynd: Ingvar Valgeirsson

Þórarinn - "Þetta er ekki vegna HUGSJÓNA,  HELDUR er þetta GRÆÐGI í VÖLD."

Ólafi hefur varla verið stætt á að hafna tilboðinu um borgarstjórastólinn - sá sem slíkt myndi gera hefði ekkert erindi í pólítík. Svo eru mjög greinileg fingraför hans á málefnaskrá hins nýja meirihluta, sem sýnir að hann er engin "tík" Sjálfstæðismanna.

Og talandi um málefnaskrá, þá hefur nýji meirihlutinn eina slíka, sem er meira en segja mátti um fráfarandi borgarstjórn. Þeir voru snöggir að setja í ráð og nefndir og koma sér vel fyrir við katlana, en eftir rúma þrjá mánuði örlaði ekki á málefnaskrá.

Ingvar Valgeirsson, 23.1.2008 kl. 16:53

20 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Það á eftir að koma í ljós hvernig þessi mál enda.

Ásdís Sigurðardóttir, 23.1.2008 kl. 21:40

21 Smámynd: Magnús Paul Korntop

Gefum þessum meirihluta tækifæri til að sanna sig áður en við dæmum en ég vil benda ykkur á að lesa grein mína um þessi mál á blogginu mínu og hef ekkert við það að bæta hér.

Magnús Paul Korntop, 28.1.2008 kl. 17:23

22 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tek undir þessar hamingjuóskir.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 28.1.2008 kl. 18:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Guðsteinn Haukur

Guðsteinn Haukur Barkarson
Guðsteinn Haukur Barkarson

"Our life is a gift from God,
what we do with that life,
is our gift to God"

Höf. óþekktur

Sjá höfundasíðu fyrir ákveðna skilmála og upplýsingar um bloggarann 

Önnur snilld...

Hvaða þjóðir heimsækja þetta blogg?

free counters

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 28
  • Frá upphafi: 587833

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 27
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Skoðanna könnun

Á að aðskilja ríki og kirkju?

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband