Í dag er fyrirbænardagurinn

Ég sá þetta auglýst hjá honum Þórarni bloggvini mínum og félaga, og mátti til með að auglýsa jafn þarfan hlut, hann útskýrir tilgang þessa fyrirbænardags mjög vel á blogginu sínu, og er óþarfi fyrir mig að endurtaka það, nánar hér.

Notum nú tækifærið og biðjum fyrir náunga okkar og nágranna, sama hver hann/hún er og hvaða trú viðkomandi aðhyllist. Ef ekki fyrir okkur sjálf heldur samfélagsins vegna, því eins og ástandið hefur verið undanfarið er ekki vanþörf á þessu góða átaki. Cool

En af mér er það að frétta að ég loksins búinn í sumarfríi og kominn aftur í vinnu. Ég hef ekki bloggað undanfarið einfaldlega vegna þess að ég vildi eiga mér smá líf í sumarfríinu, því oft þegar ég geri færslur þá þarf mikla vinnu og orku til þess að sinna þeim. En mikið var þetta kærkomið frí, og er ég nýr maður eftir þetta allt! Mér tókst meira að segja að brenna af mér vömbina og er orðinn aftur eins og ég var hérna í gamla daga. Það er miklum göngum, hjólreiðum og sundi að þakka! Smile Rúm 10 kíló eru fokinn og líður mér miklu betur fyrir vikið, og reyndar lít betur út. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Birna M

Mér finnst bara ekki veita af að biðja rösklega fyrir stjórnvöldum, ekki bara þetta venjulega málamyndavæl sem við heyrum alltaf. Heldur að það sé tekið almennilega á, við erum að missa allt frá okkur vegna þess að við biðjum ekki nægilega vel fyrir þessu. Ég bið en hverju áorka ég ein ef enginn finnur þörf fyrir að standa almennilega vörð um landið sem Guð gaf okkur. Þið fáið ekki af því þér biðjið ekki sagði Jesús og þannig er það núna.

Hjartanlega til hamimgju með kílóin, það er svo sannarlega gott að losna við þau.

Birna M, 24.7.2008 kl. 11:05

2 Smámynd: Ásgerður Jóna Flosadóttir

Tek heilshugar undir orð þín Guðsteinn með fyrirbænardaginn.

Ásgerður Jóna Flosadóttir, 24.7.2008 kl. 11:11

3 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Birna M. - Sammála! Og takk fyrir innlitið.

Ásgerður - takk fyrir það!

Guðsteinn Haukur Barkarson, 24.7.2008 kl. 12:14

4 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæll litli bróðir.

Mikið er ég búin að sakna þín mikið. Frábært frí og nú á að þræla nokkrar vikur fyrir sæluna miklu.

Þú ert ekki lengi að hrista af þér 10 kíló. Ég spyr nú bara hvar voru þau. Sá engin aukakíló í júní sl.

Starfsfólk Lindarinnar stendur sig vel og ekki veitir nú af að biðja fyrir sökkvandi skipi sem er því miður stjórnlaust.

Eins þurfum við að biðja fyrir náunga okkar og ég vil minna á Paul Ramses sem við því miður fréttum ekkert af. Hvers vegna ekki?

Megi Guð almáttugur miskunni þessari voluð  þjóð.

Guð blessi þig litli bróðir og velkominn út úr bloggfrískápnum.

Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 24.7.2008 kl. 13:02

5 identicon

En krakkar mínir... þið eruð að ákveða að gera ekki neitt.
Þið gætuð meira að segja gert illt verra ef maður tekur mið af rannsókn sem var gerð á virkni fyrirbæna.... reyndar var munurinn svo lítill að það var ómarktækt... but still, fólk sem fékk fyrirbænir gekk verr eftir skurðaðgerðir.

Mér fannst bara að ég yrði að nefna þetta, no hard feelings or nuthing.

DoctorE (IP-tala skráð) 24.7.2008 kl. 13:53

6 Smámynd: Flower

Gaman að sjá þig á blogginu aftur Haukur.

Flower, 24.7.2008 kl. 13:56

7 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

DoctoE, ... við erum ekki að leita að sönnunum, við höfum þegar fundið það sem við leitum að - en haltu endilega áfram að gramsa og kannski finnur þú eitthvað sem gefur lífi þínu gildi ..  .. þú ert alltaf sama krúttið.  

Það er gott að hugsa til náungans, hvort sem það er í bæn eða bara að taka frá tíma til að hugsa til hans. Ekki gera lítið úr því sem öðrum þykir mikilvægt.

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 24.7.2008 kl. 14:07

8 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Rósa - eins og allir karlmenn þá fóru þessi kíló á vömbina, en ég kann greinilega að klæða þetta af mér og tóku ekki margir eftir þessu. En ég styð þetta átak Lindarinnar heilshugar, og finnst þetta gott framtak.

Dokksi - sannaðu þá fyrir mér að bænin virki ekki.

Flower -

JóhannaEkki gera lítið úr því sem öðrum þykir mikilvægt.

Amen.

Guðsteinn Haukur Barkarson, 24.7.2008 kl. 15:00

9 identicon

DoctorE (IP-tala skráð) 24.7.2008 kl. 15:08

10 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Þessi rannsókn þín er alveg eins þú og þín ímyndaða persóna Dokksi, fullyrðing um hluti sem þú veist lítið um. Ég sé nákvæmlega engar "sönnunarbyrgði" í þessari rannsókn, heldur aðeins bergmál af þínum skoðunum, og sömuleiðis virðingarleysi þitt við skoðanir annarra. 

Af hverju má ég ekki halda að bænin hjálpi og geri góða hluti? Hvað nákvæmlega kemur þér það við? Er ég að segja þér hvernig þú átt að haga lífi þínu? Nei, ég tala ekki skipunartóni eins og þú hefur alltaf gert þegar þú gagnrýnir trúarbrögð. Horfðu þér nær Dokksi, því þú átt varla efni á því að gagnrýna.

Guðsteinn Haukur Barkarson, 24.7.2008 kl. 15:49

11 identicon

Velkominn aftur.Flott að hafa fyrirbænadag

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 24.7.2008 kl. 18:46

12 Smámynd: Kristinn Theódórsson

Bestu gaman-greiningu sem ég hef séð á virkni bæna er að finna hér:

http://russellsteapot.com/images/comics/2007/Image090.jpg

Textinn í síðasta rammanum er gargandi snilld.

Megi bænir ykkar allra svo virka sem best.

mbk,

Kristinn Theódórsson, 24.7.2008 kl. 20:26

13 Smámynd: Bumba

Gott að sjá þig aftur Guðsteinn minn Haukur. Tek þátt í bænadeginum með ykkur, hann ætti að vera á hverjum degi allt árið. Með beztu kveðju.

Bumba, 24.7.2008 kl. 22:54

14 identicon

Sæll Guðsteinn minn.

Já, ef að við förum nú í það að virkja fimmtudagana í að biðja fyrir náunganum og landi og þjóð., ásamt þeim sem fyrst komu með þessa hugmynd, sem var starfsfólk Lindarinnar.

Svo legg ég til að við finnum 1 dag fyrir  Doktor E og biðjum vel fyrir honum., mér heyrist hann grátbiðja um það.

Lifið öll í Guðs friði.

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 24.7.2008 kl. 23:10

15 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Guðlaug - já, Dokksi er ... sérstakur.

Birna - nákvæmlega! 

Andrés - hehehe ... einmitt!!! 

Kristinn - eins og sagt er á ensku: "I fail to see the humor in it", þá á ég við þessa teiknimyndasögu sem þú vísaðir í. 

Bumba - sammála hverju orði! 

Þórarinn - jú það veitir ekki af að biðja fyrir Dokksa!

Guðsteinn Haukur Barkarson, 24.7.2008 kl. 23:25

16 Smámynd: Kristinn Theódórsson

Guðsteinn
eins og sagt er á ensku: "I fail to see the humor in it", þá á ég við þessa teiknimyndasögu sem þú vísaðir í.

Ha! Þetta er ógeðslega skemmtileg setning "the very edge of statistical significance".

Menn verða nú að hafa smá húmor fyrir trúnni líka :)

En, ég veit, það eru ekki allir með sama húmorinn, ekkert mál.

mbk, 

Kristinn Theódórsson, 24.7.2008 kl. 23:32

17 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

hehehe ... satt er það Kristinn ... ... ekki eru öll lömbin eins í hjörðinni.  Það væri ömurlegt!

Guðsteinn Haukur Barkarson, 24.7.2008 kl. 23:39

18 identicon

Hey ég er bara að ræða þessi mál, fá botn í þau.
Ég hef sama rétt á þessu og þið að segja öfugt, rannsóknin var alveg legal.
Ef guð er til þá myndi hann vilja að sköpunarverkið hugsaði.. stæði á eigin fótum.. svona make him proud rétt eins og hvert annað foreldri.
Enginn guð myndi vilja vol og væl... látið ekki biblíuna skekkja sýn ykkar krakkar mínir.

DoctorE (IP-tala skráð) 24.7.2008 kl. 23:53

19 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Enginn guð myndi vilja vol og væl... látið ekki biblíuna skekkja sýn ykkar krakkar mínir.

Sér þetta enginn annar en ég? Dokksi, hysjaðu upp um þig manndóminn og reyndu einu sinni að virða annarra manna skoðanir. 

Andrés - gleymdu þessu, Dokksi virðist meinheftur fyrir venjulegum rökum. En takk samt.

Guðsteinn Haukur Barkarson, 25.7.2008 kl. 00:01

20 identicon

Það á að challenga skoðanir og þá allra mest skoðanir sem eru algerlega órökstuddar.

Mín skoðun er að trúaðir gera mjög lítið úr guði sínum, mér finnst þeir gera hann svo lítin að það getur ekki verið neitt annað en guðlast.
Þið eruð búin að draga hann niður á plan ógnvænlegs keisara aftan úr fornöld.
Ég bara verð að benda ykkur á þessa hluti, hugsið utan bókarinnar. 
Bókin hefur verið í smíðum í aldaraðir AF MÖNNUM, mönnum sem hafa gífurlega persónulega HAGSMUNI af því að þið gerið X en ekki Y.
Ef það voru einhver upprunaleg skilaboð í bókinni þá eru þau löngu köfnuð í kroti kufla... þetta verðið þið að horfast í augu við, þetta hlýtur hvaða maður sem vil sjá að gera sér grein fyrir.

DoctorE (IP-tala skráð) 25.7.2008 kl. 00:10

21 identicon

Heyr heyr Doctore, líka gaman að sjá þessa rannsókn, gerir það að verkum að maður veit ekki hvernig maður á að taka svona bænum fólks. Auðvitað vonar maður að maðurinn finnist, það er engin spurning, en ef guð er til þá hefur hann nú ekki mikið verið að skipta sér af hörmung sem mannfólkið hefur oft þurft að ganga í gegn um hvort sem einhver liggur á bæn eða ekki. Alla vega skrýtið hvernig vondir hlutir gerast fyrir gott fólk og svo öfugt og hvernig börn verða oft fyrir hræðilegum hlutum.

Valsól (IP-tala skráð) 25.7.2008 kl. 06:36

22 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Jamms, þið tveir kumpánar geta verið sammála ykkar á milli. En þessi rannsókn sannaði ekkert nema á mennskum mælikvarða, og gera þeir sömu mistök sem mannsskepnan hefur gert í gegnum tíðina, það er að reyna reikna og sanna Guð sé til. Slíkt finnur maður í hjarta sér, og ekki í gegnum köld vísindaleg fræði.

Guðsteinn Haukur Barkarson, 25.7.2008 kl. 08:26

23 identicon

Comon Guðsteinn, that does not compute.
Svo eru vísindi & fræði HOT

DoctorE (IP-tala skráð) 25.7.2008 kl. 08:57

24 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Hot? hmmm ... mig langar ekki að vita meira um þín "kick" Dokksi! Jiikkkk ...

En allavegna, þá geta vísindin aldrei afsannað tilvist Guðs, eða sannað hann. Það er mergur málsins, þess vegna gef ég skít í svona "rannsóknir".

Guðsteinn Haukur Barkarson, 25.7.2008 kl. 09:22

25 identicon

Þannig að ef ég segi að það sé til 100 metra há kanína á vatnajökli og menn geta ekki sannað að ég hafi rangt fyrir mér: Bang kanínan er til.

Þannig ganga bara kaupin ekki fyrir sig á eyrinni, ég veit líka að inni í þér ertu mér samþykkur, þú vilt bara ekki viðurkenna það.
Ég er samt vongóður með að þú gerir það á einhverjum tímapunkti :)

DoctorE (IP-tala skráð) 25.7.2008 kl. 09:41

26 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

hehehehe ... sagt er á ensku Dokksi, og er ég ekki vanur að nota svona talsmáta: "Hell will freaze over before that happens!"

Guðsteinn Haukur Barkarson, 25.7.2008 kl. 09:44

27 identicon

Gefðu manni fisk og hann verður mettur, gefðu honum trú og hann deyr úr hungri við að biðja um fisk.

DoctorE (IP-tala skráð) 25.7.2008 kl. 11:09

28 Smámynd: Jón Ragnarsson

Bænir eru sniðugar, maður þarf ekki einu sinni að fara út úr húsi til að fá þessa "ég er góður, ég hjálpa" tilfinningu. Getur meira að segja gert þetta meðan maður er í sturtu.

Jón Ragnarsson, 25.7.2008 kl. 11:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Guðsteinn Haukur

Guðsteinn Haukur Barkarson
Guðsteinn Haukur Barkarson

"Our life is a gift from God,
what we do with that life,
is our gift to God"

Höf. óþekktur

Sjá höfundasíðu fyrir ákveðna skilmála og upplýsingar um bloggarann 

Önnur snilld...

Hvaða þjóðir heimsækja þetta blogg?

free counters

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 31
  • Frá upphafi: 587804

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Skoðanna könnun

Á að aðskilja ríki og kirkju?

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband