Gott hjá þeim Páfagarði !

Þeir eiga hrós skilið fyrir þetta framtak hjá Páfagarði, þeir eru hættir að hugsa um hina vondu illu Ferrari bíla og farnir hugsa eins og menn. Íslamsríki hafa ætíð lokað á önnur trúarbrögð í sínum löndum, þeir leyfa hvorki trúboð né neinar byggingar á flestum löndunum. Afhverju ætti þá vestræn menning að opna dyrnar fyrir þeim? Þeir hafa allt önnur gildi en vestur-evrópubúar og getur stundum orðið kalt þar á milli. Þess vegna finnst mér Páfagarður sýna hugrekki með þessu! 
mbl.is Ritari páfa segir íslam ógna evrópskri sjálfsímynd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: halkatla

en er þetta ekki "too little to late"? annars mjög skemmtileg tilbreyting frá vanalegu þrasi í Vatíkaninu... og við verðum líka hreint út sagt að dást að því hvað múslimar eru duglegir að taka trú sína alvarlega, á meðan evrópubúar hafa gefið sig heiminum á vald

halkatla, 27.7.2007 kl. 18:00

2 identicon

Kaupum ferrari og keyrum á alla vondu kallana, verum illmenni undir stýri, páfi breytir bara bílaboðorðunum..
Aktu eigi sem fantur sé nema múslimi sé á vegi ;)

DoctorE (IP-tala skráð) 27.7.2007 kl. 18:17

3 Smámynd: Margrét St Hafsteinsdóttir

Vil benda á að Páfagarður hefur ekkert verið duglegur að styðja konur og kvenréttindi. Mér finnst þetta bara vera eitt bullið enn sem kemur frá þeim skv. þessari frétt.

Kvenréttindi voru mest í Írak af öllu löndum í ME og það gleymist alltaf í umræðunni.   

Margrét St Hafsteinsdóttir, 27.7.2007 kl. 19:36

4 Smámynd: Linda

Mér þykir þetta merkileg frétt að því leitinu til að Þeir eru "fyrstir" sem þora að standa upp og segja "nei".  Flest kristileg félög dansa á tánum í kringum Íslam svo þeir móðgi þá nú ekki.  Já, það er alltaf hægt að koma manni á óvart.

Linda, 27.7.2007 kl. 22:21

5 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Meint kvenréttindi í Írak skipta ekki neinu máli ef þau náðust undir ógnarstjórn Saddam og Co.  Kvenréttindi geta verið of dýru verði keypt, ef þúsundir barna og Kúrda voru myrt meðan að íraskar konur öðlauðust þau. Hitler var líka mikil vinur kvenréttinda og konur rómuðu hann. Það gleymist svo margt í umræðunni, Margrét.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 27.7.2007 kl. 22:24

6 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Ef ég hefði fæðst í Íran... hefði ég þá trúað á Jesús eða Múhameð?
Hefði mér fundist Páfinn vera gera gott? Ef ég hefði fæðst í miðjum skógi án samband við nokkrar manneskjur... kæmist ég þá til himna?

 Við megum ekki vera svona blind... Guð er góður og við sköpum sögur, stríð og annað rugl í kringum hann og það versta er að ALLIR eru að gera rétt!

 Ég ELSKA Guð en ekki söguna.



Gunnar Helgi Eysteinsson, 27.7.2007 kl. 23:18

7 identicon

Já, ekki gleyma því að ef islam væri hin almenna trú á Íslandi þá væruð þið islamistar, vonum bara að enn annað trúarstríðið berist ekki um heiminn.. reyndar held ég að það hafi aldrei hætt.
Ég sé bara eitt sem lausn og það er betri almenn menntun.... eða nei það virkar ekki heldur... spurning um þroska held ég

DoctorE (IP-tala skráð) 27.7.2007 kl. 23:44

8 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Anna Karen, þú hittir naglan á höfuðið - þetta er því miður staðreynd sem er alveg hárrétt. Við hér á vesturlöndum erum hálvolg hvað þetta varðar og verjum ekki lengur trú okkar og gildi eins og við ættum að gera.

Gunnar, ég er sammála - það eru forréttindi að búa í Kristnu landi.

Magga, Vilhjámur svaraði beint frá mínu hjarta. Og þakka ég honum viturleg orð. 

Skúli, já það er kominn tími á að þeir vakni til lífsins.

Linda, algjörlega sammála, það sem mér finnst mikilvægt við þessa yfirlýsingu er að jafn stór og sterk kirkja sem kaþólska kirkjan er, skuli hafa kjark til þess að gefa út svona yfirlýsingu. Þetta á eftir að verða fordæmi sem aðrar kirkjudeildir eiga eftir að fylgja. Guð blessi þá fyrir það, enda eru þeir bræður í Kristi. 

Gunnar, takk fyrir þitt innlegg og skil ég meiningu þína, en fyrir mér persónulega er hún ekki svona einföld. Ég vildi að svo væri. 

Dokksi, já þetta er einmitt spurning um þroska - sá þroski felst í því að loka ekki augunum fyrir hættunni sem blasir við. Sá þroski felst í því að verja þau gildi sem við stöndum fyrir og eru öll byggð á kristilegum grunni. Þess vegna er mikilvægt að taka skýra afstöðu. 

Annars þakka ég öllum innlitið og góð komment. Guð blessi ykkur öll.

Guðsteinn Haukur Barkarson, 28.7.2007 kl. 00:24

9 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Annars vil ég segja að þótt ég hafi aldrei verið mikill aðdáandi kaþólika, og hef ég mjög oft gagnrýnt þá og þeirra stefnu bæði í orði og riti. En nú legg ég fordóma mína til hliðar og styð hina kristna bræður mína í þessu máli. Eða eins og sagt er: "sameinaðir stöndum vér, sundraðir föllum vér". Og gaman er að sjá trúbræður hér lýsa sama stuðningi við þessa yfirlýsingu, sem eru greinilega jafn hrifnir af þeim og æeg, en þetta er eitthvað sem vonandi vekur allar kirkjudeildir af værum svefni. Þeir eiga hrós skilið fyrir þetta hugrekki, og ekkert annað.

Guðsteinn Haukur Barkarson, 28.7.2007 kl. 00:32

10 Smámynd: Ingvar Valgeirsson

Fyrirgefðu, Haukur, en þú virðist hafa gleymt að blogga fréttina um að aðstoðarorkumálaráðherra Bandaríkjanna sé staddur hérlendis. Restina ertu samt með...

Kipptu þessu nú í liðinn.

:)

Ingvar Valgeirsson, 28.7.2007 kl. 18:14

11 Smámynd: Margrét St Hafsteinsdóttir

Ég segi bara.......burt með trúarbrögðin og verum bara almennilegar manneskjur. Trúarbrögð og rifrildi og átök um hver eigi mestu og bestu trúna er bara rugl.  Ef Guð er til, þá er hann yfir þetta hafinn.

Margrét St Hafsteinsdóttir, 28.7.2007 kl. 18:58

12 identicon

Málið er ekki svo einfalt að hægt sé að segja : Engin trúarbrögð ! Það getur aldrei orðið ( Fact ) Hins vegar er hægt að segja: Ein trú .

Og eins og allir vita, einkennir það land eins og Ísland . Því er svo og er = Mörg trúarbrögð : Mörg vandamál . Eitt trúarbragð = Færri vandamál . 

Semsagt : Trú verður ekki afnumin úr landi voru, og því höldum við þeirri einu og sönnu og afþökkum allar aðrar, og friðurinn helst . 

enok (IP-tala skráð) 29.7.2007 kl. 11:50

13 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Ingvar, hvað ertu að tala um? Ég er ekki alveg að skilja þig.

Enok, frábært innlegg! Ég er alveg sammála þér!

Magga, þú leysir engan vanda með því afnema trúarbrögð. Eins og Enok bendir á, það er búið flækja hlutina um of. 

Guðsteinn Haukur Barkarson, 29.7.2007 kl. 12:19

14 Smámynd: halkatla

ég er reyndar hlynnt því að við finnum hvert og eitt okkar eigin leið og séum ekki sífellt að agnúast útí það sem öðrum finnst virkilega gott, ekki nema það sé góð ástæða. Hér ættu að geta þrifist mörg trúarbrögð, þó að það nú væri, allt þartil eitt þeirra fer að gera sérkröfur og níðast á hinum trúarbrögðunum. Þegar kemur að samanburði á Islam og t.d kaþólskri kirkju þá þarf ekki nema að líta á söguna og samfélögin og bera þetta tvennt saman. Það er ekki hægt að tala um nein kvenréttindi í Islam en það er allt önnur saga hjá kaþólikkum. þetta tvennt er bara ekki samanburðarhæft, amk finnst mér leiðinlegt að sparka í minnimáttar, meiraðsegja þó að það sé Islam.

halkatla, 29.7.2007 kl. 16:11

15 Smámynd: halkatla

ég er alls ekki að segja að kristnin hafi verið eitthvað slæm, alls ekki, bara að það getur vel verið friður hér þó að allir séu ekki kristnir

halkatla, 29.7.2007 kl. 16:12

16 Smámynd: Ingvar Valgeirsson

Hauksi minn, ég var bara að skjóta eilítið á þig fyrir að bloga um ALLAR fréttir á mbl.is.

:)

Ingvar Valgeirsson, 29.7.2007 kl. 17:35

17 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Sammála Anna Karen, ég skil hvað þú ert að fara, Takk fyrir þetta.

Ingvar, 3 fréttir í fyrradag, enginn í gær og 1 í dag. Já, ég tók aldeilis moggavefinn í gegn. Enda er ég hálf þreyttur eftir ALLT þetta. 

Guðsteinn Haukur Barkarson, 29.7.2007 kl. 22:39

18 Smámynd: Ingvar Valgeirsson

:)

Ingvar Valgeirsson, 29.7.2007 kl. 23:32

19 Smámynd: Svartinaggur

Það er trúfrelsi á Íslandi. Því verður að gera múslimum jafnhátt undir höfði og öðrum trúarhópum. Einnig er brýnt að ríkið styrki múslima á Íslandi í að byggja veglega mosku. Jafnvel mætti skoða að afhenda múslimum Perluna í Öskjuhlíð til eignar og ráðstöfunar.

Svartinaggur, 3.8.2007 kl. 05:06

20 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Baldur Heiðar, rétt er það - sumir kristnir söfnuðir eru ekki sköminni skárri, ég ítreka að ég er enginn kaþólika fan, þetta er í fyrsta sinn sem ég nokkurntíma sammála þeim. En það ert þú sem ert ekki nógu víðsýnn og bið ég þig um að fylgjast betur með fréttum sem og kynna þér trúarbragðið. Þá sérðu afhverju ég tala á þessa leið.

Svartinaggur, ég þekki þig og veit að þú ert að hrekkja mig - ;)

Guðsteinn Haukur Barkarson, 3.8.2007 kl. 09:40

21 Smámynd: Svartinaggur

Jamm, það er ekkert orðið varið í að henda knallettum hérna inni. Menn brosa bara. En nú ertu aftur farinn að tala um trúarbragð. Ætli það eigi eikkva skylt við jarðarberjabragð?

Svartinaggur, 3.8.2007 kl. 10:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Guðsteinn Haukur

Guðsteinn Haukur Barkarson
Guðsteinn Haukur Barkarson

"Our life is a gift from God,
what we do with that life,
is our gift to God"

Höf. óþekktur

Sjá höfundasíðu fyrir ákveðna skilmála og upplýsingar um bloggarann 

Önnur snilld...

Hvaða þjóðir heimsækja þetta blogg?

free counters

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 11
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Skoðanna könnun

Á að aðskilja ríki og kirkju?

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband