Jarðarfararlagið mitt

Ég sé að nokkrir eru að spá í hvaða lög/lag ættu flutt við eigin jarðarför hér um bloggheima, og verð ég aðeins að leggja orð í belg um það líka. Hér á árum áður vildi ég helst láta flytja "The Roof is on Fire" með hljómsveitinni Bloodhoundgang, eða jafnvel "Nothing Else Matters" með Metallicu. Tounge Eða jafnvel fáranleg lög eins þetta gamla finnska lag! LoL

En svo líða árin og maður þroskast og betrumbætist. Í dag er ég nokkuð viss um að ég fái því framgengt að þetta lag verði spilað við jarðarför mína:

 

 
Ég gef því skít í þá smekkleysu að velja "Highway to Hell" við sína eigin jarðarförSick, eins og fólk virðist velja í dag útí heimi, en það er bara mín skoðun!  GetLost


mbl.is Á leið til heljar um hraðbraut
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Eygló

Mörg, mörg ár síðan ég pantaði og lét yngra fólkið vita að spila ætti útgöngusöng: "Don't worry, be happy!"

Eygló, 17.4.2009 kl. 01:43

2 Smámynd: Sigurður Sveinsson

Það er gott að pæla svolítið í þessu. Vera skipulagður og hafa allt á hreinu áður en stundin kemur. Það eru nokkur ár síðan ég kom þessu fyrir. Ég læt jarða mig í kyrrþey. Það verða bara spiluð nokkur lög. Feddy Mercury, Megas, Elton John og svo að lokum Vegbúinn hans KK. Svo fá krakkarnir sér í glas á eftir.

Sigurður Sveinsson, 17.4.2009 kl. 03:49

3 identicon

Þetta er bara lag Guðsteinn... :)

DoctorE (IP-tala skráð) 17.4.2009 kl. 09:15

4 identicon

Þetta geta verið skemmtilegar pælingar og eflaust fer það eftir aldri og tíðaranda hvers og eins hvað hann myndi kjósa að láta spila í eigin jarðarför (ef um þannig jarðarför væri að ræða þ.e.a.s) en sumir kjósa jú að láta einfaldlega brenna sig til ösku og gróðursetja í kyrrþey.

Ef ég hyrfi í dag gæti ég hugsað mér að láta spila t.d. Freebird (Lynyrd Skynyrd), Coma (Guns'n'Roses), Estranged (líka GNR) eða jafnvel eitthvað af massíft góðu úrvali af Iron Maiden lögum eins og t.d. Number of the Beast eða Hallowed Be Thy Nam.

En það skiptir kannski minnstu máli hvað yrði fyrir valinu þar sem maður yrði ekki áheyrnar fær

bjkemur (IP-tala skráð) 17.4.2009 kl. 10:15

5 identicon

Ertu ekki að grínast með þetta finnska video þetta er komið í all time favorites hjá mér, sérstaklega hreyfingin hjá gæjanum á 1:48 og svo exit move-ið hans úr þeirri stellingu í 1:57, ekkert nema pjúra snilld.

bjkemur (IP-tala skráð) 17.4.2009 kl. 10:24

6 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Ég vil láta syngja yfir mér: Komdu og skoðaðu í kistuna mína.

Sigurður Þór Guðjónsson, 17.4.2009 kl. 15:39

7 Smámynd: Flower

Kannski af tómum skeppnuskap að velja eitthvað sem maður veit að fer í taugarnar á hinum í famelíunni og á einstaklega illa við, rapp t.d

Flower, 17.4.2009 kl. 16:07

8 identicon

Ég myndi kannski velja eitthvað svalt með Mark Knopfler...
Hugsanlega My Claim To Fame
http://doctore.blog.is/blog/doctore/entry/855754/

DoctorE (IP-tala skráð) 17.4.2009 kl. 16:10

9 Smámynd: Mofi

Haukur
Hér á árum áður vildi ég helst láta flytja "The Roof is on Fire" með hljómsveitinni Bloodhoundgang

Ertu svo viss um að það hafa mörg ár liðið? 

En þetta kemur mér alltaf í gott skap, kirkju kór og flott orgel að spila þetta lag! :)   

Ég er ekki enn búinn að finna mér mitt lag, það væri víst ekki kristilegt að stela þínu en mér líkar það mjög vel.  Hallast helst að "How can I keep from singing" sem er gamall sálmur sem Enya gerði sérstaklega fallegan. Setningin í því lagi, "since love is Lord of heaven and earth" finnst mér alltaf jafn mögnuð.  Kannski þarf maður frekar að búa til lista af lögum...

Mofi, 17.4.2009 kl. 18:12

10 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæll Guðsteinn minn

Úff, gott að ég verð löngu dauð áður en þú hrekkur uppaf. Það þarf nú að vera meira stuð við útfarir. Jarðaför = Jarðafjör.

En segjum sem svo að ég verði lifandi þá vil ég meina að ég yrði svæfð forever þegar ég væri að hlusta á þessa tónlist.

Vona að ég fái að fara á undan þér.

Vertu Guði falinn

Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 17.4.2009 kl. 19:37

11 Smámynd: Guðmundur St Ragnarsson

Frábærar og skemmtilegar pælingar. Auðvitað eiga allir að láta spila þjóðsöng Liverpool "You never walk alone". Tillaga Sigurðar Þórs er góðra gjalda verð en ég held að það væri skemmtilegra að hafa eitthvað laga með KK eða jafnvel Spilverki þjóðanna.

Guðmundur St Ragnarsson, 17.4.2009 kl. 19:53

12 Smámynd: Hilmar Gunnlaugsson

Að velja lag við útför er vandasamt verk en leggja ætti bann við flutningi laga með andtrúarlegan boðskap í jarðaförum.

Skynsamleg lög við útför væru t.d. Candle in the Wind með Elton John eða Minning með Vilhjálmi Vilhjálmssyni.

Hilmar Gunnlaugsson, 17.4.2009 kl. 20:46

13 Smámynd: Haraldur Davíðsson

Komdu og skoðaðu í kistuna mína...í útgáfu Megasar..nú eða

...Hilmar...þú ert nú meiri kallinn, þú vilt stýra hegðun fólks í svefherbergjum þeirra...og þú vilt stýra lagavali í jarðarförum fólks sem kemur þér ekkert við....tsk..tsk..tsk..og ætlarðu líka að segja okkur hvaða tónlist er "skynsamleg".... jahérna...

Haraldur Davíðsson, 18.4.2009 kl. 00:20

14 Smámynd: Tinna Gunnarsdóttir Gígja

"leggja ætti bann við flutningi laga með andtrúarlegan boðskap í jarðaförum."

Ég sé ekkert að því að kirkjuplebbar banni 'andtrúarlegan boðskap' innan veggja musteranna, en endilega reyndu að muna að jarðarfarir eru ekki eingöngu kirkjulegar.

Mín lög verða vonandi 'Do you realize' með Flaming Lips og 'Always look on the bright side of life' með Monty Python. 

Tinna Gunnarsdóttir Gígja, 18.4.2009 kl. 02:32

15 identicon

Ég er að fýla tónlsitarsmekkinn hjá þér bjkemur.  Þó ég myndi nú reyndar ekki velja The Number of The Beast sem jaraðrfararlag að þá er það eitt af mínum all time favorites.

Ég ætla samt að segja soldið á móti því sem að hann Mofi létt falla í gær þegar hann kvaðst hafa hætt að hlusta á Highway to Hell eftir að hann frelsaðist.  En það er ekki það sem fer inn í mannin sem saurgar hann heldur það sem kemur útúr okkur.

Það er í góðu lagi fyrir okkur að hlusta á þessi lög svo lengi sem þau hafa ekki áhrif á það sem við segjum eða gerum.

Mér fynnst samt skondið hvað margir hafa sagt Stairway to Heaven þegar þeir velja lög.  Þar sem textinn í laginu er alls ekki um það að maður sé á leið til himna heldur um konu sem varð svo materíalísk að hún hélt hún gæti keypt sig inn til himna.

Ég verð samt að fá að svara því seinna hvaða lag ég myndi velja en ég er alveg á því að ég mynndi vilja hresst lag sem kæmi gestum í jarðarförinni til að hlægja :)

Arnar Geir Kárason (IP-tala skráð) 18.4.2009 kl. 15:21

16 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Ég biðst forláts á því að hafa ekki verið viðstaddur, en ég hef verið stanslaust í skólanum í tvo daga og fjarri góðu gamni. Ég vil þakka öllum athugasemdirnar og umræður, það er gaman að þessu!

Guðsteinn Haukur Barkarson, 18.4.2009 kl. 18:38

17 Smámynd: Linda

Geysp..sorry en vá maður.  Ég ætla vera með lagið Ég er farin(komin ?) heim í heiðardalin, meira veit ég ekki, bara fjör sko. 

Linda, 19.4.2009 kl. 01:58

18 identicon

já ég væri alveg til í þennann söng við mína jarðarför, en eina skilyrðið sem ég set á fólk sem mætir er að það andi að sér smá af "keneh bosem" fyrir athofnina. 

http://www.mosesinhaled.org/thelivingtorah.jpg

lols (IP-tala skráð) 19.4.2009 kl. 22:16

19 Smámynd: Mofi

Arnar
Það er í góðu lagi fyrir okkur að hlusta á þessi lög svo lengi sem þau hafa ekki áhrif á það sem við segjum eða gerum.

Filippíbréfið 4
8Að endingu, systkin,  allt sem er satt, allt sem er göfugt, rétt og hreint, allt sem er elskuvert og gott afspurnar, hvað sem er dygð og hvað sem er lofsvert, hugfestið það. 9Þið skuluð gera þetta, sem þið hafið bæði lært og numið, heyrt og séð til mín. Og Guð friðarins mun vera með ykkur.

Ég á erfitt með að ímynda mér frelsaðan einstakling sem raular með lögum sem tala illa um Guð eða lofa það að vera á leiðinni til helvítis. Ég að minnsta kosti fannst ekki eðlilegt að raula "I am on the highway to hell" eða hvað þá syngja með lögum sem guðlasta.

Það er ákveðin einfeldni að halda að það sem maður hlustar á, hefur ekki áhrif á mann. Það sem þú borðar mótar líkaman, og það sem þú setur í hugann, mótar hugann.

Mofi, 21.4.2009 kl. 11:16

20 identicon

Mofi, ég var farinn að syngja þetta lag áður en ég vissi hvað þetta þýddi.   Ég hef aldrei svo mikið sem pælt í því og hvað þá gert mér í hugarlund að ég væri á leiðini til helvítis þótt ég hafi raulað með laginu.

Ég stend ennþá við það sem ég sagði en ég veit líka að þú ert allt annarar skoðunnar sem er avleg í góðu lagi.

Arnar Geir Kárason (IP-tala skráð) 21.4.2009 kl. 12:03

21 Smámynd: Mofi

Arnar, þegar maður skilur hvað maður er að syngja þá finnst mér mjög undarlegt að finnast í lagi að guðlasta og óska sér og öðrum vítist vist. Það er eitt af fólki sem telur andleg efni ekki skipta neinu máli en fyrir þá sem andleg efni skipta máli þá er þetta ekki í lagi.

Mofi, 21.4.2009 kl. 12:26

22 Smámynd: Tinna Gunnarsdóttir Gígja

Hlustarðu ekki á nein lög sem ekki styðja eða upphefja trú þína, Mofi?

Hvað með Lennon þegar hann syngur "imagine no religion?"

Eða Curt Kirkwood-lagið Lake of fire?

Eða hið undurfallega Won't get to Heaven (the state I'm in) með Spiritualized? 

Eða Jesus don't want me for a sunbeam

Eða One tin soldier?

Eða The hand of the almighty með John R. Butler?

Fegin er ég að geta hlustað á það sem ég vil.

Tinna Gunnarsdóttir Gígja, 21.4.2009 kl. 17:17

23 Smámynd: Mofi

Tinna, nei, það er allt fullt af lögum sem ég veit að eru ekki í samræmi við mína trú. Maður dregur línuna... einhvern veginn; sumt er bara aðeins of augljóslega ekki í lagi. Ég get hlustað á það sem ég vill eins og þú, var bara að benda á að sumt vil ég ekki hlusta á. Þegar ég heyri John Lennon syngja "imagine no religion" þá túlka ég það sem himnaríki; engin trúarbrögð þar heldur aðeins það sem allir vita.

Mofi, 21.4.2009 kl. 18:47

24 Smámynd: Tinna Gunnarsdóttir Gígja

Og þegar ég hlusta á Highway to Hell túlka ég það sem ferð í dýragarðinn og ís á eftir...

Tinna Gunnarsdóttir Gígja, 21.4.2009 kl. 19:51

25 Smámynd: Mofi

Tinna, you got me there :)

Mofi, 21.4.2009 kl. 19:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Guðsteinn Haukur

Guðsteinn Haukur Barkarson
Guðsteinn Haukur Barkarson

"Our life is a gift from God,
what we do with that life,
is our gift to God"

Höf. óþekktur

Sjá höfundasíðu fyrir ákveðna skilmála og upplýsingar um bloggarann 

Önnur snilld...

Hvaða þjóðir heimsækja þetta blogg?

free counters

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 31
  • Frá upphafi: 587824

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Skoðanna könnun

Á að aðskilja ríki og kirkju?

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband