Já en til hvers Vantrú !

Ég veit ekki alveg hvað þeir eru að hugsa með þessu gríni sínu, en kannski eru þeir allir gengnir í þennan söfnuð, eða "The Church of the Jedi"!  Tounge Nei ég veit ekki, en skondið var þetta, og verst var að sjá ekki Svarthöfða spila Bingó! Joyful

En svona leit þessi furðulegi gjörningur út:

darthVader

Ég veit að þetta var í gríni gert ... en afhverju? Hvað græða þeir á svona uppákomum? Woundering

 Vantrú: May the force be with you! hehehe ...


mbl.is Svarthöfði á vegum félagsmanna í Vantrú
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Mama G

Mér finnst þetta algjör snilld

Þessi prestaklæði eru nú álíka furðuleg múnderíng og svarthöfðabúningurinn...

Mama G, 11.6.2008 kl. 12:38

2 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Ég verð nú að viðurkenna að ég hló nú að þessu, enda hrúgaðist bæði póstur og MSN skilaboð til mín! En ég skil samt ekki tilganginn.

Guðsteinn Haukur Barkarson, 11.6.2008 kl. 12:40

3 Smámynd: Mama G

Ég myndi giska á að þeim finnist þetta vera skrípaleikur og til að undirstrika það ákveðið að senda einn skrípakall frá sér í geimið... dunnó annars

Mama G, 11.6.2008 kl. 12:43

4 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Jupp, ég er engu nær, mín spurning er sú: hverju var verið að mótmæla? Var einhver sérstök ástæða eða var þetta bara "for the heck of it"? Kannski eru þeir loks búnir að viðurkenna að þeir trúa á eitthvað!

Guðsteinn Haukur Barkarson, 11.6.2008 kl. 12:45

5 identicon

Ég sé þetta sem tilraun til að setja asnaskapinn í samhengi.

Persónulega finnst mér ekkert asnalegri, maðurinn með grímuna og samfellanlegt geislasverð, heldur en miðaldra karlar í kuflum og með þessa stórkostlegu kraga.

Hvað menn græða á svona uppákomu? Athygli, Vantrú hefur lengi verið að reyna að vekja athygli á málstað sínum en ávallt skilast hann frekar bjagaður í gegnum fjölmiðla. Ef til vill að fólk hlusti loksins hvað þeim gengur til? 

Jóhannes H. Proppé (IP-tala skráð) 11.6.2008 kl. 12:49

6 Smámynd: halkatla

þetta er bara fyndið

halkatla, 11.6.2008 kl. 12:50

7 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Það er nú málið Guðlaug, kannski eru þeir að auglýsa nýja prestaklæðnaðinn sinn! 

Guðsteinn Haukur Barkarson, 11.6.2008 kl. 12:50

8 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Jubb Anna Karen, ég held að allir nýir meðlimir Vantrúar fái ókeypis geislasverð við inngöngu!

Guðsteinn Haukur Barkarson, 11.6.2008 kl. 12:51

9 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Jóhannes, já það má vel vera, en þeir fá alveg nógu mikla athygli fyrir minn smekk. Þeir eru manna duglegastir við að skrifa greinar í blöð og á netinu, þannig að rök þín þykja mér doldill vælutónn í.

Guðsteinn Haukur Barkarson, 11.6.2008 kl. 12:53

10 Smámynd: Mofi

Þeir hafa húmor... það verður ekki tekið af þeim.  Hvaða boðskap þeir voru að boða er aftur á móti ekki alveg jafn augljóst.

Mofi, 11.6.2008 kl. 13:00

11 Smámynd: Gísli Guðmundsson

Ef út í það er farið.....eru þeir sem eru VANTRÚA ekki í raun þeir trúuðustu?????

Til að trúa EKKI, þarf að viðurkenna trú...ekki satt???

Er þessi gjörningur því ekki hrein og bein stuðningsyfirlýsing við trú?

Gísli Guðmundsson, 11.6.2008 kl. 13:02

12 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Sammála Dóri/Mofi. Gjörsamlega sammála, ég hélt að þeir væru algjörlega gerilssneyddir húmor ... en ég dreg þau orð tilbaka.

Guðsteinn Haukur Barkarson, 11.6.2008 kl. 13:03

13 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Gísli - einmitt!!!! Þess vegna vísaði ég á "The Church of the Jedi" í grein minni, og þá er spurningin hvort þeir séu sjálfum sér samkvæmir!

Guðsteinn Haukur Barkarson, 11.6.2008 kl. 13:04

14 identicon

Ég held að það sé nokkuð til í þessu sem Gísli segir. Það eru allavega held ég fáir sem hugsa jafn mikið um kristna trú og vantrúarmenn. Ég fer ekki inn á heimasíður allra presta og les (í) allt sem þeir skrifa og tjái mig um það. En kannski gerir það mig að lélegri manneskju!

Erla (IP-tala skráð) 11.6.2008 kl. 13:06

15 identicon

Táknræn ádeila á kufla, ein best heppnaða ádeila á þessa menn ever.
Ég get ekki talað fyrir vantrú en fyrir mig þá eru engir geimgaldrakarlar til.. það er ekki trú, ég berst fyrir því að tækla skipulögð trúarbrögð sem eru ekkert nema peningaplokk og valdagræðgi... að segja að það sé trú að trúa ekki er öfugmæli... að trúa ekki er að vera eðlilegur eins og við fæðumst... áður en dogma fornmanna er innprentað í fólk.
Ég veit að engir guðir eru til, það hafa liðið þúsundir ára og ekkert hefur komið fram sem bendir til þess að guðir séu til, zero, null.

P.S. Trúarrit eru ekki sannanir, að einhver læknist af einhveru er ekki sönnun

DoctorE (IP-tala skráð) 11.6.2008 kl. 13:21

16 identicon

Ef út í það er farið.....eru þeir sem eru VANTRÚA ekki í raun þeir trúuðustu?????

Til að trúa EKKI, þarf að viðurkenna trú...ekki satt???

Er þessi gjörningur því ekki hrein og bein stuðningsyfirlýsing við trú?

Var þetta talað í hring eða þrjá?  

Jubb Anna Karen, ég held að allir nýir meðlimir Vantrúar fái ókeypis geislasverð við inngöngu!

Ef svo væri þá færi ég hið snarasta og skráði mig. (varstu að meina alvöru eða svona plast með hljóðgerfli?)

Jóhannes, já það má vel vera, en þeir fá alveg nógu mikla athygli fyrir minn smekk. Þeir eru manna duglegastir við að skrifa greinar í blöð og á netinu, þannig að rök þín þykja mér doldill vælutónn í.

Eftir því sem ég kemst næst þá eru þeir oftar en ekki að svara ásökunum eða útursnúningum á hendur trúleysingja. Svo sýnist mér sem þú hópir Vantrú, Siðmennt og jafnvel okkur hlutlausu trúfrelsingjanna sem eina grúppu af væluskjóðum.

 Þeir hafa húmor... það verður ekki tekið af þeim.  Hvaða boðskap þeir voru að boða er aftur á móti ekki alveg jafn augljóst.

Nákvæmlega þetta. Þið vælið yfir því hvað þeir fá mikla athygli og hversu mikið þeir skrifa en samt hafið þið ekki hugmynd um hver málefni þeirra eru.

Jóhannes H. Proppé (IP-tala skráð) 11.6.2008 kl. 13:22

17 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Jóhannes:

Ef svo væri þá færi ég hið snarasta og skráði mig. (varstu að meina alvöru eða svona plast með hljóðgerfli?)

Ja, vonandi alvöru!

Eftir því sem ég kemst næst þá eru þeir oftar en ekki að svara ásökunum eða útursnúningum á hendur trúleysingja. Svo sýnist mér sem þú hópir Vantrú, Siðmennt og jafnvel okkur hlutlausu trúfrelsingjanna sem eina grúppu af væluskjóðum.

Ég sagði að þeir fá nóg af fjölmiðla umfjöllun, og fer ekki ofan af því. Þeir eru afar duglegir við að ná sér í hana sjálfir á móti mörg þúsunda manna kristnu samfélagi, verður þú mikið var við okkur? Þ.e.a.s. í blöðum og á netinu? Nei, við erum ekki margir kæri Jóhannes.

Nákvæmlega þetta. Þið vælið yfir því hvað þeir fá mikla athygli og hversu mikið þeir skrifa en samt hafið þið ekki hugmynd um hver málefni þeirra eru.

Þeir segja og fullyrða að þeir trúa á EKKERT, nákvæmlega EKKERT! Þess vegna set ég spurningamerki við það sem Gísli ebndir réttilega á. Og ég hef kynnt mér málstað þeirra ágætlega þakka þér fyrir, enda eru þeir tíðir gestir á blogginu mínu.

Er ég svona slæmur að fara fram á vitræna útskýringu þá? Er það sem þú túlkar sem 'væl' mín megin?

Guðsteinn Haukur Barkarson, 11.6.2008 kl. 13:30

18 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Dokksi  - það er þín skoðun.

Guðsteinn Haukur Barkarson, 11.6.2008 kl. 13:31

19 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Jamms nafni, en öllu gríni fylgir einhver alvara. Hver var tilgangurinn? Er þetta svona flókin/erfið spurning?

Guðsteinn Haukur Barkarson, 11.6.2008 kl. 13:35

20 identicon

Guðsteinn: ehhh mín skoðun, það er meira en skoðun því engar sannanir eru til fyrir guðum, algerlega engar.
Þú getur í besta falli vonað að guð sé til, trú í skilning trúarbragða er ekkert nema von.. ef menn trúa þessu 100% þá er eitthvað spúkí í gangi. :)

DoctorE (IP-tala skráð) 11.6.2008 kl. 13:37

21 identicon

Ég sagði að þeir fá nóg af fjölmiðla umfjöllun, og fer ekki ofan af því. Þeir eru afar duglegir við að ná sér í hana sjálfir á móti mörg þúsunda manna kristnu samfélagi, verður þú mikið var við okkur? Þ.e.a.s. í blöðum og á netinu? Nei, við erum ekki margir kæri Jóhannes.
Það var meira fjallað um það þegar Árni Jónsen og Guðni Kýrkyssir töluðu í pontu á Alþingi að varðveita bæri kristilegt siðferði í skólum. Báðir lýstu þessir menn algjörri vanþekkingu á málefnum trúleysingja með orðum sínum. Að ógleymdu fíaskói Bjarna Harðarsonar síðustu daga. 
Þeir segja og fullyrða að þeir trúa á EKKERT, nákvæmlega EKKERT! Þess vegna set ég spurningamerki við það sem Gísli ebndir réttilega á. Og ég hef kynnt mér málstað þeirra ágætlega þakka þér fyrir, enda eru þeir tíðir gestir á blogginu mínu.

Trúa á ekkert en baráttumálin eru önnur. Þá ber helst að aðskilja ríki og kirkju, svo öll lífsskoðunarfélög standi jöfn. Að ógleymdri baráttu gegn trúboði í skólum.

Er ég svona slæmur að fara fram á vitræna útskýringu þá? Er það sem þú túlkar sem 'væl' mín megin?
Segðu mér hvað þú villt skýrt vitrænt og ég skal reyna mitt besta. Ef þú segir mér hvað ég var að væla skal ég segja þér hvað þú varst að væla

Jóhannes H. Proppé (IP-tala skráð) 11.6.2008 kl. 13:44

22 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Dokksi - afhverju sanna alla hluti? Til er margt í heiminum sem er ógerlegt að sanna.

Ritað er:

Jóhannesarguðspjall 20:29
29 Jesús segir við hann: ,,Þú trúir, af því þú hefur séð mig. Sælir eru þeir, sem hafa ekki séð og trúa þó.``
Er þetta flókið Dokksi? Eða ætlar þú að kalla mig heimskan aftur?


Guðsteinn Haukur Barkarson, 11.6.2008 kl. 13:44

23 identicon

Haukur segir:
Dokksi
- afhverju sanna alla hluti? Til er margt í heiminum sem er ógerlegt að sanna.

Ritað er:

Jóhannesarguðspjall 20:29
29 Jesús segir við hann: ,,Þú trúir, af því þú hefur séð mig. Sælir eru þeir, sem hafa ekki séð og trúa þó.``
Er þetta flókið Dokksi? Eða ætlar þú að kalla mig heimskan aftur? 

Ef DoctorE gerir það ekki þá gerir Darwin það amk:

Ignorance more frequently begets confidence than does knowledge: it is those who know little, not those who know much, who so positively assert that this or that problem will never be solved by science.
Charles Darwin
English biologist (1809 - 1882)

Arnar (IP-tala skráð) 11.6.2008 kl. 13:51

24 identicon

Comon Guðsteinn, ertu að segja að guð hafi viljað menn svona einfalda að þeir bara trúi út í loftið án sannana, ekki gera lítið úr guði þínum.
Ekki gera lítið úr guði þínum með því að leggajst á skeljarnar eins og fornmenn gerðu við keisara og kónga.
Alvöru guð myndi bara vilja að fólk gerði sitt besta, no more no less

DoctorE (IP-tala skráð) 11.6.2008 kl. 13:55

25 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Jóhannes:
Það var meira fjallað um það þegar Árni Jónsen og Guðni Kýrkyssir töluðu í pontu á Alþingi að varðveita bæri kristilegt siðferði í skólum. Báðir lýstu þessir menn algjörri vanþekkingu á málefnum trúleysingja með orðum sínum. Að ógleymdu fíaskói Bjarna Harðarsonar síðustu daga.

Jamms en horfðu lengra aftur. Og skoðaðu blöðin, þar kemur þetta berlega fram.

Trúa á ekkert en baráttumálin eru önnur. Þá ber helst að aðskilja ríki og kirkju, svo öll lífsskoðunarfélög standi jöfn. Að ógleymdri baráttu gegn trúboði í skólum.

Þessum boðskap get ég vel stutt, ég er ekkki hlynntur heilaþvotti og vil að fólk taki sjálfstæðar ákvarðanir.

Segðu mér hvað þú villt skýrt vitrænt og ég skal reyna mitt besta.
Svaraðu þá vitrænt: Hverju voru þeir að vekja athygli á? Klæðnaði prestanna? Kristni almennt? Hverju???

Ef þú segir mér hvað ég var að væla skal ég segja þér hvað þú varst að væla
hehehe .. við vorum báðir að væla, hvor í sínu horni!

Guðsteinn Haukur Barkarson, 11.6.2008 kl. 13:56

26 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Arnar:

Ef DoctorE gerir það ekki þá gerir Darwin það amk:

Ignorance more frequently begets confidence than does knowledge: it is those who know little, not those who know much, who so positively assert that this or that problem will never be solved by science.
    Charles Darwin
    English biologist (1809 - 1882)


Þetta er ástæðan fyrir því að ég trúi ekki á kenningar Darwins, sem fyrrverandi guðleysingi sjálfur finnst mér þetta of mikil einföldun. Lífið getur ekki verið svona einfalt.

Dokksi - Guð þarf ekki að sanna eitt né neitt, og finnst mér þú gera lítið úr sjálfum þér með boðskap þínum, sem þú hefur ekki einu sinni haft fyrir að kynna þér hinum megin borðs. Guð vill sínu fólki það besta, og hefðir þú aðeins lesið þig til áður en þú gagnrýnir, væri meira mark takandi á þér.

Guðsteinn Haukur Barkarson, 11.6.2008 kl. 14:02

27 identicon

Hverju voru þeir að vekja athygli á? Klæðnaði prestanna? Kristni almennt? Hverju???

Eins og ég sé þetta þá eru þeir að vekja athygli á því að þótt skáldskapur sé orðinn fastur í vana þá er hann ekkert síður kjánalegur en nýr skáldskapur/fantasía. Það sé ég amk útúr þessu.

Mér segir samt hugur að sá sem fór í búninginn og hinn sem myndaði hafi hugsað meira um "Þokkalega verður þetta fyndið" 

Þessum boðskap get ég vel stutt, ég er ekkki hlynntur heilaþvotti og vil að fólk taki sjálfstæðar ákvarðanir.
Hvað er þá slæmt við athyglina sem þeir fá? Þetta er markmið sem við viljum beggja vegna borðsins.

Jóhannes H. Proppé (IP-tala skráð) 11.6.2008 kl. 14:04

28 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

ekki veit ég hvort sérstakur tilgangur hafi verið með uppátækinu annar en bara að flippa, en alveg hrikalega fyndið

Brjánn Guðjónsson, 11.6.2008 kl. 14:10

29 Smámynd: Zaraþústra

Ég tilheyri ekki þessum hópi en ég get svo sem ímyndað mér hvað þeir eru að fara.  Einkennisbúningar gefa fólki ákveðið vald yfir öðrum, þetta hefur sannast í til dæmis tilraunum Stanley Milgram og er ástæðan fyrir því að lögreglan gengur í þeim.  Ég held það sé mjög gott að fólk minnist þess að prestar eru menn, þeir eru breyskir og brothættir eins og við. Þó svo menn beri virðingu fyrir þeim hafa þeir ekkert vald yfir mönnum (Deorum injuriae Diis curae).  Svarthöfði meðal þeirra minnir okkur á að kuflarnir eru búningar og þeir sem klæðast þeim bara menn.

Zaraþústra, 11.6.2008 kl. 14:12

30 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Jóhannes: 
Eins og ég sé þetta þá eru þeir að vekja athygli á því að þótt skáldskapur sé orðinn fastur í vana þá er hann ekkert síður kjánalegur en nýr skáldskapur/fantasía. Það sé ég amk útúr þessu.

Ég sé bara barnaskap, og ekkert annað. Þótt fyndið sé.  

Hvað er þá slæmt við athyglina sem þeir fá? Þetta er markmið sem við viljum beggja vegna borðsins.

Það er ekki sama hver fær athyglina, mér finnst vantrúarmenn afar neikvæðir í málflutningi sínum, en það er bara ég. 

Brjánn - jú ég viðurkenni að það var húmor í þessu, en á hvaða þroskastigi var þessi húmor? 

Guðsteinn Haukur Barkarson, 11.6.2008 kl. 14:15

31 Smámynd: Zaraþústra

Til er margt í heiminum sem er ógerlegt að sanna.
Allt sem er þess virði að sanna er ekki hægt að sanna.  Öll þau sannindi sem við þekkjum eru klifanir sem segja okkur ekki neitt (hvítur snjór er hvítur).  Hins vegara leggja menn ekki að jöfnu þær aðferðir sem notaðar eru til þess að sannfærast, flökkusögu taka menn ekki eins alvarlega og eigin reynslu.

Zaraþústra, 11.6.2008 kl. 14:16

32 identicon

Guð vill sínu fólki það besta... þess vegna vann Geiri á Goldfinger 9 millur í lottó :D

DoctorE (IP-tala skráð) 11.6.2008 kl. 14:22

33 Smámynd: Þarfagreinir

Þarf að vera tilgangur með öllu?

Ég held að hugsunin hafi bara verið ... "Þeir eru í kuflum og eru íbúðarmiklir ... Svarthöfði er í kufli og er íbúðarmikill ... hey!"

Vantrúarmenn græða væntanlega lítið á þessu - nema auðvitað sama hlátur og við hin.

Þarfagreinir, 11.6.2008 kl. 14:33

34 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Zaraþústra - EINMITT! Prestarnir eru bara menn, það má aldrei gleymast! Og takk fyrir djúp og skemmtilagar athugasemdir.

Þarfagreinir/Halldór - ja ef menn hafa einhvern tilgang með svona fíflalátum, væri ágætt að vita af hverju. Rosalega ætlar þessi einfalda spurning að flækjast fyrir mönnum.

Dokksi - Guð elskar líka Geirann með gullfingurna.

Guðsteinn Haukur Barkarson, 11.6.2008 kl. 14:54

35 Smámynd: Matthías Ásgeirsson

Þú verður að spyrja Svarthöfða út í tilganginn, Vantrú stóð ekki fyrir þessu.

Matthías Ásgeirsson, 11.6.2008 kl. 15:37

36 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Nú??? Af hverju stendur þá í fréttinni:

Að sögn Matthíasar Ásgeirssonar, formanns Vantrúar, var þetta aðeins í gríni gert en þeim fannst afar spaugilegt að bæta Svarthöfða í hópinn.
 
Aðspurður segir Matthías viðburðinn eflaust ekki verða árlegan en aldrei sé að vita nema Svarthöfði láti aftur á sér kræla.

Mistök moggans eða hvað þarna í gangi?

Guðsteinn Haukur Barkarson, 11.6.2008 kl. 15:47

37 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Auk þess segið þið á Vantrú :

Þess má geta að það gætti töluverðrar ónákvæmni í fréttaflutningi MBL af málinu en fréttin hefur nú verið leiðrétt. Félagið Vantrú stóð ekki fyrir þessum gjörningi.

Ég sé enga "leiðréttingu" í fréttinni ef þið stóðuð ekki fyrir þessu Hvað er þá rétt í þessu?

Guðsteinn Haukur Barkarson, 11.6.2008 kl. 15:49

38 Smámynd: Flower

Mér finnst þetta fyndið, get ekki að því gert. En þetta er samt fyndara ef einhver hefur fundið þetta upp hjá sjálfum sér heldur en ef Vantrú stæði fyrir þessu. Get heldur ekki að því gert.

Flower, 11.6.2008 kl. 16:02

39 Smámynd: Matthías Ásgeirsson

Upphaflega fyrirsögn fréttarinnar var að Svarthöfði hefði verið á vegum Vantrúar.  Það er ekki rétt.  Þeirri fyrirsögn var breytt og nú stendur réttilega að Svarthöfði hafi verið á vegum félagsmanna í Vantrú.

Þetta er svona svipað og þegar saumaklúbbur ríkiskirkjupresta heldur tombólu. 

Matthías Ásgeirsson, 11.6.2008 kl. 16:12

40 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Flower - einmitt.

Matti - takk fyrir þessa skýringu, þetta varpar ljósi á málin og er hér með leiðrétt.

Guðsteinn Haukur Barkarson, 11.6.2008 kl. 16:18

41 Smámynd: Gunnar Páll Gunnarsson

Til að fá athygli og gera eitthvað fyndið. Hvorutveggja tókst með ágætum.

Gunnar Páll Gunnarsson, 11.6.2008 kl. 16:46

42 Smámynd: J. Einar Valur Bjarnason Maack

Mér er nær sú spurning 'til hvers ríkisrekna kirkju...?'...

...sjá grein á mínu bloggi. 

J. Einar Valur Bjarnason Maack , 11.6.2008 kl. 17:30

43 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Gunnar - já ég játa það.

J. Einar og miklu fleiri nöfn - þakka þér þessa auglýsingu.   

Guðsteinn Haukur Barkarson, 11.6.2008 kl. 17:59

44 Smámynd: Haraldur Davíðsson

Ég er nú ekkert sérstaklega spenntur fyrir Vantrú, en þessu hló ég mig máttlausan að......

Haraldur Davíðsson, 11.6.2008 kl. 18:40

45 Smámynd: Ingvar Valgeirsson

Þetta var svolítið fyndið. Hinsvegar skrýtið, þar sem Svarthöfði er jú trúaður og Mátturinn sterkur í honum...

Ingvar Valgeirsson, 11.6.2008 kl. 19:30

46 Smámynd: Haraldur Davíðsson

aaaaaá þessvegna varð ég máttlaus...

Haraldur Davíðsson, 11.6.2008 kl. 19:33

47 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Ég heyrði eitt sinn fantasíu um halanegra, sem tekinn var úr sínu náttúrulega umhverfi og fluttur með þyrlu og flugi með bundið fyrir augun og látinn vakna til meðvitundar á kirkjubekk fyrir framan svartklæddan mann með hvítan kraga sem tónaði fagurlega.

Hann var eini maðurinn í kirkjunni sem fylltist lotningu því þarna sá hann töframanninn.

Takk fyrir matinn í gær þið hjónin eruð höfðingjar heim að sækja.  

Sigurður Þórðarson, 11.6.2008 kl. 19:51

48 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Halli - já, það er gaman að þessu.  :D

Ingvar - einmitt! 

Siggi - takk fyrir það. 

Guðsteinn Haukur Barkarson, 11.6.2008 kl. 20:06

49 Smámynd: Bryndís Böðvarsdóttir

Æ greyið!

Var að horfa á þetta myndband og þar sést hvar Svarthöfði gengur þarna á eftir þeim eins og einmanna hundur. Hálf lúpulegur og aumingjalegur að sjá. Hann hefði nú allavega getað sveiflað sverðinu eða eitthvað. Ekki mikil leikræn tilþrif þarna á ferð. Tí hí.

Annars var mér nú alltaf kennt að sýna trú og skoðunum annarra virðingu, ekki gera grín að þeim sem trúa á annað en ég. 

Þætti engum það skrítið ef ég tæki upp á því að mæta á fund vantrúar í geimverubúning...? (sbr. gamla logóið þeirra) 

Bryndís Böðvarsdóttir, 11.6.2008 kl. 23:00

50 Smámynd: Ingvar Valgeirsson

Er ekki ólöglegt hérlendis að bera grímur á almannafæri?

Ingvar Valgeirsson, 11.6.2008 kl. 23:08

51 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Bryndís - nákvæmlega!

Ingvar - jú ég held það .. 

Hippókrates - já þetta var doldið skondið! 

Guðsteinn Haukur Barkarson, 11.6.2008 kl. 23:13

52 Smámynd: Úlfar Þór Birgisson Aspar

Sennilega mun sonurinn spila bingó á föstudaginn langa,hinn eini og sanni Lukas.heheh

Annars jú þetta var bráðsniðug hugmynd og þræl fyndið.

Úlfar Þór Birgisson Aspar, 12.6.2008 kl. 07:11

53 identicon

99.9% af öllum trúarárekstrum á íslandi eru vegna þess að ríkiskirkjan vil ekki velja guðsríki því þar fær hún enga seðla.
Ríkiskirkjan gengur þvert gegn kenningum biblíu svo hún geti haldið sig við íslenska ríkið, stofnunin er algerlega sjálfshverf.
Ríkiskirkjan er klárlega skömm fyrir þjóð sem segist vera frjáls og með lýðræði að leiðarljósi, hún er einnig skömm fyrir þá sem segjast kristnir, hún getur ekki staðið á kenningum biblíu á meðan hún er ríkisstofnun, klárt mál.
Það er allra hagur að þessi ríkiskirkja fari að þjóna því ríki sem hún segist í orði vera að þjóna.
Ef ríkiskirkjan ber virðingu fyrir sjálfri sér og kristnum... og bara öllum íslendingum þá hættir hún að vera ríkiskirkja... simple

DoctorE (IP-tala skráð) 12.6.2008 kl. 09:58

54 Smámynd: Theódór Norðkvist

Svarthöfði var fulltrúi hinnar myrku hliðar Máttarins. Megum við líta svo á að félagsmenn Vantrúar, sem stóðu fyrir uppátækinu telji sig vera fulltrúa myrkraaflanna?

Annars mjög gott grín.

Theódór Norðkvist, 12.6.2008 kl. 11:55

55 Smámynd: Ingvar Valgeirsson

Hippókrates - ég skal ekki segja með þær, en mér er sagt (það var sagt mér það) að það væri alveg bannað að vera með grímur á almannafæri. Væntanlega er horft framhjá því á öskudaginn.

Ingvar Valgeirsson, 12.6.2008 kl. 14:30

56 identicon

Ingvar, ekki trúa sögusögnum! Finndu lagatextan og ég skal trúa þér. Hvergi hef ég fundið hann og engin getur bent mér á hann hingað til.

Al-Áttaður (IP-tala skráð) 12.6.2008 kl. 15:50

57 Smámynd: Linda

Sló ekki mína húmor taug, og núna hef ég húmor fyrir flestu ef ekki öllu, þótti þetta frekar bjánalegt, en, ég finn kannski húmorinn fyrir þessu eftir smá, fattarinn er kannski á slow í dag, kemur fyrir á bestu heimilum.

knús.

Linda, 12.6.2008 kl. 18:23

58 identicon

Sammála Bryndísi.Virðing fyrir trú og skoðunum annarra.

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 12.6.2008 kl. 19:10

59 Smámynd: Theódór Norðkvist

Ég verð að hryggja grínleikarana í Vantrú að líklega eru þeir að eyða púðri sínu á dauða fugla. Ef þeir eru að berjast gegn trú á Guð er ástæðulaust fyrir þá að beina spjótum sínum að þjóðkirkjunni.

Þjóðkirkjan hefur lýst því yfir að hún er ekki kristin, með því að leyfa prestum að staðfesta samvist samkynhneigðra. Hún fer ekki eftir orði Guðs og er þar með hætt að vera kristin kirkja. Þetta kom fram í fréttum Stöðvar 2 í kvöld.

Theódór Norðkvist, 12.6.2008 kl. 22:38

60 identicon

Theódór ríkiskirkjan og kuflar hennar eru í þessu fyrir peningana eins og allir aðrir...

DoctorE (IP-tala skráð) 12.6.2008 kl. 23:25

61 Smámynd: Theódór Norðkvist

Til hvers eru þá félög sem eru að berjast gegn trúarbrögðum að beina spjótum sínum að ríkiskirkjunni? Eru Siðmennt og Vantrú líka á móti gróðahyggju? Þá eru þeir á réttri braut varðandi eitthvað.

Theódór Norðkvist, 12.6.2008 kl. 23:56

62 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Er ekki bara verið að minna á í hvaða samhengi við samtímann, kirkjan stendur. Þessi forneskja og kjólasýning, stenst ekki nútímalega hugsun. Skrautklætt yfirvald, aðskilið frá öðrum mönnum, hálf-geistlegur þykistuleikur.  Er þetta ekki eins og einhvert skólaleikrit?  Bendir þetta til einhvers samfélagsþroska að stilla sér svona upp eins og þorpsfíflum?  Allt þetta prjál og batterí í kringum það að segja fólki að stela ekki, ljúga og hórast.

Mér finnst þetta alger snilld hjá svarthöfða. Þetta sýnir hið raunverulega ævintýri um nýju fötin keisarans. Nema að í þessu tilfelli eru klæðin fyrir hendi en keisarinn enginn.

Það kemur mér á óvart hve fólk hér er gersneytt öllum húmor.

Jón Steinar Ragnarsson, 13.6.2008 kl. 10:03

63 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Þá á ég ekki við alla, en þá allavega, sem sjá ekki pointið í þessu. Græskulaust ´grín með dýpri undirtón.

Jón Steinar Ragnarsson, 13.6.2008 kl. 10:10

64 identicon

Það liggur í augum uppi að ríkiskirkja er tímaskekkja, hún er móðgun við alla þá íslendinga sem eru ekki ríkiskirkjutrúar..
Hún vil vaða yfir börn, hún tekur 4-5 milljarða af þjóðinni árlega, hún neitar að þjónusta suma íslendinga, staðfest samvist er bara fáránlegt yfirklór til þess að viðhalda störfum kufla...
Málið er alls ekki búið þó svo að hún gifti samkynhneigða.
Ég berst gegn öllum skipulögðum trúarbröðgum.. Islam, kristni whatever.. Omega er móðgun við alla

arfleifð smarfleifð

DoctorE (IP-tala skráð) 13.6.2008 kl. 10:50

65 Smámynd: Ingvar Valgeirsson

Mér finnst nú allt í lagi að einhver með svona yfirlýsingar kynni sig með nafni...

Al-Áttaður - ég veit ekki hvar í lögum þetta stendur, ef einhversstaðar. Þess vegna kastaði ég fram spurningunni, var að vonast til að einhver nennti að gera það fyrir mig. :)

Ingvar Valgeirsson, 13.6.2008 kl. 12:33

66 Smámynd: Mofi

Ég skil afhverju þú DoctorE hefur á móti þjóðkirkjunni vegna þeirra ástæðna sem þú gafst upp en er málið að einu trúarbrögðin sem þú hefur ekkert á móti eru óskipulögð trúarbrögð? Er málið að um leið og einhverjir finna aðra sem eru sammála sér í trúarlegum atriðum og hittast og hafa samfélag að þá er um að ræða að þínu mati eitthvað skaðlegt á ferðinni?

Mofi, 13.6.2008 kl. 13:35

67 identicon

Þú inni í herbergi á skeljunum... hef ekkert við því að segja, ég hef basically ekkert að segja við trúarbrögðum sem halda sig á mottunni, skipta sér ekki af þjóðfélaginu/stjórnmálum/menntun með trúardæmi... ég hef ýmislegt að athuga við batterí eins og Omega sem er ekkert nema ein stór viðbjóðsleg svikamilla..
Omega flaggar fáráðling í dag sem segist lækna heyrnarlausa, blinda bla bla, jafnvel í gegnum sjónvarpið.. ég hef ýmislegt að athuga sem slíkt, ég hef ýmislegt að athuga með Benny Hinna þessa heims og alla þá sem sópa að sér auðæfum í gegnum trú.
Ég hef ýnislegt að athuga með páfann og vatíkanið, íslam og allt annað rugl.
Mér er skítsama hvort trúað fólk hittist og chilli..

DoctorE (IP-tala skráð) 13.6.2008 kl. 13:44

68 Smámynd: The suburbian

Hélt ég ætti seint eftir að segja þetta en.....ég er actually SAMMÁLA Doktornum. Þetta Omega dæmi er líka að mínu mati ein stór svikamilla og peningaplott þar sem prettaðir eru þeir sem minna mega sín í samfélaginu. Ég þoli ekki helgislepjusmetti sem betla peninga af fólki og segja nánast að fólk fari beina leið til helvítis ef það láti ekki eitthvað af hendi rakna til þeirra. Reyndar er einn gaur þarna ógislega fyndinn og maður getur velst um af hlátri yfir honum en það er hann þarna Elvis...Laufdal eðalsöng-og gítarleikari. Það ætti eiginlega að senda hann í Evróvisjón á næsta ári

The suburbian, 13.6.2008 kl. 15:32

69 Smámynd: Nanna Katrín Kristjánsdóttir

Þetta var eiginlega óborgarlega fyndið.  Það góða við þetta er að kristnir geta tekið þessu(flestir allavega).  Held að flestir hafa bara hlegið að svarthöfða sem var pínu lost þarna.  Þetta vara bara fyndið.

Nanna Katrín Kristjánsdóttir, 13.6.2008 kl. 16:00

70 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Mofi: Free to practice not penetrate.

Jón Steinar Ragnarsson, 13.6.2008 kl. 19:26

71 identicon

Hæ Guðsteinn. Gaman af þessu.

Vita prestarnir nokkuð af þessum árásarmanni bak við sig?? Hehehe fyndið þetta.

Vildi bara vekja ath. á þessu. Elsta kirkja heims er fundin,

Petur Einarsson (IP-tala skráð) 13.6.2008 kl. 19:59

72 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Þetta er fróðlegt hjá Pétri Einarssyni.

Sigurður Þórðarson, 13.6.2008 kl. 22:35

73 identicon

Ég má til með að nefna að tiltekin klíka innan guðfræðideildarinnar var kölluð “svartstakkar” vegna íhaldsamra skoðana sinna. Nú er bara að ákveða hve aftarlega við byrjum að telja.

Styttingur (IP-tala skráð) 13.6.2008 kl. 23:24

74 Smámynd: Bumba

Þetta er nú meira ofstækið og vitleysan, en svo sannarlega er ég sammála Ragnari Erni, þetta vesalings fólk svífst einskis til að komast í fréttirnar, þvílíkur anarkismi. Með beztu kveðju.

Bumba, 14.6.2008 kl. 10:05

75 Smámynd: Matthías Ásgeirsson

Ragnar Örn, ekki yfirfæra þínar saurugu fantasíur yfir á aðra.

Ef þessir "athyglissjúku hálfvitar" myndu gera allt til að koma í fréttirnar, af hverju hafa þeir þá ekki komið í fréttunum?  

Getur verið að þú sért pínkulítið tregur Ragnar?

Matthías Ásgeirsson, 14.6.2008 kl. 18:02

76 Smámynd: Bumba

Guðsteinn minn Haukur, ekki yrði ég hissa á því þó þessir gubbar sem stóðu á bak við svarthöfða endurtaki leikinn að ári og klæðist þá búrku, hehehehehehehheeh. Trúandi væri þeim til,  , allt fyrir athyglina. Hehehehheeh. Með beztu kveðju.

Bumba, 15.6.2008 kl. 20:55

77 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Ekki var þetta málefnanlegt hjá þér Ragnar, og talar þú ekki svona í mínum húsum (bloggi) ég verð að biðja þig um virða reglur um almenna kurteisi.

Öðrum þakka ég innlitið. 

Guðsteinn Haukur Barkarson, 16.6.2008 kl. 09:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Guðsteinn Haukur

Guðsteinn Haukur Barkarson
Guðsteinn Haukur Barkarson

"Our life is a gift from God,
what we do with that life,
is our gift to God"

Höf. óþekktur

Sjá höfundasíðu fyrir ákveðna skilmála og upplýsingar um bloggarann 

Önnur snilld...

Hvaða þjóðir heimsækja þetta blogg?

free counters

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 587745

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 18
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Skoðanna könnun

Á að aðskilja ríki og kirkju?

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband