Skelfilegasta kjörtímabil í sögu Reykjavíkurborgar (með skopmynd af Hönnu Birnu) ;)

Aftur er skipt um sokka. Og greinilegt er að Sjálfgræðismenn fara ekki eftir niðurstöðum kosninga, Framsókn beið afhroð í seinustu kosningum og næstum þurrkaðist út. Sem segir mikið um álit sjálfgræðismanna á hugtakinu lýðræði.

Auðséð er, að þetta verður lengi í manna minnum sem þetta kjörtímabil mun standa uppi sem skelfilegasta kjörtímabil í sögu Reykjavíkurborgar. Hvers eigum við Reykvíkingar að gjalda eiginleg, ég bara spyr!

Þetta er sá fjórði í röðinni og finnist mér réttast að boða til kosninga ekki seinna en í gær og kjósa uppá nýtt! En það er bara ég.

Hanna Birna er þá óneitanlega orðinn hluti af "frjórhöfðaskrímslinu" eins og ég kalla það. Wink En myndin sem ég var að skyssa upp, segir allt sem segja þarf um þetta embætti á þessu kjörtímabili !!

 

trihofdaskrimslid.jpg

 


mbl.is Fullyrt að samstarfi hafi verið slitið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Ingi Cæsarsson

Skipt um sokka.... mér sýnist að þetta séu gömlu Framsóknartáfýlusokkkarnir ... óþvegnir og götóttir

Jón Ingi Cæsarsson, 14.8.2008 kl. 14:24

2 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Við ættum öll að standa upp og mótmæla

Hólmdís Hjartardóttir, 14.8.2008 kl. 14:27

3 Smámynd: Arnar

Og greinilegt er að Sjálfgræðismenn fara ekki eftir niðurstöðum kosninga, Framsókn beið afhroð í seinustu kosningum og næstum þurrkaðist út.

Eh, hvað fengu sjálfstæðismenn marga kjörna fulltrúa í síðustu kosningum og hvað fekk frammsókn marga kjörna fulltrúa?  Veit ekki betur en það sé bara nákvæmlega eftir niðurstöðum síðustu kosninga, amk. varðandi fjölda kjörna fulltrúa.  Hvort það sé hinsvegar réttmætt dæmi ég ekkert um

Og auðséð er að þetta verður lengi í manna minnum sem þetta kjörtímabil mun standa uppi sem skelfilegasta kjörtímabil í sögu Reykjavíkurborgar. Hvers eigum við Reykvíkingar að gjalda eiginleg, ég bara spyr!

Ótrúlegt að fólk sætti sig við svona óstöðuleika, nú ættu Reykvíkingar að taka sig saman og heimta nýjar kosningar og nýtt fólk.  Þetta er orðið fáránlegt.

Arnar, 14.8.2008 kl. 14:35

4 Smámynd: Flower

Ég öfunda ekki ykkur reykvíkinga að þurfa að þola þetta trekk í trekk.

Flower, 14.8.2008 kl. 14:38

5 identicon

Það liggur við að maður íhugi flutninga yfir í Kópavog [hrollur]. Stjórnin þar er amk sjálfri sér samkvæm í ruglinu.

Þröstur Bragason (IP-tala skráð) 14.8.2008 kl. 14:52

6 Smámynd: Ragnheiður

Þetta er hið versta ástand sem komið hefur upp í Reykjavík, það er alveg ljóst.

Nú er um að gera að muna þetta fram að næstu kosningum og hafna þessu fólki þá

Ragnheiður , 14.8.2008 kl. 14:56

7 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Sammála er ég öllum sem hafa mælt hér.  Takk fyrir athugasemdirnar.

Guðsteinn Haukur Barkarson, 14.8.2008 kl. 14:59

8 Smámynd: Flower

Snilld þessi mynd sem þú teiknaðir.

Flower, 14.8.2008 kl. 15:09

9 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Flower -

Guðsteinn Haukur Barkarson, 14.8.2008 kl. 15:18

10 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Algjörlega sammála Valgeir Mattías!

Guðsteinn Haukur Barkarson, 14.8.2008 kl. 15:26

11 Smámynd: Linda

hata pólitík En fyrir ykkur sjúku og sem þekkja til í þessum sorapolli er ekki eitthvað í stjórnarskrá eða lagalega séð sem gerir fólki kleyft að krefjast nýrra kosninga, að fella alla stjórnina eins og hún leggur sig lagalega séð án þess að ráðmenn fái að taka þátt í slíku eða fái við ráðið.  Þetta er algjört BULLSHIT OG FNA SEM STJÓRNA ÞESSAR BORG.

BURT MEÐ ÞETTA PAKK OG TÖKUM BORGINA OKKAR TIL BAKA. SKAL TAKA ÞÁTT ÞÓ ÉG HATI POLITÍK

Linda, 14.8.2008 kl. 15:31

12 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Það er afskaplega góð spurning Linda, og er ég þér hjartanlega sammála!

Guðsteinn Haukur Barkarson, 14.8.2008 kl. 15:37

13 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Þetta er furðulegt mál en góð teikning.

Sigurjón Þórðarson, 14.8.2008 kl. 15:43

14 Smámynd: Haraldur Davíðsson

Hvað varð um kosningaréttinn okkar ?

Er ekki lýðræði á Íslandi ?

Eru kosningar bara uppá grínið ?

Ég segi það enn og aftur, flokkakerfið er svo löngu orðið úrelt, það er dragbítur á alla framþróun.

Okkur eiga ekki að koma innanbúðardeilur flokkanna hið minnsta við. Geti þetta lið ekki komið sér saman um að standa við það sem fólkið kaus, á það að VÍKJA, þetta sannar hrokann í þessum sjálfhverfu dekurrófum.

Byltingu strax!!

Haraldur Davíðsson, 14.8.2008 kl. 15:43

15 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Sigurjón, sérstaklega í ljósi þeirra lyga sem Óskar bar fram og neitaði öllu.

Ég er orðinn hálf ruglaður um hvað á að halda Halli .. úff .. meira ruglið!

Guðsteinn Haukur Barkarson, 14.8.2008 kl. 15:51

16 Smámynd: Mofi

Algjör snilld Haukur!!!   Teikningin lýsir þessu alveg svakalega vel. Að segja að þau eru að skjóta sig í fótinn nær þessu engan veginn jafn vel og þín teikning! :)

Ég er hreinlega sammála Haraldi, burt með þetta lið og kjósum aftur. Vonandi verður eitthvað annað fólk þá í boði þar sem maður er komin með alveg nóg af þessu rugli.

Mofi, 14.8.2008 kl. 15:54

17 identicon

Mér sýnist Hanna Birna vera búin að hrekja Gísla Martein úr landi og Ólaf F út úr pólitík. Þannig að væntanlega höfum við borgarbúar fengið nýjan einræðisherra/frú. Hvernig svo sem allt fer, þá er nokkuð ljóst að Sjálfstæðisflokkurinn hefur misst fylgi sitt í Reykjavík til lengri tíma litið.

Stefán (IP-tala skráð) 14.8.2008 kl. 16:09

18 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Mofi - einmitt.

Stefán - rétt hjá þér!

Guðsteinn Haukur Barkarson, 14.8.2008 kl. 16:15

19 Smámynd: Ingvar Valgeirsson

Nú hafa ALLIR flokkar, sem og óháðir, fengið að prófa að vera í meirihluta. Allir memm.

Er það ekki fallegt? 

Annars er ekki rétt að þetta séu sömu framsóknarsokkarnir, óþvegnir, eins og Jón Ingi segir hér að ofan. Þeir eru þvegnir, Björn Ingi er farinn.

Annars skil ég ekki óánægjuna, menn voru hundfúlir með borgarstjórann. Því er ákveðið að henda honum út og þá verða menn enn vitlausari. Það er heldur ekki eins og 100 daga meirihlutinn hafi gert eitthvað merkilegt - eða bara nokkuð yfirleitt - meðan hann sat við völd.

Ingvar Valgeirsson, 14.8.2008 kl. 16:17

20 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Þetta er allt tóm þvæla og vitleysa, veit ekki hvort það verður nokkurn tíman sátt með þetta fólk.   en vont er að vera framsóknarmella.

Ásdís Sigurðardóttir, 14.8.2008 kl. 16:28

21 Smámynd: Haraldur Davíðsson

Sætt Ingvar ? mér sýnist þetta sanna mál okkar með flokkana alla, þeir eru allir gagnslausir með öllu..

...það er ekki sætt heldur óásættanlegt.

Haraldur Davíðsson, 14.8.2008 kl. 16:37

22 Smámynd: Ingvar Valgeirsson

Já, frekar gagnslausir flokkar - eftir þriðju hallarbyltinguna erum við aftur komin á byrjunarrreit, D og B...

Hugsa sér, kjörtímabilið er bara rétt liðlega hálfnað.

Ingvar Valgeirsson, 14.8.2008 kl. 17:46

23 identicon

Sjálfstæðismenn gera ALLT til að halda völdum í borginni. Þessi skrípaleikur er rugl frá A til Ö. Langavitleysan tekur engan enda og borgarbúar hafðir af fíflum.

Bryndís (IP-tala skráð) 14.8.2008 kl. 18:11

24 Smámynd: halkatla

snilld

halkatla, 14.8.2008 kl. 18:13

25 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Þú ert frábær Haukur

Sigurður Þórðarson, 14.8.2008 kl. 21:57

26 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæll Guðsteinn minn.

Flott teikning. Hefði verið gaman að sjá aðra með alla hausana áður en þeir fuku.

Hvers eigið þig að gjalda? Allir eru búnir að rifta en ekki ennþá að skrifta. Vandið ykkur í næsta prófkjöri og veljið fólk sem er ekki að þróast í apa.

Samúðarkveðjur til Reykvíkinga.

Rósa Aðalsteinsdóttir, 14.8.2008 kl. 23:36

27 identicon

Framsókn bauð fram síðast í fyrsta skipti síðan 1990, flokkurinn hafði ekki mælst inni með mann í langan tíma og nær síðan inn manni og þú kallar það afhroð?   Kanntu ekki söguna betur eða skilur þú ekki orðið afhroð ?

GVald (IP-tala skráð) 15.8.2008 kl. 00:14

28 Smámynd: www.zordis.com

Geggjuð teikning og hrikaleg!

www.zordis.com, 15.8.2008 kl. 02:01

29 Smámynd: Eiríkur Ingvar Ingvarsson

Tveir fletir...Er þetta ekki meirihluta samstarf?

Eru þetta ekki öruglega í samræmi við kostningar?

Hvernig er hægt að krefjast þess að kjósa? Það er ekki í boði, og verður ekki í boði á næstunni.

Mér finnst þetta æðislegt, hér er komin framfarasinnuð borgaraleg stjórn með flottum borgarstjóra. Vildi einhver óbrálaður maður fá Dag og Co aftur...

Eiríkur Ingvar Ingvarsson, 15.8.2008 kl. 02:48

30 identicon

Já Eiríkur, það vildu það flestir Íslendingar.  Fylgist þú ekkert með skoðanakönnunum?  Þér finnst sjálfsagt þá, líkt og Sjálfstæðisflokknum, að fólk sé almennt fífl sem hægt er að hafa að fíflum út í eitt......

Hrafn Kr (IP-tala skráð) 15.8.2008 kl. 10:16

31 identicon

Sú sorglega staða er bara þannig að kjörnum fulltrúum borgarinnar er skilt samkvæmt sveitastjórnarlögum að mynda meirihluta. Enginn flokkur er með hreinan meirihluta í borginni og því verður meirihlutinn að myndast með samstarfi fleirri flokka. Það sem var í boði er Sjálfstæðisflokkur með einum af hinum flokkunum, sama hver er, eða allir hinir flokkarnir saman gegn Sjálftæðisflokknum, eins og Tjarnarkvartetinn var.

Tjarnarkvartetinn var ómögulegt að mynda aftur því hann innihélt Frjálslyndu Íslandshreifinguna með óháðu ívafi, sem sannaði það bæði í Tjarnarkvartetinum og með Sjálfstæðisflokknum að er óstarfhæf með öllu með blurra fremstan í flokki sem ákveður bara eftir eigin hentuleika hvort hann vilji starfa að borgarmálum eða vera í (geð)veikindaleifi.

Þá stendur bara eftir sá möguleiki að Sjálfstæðisflokkurinn myndi meirihluta með einum af hinum flokkunum. Sorrý líðræðið er bara þannig að það er lífsins ómögulegt að losna við Sjálftæðisflokkinn úr meirihluta, á þessu kjörtímabili. Vinstrisinnaðir græningjar eru óhæfir með öllu að starfa með Sjálfstæðisflokknum og ég hef lúmskan grun um að Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkurinn hefðu seint komið sér saman um hvor bæri meiri völd í samstarfinu, enda fulltrúar í Samfylkingunni, sem gagnrína Sjálfstæðismenn fyrir valdagræðgi, valdagráðugustu menn sögunnar. En fyrir þá sem neita því, hugsið nokkur ár aftur í tímann og rifjið upp hversvegna Reykjavíkurlistinn sprakk. Það var vegna þess að Samfylkingin ætlaði að eigna sér öll fulltrúasætin á listanum vegna þess að þeir fullyrtu að hinir flokkarnir hefðu ekkert fylgi, sem kom svo á daginn eftir kosningar að var alrangt.

Ég persónulega er feginn að losna við Blurra einræðisherra, og mér finnst þessi nýstofnaði meirihluti eina sem hægt er að gera í stöðunni, og mér finnst þessi mynd  hjá þér frábær, takk fyrir það.

siggi (IP-tala skráð) 15.8.2008 kl. 10:46

32 Smámynd: Ingvar Valgeirsson

Þetta var reyndar eini meirihlutinn sem kom til greina. Almenningur virtist ákaflega mikið á móti borgarstjóranum. Því hlýtur að vera vilji kjósenda að hann hætti að vera borgarstjóri. Hann var ekki til í að víkja fyrir Margréti og Dagur var ekki til í að vinna með honum og því var meirihluti án Sjálfstæðismanna ekki möguleiki. Nú, og þar sem allir aðrir en Framsókn neituðu að vinna með Sjöllunum var þetta líklega eina mögulega útkoman.

Sjálfum finnst mér hálfasnalegt þegar flokkar gefa upp fyrir kosningar að þeir vilji ekki vinna með ákveðnum andstæðingum sínum, sbr. bæði VG og Samfylkingu, sem voru búnir að lýsa því yfir að þeir myndu ekki vinna með Sjálfstæðisflokknum. Þá er enginn möguleiki annar en að menn eins og Björn Ingi og Óskar eða Ólafur F. komist í feitt, þrátt fyrir lítið sem ekkert fylgi.

Ingvar Valgeirsson, 15.8.2008 kl. 11:17

33 Smámynd: Halla Rut

Góð mynd hjá þér.

Sér hver sá er vill, hve lítið Sjálfstæðismenn meta kjósendur. 

Halla Rut , 15.8.2008 kl. 21:29

34 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

flott mynd!

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 17.8.2008 kl. 00:49

35 identicon

Ferlega ertu fúll, Guðsteinn, þú og þitt lið töpuðu borginni. Voru "guðir" þínir, Súsanna súra og Dagur súri e-ð betri í sínum skrímslaleik ?

Örn Johnson ´43 (IP-tala skráð) 17.8.2008 kl. 08:23

36 Smámynd: J. Einar Valur Bjarnason Maack

Mér dettur helst í hug að það sé verið að spila Lúdó uppá Borgarstjórarstólinn, slík er vitleysan.

Góð mynd. 

J. Einar Valur Bjarnason Maack , 19.8.2008 kl. 14:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Guðsteinn Haukur

Guðsteinn Haukur Barkarson
Guðsteinn Haukur Barkarson

"Our life is a gift from God,
what we do with that life,
is our gift to God"

Höf. óþekktur

Sjá höfundasíðu fyrir ákveðna skilmála og upplýsingar um bloggarann 

Önnur snilld...

Hvaða þjóðir heimsækja þetta blogg?

free counters

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 28
  • Frá upphafi: 587833

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 27
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Skoðanna könnun

Á að aðskilja ríki og kirkju?

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband