Tilgangur lífsins?

Í tilefni þess að Jóhanna vinkona skrifaði stutta grein um „tilganginn", þá varð það til þess að hennar orð veittu mér innblástur til þess að fara blogga aftur.

Jóhanna fer mjúku leiðina að þessu og talar um góðverk og þess háttar, allt þetta sefar sálartetrið og gefur hverjum manni þá sálarró og ánægju sem allir þurfa til þess að upplifa sanna ánægju. En hvaða svar er til þá við þessari stóru spurningu? Þ.e.a.s. tilgangi lífsins? Og hvar kemur kristinn trú þarna inn í mitt líf?

Elskaðu náunga þinn eins og sjálfan þig

VonSagði Jesús á sínum tíma, og held ég að tilgangur lífsins sé að megin hluta vegna þeirra ástar sem við búum yfir. En hver er sú ást? Er hún aðeins til maka, foreldra, barna og nánustu vina? Nei, það er ekki svo einfalt. Við verðum að læra að náungi okkar getur verið hver sem er. Það skiptir ekki máli í hvaða flokki hann er, hvaða íþróttafélag hann styður, eða hvaða trúar hann er. Náungi okkar er sá sem við mætum á götunni. Hann er sá sem við situr við hliðina á þér í strætó, eða jafnvel manneskjan í næsta bíl við þig. Ef einhver er í neyð, skaltu ætíð spyrja þig: „hvernig myndi ég vilja að komið væri fram við mig í þessari aðstöðu?" Fleira má sjálfsagt tína til, því mörg eru dæmin, en þið skiljið vonandi hvað ég er að fara. Horfum ekki framhjá neyð náunga okkar, öll erum við af sama stofni.

Til kristinna manna

Ég er enginn engill, og er syndum hlaðinn eins og allir aðrir. Ég hef alveg gerst sekur um allskyns tillitsleysi til náunga míns. En hvernig má lagfæra vandamálið?

Charles F Banning ritaði eitt sinn:

„Við erum allt of mörg sem höfum kristilegan orðaforða, fremur en góða kristilega reynslu."

Er það ekki málið? Eigum við sem kristin eru ekki að vera fyrirmynd af trú okkar? Er það ekki á okkar ábyrgð að koma fram af kærleika og ást? Gerum við slíkt bara á sunnudögum? (eða á laugardögum, ef það virkar betur) Nei! Við getum gert betur og hvet ég alla kristna sem ókristna sem þetta lesa að gera betur. Því ekki er þetta flókið, og sér í lagi á erfiðum tímum eins og Ísland hefur fengið yfir sig vegna heimskulegra verka nokkrar siðspilltra mammóns dýrkenda.

Boðskapurinn er einfaldur, og aðferðin einföld. Elskum náunga okkar eins og við sjálf ættum í hlut, það tel ég vera tilgang lífsins og allt annað er bara lífið sjálft. Það er að minnsta kosti mín skoðun. Cool

Góðar stundir.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Mofi

Sjálfselska er kannski ástæðan fyrir að ég sé þetta aðeins öðru vísi. Fyrir mig er það sú trú að það sem ég geri í þessu lífi hafi alvöru afleiðingar. Ef að þetta líf er það eina og síðan allt búið þá finnst mér allt sem ég gæti fræðilega séð afrekað vera tilgangslaust.

En gefandi okkur þá forsendu að þetta líf er ekki það eina þá er ég sammála þér; einu alvöru afleiðingarnar sem eru einhvers virði komu frá því að sýna öðrum umhyggju. Hérna finnst mér okkar íslensku gen og uppeldi vera hindrun því að við erum því miður frekar köld þjóð. En því meiri áskorun fyrir okkur sem kalla sig kristna að fara út fyrir okkar þægindi svæði og feta í fótspor Krists.

p.s. já, það virkar betur ;)

Mofi, 3.2.2010 kl. 11:54

2 Smámynd: Flower

Varðandi kristna orðaforðann þá er hann haldslítill einn og sér þegar Guð sér alltaf það sem fyrir innan býr.

Flower, 3.2.2010 kl. 12:10

3 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Dóri - ég held að við séum meira sammála en við gerum okkur grein fyrir í þetta skiptið. (kominn tími til)

Flower - einmitt, en verkin verða einnig að fylgja orðunum. 

Guðsteinn Haukur Barkarson, 3.2.2010 kl. 12:32

4 Smámynd: Vendetta

Gott kvöld, Guðsteinn

Ég veit, að við erum engir skoðanabræður, en ég vil samt leggja orð í belg sem ókristileg persóna. Í mínum huga eru tvö svör við spurningunni "hver er tilgangur lífsins?":

  • Að fæðast, eignast börn og deyja.
  • Lífið hefur engan tilgang.

Þessar tvær kenningar eru fullkomlega samræmanlegar.

En svo ég nú víki að öðru:

  1. Þú ert ekki syndugur, Guðsteinn.
  2. Enginn fæðist syndugur. Það er hrein della.
  3. Þeir sem ekki trúa á synd skv. trúarbrögðum eru ekki syndugir, hvorki í augum sjálfs síns né annarra sem heldur ekki trúa á synd.

Ég læt hér staðar numið í bili.

Vendetta, 3.2.2010 kl. 22:33

5 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Sæll Vendetta, nú þekki ég kauða!

Ég ætla að taka heiðarlega tilraun til þess að svara þér.

Þú segir:

  • Að fæðast, eignast börn og deyja.
  • Lífið hefur engan tilgang.

En dapurlegt ... þá vel ég frekar trúnna ef þetta er svona einfalt!

Og heldur svo áfram:

Þú ert ekki syndugur, Guðsteinn.

Víst! En þú átt sjálfsagt við erfðasyndina, sem ég veit ekki hvað á að halda um.

Enginn fæðist syndugur. Það er hrein della.

Veit ekki.

Þeir sem ekki trúa á synd skv. trúarbrögðum eru ekki syndugir, hvorki í augum sjálfs síns né annarra sem heldur ekki trúa á synd.

Er þá synd ekki til samkvæmt þinni skilgreiningu? Er hún aðeins til út frá sjónarhóli trúarinnar? ... hmm ... ef svo er ertu þá ekki að gelda siðferði almennt? Ég meina ef enginn gerir neitt rangt, og allir fastir í hlutlausum þá má segja að það sé heldur ekki til rétt eða rangt. Eða hvað? Er ég að misskilja þig?

Guðsteinn Haukur Barkarson, 3.2.2010 kl. 22:59

6 Smámynd: Vendetta

Nei, nei.

En dapurlegt ... þá vel ég frekar trúna ef þetta er svona einfalt! (Ath. eitt n í trúna) 

Já, en þótt tilgangur lífsins sé mjög einfaldur og dauðinn sé líka einfaldur fyrir þá sem ekki hræðast hann, þá er lífið sjálft mjög flókið. Alveg eins og náttúran sjálf, sem hefur þróazt yfir tugi milljóna ára, er mjög flókin, en alls ekki óskiljanleg, þökk sé vísindalegum rannsóknum. Og fyrst það er ekkert líf eftir dauðann, þá er mikilvægt að njóta lífsins út í yztu æsar og aðstoða aðra við að gera hið sama.

Veit ekki.

Ég veit það. Allir fæðast saklausir. Að vísu fæðast sumir stórgallaðir, en samt saklausir.

Er þá synd ekki til samkvæmt þinni skilgreiningu? Er hún aðeins til út frá sjónarhóli trúarinnar? ... hmm ... ef svo er ertu þá ekki að gelda siðferði almennt? Ég meina ef enginn gerir neitt rangt, og allir fastir í hlutlausum þá má segja að það sé heldur ekki til rétt eða rangt. Eða hvað? Er ég að misskilja þig?

Hugtakið synd er óskilgreint, eða hver og einn getur skilgreint það eftir hentugleika. Mundu, að skilgreiningin á hugtakinu "guðlasti" er "þín óvirðing fyrir mínum guði".

Synd eða ekki synd hefur ekkert með siðferði að gera. Það hefur heldur ekkert með þau huglægu hugtök rétt og rangt eða gott og illt að gera. Synd er hugtak, sem þeir sem skrifuðu gamla og nýja testamentið fundu upp til að réttlæta kúgun á almúganum og þess vegna hefur þetta hugtak enga meiningu fyrir aðra en þá sem trúa á þannig rit (Biblíuna eða Kóraninn) en er innihaldslaust orð. Þess vegna er heldur engin tenging milli þessa orðs og hvort fólk gerir eitthvað rétt eða rangt. Hugtökin rangt og rétt, gott og illt eru líka skilgreind mismunandi og hafa mismunandi þýðingu í mismunandi þjóðfélögum. Og þar eð þau eru ekki einhlít, hefur verið nauðsynlegt að setja um það lög og reglur.

Og hvort einhver hafi "syndgað gegn Jehóva" eða "syndgað gegn biblíunni" er einkamál trúaðra kristinna og kemur öðrum ekki við, þar eð orðið "syndga" er ekki skilgreint hjá öðrum.

Ekki frekar en hugtökin "mannlegt jafnvægi" og "sameiginleg vitund" eiga sér enga stoð í raunveruleikanum og eru heldur ekki skilgreind. Það hefur hins vegar ekki komið í veg fyrir, að þessar klisjur séu notaðar af fólki sem gerir í því að græða á fávizku annarra.

Ég vona, að þetta hafi svarað þeim spurningum sem hafa brunnið á vörum þínum

Vendetta, 4.2.2010 kl. 17:52

7 Smámynd: Vendetta

Afsakaðu tvöfalda neitun í þriðju síðustu málsgrein.

Vendetta, 4.2.2010 kl. 17:55

8 Smámynd: Mofi

Vendetta
Þeir sem ekki trúa á synd skv. trúarbrögðum eru ekki syndugir, hvorki í augum sjálfs síns né annarra sem heldur ekki trúa á synd.

Þar sem synd er Biblíulegt hugtak þá er best að leyfa henni að skilgreina hvað hún meinar:

Fyrsta Jóhannesarbréf 3
4
Hver sem drýgir synd fremur lögmálsbrot. Syndin er lögmálsbrot.

Þaf af leiðandi, ef þú hefur stolið, logið, vanvirt foreldra þína eða drýgt hór þá hefur þú syndgað. Frekar einfalt en líka mjög auðvelt að flækja þetta.

Vendetta
Og fyrst það er ekkert líf eftir dauðann, þá er mikilvægt að njóta lífsins út í yztu æsar og aðstoða aðra við að gera hið sama

Tvennt:

  1. Hvað ef þú getur ekki notið lífsins?
  2. Hvað ef að hamingja annara stendur í vegi fyrir þinni hamingju?

Gaman samt að sjá að þú áttar þig á því að í guðlausum heimi er enginn alvöru tilgangur með lífinu en má ég spyrja þig, er það virkilega þannig sem þú upplifir tilveruna? 

Mofi, 4.2.2010 kl. 19:03

9 Smámynd: Vendetta

Þér skjátlast, ef þú heldur að ég trúi ekki á guð. Ég trúi á guð eða guði sem skóp aðdraganda að miklahvelli sem var upphaf þróunarinnar í þessum alheimi. Svipað hefur án efa gerzt einnig í öðrum alheimum. Þessi guð (eða guðir) hafa ekki hugmynd um líf á þessari jörð, sem er svo lítil, að þeir sjá hana ekki og þess vegna er tilgangslaust að tilbiðja hann (eða þá).

Ég trúi ekki á líf eftir dauðann, því að það er ekki í rökréttu samhengi við raunveruleikann, það gengur einfaldlega ekki upp. Sannfæring mín um að það sé ekkert líf eftir dauðann hefur skapað mikla ró í huga mér.

Það eru margar ástæður fyrir því að fólk trúir á famhaldslíf. Ein af þessum ástæðum er að það getur ekki sætt sig við að öllu sé lokið hvað varðar einstaklinginn. En aðrir lifa þó áfram þangað til þeir deyja líka. Þessi hluti mannsins semá skv. sumum kenningum að lifa áfram eftir dauðan, sálin eða andinn, er ekkert annað en eðlileg starfsemi heilans. Þegar jarðneski líkaminn deyr, þá deyr heilinn líka og þar með "sálin". En nú erum við komnir út fyrir efnið. Ef ég stoppa ekki núna held ég áfram að skrifa til eilífðarnóns.

Vendetta, 4.2.2010 kl. 20:12

10 Smámynd: Vendetta

Ég ætla að endurtaka síðasta hlutann, það komu nokkrar copy-paste villur:

Það eru margar ástæður fyrir því að fólk trúir á famhaldslíf. Ein af þessum ástæðum er að það getur ekki sætt sig við að öllu sé lokið hvað varðar einstaklinginn. En aðrir lifa þó áfram þangað til þeir deyja líka. Þessi hluti mannsins, sem skv. sumum kenningum átti að geta lifað áfram eftir dauðann, þ.e. sálin eða andinn, er ekkert annað en eðlileg starfsemi heilans. Þegar jarðneski líkaminn deyr, þá deyr heilinn líka og þar með "sálin". En nú erum við komnir út fyrir efnið. Ef ég stoppa ekki núna held ég áfram að skrifa til eilífðarnóns.

Vendetta, 4.2.2010 kl. 20:16

11 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Vendetta - ég sé nú að okkar skoðanir eru barasta ekkert ósvipaðar. Nema hvað að ég geng skrefinu lengra. Það er flott!

Ef ég stoppa ekki núna held ég áfram að skrifa til eilífðarnóns.

Vertu ávalt velkominn, þín hefur verið saknað.  

Guðsteinn Haukur Barkarson, 4.2.2010 kl. 21:49

12 Smámynd: Vendetta

Takk fyrir. Þér er líka velkomið að líta inn hjá mér, meðan það varir.

Vendetta, 4.2.2010 kl. 22:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Guðsteinn Haukur

Guðsteinn Haukur Barkarson
Guðsteinn Haukur Barkarson

"Our life is a gift from God,
what we do with that life,
is our gift to God"

Höf. óþekktur

Sjá höfundasíðu fyrir ákveðna skilmála og upplýsingar um bloggarann 

Önnur snilld...

Hvaða þjóðir heimsækja þetta blogg?

free counters

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 31
  • Frá upphafi: 587824

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Skoðanna könnun

Á að aðskilja ríki og kirkju?

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband