Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2009

Ég gerði myndband um Framsóknarflokkinn ...

Ég verð að segja, að ég er ekkert sérstaklega hrifinn af tillögum Framsóknarmanna. Sér í lagi vegna  þess að seðlabankinn hefur reiknað út hvað þetta kostar og sýnt að tillaga þessi mun koma þeim ríku sérstaklega til góða, en ekki þeim fátæku. Persónulega líst mér þá betur á tillögu Lilju Mósesdóttur, frambjóðanda VG um að afskrifa rúmar 4. milljónir á mann. En sú leið er dýr líka.

Önnur áróðursmynd sem ég gerði ...Allt kostar þetta pening og hef ég persónulega áhyggjur af þeim fjármálafyrirtækjum sem þyrftu þá að "afskrifa" þessi 20%, ég nefni þó sérstaklega íbúðarlánasjóð (sem betur fer gat Jóhanna stoppað Sjallanna af þegar þeir vildu leggja hann niður!) sem ég er ekki viss um að hafi burðarþol í að afskrifa svona háar upphæðir. Sömu sögu er að segja um þá banka sem eru ennþá með íbúðarlánastarfssemi. Er ekki nóg að hafa eitt hrun á fjármálakerfinu?!

Kostirnir við þessar tillögur er að peningaflæðið fer vissulega að streyma á ný, en á kostnað hvers? Hver græðir mest á þessu? Af hverju á ég að veita gullrössum sem eiga kannski risastóra íbúð svona mikinn afslátt fram yfir mig? Það skortir réttlæti í þessum tillögum og get ég ekki samþykkt þær að neinu leyti fyrir vikið. Þess vegna tel ég kostina ekki nógu skýra og hægt er að finna aðrar leiðir til þess að auka peningaflæðið.

Framsóknarflokkurinn stjórnaði bankamálaráðuneytinu þegar bankarnir voru einkavæddir. Meira að segja Geir Haarde viðurkenndi að mikil mistök höfðu orðið í því söluferli eins og alþjóð veit.

Eins get ég illa treyst flokki sem ekki er tilbúin að opna bókhald sitt og sýna fram á hvaða styrki þeir hafa fengið í gegnum tíðina, þótt þeir leyti "samþykkis" hjá þessum aðilum, þá dreg ég í efa að þær tölur birtist fyrir kosningar. Eins eru það furðuleg rök miðað við að allir aðrir flokkar hafa birt sínar tölur blygðunarlaust, hvað hafa þeir að fela spyr ég nú bara!

Hér ber svo að líta myndband sem ég setti saman í forritinu "Adobe Flash", og einnig mynd sem ég hannaði út frá því:

 


 

 Góðar stundir.


mbl.is Framsókn leitar samþykkis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Við krossins helga tré

passion_cross.jpgÁ þessum helga degi, sem við minnumst þjáninga og fórnardauða Jesúm Krists, þar sem hann gaf líf sitt fyrir syndir okkar, með því að fórna sér og leggja allt í sölurnar fyrir okkur, er við hæfi að íhuga hvað hann gerði fyrir mankynið allt.

Þetta yndisfagra ljóð eftir Davíð Stefánsson frá Fagraskógi er til vitnis um það hvað gerðist á deginum langa, og birti ég það ekki bara vegna ljóðsins sjálfs, heldur vegna boðskaparins og áminningarinnar um atburði þessa merka dags.

Ég kveiki á kertum mínum

Ég kveiki á kertum mínum
við krossins helga tré.
Í öllum sálmum sínum
hinn seki beygir kné.
Ég villtist oft af vegi.
Ég vakti oft og bað.
Nú hallar helgum degi
á Hausaskeljastað.

Í gegnum móðu' og mistur
ég mikil undur sé.
Ég sé þig koma, Kristur,
með krossins þunga tré.
Af enni daggir drjúpa,
og dýrð úr augum skín.
Á klettinn vil ég krjúpa
og kyssa sporin þín.

Þín braut er þyrnum þakin,
hver þyrnir falskur koss.
Ég sé þig negldan nakinn
sem níðing upp á kross.
Ég sé þig hæddan hanga
á Hausaskeljastað.-
Þann lausnardaginn langa
var líf þitt fullkomnað.

Að kofa og konungshöllum
þú kemur einn á ferð.
Þú grætur yfir öllum
og allra syndir berð.
Þú veist er veikir kalla
á vin að leiða sig.
Þú sérð og elskar alla,
þó allir svíki þig.

Ég fell að fótum þínum
og faðma lífsins tré.
Með innri augum mínum
ég undur mikil sé.
Þú stýrir vorsins veldi
og verndar hverja rós.
Frá þínum ástareldi
fá allir heimar ljós.

Texti: Davíð Stefánsson
Lag: Guðrún Böðvarsdóttir

Gleðilega páska kæru landsmenn, og megi Guð blessa ykkur og geyma.


Ég hannaði nýtt merki fyrir SjálfstæðisFLokkinn ... :)

Ef skila á þessu fé, sem er greinilega lítið mál, þrátt fyrir fáránlega háa upphæð sem venjulegt fyrirtæki myndi ráða illa við. Hvað á SjálfgræðisFLokkurinn mikla peninga?

Í fyrsta sinn gerðist það á borgarfundinum í Kraganum, að formaður SjálfgræðisFLokksins vildi opna bókhaldið, þetta er algjört nýmæli að hálfu íhaldsins að svo sé gert. En jæja, kannski er þetta fyrsta skrefið í að verða heiðarlegur, batnandi mönnum er best að lifa og allt það.

Hér er svo nýtt lógó sem ég hannaði fyrir sjálfgræðismenn:

 

Fálkinn
 

Og auðvitað þurfa þeir nýtt slagorð:

 slagord.jpg

 

 Tounge Ég bara varð að gera þetta, eftir að ég sá kragabarráttuna áðan! Endilega látið þessar myndir ganga út um allt!!   Cool


mbl.is Skilað til lögaðila
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Endalaus spilling SjálfstæðisFLokksins ...

Alveg er það undarlegt hvað það fær litla umfjöllun í fjölmiðlum að Sjálfgræðisflokkurinn hafi þegar 30.000.000  55.000.000 eða heilar þrjátíu* fimmtíu og fimm milljónir! Rúv þegir þunnu hljóði, eins Morgunblaðið. Samkvæmt frétt DV þá bað íhaldið um þennan styrk (eins og þeir væru ekki nógu ríkir fyrir! Íhaldið fær hæst framlög frá ríkinu allra flokka) og ekki nóg með það, þá er það tveim dögum fyrir gildistöku laganna, svo segir í DV , vísis og stöðvar 2:

Fréttastofa Stöðvar 2 hefur skoðað gögn sem sýna að 29. desember 2006, tveimur dögum áður en nýju lögin um fjárreiður stjórnmálaflokkanna tóku gildi, hafi 30 milljónir króna verið færðar af reikningi FL-Group yfir til Sjálfstæðisflokksins. „Hannes Smárason, þáverandi forstjóri FL-Group, mun hafa gefið vilyrði fyrir greiðslunni, samkvæmt heimildum, en Sjálfstæðisflokkurinn haft frumkvæði að því að óska eftir styrknum,“ segir í frétt www.visir.is í dag.
Í lögunum um framlög til stjórnmálaflokka, frambjóðenda og upplýsingaskyldu þeirra má lögaðili að hámarki styrkja stjórnmálaflokk um 300 þúsund krónur.

Hver veit, kannski eru "Baugsmiðlarnir" að fara aðra ferð inní Valhöll, til þess að leita sér annars fórnarlambs eftir að Davíð var krossfestur. En er Baugur ekki gjaldþrota þessa daganna? Þannig undan hverjum getur Sjálfgræðisflokkurinn grenjað undan núna fyrst erkióvinurinn er kominn í skuldafangelsi?

Erum við ekki búin að fá nóg af því? Gefum holdgervingi spillingarinnar langþráð frí núna 25. apríl.

Ég minni á að klukkan 18:00,  fjölmennir búsáhaldabyltingin fyrir utan alþinghúsið við Austurvöll til að mótmæla málþófi Sjálfstæðisflokksins.

*Ég mun uppfæra tölurnar ef þær hækka meira.


mbl.is Allt upp á borðinu hjá VG og Frjálslyndum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Páskarnir eru ekki bara um súkkulaðiskurn ...

Páskarnir fjalla meira um en að seðja súkkulaðiþörf ...Alveg eins og jólasveinar hafa hertekið jólatímabilið, þá hafa súkkulaðipáskaegg og aðrir hérar hertekið páskahátíðina. Ekki það að það sé neitt að þessu tvennu, þvert á móti kann ég vel við jólasveina sem og páskaegg.

En málið er bara, höfum við ekki gleymt um þessar hátíðir snúast? Megnið af þeim kynslóðunum sem eru nú að vaxa úr grasi vita sum hver ekki af hverju við höldum þessar hátíðir, sem er varla von þegar flæða yfir okkur auglýsingapésar um hvar ódýrustu páskaeggin eru að finna.

Gleymum ekki að fræða börnin okkar um hvað þetta snýst allt saman.  Það er orðið afar sorglegt ef þjóðfélag okkar er orðið svo hrætt við fræðslu um kristinn menningararf okkar, vegna skoðanakúgunar annarra háværra örhópa.

Nei, það má víst ekki tala um þennan, hvað þá fræða börnin um hann ...Hér í gamla daga þorði sjónvarpið að sýna kristilegt myndefni um þessar hátíðar, en staðan í dag er orðinn sú að þulurnar í sjónvarpinu þora ekki lengur að bera trúarlegt skart um háls sér, vegna gagnrýnisradda þessara örhópa. Sem er bara sorglegt.

Fræðum börnin okkar, um okkar eigin sögu og menningararf, þau munu öðlast þann þroska í framtíðinni að velja sjálf hvað þau gera í trúmálum sínum. Ef tökum þann pól í hæðina, þá fer allt vel.

Borðum okkar páskaegg með bestu lyst, en gleymum heldur ekki einföldum staðreyndum um þessa hátíð. Cool

Guð blessi ykkur öll og þakka ég lesturinn.


Kosningalögunum verður að breyta!

Hver sem niðurstaðan verður í kosningunum 25. apríl, þá er auðséð ef lýðræðið á að ganga upp, þá verða minni framboð að fá leiðrétt atkvæðisvægið sitt. Eftir myndbandinu hér að neðan, að dæma sem ég sá hjá Þór Jóhannssyni þá er staðan alvarleg fyrir litlu framboðin.

Ég man ekki betur en að Ómar Ragnarsson hafi gagnrýnt þetta í seinustu kosningum hvað mest, og hafði hann greinilega rétt fyrir sér í þeim efnum, og hefðum við betur hlustað á hann.

 
Ég er ekki að birta einhvern hræðsluáróður eða að reyna eyðileggja fyrir litlu framboðunum, því fer fjarri, um er að ræða staðreyndir sem lengi hafi legið fyrir og ber að líta alvarlegum augum. Það hefur bara aldrei neinn tekið á þeim og leiðrétt þetta óréttlæti sem kosningarlöggjöfin er í raun og veru.
 
Því það er ekki bara þetta, Ísland á að vera eitt kjördæmi svo allir sitji við sama borð. Núverandi kjördæmaskipan býður uppá alls kyns óréttlæti gagnvart kjósendum. Ég spyr ykkur þá, hvaða flokkur stendur í vegi fyrir breytingum á stjórnarskránni eins og er? Hmmm ?
 

mbl.is Samfylking áfram stærst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fíflagangur Sjálfstæðismanna!

Ekki er ég sammála ljótri málnotkun Katrínar Júlíusdóttir, svo að það sé tekið skýrt fram. En ég er hins vegar sammála henni efnislega að Sjálfgræðismenn hafa vælt sáran yfir mörgum atriðum undanfarið. Núna síðast þá var Pétur Blöndal að væla um að komast ekki kosningarbarráttu, Árni Gólsen fer uppí pontu og tekur lagið og á meðan aðrir sofna í þingsalnum. Hvílíkur skrípaleikur!

En ekki er þetta annað en málþóf, því skil ég ekki hvað menn græða á því að þetta frumvarp sé rætt svona til hlítar þegar heimilin í landinu eru að sökkva en dýpra ofan í skuldapytt Sjálfgræðismanna og Framsóknarmanna. Með fullri virðingu fyrir kvikmyndagerðarmönnum, þá sá ég ekki nauðsyn þess að sóa tíma alþingis í svona vitleysu. Sér í lagi þegar þetta tiltekna frumvarp var samþykkt með 41 samhljóða atkvæðum!

Hvað á svona vitleysa að þýða? Hvernig dettur þeim í hug að gagnrýna að ekkert sé gert þegar þeir sjálfir koma í veg fyrir eðlileg þingstörf og hindra þannig seningu laga? Horfið ykkur nær íhaldsmenn og segir þetta myndband ekki allt sem segja þarf sem er komið á youtube þar sem heimurinn hlær að okkur?


mbl.is „Hættið þessu helvítis væli"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

1. apríl gabbið mitt afhjúpað !

Ég hef ekki lengur samvisku í að plata fólk lengur, en síðasta færsla mín var aprílgabb. Ég er ekki á leið til Kanada og er ekki að gerast predikari. En það er nú einu sinni fyrsti apríl, og eini dagurinn á árinu sem svona lagað er leyfilegt og bara gaman af því.

Ég gat engan veginn sagt eitthvað sem væri auðsæilega lygi, þess vegna valdi ég þá leið að setja upp dæmi sem gæti mögulega verið líklegt í mínu tilfelli. Enginn tók heldur eftir að ég setti inn link á einn punkt í greininni, ef maður fer með bendilinn yfir þann eina punt þá kom textinn: "Þetta er aprílgabb ...  ;)" eins og skýringarmyndin hér að neðan sýnir hvar þessi punktur er:

 

gabb...

 

En ég fékk fjöldann allan af símtölum í dag þar sem ég var spurður hvort mér væri alvara með þessu, og varð ég mjög hissa á hvað vel upp mér tókst með þetta aprílgabb mitt!

En jæja, þetta er bara einu sinni á ári og segið um mig það sem þið viljið og höfum bara gaman að þessu, leikurinn er gerður til þess að láta fólk hlaupa apríl, og tókst það svo sannarlega í dag! Tounge

Ég var alls ekki einn í þessu öllu, það er samsekt í gangi. Ég fékk aðstoð hjá Lindu vinkonu og þakka ég henni sérstaklega fyrir hjálpina. Án athugasemdar hennar (fyrsta athugasemdin í seinustu grein), og góðra hugmynda, þá hefði þetta ekki tekist. Takk Linda, þú ert góður vinur og algjör snilli !

Eitt að lokum:  Gotcha!   hehehehehe ...   Grin


Mér hefur borist atvinnutilboð frá Kanada

Við hjónin höfum fengið atvinnutilboð frá Kanada í landinu þar sem ég ólst upp. Mér bauðst að gerast aðstoðarmaður prests í Vineyard hreyfingunni í Kanada. Eiginkona mín mun þar halda áfram námi við háskólann í Winnipeg. Miðað við núverandi ástand í þessu þjóðfélagi þá sjáum við ekki aðra leið færa en að flytja af landi brott.

Við munum flytja af landi brott, í ágúst mánuði, þar sem skólarnir í Kanada byrja mun fyrr en á Íslandi. Ég mun leysa af predikara í Vineyard kirkju og sjá um hans störf á meðan hann sjálfur fer í trúboðsferð.

Ég mun halda áfram að blogga, og mun birta tíðindi af okkur hjónunum áfram á þessum vettvangi. 

Guð blessi Ísland og alla íslendinga!


« Fyrri síða

Guðsteinn Haukur

Guðsteinn Haukur Barkarson
Guðsteinn Haukur Barkarson

"Our life is a gift from God,
what we do with that life,
is our gift to God"

Höf. óþekktur

Sjá höfundasíðu fyrir ákveðna skilmála og upplýsingar um bloggarann 

Önnur snilld...

Hvaða þjóðir heimsækja þetta blogg?

free counters

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 11
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Skoðanna könnun

Á að aðskilja ríki og kirkju?

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband