Sjálfsögð réttindi !

Mikið er ég ánægður að sjá þetta framtak! Ég er Grindvíkingur og þykir vænt um mína sveit! Ég vil ekki sjá svona vítisvél í minni gömlu heimabyggð. Nógu slæmt er að hafa þennan viðbjóð sem er í Hafnarfirði! Ég hvet suðurnesjamenn til þess að snúa bökum saman og krefjast kosninga um þetta, af því loknu hvet ég sveitunga mína til þess að hafna þessum ófögnuði! Angry

Vatnið sem kemur úr hitaveitu suðurnesja er með því hreinna á Íslandi, höldum því annars endar þetta eins og spaugstofan benti á í gær, Hafnfirðingar þurfa varla að bursta í sér vegna flúorsmengunar í vatninu þeirra. Sick


mbl.is Hvatt til íbúakosninga um álver á Suðurnesjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingvar Valgeirsson

Álver eru yndisleg. Láttu svo ekki eins og versti kommúnisti.

Hinsvegar má henda einu á Húsavík, þar sem allt annað hefur klikkað í atvinnulífi staðarins. Kominn tími á að hætta með ríkisstyrktar harðviðarvinnslur og gróðursetja bara álver. Það væri líka knúið jarðvarma svo maður þyrti ekki að hlusta á vælið í einhverjum heilhveitis virkjunarandstæðingum, sem halda að rafmagnið verði til í innstungunum.

Minnir mig samt á að ég þarf endilega að redda mér spileríi í Grindavík. Lék þar oft í gamla daga og Grindjánar eru ágætisfólk.

Ingvar Valgeirsson, 15.4.2007 kl. 20:06

2 Smámynd: Linda

yeah áfram sól á suðurnesjum.  Vonandi fáið þið þetta í gegn. Þ.a.s kosningu.

Linda, 15.4.2007 kl. 20:16

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Gangi ykkur vel.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 15.4.2007 kl. 20:25

4 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Ingvar, komdu með einhver rök fyrir fleiri álversframkvæmdum, afhverju sjá menn ekki sólina fyrir slíkum mengunartækjum? Það eru til margar aðrar leiðir til þess að skapa atvinnu, til dæmis með að efla menntun og hugvit til þess að koma af stað nýsköpun. Álvershugmyndir eru hugmyndir steinaldarmanna sem sjá ekki þá kosti sem íslendinga hafa að geyma. Í öðrum orðum sjálfgræðismanna og framsóknarmanna.

Einnig vil ég þakka Lindu og Áasthildi fyrir innlitinn. Guð blessi ykkur báðar. 

Guðsteinn Haukur Barkarson, 15.4.2007 kl. 21:22

5 Smámynd: Ingvar Valgeirsson

Ég tel fullreynt með allt annað á Stór-Húsavíkursvæðinu. Svo má benda á að álver verða reyst einhversstaðar og þá finnst mér allt í lagi að hafa þau hér frekar en olíu og kolaknúin í Mexíkó eða annarsstaðar, hvar mengunareftirlit er ívið minna við lýði en hér. Svo eru þau byggð fyrir útlenskan pjéning og eitthvað sem slær á viðskiptahallann sívinsæla er gott og blessað.

Svo hef ég aldrei skilið af hverju menn telja álver koma í veg fyrir nýsköpun eða dragi úr hugviti - það er vel hægt að hafa bæði, þó svo álversandstæðingar tali alltaf eins og við verðum að velja. Það mætti halda af umræðunni að ef álver verða hér reist fleiri muni tölvufræðikennsla verða lögð af í skólum, Kaupþing fara á hausinn og Björk missa röddina.

Svo er það nú að álver eru fyrirtaksvinnnustaður lítið menntaðs fólks, borga þokkalega og starfsfólk helst þar í vinnu áratugum saman, þrátt fyrir mikið framboð á annari vinnu, s.s. fólk er ánægt í vinnu. Þeir sem ekki geta, eða hafa ekki áhuga á að semja mússík, hanna tölvuleiki, selja hlutabréf, sýsla með peninga, búa til bíómyndir, skrifa skáldsögur eða smíða íþróttahvetjandi barnaefni fyrir sjónvarp geta þá bara unnið hamingjusöm í álveri. Jibbí. Má líka benda á, þar sem sífellt er verið að benda á að stór prósentuhluti áls í heiminum fari í gosumbúðir og það einnota (eins og það eigi að vera eitthvað neikvætt) að yfir 80% þess áls sem unnið hefur verið í heiminum er enn í notkun.

Reisum bara álver við Húsavík og köllum það gott í bili - þú þarft aldrei að sjá það svo það fer ekki í taugarnar á þér og við getum látið eins og við vitum ekki af því.

Annars er ég bara hress, fyrir utan að Barry Nelson var að hrökkva upp af - þeir deyja ungir sem guðirnir o.s.frv.

Ingvar Valgeirsson, 15.4.2007 kl. 22:41

6 Smámynd: Ingvar Valgeirsson

Biðst velvirðingar á stafsetningarvillu - ég veit að það er ekki ypsílon í "reist".

Ingvar Valgeirsson, 15.4.2007 kl. 22:42

7 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Ingvar, ál er heilsuspillandi þegar það er notað í matvælaiðnaði. Það gefur út frá sér smit sem safnast upp í líkamanum, þetta smit man ég ekki alveg hvað heitir, en það sem gerist þegar drykkir og önnur matvæli eru sett í ál, þá eitrar álið út frá sér og fer útí afurðina. Þannig að aukinn noktun áls er ekki af hinu góða.

Guðsteinn Haukur Barkarson, 15.4.2007 kl. 23:57

8 Smámynd: Ingvar Valgeirsson

Plast hefur líka sína ókosti, það er jú unnið úr olíu og hún er heldur betur af skornum skammti, auk þess að smitast líka út í matinn. Pappír er úr trjám og ekki viljum við eyða þeim öllum. Ef marka má kannanir er líka allur ansk... heilsuspillandi og ég ætti að vera steindauður úr allkonar eitrunum fyrir löngu síðan. Ég hef ekki heyrt þetta með áleitrunina áður, en það skiptir ekki máli, þar sem við þurfum ekki að éta álið sjálfir þó við framleiðum það.

Annars var ég að horfa á 60 minutes áðan, hvar var umfjöllun um kjarnorkuver. Datt í hug að skárra væri að hafa jarðvarma eða vatnsfallaknúið álver hér en kjarnaknúið annarsstaðar. Eins og ég hef áður sagt ættum við að margstífla nokkrar ár og athuga möguleikann á að flytja út rafmagn, t.d. gegnum sæstreng eða eitthvað... nú er ég kominn langt út fyrir efnið og farinn að sofa.

Ingvar Valgeirsson, 16.4.2007 kl. 01:39

9 Smámynd: Margrét Elín Arnarsdóttir

Þá er bara að byrja á sjálfum sér og hætta að drekka kók, hætta að keyra, hætta að fljúga o.s.frv. Practice what you teach og allt það. Frekar íronískt að tala um hvað ál sé slæmt og keyra svo um á bíl úr áli, fljúga í flugvél úr áli, drekka gos í áldós, ganga með merki úr áli, nota álpappír all reglulega; eru ekki líka umhverfisvænu hjólin okkar (og þá meina ég það vel, finnst frábært þegar fólk hjólar um í stað þess að keyra þessa litlu spotta sem eru hér innanbæjar) úr áli?

Já við þurfum að fara að líta í eigin barm áður en við látum út úr okkur skammaryrðin í garð manna sem ekki eru á móti álverksmiðjum...

Já og tölvur, hættum að nota tölvur, þær eru úr áli, allavega tölvukubbarnir allir þarna inni í tölvunni minni. Hætta þessu bloggi bara og vælinu í leiðinni...

Margrét Elín Arnarsdóttir, 16.4.2007 kl. 01:42

10 Smámynd: Margrét Elín Arnarsdóttir

átti að vera preach en ekki teach að sjálfsögðu - þreytan farin að segja til sín í próflestrinum ;)

Margrét Elín Arnarsdóttir, 16.4.2007 kl. 01:45

11 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

Ljós

Steina

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 16.4.2007 kl. 08:11

12 Smámynd: Þórdís Bára Hannesdóttir

Hún Margrét Elín hittir naglann nákvæmlega á höfuðið.  Byrja hjá sjálfum sér, loksins talar einhver af viti.

Þórdís Bára Hannesdóttir, 16.4.2007 kl. 14:01

13 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Ég skil ekki alveg hvað þessi umræða er kominn útí. Hver var að tala um að vera svona öfgafullur eins og Margrét Elín talar um? Enginn. Ég tók þetta dæmi með skaðsemi áls einungis til þess að benda á að það væri skaðsemi af áli, ekkert annað. Auðvitað er skaðsemi af öllum hlutum, eins og áli og plasti, ég er alls ekki að boða það að við hættum að nota slíkt. Enda finnst mér þessi upptalning hennar Margrétar Elínar svo öfgafull að hálfa væri nóg. Komið frekar með um afhverju við ættum að reisa álver, frekar en svona röklausann fagurgala!

Guðsteinn Haukur Barkarson, 16.4.2007 kl. 15:53

14 Smámynd: Linda

 vá maður, ég er að hugsa um að hætta leysa vind (óvart) gæti valdið fellibyl í út í heimi..hehe sorry einhvar púki í mér..knús  allir sætir hér og skemmtilegar athugasemdir.

Linda, 16.4.2007 kl. 16:28

15 Smámynd: Ingvar Valgeirsson

Eins og ég sagði áður og mun segja aftur - athugum alla möguleika, en álver kemur ekki í veg fyrir að menn taki sér eitthvað annað fyrir hendur. Þarf að hætta við álvinnslu svo að menn geti gert eitthvað annað?

Eins, Haukur, hér er ástæða fyrir því að við ættum að leyfa álveri að rísa í nágrenni Húsavíkur (VIÐ reisum ekkert álver, leyfum bara öðrum að gera það) - það hefur allt klikkað sem hefur verið reynt þar. Ef þú kannt aðra lausn á atvinnuvandanum þar væri það vel þegið, en þetta virðist nokkuð þokkaleg lausn. Svo yrði það reist fyrir útlenskan pjéning, svo ekki yrði það eins og margríkisstyktar harðviðarverksmiðjur á svæðinu og kostaði oss ekki krónkall eð gati þó það klikki.

Ingvar Valgeirsson, 16.4.2007 kl. 18:32

16 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Ég vil byrja á því að þakka Pétri og Lindu fyrir innlitið.

En Ingvar, ég held að allir hér séu að rangtúlka og misskilja mín orð. Það er hárrétt hjá þér að allt hefur verið reynt á Húsavík. Kannski er sá staður ákjósanlegur kostur þar sem verksmiðja þar fór nýlega á hausinn og stendur að ég held yfirgefinn. Það væri hægt að bjarga þeirri verksmiðju og setja þar upp álver, það er þó skárra en yfirgefinn verksmiðja.

En varðandi atvinnuleysið þar er hægt að leysa það á margan veg. Stjórnvöld hafa brugðist í þeim efnum og hafa ekki flutt nein störf eins og þau lofuðu. Það eru margar stofnanir á vegum ríkisins sem vel mætti flytja norður til Húsavíkur. Við gætum að minnsta kosti byrjað á því. Einnig hafa stjórnvöld nánast eyðilagt ferðamannaiðnað á Húsavík þar sem hvalaskoðun er stór atvinnugrein, það má ráða bót úr því. Einnig ber að nefna að leggja það til við stórfyrirtæki að opna þar sín bakvinnslusvið á stöðum sem þessum.

Það eru til margar leiðir, með og án álvers. En Ingvar þér til hróss, hefur þú verið sá eini sem hefur haft eitthvað vitrænt að segja, ég vil þakka þér fyrir góða og málefnanlega umræðu.    

Guðsteinn Haukur Barkarson, 16.4.2007 kl. 20:48

17 Smámynd: Margrét Elín Arnarsdóttir

Ég var ekki að vera öfgafull heldur einmitt að koma með hinn vínkilinn á málinu. Umræðan hefur svolítið verið bara ál er vont, álverksmiðjur er komnar frá djöflinum, og þá tala ég(skrifa) í myndlíkingu. Fólk þarf svolítið að líta í eigin barm þegar kemur að umhverfisvernd - það er punkturinn sem ég er að setja fram hér!!!

Margrét Elín Arnarsdóttir, 16.4.2007 kl. 22:00

18 Smámynd: Margrét Elín Arnarsdóttir

Já og Pétur, komdu endilega með hugmyndir að öðrum atvinnumöguleikum. Húsvíkingar hafa reynt allt annað en kannski að þú getir hjálpað þeim

Margrét Elín Arnarsdóttir, 16.4.2007 kl. 22:03

19 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Margrét, ég þakka gott komment, ég skil þig betur núna.

Guðsteinn Haukur Barkarson, 16.4.2007 kl. 23:13

20 Smámynd: Margrét St Hafsteinsdóttir

Hvað sem öllu líður, þá er ég hlynnt íbúakosningum

Margrét St Hafsteinsdóttir, 16.4.2007 kl. 23:49

21 Smámynd: Ingvar Valgeirsson

Það er búið að flytja fullt af störfum út á land með ærnum tilkostnaði. Mér finnst það reyndar hálfgerður glæpur, þar sem Ríkið á að rekast með sem fæstum starfsmönnum og minnstum tilkostnaði, ekki moka endalaust í störf, bara til þess að viðhalda einhverjum tilgangslitlum störfum á einhferjum stöðum. Að þessu leyti hafa stjórnvöld brugðist skattgreiðendum, með því að eyða of miklu af skattfé okkar í að senda störf þangað sem þau eru ekki unnin með sem minnstum tilkostnaði. Má einnig benda á að margfalt meiru er eytt í að byggja upp samgöngur og atvinnu á landsbyggðinni en á Stór-Reykjavíkursvæðinu.

Hvalaskoðun var svo aldrei stór atvinnugrein. Þau stjórnvöld, sem þú segir að hafi brugðist í atvinnumálum, hafa eflaust búið til fleiri störf á Húsavíkursvæðinu en töpuðust í hvalaskoðunargeiranum- ber að taka fram að það voru náttúrulega ekki stjórnvöld sem eyðilögðu þau störf, heldur ofstækisfullir "náttúruverndarsinnar", sem láta ekki smáatriði eins og sannleikann stoppa sig í að beita hótunum eða jafnvel skemmdarverkum.

En verksmiðjan sem stendur auð er eflaust talsvert minni en þarf undir álver. Þar með fá einhverjir vinnu við að byggja hús...

Ingvar Valgeirsson, 16.4.2007 kl. 23:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Guðsteinn Haukur

Guðsteinn Haukur Barkarson
Guðsteinn Haukur Barkarson

"Our life is a gift from God,
what we do with that life,
is our gift to God"

Höf. óþekktur

Sjá höfundasíðu fyrir ákveðna skilmála og upplýsingar um bloggarann 

Önnur snilld...

Hvaða þjóðir heimsækja þetta blogg?

free counters

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 33
  • Frá upphafi: 587812

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Skoðanna könnun

Á að aðskilja ríki og kirkju?

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband