Gott hjá henni!

Hér er smá myndbrot með henni:

 

Ég minni fólk á:

  1. Hún á rétt á því að gera það sem hún vill sjálf,
    hennar líkami, hennar val.
  2. Ef þetta er hennar afstaða þá ber að virða hana,
    ekki blammera eins og Svanur læknir gerir um leið og hann lemur hausnum á sér í vegginn.

Það er ekkert leyndarmál að Kristnir boða skírlífi fyrir hjónaband, og hefur það verið þannig síðast liðinn tvö þúsund ár eða svo. Söngkonan og sigurvegari Ameríska Idol keppninnar 2007, Jordin Sparks er kristinnar trúar og hefur tekið sína ákvörðun, sem felur í sér fórn að hennar hálfu og virði ég það við hana, því þetta gerir hún Guði til dýrðar.

Þetta er ekkert nýtt undir sólinni að svona gerist, og skulu menn anda með nefinu áður en þeir boða endurkomu skírlífsbeltanna, sem er bara kjánalegt! Ég var gagnrýndur hér um daginn fyrir að hneykslast á skurðgoði, en fyrr má nú vera hvað svona kemur alltaf jafn mikið á óvart.

Hún á völina sjálf, hverju hún trúir og hvað hún gerir, ekki við. Virðum það.


mbl.is Ekkert kynlíf fyrir hjónaband
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Takk innilega Valgeir Mattías.

Guðsteinn Haukur Barkarson, 9.9.2008 kl. 20:52

2 identicon

Hún á rétt á því að gera það sem hún vill sjálf,
hennar líkami, hennar val.
virði  ég það við hana, því þetta gerir hún Guði til dýrðar.
 
Hvort gerir hún þetta fyrir sig eða guð?

Jóhannes H. Proppé (IP-tala skráð) 9.9.2008 kl. 23:43

3 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Ekki get ég svarað fyrir hana Jóhannes, en ég held að hún geri þetta fyrir bæði sig sjálfa og Guð. En það er bara ágiskun.

Guðsteinn Haukur Barkarson, 9.9.2008 kl. 23:48

4 Smámynd: Marilyn

Hennar líkami hennar val segiru... vissulega.

En hvað með líkamann og valið þegar kemur að getnaðarvörnum og fóstureyðingum? 

Marilyn, 10.9.2008 kl. 00:06

5 identicon

 Sæll Guðsteinn.

Komið þið sæl.

 Alltaf mun verða til fólk sem líður illa ef það getur ekki afskræmt hlutina.

Góða nótt.

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 10.9.2008 kl. 00:15

6 Smámynd: Haraldur Davíðsson

Bíddu nú við...af hverju er kynlíf þessarar stúlku til umræðu ?

Hvar er fréttin?....so what?

Haraldur Davíðsson, 10.9.2008 kl. 00:43

7 Smámynd: halkatla


Af svona sætum ungum stelpum sem hafa tekið þátt í american idol þá var hún (Jordin Sparks) langvinsælust hjá ungum unglingspiltum... hún hefur samt fitnað dáldið, en það er ok, sá sem fær hennar er greinilega að fá góðan kvenkost

halkatla, 10.9.2008 kl. 06:17

8 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Marilyn - sama á við Marilyn, hennar val.

Andrés - hvaða fóstur ? Ekki er hún ófrísk.

Þórarinn - nákvæmlega!!

Halli - vegna þess að sumir aðilar eru boða endur komu skírlífsbelta. Og halda ekki vatni yfir svona smáatriði.

Anna Karen - sönn kona er með eitthvað utaná sér, beinabrenglur nútímans heilla mig ekki.

Guðsteinn Haukur Barkarson, 10.9.2008 kl. 08:42

9 identicon

Þetta er bara ekki nægilega góð hugmynd hjá henni... að prófa bara einn karl... mér finnst það svona ávísun á að hún vilji prófa aðra síðar... skilja jafnvel :)

DoctorE (IP-tala skráð) 10.9.2008 kl. 10:31

10 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Sæll Guðsteinn Haukur.

Ég vonast til að sjá þig við opnun sýningar minnar í Gerðubergi föstudaginn 12. sept. kl. 4. 

Sýningin stendur til 2. nóv.

Kveðja 

Guðný Svava 

Svava frá Strandbergi , 10.9.2008 kl. 13:10

11 Smámynd: Theódór Norðkvist

Góður punktur, Haukur. Það er alltaf aðdáunarvert í heimi þar sem flestir hafa gefið sig á vald fýsna sinna skuli vera til konur og menn sem sýna persónustyrk í þessum málum.

Eina sem ég sé athugavert við þessa ákvörðun Jordinar er að hún skuli sérstaklega vera að auglýsa hana í fjölmiðlum og ganga með þennan hring. Maður gæti freistast til að halda að hún sé að sýna öllum hvað hún er hlýðin og góð stelpa.

PS: Það var ekki Jón bróðir sem var beðið fyrir á Lindinni út af hálsbroti, það var samnefndur frændi okkar. Fyrirbænir fyrir honum og fjölskyldu hans eru vel þegnar, hann er mjög veikur.

Theódór Norðkvist, 10.9.2008 kl. 13:55

12 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Guðný Svava - ég reyni að komast, takk fyrir boðið.

Teddi - takk fyrir það og er ég þér sammála, af hverju hún flaggar þessu svona er mér óskiljanlegt, því svona lagað á ekki básúna á götuhornum eins og í þessu tilfelli. 

Mikið er ég samt feginn að heyra að þetta var ekki bróðir þinn, það hlaut að vera skýring á þessu, skilaðu góðri kveðju til bróður þíns og segðu honum að ég hafi fengið hland fyrir hjartað þegar ég heyrði þetta. Því við Jón þekkjumst ágætlega og er hann hin vænsti drengur.

Öllu alvarlegra er það að frændi þinn er veikur og fyrir honum verður beðið, að minnsta kosti á mínum bæ!

Guðsteinn Haukur Barkarson, 10.9.2008 kl. 14:16

13 Smámynd: Rut Sumarliðadóttir

Hvað er þetta með að kynlíf skuli bara stunda í hjónaböndum. herre gud. Hverjum kemur það við hvort fólk stundar það eður ei? Veit ekki hvað á að vera svona gott við að stunda ekki kynlíf sem er öllum eðlislægt. Tilraun mannsins til að rísa ofar öðrum dýrum jarðar? En það er hverjum frjálst að stunda eða stunda ekki kynlíf. Mér er svo slétt sama.

Rut Sumarliðadóttir, 10.9.2008 kl. 15:40

14 Smámynd: Haraldur Davíðsson

Guðsteinn, nemlig ! Þetta minnir á Britney blessunina.....

....ég er ennþá hrein mey...honest.....

Haraldur Davíðsson, 10.9.2008 kl. 15:52

15 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Rut - það er meira og minna sá boðskapur sem ég er að reyna koma á framfæri, en sumir boð endurkomu skírlífsbelta og var það kveikjan að þessum pistli.

Halli - hehehe .. jamms, þetta er óneitanlega svipað. Nema hvað að Sprears var ekki trúuð. Þar liggur himin og haf á milli.

Guðsteinn Haukur Barkarson, 10.9.2008 kl. 16:13

16 Smámynd: Haraldur Davíðsson

Fæ ekki séð að það skipti máli, hún er að upphefja sjálfa sig, og Britney var kynnt sem hrein mey og trúuð.....að vísu var mamma hennar að ljúga þessu öllu saman....allt bara sölutrikk...

...en er þetta það ekki líka ? Er stúlkan ekki að "selja" sig ákveðinni hugmyndafræði, ákveðinni viðurkenningu ?...

...annars er mér slétt sama um kunlíf eða kynlífsleysi fólks og verð að segja það að ef ég yrði umræðuefni á þessum forsendum, væri það ekki frá mér komið.

Haraldur Davíðsson, 10.9.2008 kl. 16:19

17 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Tja, mér er sama þó að einhverjar gellur sleppi því að máta skóna áður en þær kaupa þá. Það káfar ekki upp á mig, en vorkenni þeim samt ef þeir passa ekki og flókið  ferli að skila!  

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 10.9.2008 kl. 16:38

18 Smámynd: Rut Sumarliðadóttir

Ég er með nikkelofnæmi, mitt þyrfti að vera úr skíragulli.

Rut Sumarliðadóttir, 10.9.2008 kl. 17:18

19 identicon

Hæ Guðsteinn og takk fyrir síðast í köben.

Bestu kveðjur héðan til allra.

Langaði bara að kasta kveðju og kynna þetta efni, á bloggi mínu.

http://blogg.visir.is/klettur/2008/09/10/domsdegi-aflist/

Petur Einarsson (IP-tala skráð) 10.9.2008 kl. 20:07

20 Smámynd: Rebekka

Jájá ágætt hjá henni að velja,  EN því miður hefur "skírlífisstefnan" hjálpað mikið til að stórskaða kynfræðslu amerískra ungmenna.  Margir halda t.d. að kona getur ekki orðið ólétt ef hún er á blæðingum við samfarir, að munnmök og endaþarmsmök séu ekki kynlíf (og því hægt að halda í meyjarhaftið og halda kærastanum ánægðum) að ýmsar vafasamar aðferðir dugi vel sem getnaðarvarnir - t.d. "öruggir dagar" og rofnar samfarir, og svo mætti lengi telja.

Svo man ég líka eftir þó nokkuð mörgum ungstirnum sem héldu þessu sama fram, t.d. áðurnefnd Britney Spears og Beyoncé, en síðan kom á daginn að það var ekkert hæft í þessum yfirlýsingum þeirra.  Við skulum því bíða og sjá, ég vona allavega að þessi dama sé ekki bara að bulla eitthvað til að næla sér í góða ímynd hjá trúuðum aðdáendum. 

Rebekka, 10.9.2008 kl. 20:41

21 Smámynd: Ingvar Valgeirsson

Ekki skil ég fréttina í þessu - ég hélt að það væri frétt ef fólk gerði eitthvað, en ekki ef það gerði ekkert...

Annars, varðandi Britney vinkonu okkar - ég þekki nokkra sem voru í "krúinu " hennar fyrir nokkrum árum, rótara, ljósamann og ásláttarleikara. Þeir komu hingað sumarið 2000 og voru í allnokkra daga á djammi. Þeir héldu því nú statt og stöðugt fram að þáverandi tsjærasti hennar, Justin nokkur Timberlake, svæfu ekki í sama herbergi þegar hann væri nærri. Þóttust nokkuð vissir um að hún væri nú alveg að meina þetta með meydómsheitið sitt á þeim tíma.

Ingvar Valgeirsson, 10.9.2008 kl. 21:36

22 Smámynd: Theódór Norðkvist

Ég minnist þess oft að Friðrik Schram sagði eitt sinn að fólk sem á mörg misheppnuð og sársaukafull ástarsambönd að baki missi stundum hæfileikann til að bindast maka að nýju.

Theódór Norðkvist, 11.9.2008 kl. 11:08

23 identicon

Use it or loose it

DoctorE (IP-tala skráð) 11.9.2008 kl. 14:36

24 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Hei komon ????

ERUÐ ÞIÐ SIÐLAUSIR VILLIMENN HÉRNA UPP TIL HÓPA Í BLOGGHEIMUM ....

Auðvitað á ekki stunda kynlíf fyr en eftir GIFTINGU annars farið þið öll sem það gerið til HELVÍTIS og ættin ykkar líka.

Allaveganna hef ég aldrei verið við kvennmann kenndur nema kenndur

Brynjar Jóhannsson, 12.9.2008 kl. 01:36

25 Smámynd: Ingvar Valgeirsson

Segi nú bara eins og vinur minn - "HA? ER TIL KYNLÍF EFTIR GIFTINGU?!?!?"

Ingvar Valgeirsson, 12.9.2008 kl. 20:31

26 Smámynd: Bryndís Böðvarsdóttir

Tja, þú áttir nú tvö börn eftir giftingu. Og þau eru reyndar mjög lík þér..., en ertu að reyna að segja okkur eitthvað?

Bryndís Böðvarsdóttir, 12.9.2008 kl. 23:30

27 Smámynd: Haraldur Davíðsson

HAHAHAHA....söb...snort...kjöltur og kjökur...ég átti tvö börn eftir ....snort....kjöltur...svipting..ég meina giftingu, og síðan ekki söguna meir....kjökur....

Haraldur Davíðsson, 13.9.2008 kl. 03:13

28 Smámynd: Ragnar Kristján Gestsson

Óttalega hafa svona umræður sterka tilhneygingu til að vera á lágu plani.  Mér finnst það FLOTT hjá þessari stúlku að taka þessa afstöðu.  Líkingin við skóna, Jóhanna, er þokkalega ósmekkleg og eiginlega þegar aldrei hafa verið eins margar ólöglegar fóstureyðingar, aldrei yngri stúlkur (og drengir) sem þurfa á lækningu vegna kynsjúkdóma, að ógleymdri eyðnihættunni.  Biblían varar kristið fólk við samræði fyrir hjónaband og það gleður mig vissulega að þeir séu til sem taka þetta alvarlega.  Annars gæti ég m.a.s. trúað að við það að kunna að halda aftur af sér á þessu sviði væru mörg önnur vandamál leyst.  T.d. sæist þá kannski hvort verðandi maki væri þess virði að vilja þrostkast saman með honum restina af lífinu.  Var annars sjálfur að blogga á dögunum um aðra tónlistarmenn á sömu leið: Jonas Brothers.

Ragnar Kristján Gestsson, 14.9.2008 kl. 12:00

29 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Ragnar - ég sé á myndinni af þér að þú ert "miðaldamaður" og það er ekki að ástæðulausu að talað er um "hinar myrku miðaldir."

Hver er að tala um að smákrakkar þurfi að fara að stunda kynlíf?

Varstu annars að tala í alvöru?

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 14.9.2008 kl. 15:25

30 Smámynd: Sigurður Rósant

Guðsteinn - "Það er ekkert leyndarmál að Kristnir boða skírlífi fyrir hjónaband, og hefur það verið þannig síðast liðinn tvö þúsund ár eða svo."

Ég er nú farinn að ryðga í fræðunum, en hvar kemur þessi boðskapur fram hjá frumkristnum í ritum NT.

Með kveðju

Sigurður Rósant, 21.9.2008 kl. 21:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Guðsteinn Haukur

Guðsteinn Haukur Barkarson
Guðsteinn Haukur Barkarson

"Our life is a gift from God,
what we do with that life,
is our gift to God"

Höf. óþekktur

Sjá höfundasíðu fyrir ákveðna skilmála og upplýsingar um bloggarann 

Önnur snilld...

Hvaða þjóðir heimsækja þetta blogg?

free counters

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 32
  • Frá upphafi: 587805

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Skoðanna könnun

Á að aðskilja ríki og kirkju?

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband